Dagur - 10.07.1968, Qupperneq 4
4
S
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Daft í hjóffarið
MÖNNUM varð tíðrætt um hinar
sögulegu forsetakosningar. Sjálfar
tóku þær af allan efa um fylgi þjóð-
arinnar við forsetaefnin, en hvers
vegna hlaut dr. Kristján Eldjám 65.
af hundraði atkvæða en dr. Gunnar
Thoroddsen 35 af hundraði? Undan-
farin þrjú ár eða lengur hefur nafn
Gunnars Thoroddsens legið í loft-
inu, tengt umræðum um val nýs for-
seta, og opinberu umtali þar um,
ekki verið mótmælt. En sjálfur gekk
hann fremstur í flokki árið 1952 um
að hafna leiðsögn tveggja stærstu
stjórnmálaflokka landsins í forseta-
kosningum. I vetur lýstu allir stjóm-
málaflokkar því yfir, að ekkert for-
setaframboð færi fram á þeirra veg-
um og að þeir tækju ekki afstöðu til
forsetaframboðs. Þetta tvennt lá ljóst
fyrir, ásamt markvissum undirbún-
ingi Gunnars og stuðningsmanna
hans strax í vetur.
En undirbúningur að framboði
hans vakti enga hrifningu og þær
raddir urðu æ háværari, sem töldu
bæði ástæðulaust og enda óæskilegt
að láta hann verða sjálfkjörinn. Þjóð-
in vildi sjálf velja forseta, í almenn-
um kosningum eins og 1952, en án
afskipta pólitísku flokkanna. Sam-
kvæmt því var leitað að manni utan
forystusveita þeirra sem væri vel til
þjóðhöfðingja fallinn sakir vits-
muna, menntunar og drengskapar,
væri vammlaus og virðulegur full-
trúi þjóðar sinnar út á við en jx')
fyrst og fremst liið rnikla sameining-
artákn stríðandi stétta og flokka inn
á við, sem allir gætu treyst. Þessi
maður fannst og þann sama dag og
framboð hans var gert kunnugt,
hafði hann sigrað í forsetakosning-
unum. Þessi maður var dr. Kristján
Eldjárn. Almenningur í landinu
treysti honum betur en snjöllum
stjórnmálaforingja og hafnaði með
öllu opinberum bænum og áskorun-
um fjögurra núverandi ráðherra um
að kjósa hinn æfða stjórnmálamann.
Almenningur hafnaði einnig leið-
sögn stærsta stjórnmálablaðs lands-
ins, sem í lok kosningabaráttunnar
lýsti opinberum stuðningi við stjóm
málamanninn. Ráðherramir, Morg-
unblaðið og Gunnar Thoroddsen
sjálfur hröktust niður í gamla póli-
tíska hjólfarið sitt í munnlegum og
prentuðum áróðri og sátu fastir.
Þeim var líkt farið og tröllunum í
þjóðsögunum, sem ekki komust leið-
ar sinnar fyrr en dagur rann. Fólkið
sá venju fremur vel hina steinrunnu
nátttröllsmynd, sem nú einkennir
um of starfsemi hinna pólisísku
flokka í landinu. Og j>að er vonandi,
að flokksforingjamir, ekki síður en
(Framhald á blaðsíðu 6).
Forsetabúið á
f MORGUNBLAÐINU 11. apríl
birtiist ræða, er forsætisráð-
herra Bjarni Benediktsson hafði
flutt í Sameinuðu Alþingi föstu
daginn 5. april, um endurskoðun
st]órnarskrárinnar o. fl. þar að
lútandi. Sem vænta mátti er
ræðan greinagóð til yfirlits, en
einn kafli í-æðunnar snart mig
illa og kemur mjer undarlega
fyrir sjónir. Nefnir blaðið þann
kafla: Kostnaður við forseta-
enrbættið. Þar segir meðal ann-
ars svo:
„Og jeg vil skjóta því hjer
inn, að hugmyndir þær, sem
menn hafa um kostnaðinn við
forsetaembættið eru fjarstæða.
Sumir kenna t. d. forsetanum
það, að hallarekstur er á búinu
á Bessastöðum. Það er rjett að
þar er hallarekstur, en sá bú-
skapur kemur forsetanum ekk-
ert við. Hann hefir fyrir löngu
beðið sig undan allri ábyrgð á
þeim búrekstri.
Búrekstur þar, var að jeg
hygg, fyrst settur upp í samráði
við Svein heitinn Björnsson en
hanp fjekk fljótt nóg af honum,
og síðan hefur þetta verið rekið
sem sjálfstætt bú. Fyrir 2—3 ár-
um fjekk jeg samþykki ríkis-
stjórnarinnar til þess, að þrír
ágætir menn kæmu betri skipan
á þennan búskap. Þetta voru
framúrskarandi hæfir menn,
hver á sínu sviði og það var far-
ið eftir þeirra tillögum og þar
kom hvorki pólitík nje greiða-
semi við nokkurn mann til álita.
. Tapið á þessum búrekstri hefur
aldrei verið meira en eftir að
þessar tillögur náðu fram að
ganga. Og nú nýlega hefur ver-
ið ákveðið að leggja búið á
Bessastöðum niður, og flytja
þaðan burt allar skepnur, sem
ríkið á þar og hverfa frá þess-
ari tilraun, sem forsetaembætt-
inu hefur verið óviðkomandi og
aðrir hafa borið ábyrgð á en for
seti íslands.“ — Svo mörg eru
þau orð.
Þegar litið er nánar á þessi
ummæli kemur í ljós:
Að sumt af því sem hjer er
sagt er ekki rjett með öllu. Hlýt
ur það að stafa af því, að for-
sætisráðherrann hefir ekki feng
ið nógu góðar og rjettar upp-
lýsingar um hlutina, því eigi
efast jeg um, að ráðherrann
vilji segja það eitt, er hann telur
rjett vera. Hins vegar má engan
veginn ætlast til þess, að for-
sætisráðherra hafi ástæður og
tíma til að setja sig milliliða-
laust inn í ýmislegt er varðar
búskapinn á Bessastöðum fyrr
og síðar, eftir að jörðin varð
forsetasetur.
Að annað í ummælunum er
þess eðlis, að það getur verið og
er álitamál og skoðanaatriði
hvað sje rjett og ráðlegt. Er fljót
sagt, að um sumt af því sem for
sætisráðherra segir, er jeg hon-
um algerlega ósammála, en vafa
laust lít jeg á sumt, er þessu
viðvíkur, frá nokkuð öðrum
sjónarhóli en forsætisráðherr-
ann, en jeg tel hiklaust, að bún-
aðarsjónarmið komi hjer mjög
til greina.
Loks er fleira í ummælum ráð
herrans augljós sannleikur, sem
mjer er ljúft að taka undir með
honum.
Nú er mjög fjarri sanni, að
mig langi til að mótmæla B. B.
forsætisráðherra, en jeg tel að
ekki verði hjá því komist, og
jeg treysti svo vel víðsýni hans,
að honum sje það ekki í óþökk,
þótt fram komi aðrar skoðanir
en þær sem komu í ljós, í hin-
um umræddu ummælum hans á
Alþingi. Jeg geri mjer jafnvel
von um, að í einstaka atriðum
muni B. B. forsætisráðherra
breyta um álit, er málin skýrast.
Því miður get jeg ekki gert
því sem hjer kemur til umræðu
nein skil nerna í nokkuð löngu
máli, og þó væri þörf að gera
betur en jeg get gert. Vík nú að
þessu í áföngum, sem búnaðar-
máli fyrst og fremst.
Uppliaf búreksturs á forseta-
setrinu. —
Vitanlega er það rjett, að bú-
rekstur á Bessastöðum, í sam-
bandi við búsetu forseta íslands
á staðnum, var „fyrst settur upp
í samráði við Svein heitinn
Björnsson11, er hann settist þar
að. En þess er um leið að geta,
að þegar það var ákveðið að
gera Bessastaði að forsetasetri
mun engum, það jeg til veit,
hafa komið annað til hugar, en
að þar yrði að vera búskapur
við hæfi. Jörðin Bessastaðir
yrði að vera nýtt, og á henni
f . ..............—T\
EFTIR
ÁRNA G. EYLANDS
1 ==/
Svo sem sjá má, er grein þessi
rituð snemma í júní, eða nokkru
fjrir forsetakosningarnar.
r ■ ..............-.....—
FYRRIHLUTI
v. —..-.-í
búið sem forseta-búgarði, á
þann hátt og með þeim sóma
að jörð og bú væri lifandi og
samræmd umgjörð um búsetu
forsetans á staðnum. Þannig var
þetta hugsað, ekki einungis af
Sveini Björnssyni, heldur einn-
ig af Pjetri Magnússyni ráð-
herra, sem hafði með þessi mál
að gera, bæði sem fjármálaráð-
herra og búnaðarráðherra um
skeið, og meðan bezt fór um
forsetabúskapinn á Bessastöð-
um. Forsetasetrið Bessastaðir
er ekki bara Bessastaðastofa og
það sem við hana hefir verið
byggt, svo og kirkjan, en engan
hefi jeg heyrt halda því fram,
að hún sje forsetasetrinu óvið-
komandi. Forsetasetrið Bessa-
staðir er bújörðin Bessastaðir,
með öllum sínum gögnum og
gæðum, landi og húsum,
skemmtilega sjerstæð jörð, ekki
aðeins um sögu allt frá dögum
Snorra Sturlusonar, heldur
einnig og jafnvel fremur um
land og legu. „Kóngsgarður“ út
af fyrir sig og þó í þjettbýli og
nálægð höfuðstaðarins.
Þannig var það ekkert „sjer-
vizku“-uppátæki Sveins heitins
Björnssonar, er ríkið setti sam-
an forsetabú á Bessastöðum
skjótlega eftir að forsetinn sett-
ist að á staðnum. Það var sjálf-
sagður hlutur.
Það er staðreynd, að í sam-
ræmi við þetta leit Sveinn
Björnsson á sig sem bóndann á
Bessastöðum, forsetasetrinu og
forsetabúinu. Því fór víðsfjarri,
að Sveinn forseti liti þannig á,
að „sá búskapur“ — kæmi —
„forsetanum ekkert við“. Og
um leið er það alger misskiln-
ingur og leið missögn, að hann
fengi „fljótt nóg af honum“, þ. e.
búskapnum á Bessastöðum.
Sveinn Björnsson hafði, af borg
arbúa og embættismanni að
vera, ótrúlega mikla þekkingu
og áhuga á búskap, svo að það
Bessastöðum
var óblandin ánægja að tala við
hann um þá hluti, það reyndi
jeg margsinnis. Hann fjekk
aldrei „nóg af“ búskapnum á
Bessastöðum, um það er mjer
vel kunnugt. Áhugi Sveins á bú
skapnum var þrotlaus allt til
hins síðasta, þótt auðvitað yrði
honum eins og öðrum bændum
ekki allt vonbrigðalaust í bú-
skap sínum. Bar þar mjög til,
hve háar hugmyndir hann gerði
sjer um íslenzkan búskap, og
tók sjer blátt áfram nærri það
sem honum fannst úrskeiðis
ganga í búskap og búnaðarmál-
um, á landi hjer.
Er til þess kemur, að „sumir
kenna forsetanum það, að halla
rekstur er á búinu á Bessastöð-
um“, er fljótsagt, að jeg tel slíkt
ábyrgðarlaust óvitahjal, engu
betra en hina fjarstæðuna, að
sá búskapur komi „forsetanum
ekkert við“. Forseta íslands hef
ir verið valin búseta á bújörð-
inni Bessastöðum, fagurri og
hægri en ekki stórri jörð. Það
er svo bein og óumflýjanleg af-
leiðing þeirrar búsetu, að bú-
skapur, góður og snyrtilegur,
verður að vera á Bessastöðum,
sem mikilsverð umgjörð og bak
grunnur búsetu forsetans á
staðnum. Um leið hlýtur og
verður búskapurinn á forseta-
setrinu að koma forsetanum við,
allt annað er óeðlilegt, — og
jafnvel ósæmandi. Um þetta
hljóta að gilda óskráð lög, sem
ber að virða. Hitt er svo annað
mál, að það er alger fjarstæða
að láta sjer um munn fara, að
forsetinn beri (fjarhagslega)
ábyrgð á búskapnum á Bessa-
stöðum. Auðvitað ber forsetinn
ekki ábyrgð á búskapnum, í
þess orðs venjulegu merkingu,
fremur en t. d. á því hver kostn
aður verður árlega við bílakost
forsetaembættisins, engum kem
ur slíkt til hugar.
„Ábyrgðin" á búskapnum á
Bessastöðum, ef um slíkt á að
ræða, hvílir að sjálfsögðu að
nokkru leyti á bústjóranum á
forsetabúinu, en þó að lokum á
ríkisstjórninni, eða rjettara sagt
ráðuneyti því sem ræður yfir
búinu, og ræður forsetanum,
sem húsbónda á Bessastöðum,
bústjóra, til að fara með búsfor-
ráð. Þótt allir þessir aðilar vilji
vel og geri vel getur svo farið
að tap verði á búskapnum, alveg
EINS og getið hefur verið í
fréttum blaða og útvarps efndu
tryggingafélögin til getraunar í
sambandi við umferðarbreyting
una 26. maí sl. Um 15000 lausnir
bárust og dregið var úr réttum
svörum 10. júní sl. Verðlaunin
hlaut bifreiðastjóri frá Olafs-
firði, Sigurður Ringsted Ingi-
mundarson.
eins og slíkt kemur fyrir hjá
mörgum bónda, þótt góður sje,
í einstaka árum, og getur margt
valdið, verður eigandi búsins að
taka því.
Af því sem nú er sagt má ljóst
vera, að ef tap verður á bú-
skapnum á Bessastöðum, er það,
að fullum og rjettum skilningi
hluti af heildarkostnaðinum við
forsetaembættið. Á sama hátt,
ef hagnaður verður á búrekstri
þessum þá minnkar sá hagnaður
kostnað ríkisins við forseta-
embættið.
Afkoma búsins á Bessastöðum.
Búið á Bessastöðum kemur í
fyrsta sinn fram í ríkisr. 1942.
Niðurstöðutölurnar á rekstrar-
reikningi búsins hafa verið þess
ar, talið í heilum krónum:
Kr.
1942 (15/6 ’41 — 31/12 ’42)
rekstrarhagn. 20.549.00
1943 — — 11.090.00
1944 — — 7.034.00
1945 rekstrarhalli 23.663.00
1946 — — 15.452.00
1947 — — 27.415.00
1948 rekstrarhagn. 1.114.00
1949 — — 8.026.00
1950 — — 22.578.00
1951 — — 1.877.00
1952 — — 953.00
1953 rekstrai’halli 6.528.00
1954 rekstrarhagn. 145.00
1955 rekstrarhalli 9.117.00
1956 — — 97.627.00
1957 rekstrarhagn. 813.00
1958 — — 636.00
1959 — — 12.100.00
1960 rekstrarhalli 71.731.00
1961 — — 172.405.00
1962 — — 218.230.00
1963 — — 310.023.00
1964 — — 279.230.00
1965 — — 553.756.00
1966 — — 828.135.00
1967 — — 309.952.00
Fyrstu árin, til og með 1945
er ekki lögð veruleg áherzla á
búskapinn á Bessastöðum að
hefja hann til vegs. Vorið 1946
er ráðinn nýr bústjóri að búinu
beinlínis með það fyrir augum
að koma búskapnum í það horf,
að hann hæfi forsetasetrinu. Var
það vilji og ákvörðun þáver-
andi ráðherra Pjeturs Magnús-
sonar, sem fór bæði með land-
búnaðarmál og fjármál, svo að
þar fór saman karl og kýll. Ráð
herra og forseti voru algerlega
Mynd þessi var tekin er full-
trúar tryggingafélaganna af-
hentu verðlaunin. Talið frá
vinstri: Jóhann Björnsson, fram
kvæmdastjóri hjá Ábyrgð h.f.,
eiginkona Sigurðar, Sigurður
Ringsted og Björn Vilmundar-
son, deildarstjóri hjá Samvinnu
tryggingum. □
sammála og samhentir um það,
að ræktun og bú á Bessastöðum
yrði að vera hluti af sæmd stað-
arins.
Fróðlegt er að líta á tölur ár-
anna 1946—1955, en-til hliðsjón-
ar verður að athuga, að á þeim
árum er unnið mjög mikið til
umbóta á búinu, kúabúið auk-
ið og bætt, hlynnt að varpinu,
hænsnarækt tekin upp með góð
um árangri og gerð stórátök um
ræktun. Um 40 ha. af túnum
úr órækt. Þegar þess er gætt, að
öll þessi nýræktun kemur bú-
inu til gjalda, verður ekki ann-
að með sanni sagt, en að afkoma
búsins hafi verið allgóð og jafn-
vel meira en það. Öll árin 1948
—1952 er t. d. nokkur rekstrar-
hagnaður.
Um búskapinn á Bessastöðum
á þessum árum, segir Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason, í bók sinni Bessa
staðir:
„Forsetinn hefur látið sjer
annt um þennan búrekstur, og
sjálfur lagt þar sumt til mála
um tilhögun á búinu og tilraun-
ir þær, sem gera skyldi.------
Á Bessastöðum hefur mikið ver
ið ræktað síðan þar var sett
ríkistjóra — og forsetasetur.
— — — Tún og grasfletir hafa
verið græddir upp kringum hús
in, til prýðis og nytja, auk
þeirra túna, sem áður voru þar.
-----------Það er mjög guni-
legt til fróðleiks að skoða Bessa
staðabúið og fylgjast með störf-
um þar. Margar framkvæmdir
þar eru athyglisverðar og
skemmtilegar. Markvist virðist
vera unnið að því, að þar geti
orðið fyrirmyndarbú á sínum
sviðum. Hreinlæti og snyrti-
mennska í umgengni og vinnu-
brögðum er þar til fyrirmyndar.
Ymsar tilraunir, sem þar eru
gerðar, hafa þegar sýnt athyglis
verðan árangur. Enn er þar að
vísu margt ógert, eða ekki kom
ið í það horf, teem því er ætlað
að vera. En landið er óðum að
fríkka og skipta um svip, og
hvít húsin með rauðum þökum
rísa upp úr grænum ökrum og
túnum.“
Hjer kemur fram greinilega,
að V. Þ. G. er Ijós nauðsyn þess,
að búskapurinn á Bessastöðum
sje með sæmdarbrag, og að það
er snar þáttur í búsetu forsetans
á þessum stað.
Árin líða, það verða breyting-
ar á Bessastöðum, sumum ræð-
ur forsjónin, aðrar eru mann-
anna verk.
Árið 1948 er búið á Bessastöð
um tekið úr yfirumsjá landbún-
aðarráðuneytisins og sett undir
|| ráðuneyti forsætisráðherra, svo
J sem annað er viðkemur forseta-
embættinu. Árið 1952 verða for-
| setaskipti, svo sem kunnugt er,
g| og loks verða bústjóraskipti vor
ið 1956. Ekkert af þessu hefði
átt að breyta neinu um aðstöðu
og afkomu búsins á Bessastöð-
um, og ekkert skal fullyrða um
að svo hafi verið. Lítið sem ekk
ert mun hafa verið unnið að
nýrækt á Bessastöðum eftir
1955, enda má segja að þess
væri ekki brýn þörf. Ræktun á
jörðinni var orðin mikil miðað
við húsakost búsins og bústofn.
Kostnaður við ræktunarfram-
kvæmdir hefir því ekki íþyngt
búinu hin síðustu 10—12 árin.
— En fleira bar til.
Fljótlega eftir 1952 fór að
brydda á því, að aðrir og fleiri
aðilar en Bessástaðabúið hefðu
búpening á staðnum. Fyrst var
það forsetinn sjálfur, en brátt
komu fleiri aðilar til. Sumt má
gott um þetta segja, t. d. að
æðsti maður þjóðarinnar er enn
þeim böndiun bundin við gaml-
ar og nýjar íslenzkar venjur og
æskuminningar, að hann hefir
ánægju af því að hafa eigin
kindur í kofa. Allir þændur
(Framhald á blaðsíðu 2).
Verðlaunin í getrauninni afhent
Við verönd eins nýja liússins. Björn Jónsson, Hreinn Óskarsson
eftirlitsmaður með byggingum, Rósberg G. Snædal og Jón Ingi-
marsson. (Ljósm.: E. D.)
- Orlofslieimilin ...
(Framhald af blaðsíðu 1).
sem átti lægsta tilboð, þegar hús
in voru boðin út, smíðar þessi
hús. Byggingameistarar eru
Sveinn Jónsson, Kálfsskinni og
Ingólfur Jónsson, Dalvík og eru
húsin að mestu smíðuð á verk-
stæði en síðan flutt á byggingar
stað. Einir h.f. á Akureyri smíð-
aði húsgögn.
Húsin eru að grunnfleti 58
fermetrar. í því eru þrjú svefn-
herbergi, eldhús, dagstofa og
snyrting, ennfremur rúmgóð
verönd.
Þeir, sem taka húsin á leigu
til dvalar, viku í senn, greiða
1200 króna gjald. En fjölskyla-
ur eiga ekki að þurfa að flvtja
annað með sér til þeirrar dvalar
en matvæli, jafnvel uppbúin
rúmin bíða, eldavél og ísskápur,
hvað þá heldur meira.
Orlofsheimilin á Illugastöðum
eru 13 lrm. frá Skógum. Vegur
um dalinn er góður og fljótfar-
inn. Ekki ættu dvalargestir að
afkristnast því enn stendur
Illugastaðakirkja. Starfsfólk við
orlofsheimilin nota íbúðarhús
jarðarinnar, því hvorki er þar
bóndi né bú.
Gegnt Illugastöðum blasir
Þeir cpp á
BÚNAÐARSAMBAND N,-
Þingeyjarsýslu kaus 2 menn úr
sínum hópi til að ganga á fund
landbúnaðarráðherra og ræða
við hann um þau viðhorf í land-
búnaðinum, sem þar hafa skap-
azt vegna kalskemmda á rækt-
uðu landi. Eru þær skemmdir
svo stórkostlegar að við ekkert
annað verður jafnað á því sviði,
sem þekkt er hér á landi. En
talið er að kalið sé stórkostleg-
ast frá Brunná í Axarfirði að
Hafralónsá í Þistilfirði. Á því
svæði er ekki viðunandi kúa-
hagi á túnum og taða gefin með
þar sem hún er enn til frá síð-
asta vetri.
Sendimenn þeir, sem kjörnir
voru til suðurgöngunnar voru
þeir Sigtryggur Þorláksson
hreppstjóri á Svalbarði og Grím
ur Jónsson ráðunautur í Ær-
lækjarseli. Þeir komu af fundi
ráðherra í gær og verður nú
haldinn fundur með oddvitum
sýslunnar, út af þessu máli.
(Samkvæmt viðtali við Óla Hall
dórsson á Gunnarsstöðum).
Þessu til viðbótar verður það
að teljast lágmarkskrafa til land
Þórðarstaðaskógur við og ný-
lega byggð brú er þar yfir
Fnjóská. Leikvellir verða gerðir
á sléttum árbökkunum. En
heima verður komið upp að-
stöðu fyrir yngstu börnin.
Áformað er að byggja sundlaug
og sérstakt hús til sameiginlegra
nota.
Sérstakt eigendafélag sér um
rekstur húsanna og kaus það
sér þessa menn til að annast
hann fyrir sína hönd: Rósberg
G. Snædal, Jón Ingimarsson og
Björn Þorkelsson. Eftirlitsmað-
ur á staðnum er Rósberg G.
Snædal.
Þorvaldur Kristmundsson
arkitekt teiknaði hús og hús-
gögn, Jón Rögnvaldsson skipu-
leggur lóðir og Baldur Jónsson
í Fjósatmigu hefur eftirlit með
ýmsum verklegum framkvæmd
um utanhúss.
Mjög gestkvæmt hefur verið
að Illugastöðum síðustu daga.
Kemur víst flestum saman um,
að heimilin séu hin vistlegustu
og að þar muni gott að búa. —
Dagur óskar Alþýðusambandi
Norðurlands og verkalýðsfélög-
unum til hamingju með hin
nýju dvalarheimili. □
ráiierrafynd
búnaðarráðherra, að hann sjálf-
ur komi á mesta kalsvæði norð-
austanlands og alveg furðulegt
tómlæti, að hann skuli ekki hafa
gert það fyrir nokkru. □
HANS SIF LIGGUR Á
RAUFARHÖFN
DANSKA flutningaskipið Hans
Sif liggur við bryggju á Raufar-
höfn, sagði Hreinn Helgason
fréttaritari Dags í gær. Dælurn-
ar eru settar í gang öðru hvoru
því skipið er ekki alveg þétt.
En það er undrunarefni, að það
skuli ekki ónýtt orðið á strand-
stað í stórgrýti. Bráðlega verð-
ur skipinu siglt til Reykjavíkur
til viðgerðar. Siglingatæki höfðu
áður verið flutt burtu. Búið er
að losa síldarmjölsfarm skips-
ins að fullu og að þurrka það
mjöl, sem blotnað hafði. Ég
bjóst ekki við að sjá þetta skip
aftur hér í höfninni og sízt af
öllu svona vel útlítandi, sagði
fréttaritari. □
HöskuEdur Markússon
NOKKUR MINNINGARORÐ
GYÐINGAR hafa lifað tvístraðir,
hraktir og ofsóttir um víða veröld
í tvö þúsund ár. En þjóðarbrotin
létu aldrei bugast og trúðu stöð-
ugt á mikilvægt hlutverk sitt. Fyr-
ir 20 árum eignuðust þ.eir loks sitt
eigið föðurland og stofnsettu ísra-
elsríki, sem víðfrægt er. Það voru
Gyðingar hinir fornu, sent ólu spá-
menn og spekinga Gamla testa-
méntisins, einnig Jesúnt Krist. Og
þeir einir þjóða veraldar nota
Gamla testamentið sem kennslu-
bók í eigin sögu.
Rúmum áratug áður en Gyðing-
ar stofnuðu eigið ríki og sönnuðu,
að enn væri tími kraftaverkanna
ekki liðinn, kom til íslands þýzk-
ur Gyðingur að nafni I-Iarry Ros-
enthal, í heimsókn til aldraðrar
móður sinnar í Reykjavík. Hann
hafði 17 daga lcyfi og þeir dagar
liðu fljótt. Þá voru Gyðingaóf-
sóknir Hitlers byrjaðar, þær er
leiddu til útrýmingar sex milljóna
Gyðinga í Þýzkalandi.
Harry Rosenthal sneri ekki aft-
ur heim til Þýzkalapds, heldur
settist að hér á landi, þótt ágæt-
lega launað starf hjá traustu fyrir-
tæki í heimalandinu, ættlaríd ög
ástvinir toguðu í harin. Og- víst
mátti hann haþpi hrósa, því ætt-
menn hans, svo sem bróð.ir og
hans fjölskylda enduðu líf sitt í
gasklefunum. Skörtlmuisíðar liomst
svo unnusta Rosenthals, Hilde-
gard Hcller, til íslands.-Þau urðu
íslenzkir ríkisborgarar, fluttust til
Akureyrar árið 1P38 og frá. 1946
vann svo Harry hjá iyrirtækinu
Amaro, sem skrifstoíustjóíi. Hann
varð bráðkvaddur 25. júni á í-
þróttavellinum 73 ára, á meðan
knattspyrnukappleikur stóð þar
yfir. En á þann stað lét hann sig
aldrei vanta er slíkir kappleikir
fóru fram. Sjálfur var hann al-
þjóðlegur knattspyrnudómari og
sannur ráðgjafi knattspyrnu-
manna á Akureyri um áratugi. —
Útlörin var gerð frá Akureyrar-
kirkju að viðstöddu ljölmenni 29.
júní.
Harry Rosenthal þurfti að skipta
um nafn, er hann gerðist íslenzk-
ur þegn og nefndi sig þá Höskuld
Markússon og var þekktur undir
því nafni, sem hinn nýtasti þegn
bæjarins, mikilhæfur starfsmaður
og góður Islendingur.
Eftir stríðið stóð honum til boða
ágæt staða hjá fyrirtæki þvi, sem
hann áður vann hjá í Þýzkalandi.
Hann haínaði boðinu, þótt frami
stæði honum opinn á sviði við-
skiptanna, því liann hafði skotið
rótum í íslenzkri mold, var orð-
inn íslenzkur maður, senr harm-
aði ekkert nema gamla nafnið sitt.
Það var gæfa Höskuldar Mark-
ússonar að eignast og elska nýtt
föðurland, mitt í ægilegum lrörm-
ungum ættbræðra sinna og að lifa.
hér á landi starfsama og giftu-
drjúga ævi meðal fólks, sem aldrei
hefur þjáðzt af útrýniingarhug-
sjónum, og naut verka hans og
vináttu.
Bæði er ljúft og skylt að þakka
samferðamanninum Höskuldi
Markússyni að leiðarlokum.
E. D.
Tíunda söngmót Hekiu
TÍUNDA söngmót Söngfélágs-
ins Heklu — sambands norð-
lenzkra karlakóra, var haldið
dagana 22. og 23. júní sl.
í söngmótinu tóku þátt 9 af
11 karlakórum, sem í samband-
inu eru: Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps, söngstjórar Jón
Tryggvason og Gestur Guð-
mundsson, Karlakórinn Feykir,
söngstjóri Árni Ingimundarson,
Karlakór Akureyrar, söngstjÓri
Guðmundur Jóhannsson, Karla
kór Dalvíkur, söngstjóri Gestur
Hjörleifsson, Karlakórinn Geys
ir, söngstjóri Jan Kisa, Karla-
kórinn Heimir, söngstjóri Jón
Björnsson, Karlakór Mývátns-
sveitar, söngstjóri Örn Friðriks
son, Karlakór Reykdæla, söng-
stjóri Þóroddur Jónasson og
Karlakórinn Þrymur, söng-
stjóri Sigurður Sigurjónsson.
Söngmenn í þátttökukórun-
um eru samtals um 330. Mótinu
stjórnaði Áskell Jónsson söng-
keimari, Akureyri, sem er for-
maður Söngfélagsins Heklu.
Söngmótið hófst með samsöng
í Félagsheimilinu á Húsavík kl.
14, laugardaginn 22. júní. Að
samsöngnum loknum var öllum
söngmönnum innan Vaðlaheið-
ar boðið til kvöldverðar á heim
ilum söngbræðra sinna á Húsa-
vík, í Reykjadal og Mývatns-
sveit. Kl. 21 um kvöldið var svo
samsöngur að Skjólbrekku í
Mývatnssveit. Að honum lokn-
um héldu allir söngmenn til síns
heima.
Á sunnudaginn 23. júní hófst
mótið að nýju kl. 16, með kaffi-
samsæti fyrir söngmenn og kon
ur þeirra í félagsheimilinu Mið-
garði í Skagafh’ði, í boði skag-
firzku kóranna Heimis og Feyk
is. Sátu hófið hátt á fjórða
hundrað manns. Kl. 21 um
kvöldið var síðan samsöngur að
Miðgarði.
Á hverjum hinna þriggja sarrt
söngva söng hver af þátttöku-
kórunum nokkur lög undh
stjórn söngstjóra sinna, og tvö
lög allir sameiginlega, eða sam-
tals yfir 300 manns, undir stjóm
Jónasar Helgasonar, Jóns
Björnssonar og Páls H. Jóns-
sonar. Auk þess söng sameinað-
ur kór Karlakórs Mývatnssveit
ar, Reykdæla og Þryms þrjú lög'
undir stjórn Þórodds Jónasson-
ar og Sigurðar Sigurjónssonar,
við undirleik séra Arnar Frið-
rikssonar. Hver samsöngur tók
nálega tvo og hálfan kl.tíma.
Heiðurssöngstjórar mótsins
voru Jónas Helgason og séra
Friðrik A. Friðriksson, sem
ekki gat mætt vegna anna.
Aðsókn að samsöngvunum
var mjög góð, og munu hafa
sótt þá alla nokkuð á annað
þúsund áheyrendur alls. Söngn-
um var alls staðar mjög vel
fagnað.
Að morgni fyrra mótsdagsins
var alhvít jörð um allt Norður-
land, og á sunnudaginn snjóaði
í Skagafirði allan daginn, þótt
ekki festi fyrr en um kvöldið.
Söngfélagið Hekla var stofnað
árið 1934 og var þetta 10. söng-
mót félagsins. Auk söngmót-
anna hefur Hekla beitt sér fyrh
söngkennslu á félagssvæðinu,
sem er Norðlendingafjórðung-
ur hinn forni. Þá sungu félags-
kórarnir inn á plötu sem Hljóm
plötuútgáfa Fálkans gaf út 1966
í tilefni af 30 ára afmæli Heklu.
Núverandi stjórn Söngfélags-
ins Heklu skipa: Áskell Jónssors
formaður, Þráinn Þórisson rit-
ari, Árni Jóhannesson gjaldkeri
og meðstjórnendur Guðmundur
Gunnarsson, Jón Tryggvasor.;
og Páll H. Jónsson.
(Frá stjórn SöngfélagsinH
Heklu.) )