Dagur - 26.06.1968, Qupperneq 8
R
Frá þingi Sjálfsbjargar.
Tínda þing Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
SMÁTT OG STÓRT
B»r
FORSETAKOSNINGAR
Stuðningsmetm forsetaefnanna
tveggja, sem um verður kosið á
sunnudagiim, hafa gefið út sín
kosningablöð og frambjóðendur
hafa komið fram í sjónvarpi og
útvarpi. Þá hafa dagblöð birt
fréttir af kynningar- eða kosn-
ingafundum forsetaefnanna. Hef
ur þjóðin því fylgzt vel með
gangi þessara máia. Aðeins ein
fréttatilkynning hefur þó Degi
borizt um fundarhöld, og er hún
birt á öðrum stað, ásamt mynd.
KJÖRSEÐILLINN
Kjörseðillinn er að þessu sinni
einfaldur að gerð. Á honum
stendur efst: Forsetakjör 1968,
síðan eru tvær línur og nafn
frambjóðenda í hverri. Skákross
skal setja framan við nafn þess,
sem kosinn er.
ÞREKVIRKl
Þótt náttúruöfiin væru bænda-
gerzt, er liollt að líta til liðinnar
tíðar þegar hörð ár gengu næst
þjóðinni og mergsugu hana
bæði efnalega og andlega. Þau
hörðu ár geta komið á ný, hvað
snertir náttúruöflin. Nú, á vor-
dögiun, þegar sumargróðurinn
kemur í stað lítiila heyja og er-
lends kjarnfóðurs, hefur komið
í ljós, að þrengingum bændanna
er þó ekki lokið. Víða um land,
t. d. í Strandasýsiu, Húnavatns-
sýslum og þó einkum á norð-
austurhluta landsins er kal svo
stórfellt, að við fyrri kalár verð
ur ekki líkt. Þar eru heil tún að
mestu dauðkalin og hvít yfir að
líta. Þessi hvítu tún boða stór-
felldan niðurskurð í haust.
VEGVÍSIR AN ORÐA
Sams konar vegvísar og tækni-
legar öryggisreglur fyrir farar-
tæki um heim allan er mark-
miðið með alþjóðlegri ráðstefnu
um umferð á þjóðvegum, sem
10. ÞING Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, var haldið
að Jaðri dagana 8.—10. júní sl.
Svo skemmtilega vildi til, að
hinn 9. júní var tíu ára afmælis
dagur fyrsta Sjálfsbjargarfélags
ins, en það var stofnað á Siglu-
firði.
. Mættir voru til þings 44 full-
trúar frá níu félagsdeildum.
Reykjavíkurdeildin sá um
þinghald að þessu sinni og
ávarpaði Sigurður Guðmunds-
son formaður hennar, þingfull-
trúa af því tilefni. Lýsti hann
ánægju sinni yfir þeim árangri,
sem náðzt hefur frá stofnun
samtakanna og hvatti til áfram-
haldandi samvinnu og baráttu
fyrir hagsmunamálum fatlaðs
fólks.
Theodór Jónsson, formaður
landssambandsins, bauð síðan
fulltrúa velkomna til þings.
Að lokinni kosningu starfs-
manna þingsins var gengið til
dagskrár. Formaður flutti
skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra.
Innan Sjálfsbjargar eru tiu
félagsdeildir með 873 virkum
félögum.
Um þessar mundir er verið
að ljúka steypuvinnu við 5. cg
Lentu á húströppum
Á MÁNUDAGSNÓTTINA lenti
bifreið með tveimur mönnum á
húströppur í Aðalstræti 13. Far
þeginn kastaðist þar út. Báðir
voru menn þessir fluttir í
sjúkrahús en ökumaðurinn síð-
an heim, er gert hafði verið að
sárum hans, en hinn meiddist
meira en ekki hættulega, að því
er talið var.
Grunur leikur á, að um ölvun
hafi verið að ræða hjá öku-
manni.
(Frétt frá iögreglunni)
TOGBÁTARNIR AFLA
SÆMILEGA
Ólafsfirði 25. júní. Snjór er í
fjöllum og grátt niður að byggð
hér í Ólafsfirði. Virðist mönn-
um útlitið hið versta, sem von
er.
Togveiðar ganga vel en trillu
bátarnir hafa aflað lítið að und-
anförnu.
Spretta er mjög lítil ennþá en
sú er bót í máli, að tún virðast
ekki mikið skemmd og getur
töðufall því orðið sæmilegt, ef
bregður til hlýrri veðráttu en
nú er. B. S.
efstu hæð fyrsta áfanga. Nú
hafa alls verið lagðar kr.
13.500.000.00 í bygginguna.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur veitt samþykki sitt, til
þess að úthlutað verði merkj-
um, sem veita mikið fötluðum
ökumönnum. undanþágu frá
gildandi ákvæðum um bifreiða-
stöður. Merki þessi má festa
innah á rúður bifreiða. Þau
verða um 12x18 cm. að stærð,
með bókstafnum „P“, hvítum á
bláum grurini, ásamt skrásetn-
ingarnúmeri bifreiðar og nafni
ökumanns, sem undanþágan
gildir fyrix. Mun þetta koma til
framkværrida' nú í sumar og
verður merkjunum úthlutað hjá
lögreglustjóra, samkvæmt til-
lögum Sjálfsbjargar.
Starfsemi sambandsfélaganna
var víðast hvar blómleg á árinu.
Húsavíkurfélagið festi fyrir
nokkru kaup á húseign og hefur
öll aðstaða til félagsstarfsemi
batnað mikið við það.
Félagið á Siglufirði hefur
starfrækt vinnustofu óslitið síð-
an árið 1960 og eru þar fram-
leiddir vinnuvettlingar. Vinnu-
stofan hefur jafnan verið rekin
hallalaust.
Akureyrarfélagið er um þess
ar mundir að hefja rekstur plast
(Framhald á blaðsíðu 5)
Hólaskóla slitið
FYRIR nokkru birti blaðið
mynd af Hólasveinum og kenn-
urum, er þeir voru í námsför
að skóla loknum. Hér er nánar
sagt frá skólanum.
Bændaskólanum á Hólum var
slitið 5. maí sl. af skólastjóran-
um, Hauki Jörundssyni, og var
það í 86. sinn, er skólinn lauk
störfum.
Síðastliðinn vetur stunduðu
35 nemendur nám í skólanum.
Námi luku 22, þar af 9 eftir
tveggja ára nám og 13 eftir eins
árs nám. í nemendahópnum
voru tveir stúdentar. Hæstu
einkunn hlaut Jón Viðar Jón-
mundsson frá Hrafnsstöðum í
Svarfaðardal, 9.70. Hæstir og
jafnir í fyrstu deild urðu Gunn
laugur Tobiasson frá Geldinga-
holti í Skagafirði og Gunnþór
Kristinsson, Borg í Þistilfirði.
Að venju voru veitt ýmis verð-
laun fyrir góðan árangur. Bezt-
um árangri í fóðurfræði og jarð
fræði náði Jón Viðar Jónmunds
son og fékk hann verðlaun frá
Sambandi ísl. samvinnufélaga
og bókaverðlaun frá Búnaðar-
félagi íslands fyrir árangur
sinn í þessum tveimur greinum.
Beztum árangri í leikfimi náði
Ingvar Jónsson, Sólvangi í
Fnjóskadal og hlaut verðlaun
fyrir það úr sjóði Tómasar
Jónassonar. .Verðlaun frá Drátt
arvélum h.f. hlutu: Ingvar Jóns
son -og Skuii Ragnarsson. Verð
laun- ;frá Kaupfélagi Skagfirð-
inga, Sauðárkróki, hlaut Frið-
rik Hallgrímsson, Viðarstöðum,
Norður-Múlasýslu. Verðlaunin
voru veitt fyrir góða umgengni
og snyrtimennsku. Verðlaun frá
Morgunblaðinu hlaut Eyjólfur
ísólfsson, Reykjavík, en þau eru
veitt fyrir tamningu hesta og
reiðmennsku. Þá var í vor út-
hlutað verðlaunum úr sjóði er
Irma Weile Jónsson stofnaði til
minningar um mann sinn, Ás-
mund frá Skúfstöðum og er
ætlaður til stuðnings þeim, er
hyggja á nám í Noregi. Styrk-
inn, sem er 1000 kr. norskar,
hlaut Jón Viðar Jónmundsson.
Handavinna nemenda í vetur
var mikil og smíðagripirnir
margir og fallegir.
Á skólabúinu að Hólum voru
í vetur 550 fjár, 37 í fjósi og 65
hross. Nægar heybirgðir voru á
búinu og hægt að miðla öðrum
nokkru af heyi. □
Hjálparbeiðni
RAUÐI KROSS fslands hefur
fengið áskorun frá Alþjóða
Rauða krossinum um að hefja
almenna fjársöfnun til aðstoðar
hjálparstarfi alþjóðanefndar
Rauða krossins í Biafra. En
eins og kunnugt er af fréttum
ríkir þar í landi hið ægilegasta
neyðarástand sökum styrjaldar
Biafra- og Nigeríumanna.
Fé því sem safnast í þessu
skyni, verður varið til kaupa á
íslenzkum afurðum t. d. skreið,
sem sendar verða á vegum Al-
þjóða Rauða krossins til hjálpar
sveitanna í Biafra.
Akureyrardeild Rauða kross-
ins hefur ákveðið að gangast
fyrir fjársöfnun í þessu skyni,
og heitir á alla að veita þessu
málefni lið, þó ekki séu stórar
fjárhæðir frá hverjum einum
þá safnast þegar saman kemur.
stéttinni erfið í ár, gekk bú-
peningur vel fram. Sauðburður
gekk víðast mjög vel og hvergi
er þess getið, að um vanhöld af
fóðurskorti hafi verið að ræða.
Telja má, að það hafi verið þrek
virki víða, að hungur og hor-
dauði varð ekki hlutskipti fén-
aðarins, að meira eða minna
leyti. I heilum landshlutum var
búpeningi bjargað með erlendri
kornvöru. Gleðjast má yfir, að
þetta var unnt að gera og að
þetta var gert. En á slíkan hátt
verður búskapur ekki rekinn á
íslandi, nema í neyð.
HVÍTU TÚNIN
Hér verða ekki rakin hörmung-
arár hafísa og hordauða. En til
samanburðar því sem nú hefur
Sameinuðu þjóðirnar efna til í
Vín dagana 7. október til 8.
nóvember í ár. Þátttaka hefur
værið boðin 132 löndum. Til
grundvallar úmræðunum liggja
tvær tillögur um nýja sáttmála,
önnur um umferð á þjóðvegum,
hin um vegvísa, umferðarmerki
og vegamerkingar. Samkvæmt
tillögunum eiga tákn að koma í
stað orða á öllum vegvísum,
þannig að rutt verði úr vegi
þeim tungumálahömlum, sem
nú torvelda mjög allan akstur
utan heimalandsins.
17. JÚNf
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní er
fyrir löngu kominn í svo fastar
skorður á Akureyri, að næstum
(Framhald á blaðsíðu 7).
Aldrei fyrr meiri kosningaáhugi
Egilsstöðum 25. júní. Norðan og
norðaustan garri, hríðarél og
snjór á heiðum og fjöllum ein-
kennir veðráttuna og kaldara er
við sjóinn. Klaki er ekki enn
farinn úr jörð og jarðvinnsla og
vorverk í sveitum miklu seinna
unnin en venja er. Byggð verða
9 íbúðarhús hér í kauptúninu
og eitt verzlunarhús. Þá er bygg
ing landsímahúss fyrirhuguð í
sumar.
vegna Biafra
Blöð bæjarins munu veita mót-
töku framlögum til söfnunar-
innar.
Akureyrardeild
Rauða krossins.
Flugvallarbyggingin nýja hef
ur verið tekin í notkun og er
þar alit hið vistlegasta og mikill
munur á aðstöðu allri fyrir
ferðafólk og starfsfólk.
Við höfum fengið heimsókn
beggja forsetaefnanna nú í sum
ar. Fyrst kom Gunnar Thorodd-
sen og hélt góðan fund með 180
—190 fundargestum. Síðan kom
Kristján Eldjárn og komu 950
manns á þann fund og þótti
það líka góður fundur. Áhugi
manna á forsetakosningunum
virðist meiri en ég man eftir í
Öðrum kosningum. V. S.
Baguk
kemur næst út á laugardaginn,
29. júní.
MINNINGALEIKUR um JAKOB
Á SUNNUDAG, 30. júní, kl.
4 e. h., fer fram á íþróttavell
inum á Akureyri minninga-
leikur um Jakob heitinn
Jakobsson, til styrktar
Jakobssjóði, en sjóður sá
styrkir íþróttamenn til utan-
fara o. fl. — Unglingalands-
liðið kemur norður og leikur
við unglingalið ÍBA, en sem
kimnugt er var enginn Akur
eyringur valinn í unglinga-
landsliðið, aldur leikmanna
er 20 ára og yngri. Knatt-
spyrnuunnendur ert: livattir
til að fjölmenna á völlinn og
sjá yngri mennina leika, þá
sem taka við af þeim, er nú
berjast um íslandsmeistara-
titilinn, og lun leið styrkja
þeir gott málefni.