Dagur - 03.07.1968, Page 7
Nýjar bækur Almenna bókafélagsins
ALMENNA bókafélagið hefur
sent frá sér nýja skáldsögu eftir
Agnar Þórðarson og nefnist hún
Hjartað í borði. Þetta er þriðja
skáldsaga höfundarins, en hann
hefur á síðari árum einkum lagt
stund á leikritagerð eins og
kunnugt er. Hafa þrjú af leik-
ritum hans verið sýnd í Þjóð-
leikhúsinu og tvö önnur í Iðnó,
og eru þá ótalin framhaldsleik-
Þúsundir hylltu
dr. ÍCristján
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ
lögðu þúsundir manna leið sína
heim til dr. Kristjáns Eldjárns
og hylltu hann. Voru þar innan
stundar komin mörg þúsund
manns. Varð af þessu umferðar
töf á næstu götum.
Þegar hjónin, dr. Kristján og
Halldóra kona hans, gengu út á
svalir Þjóðminjasafnsins, en þar
er bústaður þjóðminjavarðar,
voru þau hyllt með langvarandi
lófataki og húrrahrópum. Stóðu
hjónin á tröppunum í 20 mínút
ur og að síðustu ávarpaði Kristj
án mannfjöldann nokkrum orð-
um. □
rit og önnur styttri, sem Ríkis-
útvarpið hefur flutt og öll hafa
aflað höfundinum vinsælda.
Hjartað í borði er nútímasaga
úr Reykjavík. Aðalsöguhetjan
er fjárhættuspilari, sem haettir
öllu fyrir vonina um skjótfeng-
inn gróða, einnig heimili sínu og
eiginkonu, — hjartanu, sem
hann leggur í borð —, því að á
hendi hans er spaðinn, litur
gróðans og feigðarinnar. Þannig
er líf hans orðið eins konar
flótti frá veröld hins starfandi
dags og þó að klukkan á barn-
um slái á sínum fasta ákvörð-
unartíma og minni þannig sí-
felldlega á skyldurnar, sem
hann hefur spilað lífshamingj-
unni úr höndum sér. Þá renna
honum fyrir sjónir liðnir at-
burðir, þar sem draumar, minni
og hugrenningar fléttast saman
og vekja honum uggvænlegar
spurnir. í kvöl sinni leitar
hann örlagavaldsins í lífi sínu.
ÉG Á MÉR DRAUM
Bókin um Martin Luther King
koniin út
Ekki fer hjá því, að margar
og miklar bækur verði skráðar
um Martin Luther King, og nú
þegar hefur ævisaga hans, hin
fyrsta, sem samin er að honum
HELZTU SAMÞYKKTIR
10. ÞINGS SJÁLFSBJARCAR
í 28. tbl. var sagt frá 10. þingi
Sjálfsbjargar, og hér á eftir verð
ur getið helztu samþykkta þings
ins.
TILLÖGUR
TRYGGINGAMÁLA-
NEFNDAR.
1. Að endurskoðuð verði 13. gr.
a Iman n a trygg ingarl aganna og
leggur sérstaka áherzlu á, . að
breytt verði tekjuviðmiðun
greinarinnar.
2. Að örorkulífeyrisþegar með
mjiig litla eða enga vinnugetu
eigi rétt til örorkulífeyrisauka,
sem nemi 60% af hinum al-
menna örorkulífeyri.
3. Að launþegar, sem njóta ör-
orkubóta og verða atvinnulaus-
ir, eigi rétt á dagpeningum úr
atvinnuleysistrygginga$jé)ði.
4. Að lífeyrir verði greiddur með
börnum, sem eru svo fötluð, að
framfærandí þurfi miklu til að
kosta vegna fötlunar þeirra, þé>
að um sé að ræða börn, sem :.ð
öðrunr kosti njóta ekki barna-
lífeyris. Einnig verði heimibð
að hækka um allt að 100%
barnalífeyri, þar sem ástæður
eru sérstaklega slæmar.
5. Að öryrkja, sem er algjiirlega
tekjulaus og dvelur á sjiikra-
húsi eða dvalarheimili, verði
sjálfum greitt allt að 25% ör-
orkulífeyris.
6. Að beina því til Landssam-
bandsstjórnar og fulltrúa Sjálfs-
bjargar í Öryrkjabandalagi ís-
lands að leggja áherzlu á eftir-
farandi atriði í frumvarpi til
laga um endurhæfingu, sem nii
er unnið að á vegum Öryrkja-
bandalagsins.
a) Að fatlaðir fái sem bezta að-
stöðu til náms og starfs-
þjálfunar.
b) Að tryggður verði fjárhags-
legtir rekstrargrundvöllur iir-
yrkjavinnustofa og endur-
hæfingarstöðva. Jafnframt
minnir þingið á drög að
frumvarpi til laga um end-
urhæfingu frá milliþinga-
nefnd ,er samþykkt var á
þingi Sjálfsbjargar 1964.
TILLÖGUR
FÉLAGSMÁLANEFNDAR.
1. Að landssambandið haldiáfram
að styrkja fólk til náms í sjúkra-
þjálfun og öðru því námi, er
snertir endurhæfingu, enda
njóti það starfskrafta þess að
námi loknu eftir samkomulagi,
ella verði styrkurinn endur-
greiddur.
2. Að unnið verði að því, að ör-
yrkjar njóti betri lánakjara til
húsbygginga en nú gjörast.
3. Að leitast verði við að hafa
samvinnu við arkitekta og aðra
þá, er við skipulags- og bvgg-
ingamál fast, um að tekið verði
tillit til sérstöðu fatlaðra.
TILLÖGUR
FA RARTÆ KJ ANEFNDAR.
1. Að á næsta ári verði úthlutað
til öryrkja 350 bifreiðum 4—5
manna, þar af 250 til endur-
veitinga.
2. Þingið lcggur áherzlu á að ör-
yrkjar hafi frjálst val bifreiða-
tegunda og vill um leið vekja
athygli á aðstöðumun leigubíl-
stjóra og öryrkja.
3. Þingið leggur áherzlu á að
felldir verði niður allir tollar
og gjöld af bifreiðum til ör-
yrkja og mælir eindregið með
tillögu Norðurlandaráðs um að
ríkisstjéirnir Norðurlanda gjöri
samræmdar ráðstafanir um nið-
urfellingu aðflutningsgjalda og
annarra gjalda vegna bifreiða-
kaupa öryrkja.
4. Þingið beinir þeirri óskorun til
borgar- og bæjaryfirvalda, að
þau hlutist lil um að á opin-
berum bifreiðastæðum sé eitt
stæði merkt og sérstaklega ætl-
að fötluðu fólki, og sé það mun
rýmra en önnur, vegna eríið-
leika fatlaðs fólks við að kom-
ast í og úr farartæki.
í stjórn Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, fyrir næsta ár voru
kjörin:
Formaður, Theodór Jónsson,
Rvík, varaform., Zophanías llene-
diktsson, Rvík, ritari, Ólöf Rík-
arðsdéíttir, Rvík, gjaldkeri, Eirík-
ur Einarsson, Rvík, meðstjórnend-
ur, Jón Þ. Buch, Húsavík, Ingi-
bjiirg Magnúsdóttir, ísafirði, Heið-
rún Steingrímsdóttir, Akureyri,
Sigurður Guðmundsson, Rvík og
Lára Angantýsdóttir, Sauðárkróki.
Framkvæmdastjóri er Trausti
Sigurlaugsson.
látnum, verið gefin út í Banda-
ríkjunum. Jafnframt hefur hún
nær samtímis verið þýdd á fjöl-
mörg tungumál og þessa dagana
kemur hún einnig á íslenzkan
bókamarkað. Hefur sr. Bjarni
Sigurðsson á Mosfelli annazt
þýðingu hennar, en útgefandinn
er Almenna bókafélagið.
Ég á mér draum, eins og bók-
in heitir á íslenzku, er til o rðin
fyrir samvinnu margra aðila, en
aðalhöfundur hennar og rit-
stjóri er Charles Osborne. Er
þar rakin í máli og myndum
ævi og barátta, sem að áhrifa-
magni á sér fáar hliðstæður í
veraldarsögunni, enda er vart
hægt að hugsa sér, að hún láti
nokkurn mann ósnortinn. Þarna
hittir lesandinn söguhetjuna
fyrst fyrir sér lítinn dreng, sem
ekki skilur, hvers vegna honum
er meinað samneyti við tvo
hvíta leikbræður sína og fylg-
ist síðan með honum í mennta-
skóla og háskóla, þar sem hann
vinnur hvert námsafrekið öðru
glæsilegra, en verður jafnframt
sakir mannkosta og gáfna sjálf-
kjörinn foringi félaga sinna,
einnig úr hópi hinna hvítu. Það
eru þessir sömu eiginleikar,
sem enn síðar gera hann jafn
sjálfkjörinn leiðtoga hinna
hrjáðu kynsystkina sinna í
baráttunni fyrir mannúð og
réttlæti. Fyrir þá baráttu þoldi
hann sífelldlega fangelsanir og
misþyrmingar, unz hún kostaði
hann lífið, 39 ára gamlan. En
hann hafði alltaf vitað, að
hverju hann gekk. „Sá maður,
sem ekki er viðbúinn að fórna
lífinu, er ekki hæfur til að lifa,“
sagði hann sjálfur.
THE GOLDEN ICELAND
Bók Samivels komin á ensku.
Þegar franski rithöfundurinn
Samivel gaf út fyrir fjórum ár-
um bóik sína Gull íslands (L’Or
de l’Islande), þótti einsætt, að
þar væri komið til sögunnar
landkynningarrit, sem að list-
rænni gerð lesmáls og mynda
bæri verulega af flestum sam-
kynja bókmenntum. Hlaut hún
strax einróma lof franskra gagn
rýnenda.
Fljótlega eftir útkomu bókar-
innar í Frakklandi leitaði Al-
menna bókafélagið leyfis til að
gefa hana út á ensku. Vakti
það einkum fyrir félaginu að
sjá íslendingum sjálfum fyrir
veigamiklu og veglegu kynn-
ingarriti, sem þeim væri feng-
ur að geta sent vinum sinum
erlendis, jafnframt því sem
þjóðinni allri væri sómi gerður
með því að koma bókinni sem
víðast á framfæri á erlendum
markaði. Tókst félaginu greið-
lega að ná um þetta samning-
um við höfund og útgefanda og
var þá Magnús Magnússon í
Edinborg ráðinn til að þýða
bókina á ensku og búa hana
til prentunar. Má fullyrða, að
hann hafi þar leyst af hendi
vandasamt verk með miklum
ágætum.
í heimalandi sínu er Samivel
löngu kunnur sem skáld, land-
könnuður og heimspekingur.
Bækur hans, sem flestar fjalla
um fjarlægar þjóðir eða list-
ræn efni, hafa verið þýddar á
fjölmörg tungumál og aflað
honum viðurkenningar og heið
ursmerkja, bæði heima og er-
lendis. Þá hafa og kvikmyndir
þær, sem hann hefur gert frá
ferðum sínum, þai' á meðal frá
íslandi, átt miklum vinsældum
að fagna, og hafa þær að
minnsta kosti í eitt skipti fært
honum heim hin alþjóðlegu
kvikmyndaverðlaun, Intema-
tional Grand Prix.
Bókin er á fjórða hundrað
síður í stóru broti. Hún er
prentuð og bundin í Frakklandi
og er, einnig að öllum búningi,
hinn mesti kjörgripur.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 10.30
f. h. Sálmar: 536 — 433 — 358
— 359 — 585. B. S.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Almenn samkoma verður á
fimmtudag og sunnudag kl.
8.30 e. h. Gunvör Ásblon frá
Grænlandi talar á þessum
samkomum. Allir velkomnir.
— Fíladelfía.
MUNIÐ Biafrasöfnun Rauða
krossins.
I.O.G.T. Akurliljufélagar! Rabb
fundur með kaffi í kvöld (3.
júlí) á venjulegum stað og
tíma. — Æ.t.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur miðvikudag 3.
júlí kl. 8.30 e. h. í Búnaðar-
bankahúsinu uppi. Fundar-
efni: Vígsla nýliða, rætt um
ferðalag, kosið í fulltrúaráð.
Eftir fund: Bingó. — Æ.t.
MINNINGARSPJÖLD Styrktar
félags Vangefinna fást í Bók-
val og verzluninni Fögruhlíð.
MINJASAFNIÐ er opið daglega
kl. 1.30—4 e. h. Tekið á móti
ferðafólki á öðrum tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62, sími safnvarðar er
1-12-72.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er í
sumar opið daglega nema
laugardaga kl. 2—3.30 síðd.
NONNAHÚS er opið daglega
kl. 2—4 e. h. Upplýsingar í
síma 1-27-77 og 1-13-96.
MATTHÍASARHÚS opið dag-
lega kl. 2—4 e. h. Sími safn-
varðar er 1-17-47.
DAVÍÐHÚS verður opið frá 15.
júní kl. 5—7 e. h.
BRÚÐHJÓN. Hinn 29. júní
voru gefin saman í hjónaband
á Akureyri, ungfrú Margrét
Skúladóttii' kennari og Hali-
dór Ármannsson efnafræðing
ur. Heimili þeirra verður að
Sóiheimum 23, Reykjavík. —•
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Akureyrar-
kirkju, ungfrú Emma Sigur-
jóna Rafnsdóttir og Páll Helgi
Sturlaugsson rafvirki. Heimili
þeirra verður að Austurvegi
16, ísafirði.
BRÚÐHJÓN. Hinn 22. júní sl.
voru gefin samán í hjónaband
í Akureyrarkirkju, ungfrú
Sigurlaug Anna Eggertsdótt-
ir, Lyngholti 5, Akureyri og
Bergsveinn Jóhanrisson, Ás-
hóli, Grýtubakkahreppi. —•
FILMAN, ijósmyndast., sími
1-28-07.
JXmtsbÓluxSctfníð er opið
alla virka daga kl. 2—7 e. h.
Safnið er ekki opið á laugar-
dögum.
- Nokkur æviatriði nýkjörins forseta
(Framhald af blaðsíðu 1).
Kaupmannahöfn og lagði fyrst
stund á málanám en sneri sér
síðan að fornleifafræði og lauk
fyrrihlutaprófi í þeim fræðum.
Árið 1937 vann hann við upp-
gröft og rannsóknir fornra ís-
lendingabyggða á Grænlandi,
ásamt dönskum fornleifafræð-
ingum, síðar í Þjórsárdal. Heims
styrjöldin batt enda á nám
Kristjáns í Höfn. Settist hann
þá á skólabekk í Háskóla ís-
lands og nam íslenzk fræði og
tók meistarapróf í þeim vorið
1944. En hafði þá jafnframt
námi og áður en hann hóf nám
í Háskólanum, stundað kennslu
störf, m. a. við Menntaskólann
á Akureyri í tvö ár.
Árið 1945 gerðist Kristján svo
starfsmaður við Þjóðminjasafn-
ið og við stjórn þess tók hann
formlega árið 1947 og hefur ver
ið þjóðminjavörður síðan. Árið
1957 varði hann doktorsritgerð
sína við Háskóla íslands. Nefnd
ist ritgerðin Kuml og haugfé úr
heiðnum sið á íslandi.
Sem þjóðminjavörður og
fræðimaður hefur Kristján Eld-
járn tekið þátt í margskonar
opinberum störfum, annast mót
tökur tiginna gesta og mennta-
manna, sett upp sýningar og er
þar skemmst að minnast Græn-
landssýningarinnar o. s. frv.
Nokkrar bækur hefur dr.
Kristján skrifað og fjölda rit-
gerða um fræðileg efni þjóðar-
sögunnar og fornar minjar og
flutt erindi í útvarp og sjónvarp.
Kona Kristjáns er Halldóra
Ólafsdóttir frá ísafirði og eiga
þau fjögur börn: Ólöfu, stúdent,
gift Stefáni Erni Stefánssyni,
Þórarinn, menntaskólanema,
Sigrúnu, nemanda, og Ingóif, á
barnaskólaaldri.
Dr. Kristján Eldjárn hefur
aldrei haslað sér völl á vett-
vangi stjórnmálanna. En hann
er löngu þjóðkunnur maður og
hefur notið mikiilar virðingar í
starfi.
Yfirburðasigur dr. Kristjáns
Eldjárns í forsetakosningunum
30. júní er vel fagnað af vfir-
gnæfandi meirihluta þjóðarinn-
ar. Og andstæðingar hans geta
einnig treyst því, að forseta-
embættið verður vel skipað. □
*+©->-*^<->-M'^©-i'*')'©-í'#'>'<s>-HW'í^*'^©->-*'>-<s>->*+©-*-*'H5-í-*^<2^*S'<5
§ Öllum þeim, sem glödclu migá 75 ára afmceli minu, ý
T 14. júní s. I., með blófnum, heillaóskum eða á annan %
| hátt, þahka éginnilega. *
I EGILL JÓHANNSSON, skipstjóri. f
Í t
| *'V©-**'><^*S'<^*'H3)->'*'>^*S'©-^*'»'©-*-*'>'©-^*'>'©-HtH'<^*'S© é
^ Innilegar þakkir til ykkar allra, sem heimsóttu mig, f
^ fcerðu mér gjafir og blóm og sendu mér skeyti á áttrœð- %
£ isafmceli minu 2S. júni s. I. — Guð blessi ykkur öll. t
I
INGIBJORG ARNADOTTIR frá Dceli. |-