Dagur - 12.06.1968, Blaðsíða 1
FÍLMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LjOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
MEIRI BJARGFUGL í GRÍMSEY
EN NOKKRU SINNIÁÐUR
Grímsey 11. júní. Nú er allur
ís farinn og nú eru sjómennirn-
ir að byrja að fiska og er reit-
ingsafli á færi. Komnir eru
hingað bátar úr Ólafsfirði og
Hrísey.
Á sunnudaginn fór fram ferm
ing í Miðgarðakirkju og voru
sjónvarpsmenn viðstaddir og
tóku einnig mvndir af bjargsigi.
Aldrei hefur verið meira af
bjargfugli en nú, enda hefur
eggjatekja ekki verið stunduð
að nokkru ráði undanfarin ár.
Síga átti í björgin í síðustu
viku en þá gerði norðangarð.
Nú er hins vegar logn og lá-
dauður sjór og hugsa menn þá
meira um fiskinn, enda er nú
að verða búinn sá tírni, sem
beztur er til eggjatökunnar.
S. S.
Þjóðliátíðiii 17. júní
Þ J ÓÐHÁTÍ Ð ARNEFND Akur
eyrar eða 17. júní nefnd kallaði
blaðamenn á sinn fund í fyrra-
dag og sögðu þau tíðindi, að
hátíðahöldin 17. júní á Akur-
eyri yrðu að þessu sinni með
sama sniði og áður. En á hinu
hefðbundna eru margir leiðir
orðnir.
Dagskráin re í stórum drátt-
um á þá leið, að blómabíll ekur
um bæinn kl. 9 árdegis. Lúðra-
sveitin leikur á Ráðhústorgi kl.
1.15, Jón Ingimarsson formaður
þjóðhátíðarnefndar setur hátíð-
ina og séra Pétur Sigurgeirsson
flytur guðsþjónustu með aðstoð
kirkjukórsins. Frú Saga Jóns-
dóttir flytur ávarp fjallkonunn-
ar og skrúðganga á íþróttavöll
hefst kl. 2.45.
Á íþróttasvæðinu flytur séra
Bolli Gústavsson lýðveldisræðu
og nýstúdentinn Gunnar Frí-
mannsson minni Jóns Sigurðs-
sonar.
Keppt verður í frjálsum
íþróttum og lögreglulið og
slökkviliðsmenn keppa í knatt-
spyrnu.
Barnaskemmtun fer fram á
Ráðhústorgi og hefst kl. 5.
Kvöldskemmtun verður á
Ráðhústorgi kl. 8.30. Þar verða
ýmsir skemmtiþættir.
Karlakór Akureyrar syngur
á íþróttavellinum kl. 2.15, en
Geysir syngur á Ráðhústorgi á
kvöldskemmtuninni. □
(Ljósm.: G. P. K.)
Fundargestir á ráðstefnu Sanibands ungra Framsóknarmanna.
VILJA NÁNARISAMVÍNNU SlS og AS(
SAMBAND ungra Framsóknar
manna efndi til ráðstefnu á Ak-
ureyri um síðustu helgi. Fjall-
aði ráðstefnan um málefnið:
Samvinnuhreyfingin á síðari
hluta 20. aldar. Góð þátttaka var
í þessari ráðstefnu, og sátu hana
menn víðast hvar að af land-
inu. Erindi, ræður og ávörp
fluttu m. a. Indriði Ketilsson á
Fjalli, Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri, Erlendur Einars
son, forstjóri, Jakob Frímanns-
son, kaupfélagsstjóri, Brynjólf-
■i-'i!
Umræðufundur um fiskirækt og fiskeldi
ur Sveinsson, formaður Kaup-
félags Eyfirðinga, Baldur Ósk-
arsson, formaður SUF og Einar
Olgeirsson, formaður S.A.S. en
honum var sérstaklega boðið til
ráðstefnunnar.
í lok ráðstefnunnar var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
1. Félagsmálahreyfingar gegna
mikilvægu hlutverki í lýðræðis
þjóðfélagi. Þær eru mótandi afl
í baráttu þjóðarinnar fyrir bætt
um lífskjörum. Samtök eins og
samvinnufélögin tryggja félags
legt jafnræði þegnanna og þátt
töku þeirra í sköpun eigin kjara,
og tryggja jafnframt áhrif
þeirra á undirstöður efnahags-
lífsins, bæði í framleiðslu, verzl
un og þjónustu. Bein áhrif fólks
ins á framkvæmd efnahagsað-
gerða og menningarmála eru
grundvöllur hins félagslega lýð
ræðis sem er lífæð samvinnu-
samtakanna. Samvinnuhreyfing
in hlýtur því að gegna mikil-
vægu hlutverki í efnahags- og
menningarmálum þjóðfélagsins.
Til þess að samvinnuhreyfing-
unni takist að rækja þetta í
framtíðinni verður ríkisvaldið
að viðurkenna hlutverk hennar,
og tryggja rétt samvinnuhreyf-
ingarinnar við skiptingu rekstr
ar- og framkvæmdafjármagns.
2. Samvinnuhreyfingin hefur
reynzt brjóstvörn og sóknarafl
(Framhald á blaðsíðu 5).
LAUGARDAGINN 8. þ. m. var
haldinn fundur á vegum Rækt-
unarfélags Norðurlands að
Hótel Varðborg á Akureyri. Á
fundinum voru mættir, auk fé-
lagsstjórnarinnar, fulltrúar frá
öllu félagssvæðinu, sem nær
yfir allan Norðlendingafjórð-
ung. Fundarefnið var að ræða
um framkvæmdir í fiskirækt og
fiskeldi á félagssvæðinu.
Fundinn setti formaður fé-
lagsstjórnarinnar, Steindór
Steindórsson, skólameistari.
Fundarstjóri var kjörinn Ar-
mann Dalmannsson, en fundar
ritari Egill Bjarnason. Formað-
ur skýrði frá tilgangi fundar-
haldsins, en hann væri sá, að
hvetja til aukinna framkvæmda
um stofnun og rekstur fiskeldis
stöðvar, einnar eða fleiri í Norð
lendingafjórðungi og að rann-
sakaðir yrðu möguleikar fyrir
fiskiræktar í ám og vötnum, er
gæti orðið til hgasbóta og
ánægju fyrir fólkið í sveitun-
um.
Óskað hafði verið eftir að
veiðimálastjóri, Þór Guðjóns-
son, mætti á þessum fundi til
leiðbeiningar, skrafs og ráða-
gerða, varðandi slíkar fram-
kvæmdir, en því miður gat veiði
málastjóri ekki orðið við þess-
(Framhald á blaðsíðu 5).
Aðalfuiidur (j A
AÐALFUNDUR Utgerðarfélags
Akureyringa hi. var haldinn í
kaffistofu Hraðfrystihússins 10.
júní sl.
Fundarstjóri var Sverrir
Ragnars. Stjórnarformaður, Al-
bert Sölvason, flutti skýrslu
stjórnarinnar en framkvæmda-
stjórarnir Gísli Konráðsson og
Vilhelm Þorsteinsson lásu og
skýrðu reikninga félagsins.
Reksturshalli fyrirtækisins í
heild var rúmlega 4 millj. kr.
og var þá búið að afskrifa eign-
ir um nálega 3.6 milljónir króna.
Stjórn U. A. var endurkosin.
Hana skipa: Albert Sölvason,
Arnþór Þorsteinsson, Jakob Frí
mannsson, Steindór Jónsson og
Tryggvi Helgason.
Nánar í væntanlegri frétta-
tilkynningu síðar. □
Forselaefnin á ferðinni
SVO sem alþjóð er kunnugt,
tóku stjórnmálaflokkarnir þá
ákvörðun að taka ekki sem slík
ir afstöðu til forsetakosning-
anna, sem fram fara 30. júní
n. k. En stuðningsmenn fram-
bjóðendanna beggja, Kristjáns
Eldjárns og Gunnars Thorodd-
sens, hófu blaðaútgáfu.
Nú hefur færzt meira fjör í
kosningaundirbúninginn við þá
ákvörðun Gunnars og síðan
Kristjáns, að halda fundi víða
um land, þar sem forsetaefnin
koma fram og ávarpa kjósend-
ur og eru konur þeirra með í
för.
í fyrrakvöld var slíkur fund-
ur Gunnars-manna haldinn á
Akureyi'i. í gær höfðu Kristj-
áns-menn fund á ísafirði en hér
á Akureyri mæta þau hjón á
fundi 22. júní.
Forsetaefnin hafa um 30 kosn
ingaskrifstofur hvor á landinu.
• ■tllllllillliiiilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltll n*
jPERLUSTEINN|
I FYRIR nokkru var frá því |
| sagt, að vaknaður væri áhugi 1
| á nýtingu perlusleins. En i
| mikið er af honum í Loð- I
I mundarfirði. Bandaríska stór i
i fyrirtækið John-Mansville é
É Ltd. vinnur perlustein í i
É nokkrum löndum og hefur é
É áhuga á að kynna sér magn É
É perlusteinsins og aðstöðu til §
1 vinnslu hér á landi. Jarðfræð é
é ingur fyrirtækisins hefur i
i rannsakað staðinn og líklegt é
é er, að fleiri athuganir fari I
i þar fram innan skamms. =
É Perlusteinn er notaður í §
É byggingaiðnaðinum og fl. □ i
'"iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiniiiii*