Dagur - 22.05.1968, Qupperneq 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Hvernig á að koma
börnunum í sveil?
BÖRN hafa lokið eða eru að ljúka
skólavist. Mörg móðirin spyr: Hvem
ig á ég að koma barninu mínu í
sveit? Sem fyiT, er það álit foreldra,
að það sé börnunum heilsusamlegt
bæði fyrir sál og líkama og á allan
hátt heppilegt fyrir bæjarbörn, að
dvelja sumarlangt á sveitaheimilum
og taka þátt í störfum fólks, að því
leyti sem það er við þeirra hæfi og
umgangast húsdýr. Það var áður al-
gengt, og oftast tiltölulega auðvelt
að koma börnunum fyrir. En nú er
öldin önnur í þessu efni. Fjölbýlis-
börnunum hefur fjölgað en sveita-
fólki fækkað og vélar hafa komið í
stað vinnandi handa í sveitum. Að
sækja hesta, færa fólki mat á engjar,
fara með heybandslestir, snúa heyi í
flekk með hrífu o. s. frv., eru. allt
störf, sem að miklu leyti heyra nú
fortíðinni til. Það er jafnvel liætt að
reka kýmar í haga, að nokkru leyti.
Og sauðburður er oft búinn eða
langt kominn þegar bömin losna úr
skólum. Allt miðar þetta að því, að
torvelda bömum að vinna gagnleg
störf í sveit, sem var þeim hollasti
þáttur sveitadvalarinnar.
Á allra síðustu ámm hafa einstöku
bændur tekið mörg böm til sumar-
dvalar, heilan hóp, jafnvel nokkra
tugi. Það er ekki til að létta bústörf
heldur er hér um að ræða bama-
heimili. Eflaust getur þetta verið
hagkvæmt á báðar hliðar, en krefst
starfsfólks, sem kann sitt verk, í stað
þess að kaupstaðarbömin gangi til
starfa með heimilisfólkinu, þar sem
þau eru eitt eða fá á bæ.
Á tveimur eða þremur undanföm
um þingum hefur Ingvar Gíslason
ásamt tveimur öðmm alþingismönn
um hreyft tillögu þess efnis, að
stjórnarvöldin í landinu láti athuga
þetta mál og gera tillögur um stofn-
un sumarheimila í sveitum, þar sem
m. a. börnunum væri séð fyrir við-
fangsefnum við hæfi, er gæti orðið
þeim að sem mestum notum, til al-
hliða þroska. Bent er á, að þar komi
gæzla húsdýra og ræktunarstörf
mjög til greina.
Ennþá liefur meirihluti Alþingis
ekki fallizt á að eiga frumkvæði
þessa máls. En trúlega kemur að því
fyrr eða síðar, að það þyki þess virði.
Félög og einstaklingar hafa að vísu
sýnt talsvert framtak í málinu. En
fleira mun þurfa til að koma. □
KVEÐJA AÐ VESTAN
Jón St. Melstað
Hallgilsstöðum
Fæddur 29. okt. 1881 - Dáinn 17. apríl 1968
JÆJA, Jón frændi. Þú ert far-
inn. Við þessu mátti búast, því
að þú varst orðinn 86 ára gamall
og búinn að skila miklu dags-
verki.
í prestsþjónustubók hef ég
séð, að foreldrar þínir, Stefán
Jónasson afabróðir minn og
Ingibjörg Margrét Eggertsdótt-
;ir, 'voru gefin saman í hjóna-
band í kirkjunni á Breiðabóls-
stað í Vesturhópi 16. febrúar
1878. Það ár áttu þau heima í
Me.lrakkadal í Víðidal, en flutt-
ust á næsta ári að Litluhlíð,
sem er innarlega í sömu sveit.
Þar bjuggu þau í sjö ár og eign
uðust nokkur börn, en sum af
þeim dóu á unga aldri.
Á þessum árum gengu harð-
indi yfir landið, og lífsbaráttan
var hörð fyrir barnafjölskyldur,
sem höfðu óhentugt jarðnæði.
En faðir þinn og móðir voru
dugleg og vandanum vaxin. Þið,
börnin þeirra, sem upp komust,
voruð góðum hæfileikum búin
og dugandi fólk.
Á síðustu áratugum hafa
nokkur býli innst í Víðidal og í
Miðfjarðardölum, á mörkum
byggðar og heiðar, farið í eyði.
En einhver vemdarvættur virð
ist vaka yfir Litluhlíð, kotinu
þar sem þú fæddist. Þar býr nú
ungur dugnaðarmaður, sem hef
ur stækkað túnið, byggt yfir
fólk og fénað og hefur þar all-
gott bú. Þar er ágætt sauðland.
Þú varst innan við fermingar
aldur þegar þú fórst úr foreldra
húsum til að vinna fyrir þér.
Þar gekkst þú í harðan skóla,
en laukst pi-ófi úr honum með
prýði. Það bar vott um dugnað
og framsóknai-hug, að um alda-
mótin, þegar þú varst tvítugur,
fprst þú til annars lands, til að
kynnast háttum manna þar og
læra af þeim. Heim kominn úr
þeirri föi' leiðbeindir þú mönn-
um í átthögum þínum við að
nota hestaverkfæri, plóga, herfi
og sláttuvélar, við ræktun og
heyskap. Síðan fórst þú til Ak-
ureyrar, en þangað voru for-
eldrar þínir og systkini komin
á rmdan þér. Aðeins eitt af syst
kinum þínum, Guðrún, varð
eftir fyrir vestan og vann þar
sitt ágæta lífsstarf.
Þú varst sá hamingjumaður
að hitta góða konu í Eyjafirði,
sem varð þinn lífsförunautur.
Þú hefur verið góður liðsmaður
í félagsmálum Eyfirðinga, og
einn af mikilvirkum ræktunai'-
mönnum og góðbændinn þar í
héraði. Og börnin ykkar hjón-
anna eru manndómsfólk.
Það var alltaf gaman að hitta
þig, Jón frændi. Það fylgdi þér
hressandi blær, og líf og fjör
var í för með þér. Ég hef kynnzt
sumum af sonum þínum og haft
ánægju af. Þeir eru hressir í
anda og skemmtilegir eins og
þú. Ná hljóði úr hvers manns
munni. Ég kannast við þetta,
því að fleiri menn í okkar ætt
geta gripið til þeirrar íþróttar.
En allt er það græskulaust og
aðeins til gamans.
Ég veit ekki hvað við tekur
þegar hérvistinni lýkur, en geri
ráð fyrir að það sé eitthvað okk
ur hentugt. Ekki þykir mér ótrú
legt að þú fáir næg og góð verk
efni hjá Pétri á Efstabæ, því að
þú munt kunna því betur að
hafa eitthvað fyrir stafni er til
heilla horfir, eins og fyrri dag-
inn.
Ég þakka þér innilega fyrir
ánægjulegar samverustundir og
óska þér alls hins bezta. Einnig
konu þinni og afkomendum
ykkar.
Vertu blessaður og sæll.
Þinn Skúli Guðmundsson.
SUMARGJÖF TIL FSA
HJÚKRUNARKVENNAFÉ-
LAGIÐ á Akureyri færði barna
deild Fjórðungssjúkrahússins
góðar gjafir þann 15. maí sl.
Það voru fjórar barnavöggur á
hjólagrindum og blóðþrýstings-
mælir, að verðmæti 50 þús. kr.
Formaður félagsins, frú Ragn
heiður Ámadóttir, afhenti gjaf-
irnar og gat þess, að félagskon-
ur hefðu aflað fjár til þeirra
undanfarin tvö ár með kaffi-
sölu og jólabazar.
Forráðamenn Fjórðungs-
sjúkrahússins veittu gjöfum
móttöku og sögðu þær koma í
góðar þarfir og þökkuðu vin-
semd og hlýhug í garð sjúkra-
hússins.
(Fréttatilkynning)
- MIN JASAFNIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
um hvort kasta eigi þeim á
hauga, að hafa samráð við sig
áður.
Söfnin í bænum bera vott um
menningu bæjar- og sýslubúa,
og um ást á þeim menningar-
arfi, sem við megum sízt án
vera. □
- Samvinutryggingar
(Framhald af blaðsíðu 1).
Heildariðgjaldatekjur Líf-
tryggingafélagsins Andvöru
námu á árinu 3.6 millj. kr. og
höfðu aukizt um eina milljón
kr. Tryggingastofninn í árslok
var orðinn 392 millj. kr. og
tryggingasjóður félagsins 31
millj. kr.
Stjórn félaganna skipa: Er-
lendur Einarsson, forstjóri,
Reykjavík, formaður, Ingólfur
Ólafsson, kaupfélagsstjóri,
Reykjavík, Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstjóri, Akureyri, Kar
vel Ögmundsson, framkvæmda
stjóri, Ytri-Njarðvík og Ragnar
Guðleifsson, kennari, Keflavík.
Framkvæmdastjóri félaganna
er Ásgeir Magnússon, lögfræð-
ingur. □
Emi um Dalvísu og Gljúfrabúa
ÉG hef verið forfallaður und-
anfarnar vikur (spítalalega) og
því ekki getað komið því við
að gera athugasemdir við svar-
greinar þeirra Árna Óla og
Önnu Vigfúsdóttur frá Brún-
um, sem birtust í Lesbók Morg-
unblaðsins 7. apríl s.l., 12. tbl.,
við grein minni um sama efni
í sama blaði 3. marz s.l. Þykir
mér sjálfsagt að láta konuna
sitja fyrir, þó ég hafi litlar at-
hugasemdir að gera við henn-
ar grein. Ekki get ég þó verið
henni sammála um að Skúli
Skúlason hafi verið ókunnugur
undir Eyjafjöllum, né heldur
málvenju Eyfellinga. í fyrsta
lagi er nú engin óraleið frá
Odda austur undir Eyjafjöll. í
öðru lagi hefði Skúli hvorki
verið beðinn um né tekið að
sér að skrifa leiðarvísir fyrir
ferðafólk um Eyjafjallasveit, ef
hann hefði ekki verið kunnug-
ur þar. Það er líka misskilning-
ur að hann hafi ekki þekkt mál-
venju Eyfellinga. Hann nefnir
fossinn Gljúfurfoss, sem senni-
lega er hið upprunalega nafn
en bætir við samkvæmt mál-
venju Eyfellinga: „eða Gljúfra-
búi sem Jónas gerði frægan“.
Bróðir Skúla hefur líka sagt
mér að þeir bræður hafi verið
kunnugir í Eyjafjallasveit, farið
t. d. oft á sumrum austur að
Skógafossi. Dalvísur voru ortar
árið 1844 og urðu fljótt kunnar.
Ég veit að Anna Vigfúsdóttir
muni segja satt um það, að hún
sjálf, faðir hennar f. 1863 og
kona fædd um síðustu aldamót
hafi jafnan heyrt fossinn kall-
aðan Gljúfrabúa og faðir henn-
ar dáðst að fegurð þess nafns,
sem verðugt er. Ég mun því
hafa ofmælt er ég sagði að
fossinn hafi ekki verið nefndur
svo fyrr en á síðustu árum.
Hitt held ég fast við, að það
hafi ekki verið fyrr en eftir að
Dalvísur urðu kunnar og að
Jónas Hallgrímsson sé faðir
þessa fagra nafns. Og að hann
hafi ekki átt við hinn umdeilda
foss, vegna þess að nafnið er í
Dalvísum og þær eru um
Öxnadal, eða getur Anna Vig-
fúsdóttir eða aðrir nefnt nokkr-
ar heimildir um það að fossinn
hafi verið kallaður Gljúfrabúi
fyrir árið 1844? Það ár var
Dalvísa kveðin og mun hafa
borizt sama ár til íslands, a. m.
k. til Steinsstaða í Öxnadal.
Um grein Árna Óla gæti ég
verið fáorður, því meginatriðið
í okkar ágreiningi er það hvort
trúa má Rannveigu systur
skáldsins. Ég mun þó fyrst
víkja að því, sem nýtt er í síð-
ari grein hans. Hann bendir á
að séra Tómas Hallgrímsson
hafi ekki verið fæddur fyrr en
hálfu þriðja ári eftir að Jónas
dó. Móðir mín var heldur ekki
fædd fyrr en 11 árum eftir
dauða hans. En hvað kemur
þetta málinu við? 'Hvorugt
þeirra ber Jónas sjálfan fyrir
neinu, heldur Rannveigu systur
skáldsins, ömmu annars þeirra
og fóstru beggja. Svo heldur
hann að hún hafi ekkert um
þetta vitað af því að fundum
þeirra Jónasar bar ekki saman
eftir að hann orti Dalvísu, telur
svo að það hafi aðeins verið ósk
hyggja hennar að vísurnar
væru um Öxnadal og umhverfi
Steinsstaða sérstaklega. Auk
móður minnar þekkti ég í ung-
dæmi mínu fleira fólk sem
þekkt höfðu Rannveigu náið t.
d. fóstursystur móður minnar
frá Steinsstöðum, 2 menn sem
verið höfðu vinnumenn hjá
þeim Steinstaðahjónum og dótt
urson Stefáns alþm., sem einnig
ólst upp hjá þeim hjónum og
var 14 ára þegar Rannveig dó
og mundi hana vel. Allir sem
hana þekktu og ég heyrði tala
um hana báru henni sama vitn-
isburðinn, að hún hafi verið hin
mesta ágætiskona. Mun hún
aldrei hafa staðhæft það, sem
aðeins var óskhyggja hennar.
Tel ég og sjálfsagt, og margir
aðrir, vitnisburð hennar fulla
sönnun þess að Dalvísa sé um
Öxnadal og þá umhverfi Steins
staða sérstaklega. Auk þess sem
vísurnar bera það <alveg með sér
að þær eru um æskustöðvar
skáldsins, eins og ég hef áður
bent á og þarf ekki að endur-
taka. Þetta finnur hver maður
sem les eða heyrir vísurnar.
Ámi Óla bendir á að vísumar
hljóti að hafa borizt með bréfi
frá Jónasi til Steinsstaða. Telur
enga sönnun í vitnisburði Rann
veigar nema það bréf sé lagt
fram. En hfeur hann bréf frá
Jónasi um það að vísumar séu
um Markarfljótsdalinn? Ég
hygg ekki. Heldur Árni Óla
virkilega að Jónas Hallgrímsson
hafi verið svo kærulaus sonur,
að hann hafi ekki skrifað a. m.
k. móður sinni árlega meðan
hann var erlendis og þá einnig
árið 1844? Móðir hans, Rann-
veig Jónasdóttir, hefur þá enn
verið í fullu fjöri. Hún andaðist
ekki fyrr en 1866, eða 21 ári á
eftir syni sínum. Hún dvaldi á
Steinsstöðum til æviloka. Móð-
ir mín mundi hana vel. Rann-
veig Hallgrímsdóttir hefur auð-
vitað lesið bréfin til móður sinn
ar og sjálfsagt hefur hún einnig
sjálf fengið bréf frá bróður sin-
um, því mjög kært var með
þeim systkinum.
Það eru fullar heimildir fyrir
því að Jónas Hallgrímsson hugs
aði heim til Steinsstaða í fjar-
lægðinni. í kvæði hans „Heima“
segir hann í miðvísunni:
„Þar er barmi blíður
og blómafríður
runnur í rei,
er ég rökkri sleit,
dalur, sól og sær
og systur tvær,
einka móðir
og ástvinir góðir.“
Systur hans tvær og móðir
voru á Steinsstöðum frá því að
Jónas var smábarn og til ævi-
loka þeirra allra, nema hvað
móðir hans mun haf a átt heima
annarsstaðar 1 eða 2 ár. Jónas
orti og annað kvæði beinlínis til
móður sinnar, sem hefst svo:
„Ég veit það eitt, að enginn átti
aðra eins móður.“
Hér gæti ég raunar látið máli
mínu lokið. í mínum augum ber
Dalvísa það með sér, að hún
(þær) er ort um hiemahaga
skáldsins. Auk þess er staðhæf-
ing Rannveigar bein sönnun
fyrir því. Ég verð þó enn að
minnast á átthagaástina, sem
hann telur að hafi komið Rann-
veigu til að fullyrða það sem
hún vissi ekkert um. Skyldi
Jónas ekki hafa fundið til átt-
hagaástar líka? I því sambandi
minnist hann á Þorstein Erlings
son og kvæði hans „Vara þig
Fljótshlíð.“ Þar segir: „Þú
veizt að hann Hvalfjörður áleit-
inn er, þó ást okkar geti ’ann ei
slitið.“ Svo sér hann Skorradal-
inn og þykir hann enn fegurri.
Ætli hann hafi þó fremur getað
slitið ást Þorsteins á Fljótshlíð-
inni heldur en Hvalfjörður?
Jónas þótti Fljótshlíðin fögur,
líklega fegurri heldur en Öxna-
dalur, en ætli hún hafi getað
slitið ástum Jónasar og heima-
haga hans fremur en Hvalfjörð
ur ástum Þorsteins og Fljóts-
hlíðar? Davíð Stefánsson hafði
farið víðar um heiminn heldur
en Jónas Hallgrímsson og séð
margt fagurt. Þegar hann svo
siglir inn Eyjafjörð og sér
heimahaga sína kallar hann þá
„helga jörð.“ Svo um Fagra-
skóg: „Á þessum bóndabæ bíða
mín opnar dyr.“ Ætli Jónasar
hafi ekki jafnan beðið opnar
dyr á Steinsstöðum? Jú áreiðan
lega. Menn þurfa ekki endilega
að elska það heitast, sem þeir
sjá fegurst. Já átthagaástin er
sterk, eins og Árni Óla segir,
bæði hjá skáldum og öðrum. Ég
hygg að flestir aðrir en Árni
Óla trúi því að svo hafi einnig
verið um Jónas Hallgrímsson.
Það er rétt að orðálagið „í
dalnum frammi," hlaut Norð-
lendingur að hafa viðhaft. Ekki
er þetta þó nein sönnun þess,
og ekki einu sinni líkur, að
Jónas hafi viðhaft þau um Mark
arfljótsdalinn. Hann var í Dan-
mörku þegar hann kvað Dal-
vísu og þar gat hann vel sagt
framm að Steinsstöðum sam-
kvæmt okkar málvenju, jafnvel
þó hann hefði verið staddur
neðar í Öxnadal. Kirkjustaður-
inn Bakki í Öxnadal er gengt
Steinsstöðum vestan ár. Eitt
sinn fóru mörg sóknarbörn séra
Jóns Þorlákssonar að Bakka-
kirkju, en hann þjóngði þá að-
eins Bægisársókn, en séra Hall-
grímur faðir Jónasar Bakka-
sókn. Um þessa messuferð orti
séra Jón skopvísu, er hófst svo:
„Þelamerkurþjóðin frakka
þeysti gjörvöll franim að
Bakka.“
Orðin „í dalnum framrni"
gátu því vel átt við Steinsstaða-
land. Bakki og Steinsstaðir eru
alveg jafnt frammi í Öxnadaln-
um. Það má vel vera að Bleiksá
í Fljótshlíð sé bakkafögur, en
það munu margar fleiri ár á ís-
landi líka vera, einnig Öxna-
dalsá, a. m. k. á köflum. Það
mun öðru skáldi Hannesi Haf-
stein hafa þótt. Hann segir í
kvæðinu um Hraun í Öxnadal:
„Geislar sumarsólar
silungsána gylla,
þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla.“
Ég læt nú máli mínu lokið og
mun tæplega ansa oftar þeim
fjarstæðum, sem Árni Óla hef-
ur á borð borið í þessu máli, þó
þær kunni að skjóta upp koll-
inum aftur. Lakast hefur mér
þó þótt hjá honum og stappar
nærri svívirðu, að væna aðra
eins ágætiskonu og Rannveigu.
Hallgrímsdóttur á Steinsstöðum
um ósannindi vegna óskhyggju
einnar. Ég endurtek, að hún
staðhæfði aldrei annað en það
sem hún vissi. Ég hef haft það
miklar spurnir af henni, að ég
veit þetta.
Bernharð Stefánsson.
Allar leturbreytingar mínar.
B. St.
YFIRLÝSING NEM-
ENDA í M. A.
VEGNA linnulausra blaða-
skrifa um hina svonefndu
„kommúnistaklíku“ og pólitísk
an áróður í M. A., sjáum við
undirritaðir okkur tilneydda til
að taka fram eftirfarandi:
Þær ásakanir, sem fram hafa
komið í áðurnefndum skrifum,
á hendur vissum kennurum
skólans, að þeir noti aðstöðu
sína sem kennarar til að reka
pólitískan áróður innan veggja
M. A., eru með öllu tilhæfu-
lausar.
Við vítum þessa málsmeðferð
viðkomandi blaða, sem einkenn
ist af vanþekkingu á öllum
málsatvikum og hörmum jafn-
framt, ef skólinn hefur beðið
álitshnekki þeirra vegna.
M. A. 13. 5. ’68.
Björn Þórarinsson, inspector
scholae. Björn Jósef Arnviðar-
son, fráfarandi inspector
scholae. Benedikt Ásgeirsson,
formaður skólafélagins Hugins.
Sigmundur Stefánsson, fráfar-
andi formaður Hugins. Sigurð-
ur Jakobsson, ritstjóri skóla-
blaðsins Munins. Gunnar Frí-
mannsson, fráfarandi ritstjóri
Munins. Björn Stefánsson, for-
maður 6.-bekkjarráðs. Erlingur
Sigurðsson, formaður 5.-bekkj-
arráðs. Kristján Sigurbjamar-
son, formaður 4.-bekkjarráðs.
Benedikt Ó. Sveinsson, formað-
ur 3. bekkjarráðs. Jón Georgs-
son, formaður Raunvísindadeild
ar Hugins. Jóhann Tómasson,
fulltrúi í Nemendaráði. Jóhann
Pétur Malmquist, fulltrúi í Nem
endaráði.
Sláfurhúsið
hraSar hendur
SJÓNLEIKUR með þessu óskáldlega
nafni er um þessar mundir sýndur í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Ágúst
Kvaran setti leikinn, sem er eftir
Þingeyinginn Hilmar Jóhannesson
mjólkurfræðing í Borgarnesi, á svið
og er hér um að ræða söngva- og
gamanleik. Frumsýningin var 17.
þessa mánaðar. (Sjá auglýsingu um
næstu sýningar).
Meðfylgjandi mynd úr leiknum er
af Helenu Eyjólfsdóttur og Pétri
Jósefssyni. □
Frá Sumarbúðunum við Vestmannsvatn.
Sumardvöl á Vestmannsvafni
ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkj-
unnar í Hólastifti hefur sumar-
búðastarf að Vestmannsvati fyr
ir börn á aldrinum 8 til 14 ára
og verður þá tekinn í notkun
nýr svefnskáli og bætir það
mjög mikið alla aðstöðu barn-
anna til föndurs og innileikja.
I sumar verður hafizt handa
með gróðursetningu trjáplantna
í landi sumarbúðanna og munu
bömin vinna við það að ein-
hverju leyti.
Umsóknir um dvöl fyrir
börnin hafa verið mjög margar
og færri komizt en vildu, enda
er hér um að ræða mikið og
gott tækifæri til að láta börn-
in dvelja á fögrum stað og gefa
þeim veganesti út í lífið.
Aldursflokkarnir og tímabil-
in eru sem hér segir:
1. flokkur. Stúlkur 8 til 10
ára. 14. júní til 29. júní.
2. flokkur. Drengir 8 til 10
ára. 2. júlí til 17. júlí.
3. flokkur. Drengir 10 til 12
ára. 18. júlí til 2. ágúst.
4. flokkur. Stúlkur 10 til 12
ára. 6. ágúst til 21. ágúst.
5. flokkur. Stúlkur 12 ára og
eldri. 22. ágúst til 6. september.
Sækja þarf um vist fyrir
börnin til sóknarpresta á Norð-
urlandi, og eru menn beðnir um
að koma umsóknunum til for-
manns sumaíbúðanefndar, séra
Sigurðar Guðmundssonar, pró-
fasts á Grenjaðarstað hið fyrsta
og mun hann þá senda hverju
bami allar upplýsingar um
dvölina og ferðir til og frá Vest-
mannsvatni.
Þetta er fimmta sumarið sem
FERMINGARBÖRN
FERMING á Grund á uppstign-
ingardag.
STÚLKUR:
Guðrún Sigurðardóttir, Torfufelli
Guðrún Inga Tryggvadóttir, Gilsá
Sigrún Jóhannesdóttir, Gilsbakka
Sigríður Tryggvadóttir, Akureyri
DRENGIR:
Aðalsteinn Bernharðsson, Laugar-
b°rg
Friðfinnur Ðaníelsson, Gnúpufelli
Kristján Matthíasson, Botni
Snæbjörn Friðriksson, Kristnesi
Njáll Kristjánsson, Grænuhlíð
Ólafur Andri Thorlacius, Öxnafelli
SJÓMANNADAGSRÁÐ Akur-
eyrar vill vekja athygli bæj-
arbúa á því, að þar sem svo hef
ur tekist til að þessu sinni, að
umferðarlagabreytingin (H-dag
urinn) kemur til framkvæmda
á Sjómannadaginn 26. maí, sjá-
um við okkur ekki fært að efna
til útihátíðahalda að þessu
sinni. — Þó verður á laugardag
inn 25. maí efnt til kappróðurs
á Akureyrarpolli ef næg þátt-
taka og aðrar kringumstæður
leyfa.
barnastarfið er á hinum undur-
fagra stað í Aðaldal, en 28. júní
1964 voru sumarbúðirnar vlgð-
ar. . . ~ *
Á Siglufirði veitir umsóknum
móttöku Júlíus Júlíusson, kaup
maður.
Daggjald er kl. 125,00.
Sumarbúðastjóri' er Gylfi
Jónsson, Akureyringur, sem
stundar guðfræðinám við Há-
skóla íslands.
(Frétt frá ÆSK).
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
af þeirra skrifum af því þeir
kunnu- ekki vel til verka.
TVÆR SKRIFSTOFUR
TVÖ BLÖÐ
Stuðningsmenn forsetaefnanna,
doktoranna Kristjáns Eldjárns
og Gunnars Thoroddsens, hafa
sett á laggirnar kosningaskrif-
stofur á Akureyri. En um skrif
stofuhúsnæðið ganga sögur um
bæinn, sem hér verða ekki
raktar. Blöð hafa stuðnings-
menn forsetaefnanna gefið út,
jafnvel liafa sumir séð þriðja
blaðið (Gunnarsblað), sem síð-
an var tekið úr umferð.
KLIPPTI OG TAUTAÐI
Tveir borgarar gengu í fyrra-
kvöld fram hjá húsi einu á Ak-
ureyri. Þar var húseigandi að
klippa runna og tautaði fyrir
munni sér ófögur orð, svo sem
hann ætti í höggi við vonda and
stæðinga og léti klippurnar
ganga á þeim. Heyrðist Tiann
nefna Gunnar. Eruð þið kannski
Gunnarsmenn, mælti liann er
hina bar þar að. Þeir litu á stór
ar klippur í sterklegum liönd-
um, neituðu spurningunni snar
lega, sögðust kjósa Kiristjáit
eins og allir sannir Norðlend-
ingar. Mildaðist húseigandinn
og bauð upp á kaffi. Svo segja
menn að flestir séu áhuga-
lausir um forsetakjör.
Skipshafnir, starfshópar eða
fyrirtæki, sem hafa hug á að
taka þátt í róðrinum eru vin-
samlega beðin að tilkynna þátt-
töku sína sem fyrst til: Jónasar
Hannessonar, síma 2-14-25, Pét
urs Kristjánssonar, síma
1-26-15 eða Ármanns Sveins-
sonar, síma 2-10-16.
Bátarnir munu verða lánaðir
til æfinga þeim er þess óska,
vikuna áður eli keppni fer
fram. (Aðsent)
Fjölmenni við skólaslit
Ólafsfirði* 20. maí. Þegar ísinn
lónaði ögn frá á miðvikudag fór
Sæþór út og kom eftir rúman
sólarhring með 25 tonn. Súlan
kom með 48 lestir í dag. Trillu-
bátarnir afla dálítið hér innan-
um ísinn, og er veitt á hand-
færi.
Bannaskólanum var slitið á
föstudaginn. Hæstu einkunn á
barnaprófi hlaut Sigurlína Sig-
urbjörnsdóttir 9.28, næst Val-
gerður Sigurðardóttir 9.03 og í
þriðja sæti var Sveinn R. Brynj
ólfsson. Hæstur í 5. bekk var
Hörður Björnsson 9.20 og i 4.
bekk Kristín Hulda Marinós-
dóttir 8.43. Skólastjórinn, Bjöm
Stefánsson, flutti skólaslitaræð-
una og lagði áherzlu á siðgæðið.
Fjölmenni var við skólaslit.
B. S.
BANAÐ 5 TÓFUM
Á TÍU KLST.
Klausturseli 7. maí. — Gunnar
Guttormsson, bóndi á Litla-
Bakka í Hróarstungu kom hér
til bæja í fyrrakvöld, af Fljóts-
dalsheiði. Hafði hann verið þar
á ferð á snjósleða að huga að
tófum og var hann þá, eftir 10
klst. sleðaferð um heiðina, bú-
inn að bana 5 tófum. — Alls er
hann búinn að drepa 9 tófur I.
vetur með aðstoð snjósleða og
sinna ágætu skotvopna.
Gunnar er vel þekkt grenja-
skytta og hefur margri tófunní
banað. Líkur eru á að fyrir ríki.
og sveitarfélög muni verða lan-g
ódýrast að vinna tófur á þenn-
an hátt — en verðlaun fyrir
hlaupa-dýrin ættu að vera
miklu hærri og myndi það alla
vega verða ódýrara en vor-
grenjavinnsla. G. A.
- BIRGÐASTÖÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
3 mánaða birgðir, auk birgða
olíufélaganna, til þess að grípa
til, ef hafís leggst að landi,
Sýslunefndin bendir á að ef til
vill mætti nota geyma S. R. á
Skagaströnd, svo ekki þurfi aS
koma til fjárfestingar í mann-
virkjagerð.
Olíufélögunum verði jafn-
framt gert að skyldu að eiga
ávallt a. m. k. 2ja mánaða ibirgð
ir af olíu í héraðinu að vetrin-
um og fram á vor. Sýslunefndin
b'einir þessari áskorun til hæst-
virtrar ríkisstjórnar að marg-
gefnu tilefni. Hin síðari ár hafa
olíubirgðh- hvað eftir annað ver
ið á þrotum en hafís lokað um
tíma siglingaleið eða lónað úti
fyrir Norðurlandi. Telja má
óframkvæmanlegt við núver-
andi ástæður að fullnægja olíu-
þörfinni landleiðina.
Sýslunefnd A.-Hún. vekur
athygli hæstvirtrar ríkisstjórn-
ar á því hættuástandi, sem skap
azt getur í héraðinu, ef skortur
verður á fóðurbæti vegna flutn
ingaerfiðleika á sjó og landi að
vetrinum. Sýslunefndin telur að
í nóvemberlok verði að vera til
í héraðinu 4—5 mánaða birgðir
af fóðurbæti. Sýslunefndin lít-
ur svo á, að hér sé fyrst og
fremst um fjárhagsatriði að
ræða, þ. e. að útvega verði fjár-
magn til þess að unnt verði að
kaupa þetta miklar birgðir
svona snemma vetrar og geyma
fram eftir. Verzlanir, sem aðal-
lega verzla með fóðurbæti hafa
eins og er ekki fjárhagslegt bol-
magn til þess að leysa þetta
vandamál. Sýslunefndin skorar
því á ríkisstjórn íslands að gera
nú þegar ráðstafanir, svo nægi-
leg fóðurbætiskaup geti farið
fram þegar á næsta hausti. ,
(Fréttatilkynning) {
Frá Sjómannadagsráði Akureyrar