Dagur - 10.07.1968, Side 8
Frétlir frá aðalfundi Sambands islenzkra ralveifna
SMÁTT OG STÓRT
AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenzkra rafveitna var haldinn á
AJkureyri dagana 28. og 29. júní
sl.
Á fundinum var þess minnzt,
■að 25 ár eru liðin frá stofnun
sambandsins, og flutti Stein-
grímur Jónsson, fyrrv. raf-
magnsstjóri, erindi í tilefni af
því um starfsemi sambandsins
frá upphafi og framtíðarverk-
efni þess.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var rætt um eftirlit með
raforkuvirkjum, löggildingu til
raf virkj unarstarf a, gj aldskrár-
mál og verðjöfnunargjald á raf-
orkusölu, og var stjórn sam-
bandsins falið að afla upplýs-
inga um álagningu og inn-
heimtu verðjöfunargjaldsins.
Jón Á. Bjarnason, rafmagns-
eftirlitsstjóri, hafði framsögu á
Húsavík 9. júlí. Ólafur Þ. Jóns-
son óperusöngvari söng á veg-
um Tónlistarskóla Húsavíkur í
| Orðsending (
; fil bændð 1
§ Á FUNDI stjórnar Búnaðar- i
i félags íslands hinn 2. júlí \
| 1968 var samþykkt eftirfar- i
i andi bókun: i
| „Með sérstöku tilliti til i
i þeirra horfa, sem nú eru um i
i grasvaxtarhorfur, einkum á i
i Norður-, Vestur- og Austur i
i landi ber brýna nauðsyn til =
| að taka til rækilegrar athug- i
i unar, hvað hægt er að gera I
i til þess að draga úr veruleg- i
i um afleiðingum af grasbresti i
i á þessu sumri.
i Stjóm Búnaðarfélags ís- i
i lands ákveður að koma á i
§ framfæri í blöðum og útvarpi i
i áskorun til bænda um að i
i beita sér fyrir því með öllum i
i hugsanlegum ráðum, að allt i
i graslendi, sem vaxtarskilyrði 1
i hefir, tún og engjalönd verði i
i varin, áborin og hagnýtt til i
i slægna í sumar og svo til i
i verks gengið í þessu efni, að i
i eigi sé í það horft, þótt hey- i
i fóður af slíkum Iöndum i
i þurfi að flytja um langan =
i veg, ef nauðsyn krefur.!‘ i
| Halldór Pálsson. =
.IMMMMlí
fundinum um eftirlit með raf-
orkuvirkjunum og ræddi sér-
staklega skoðun gamalla raf-
lagna. Gerð var samþykkt á
fundinum um breytta tilhögun
á slíkri skoðun, þar sem lagt er
til, að Rafmagnseftirlit ríkisins
annist skoðunina í stað þess að
fela rafveitunum verkið eins og
nú er gert. Þá flutti Hans Jör^-
en Johansen, yfirverkfræðingur
frá Bergen, erindi um eftirlits-
mál í Noregi.
í umræðum um löggildingar-
mál kom fram, að þörf væri á
breytingum og samræmingu á
skilyrðum fyrir löggildingu til
rafvii'kjunarstarfa og var stjórn
sambandsins falið að skipa
nefnd til að gera tillögu að nýj-
um löggildingarskilyrðum.
Þá flutti Sveinn S. Einarsson,
verkfræðingur, erindi um jarð-
Húsavíkurkirkju sl. sunnudag.
Við híjóðfsörið'Vár Reynir Jónas
son. 'Söngskémmtunin var fjöl-
sóft og 'vár söngvaranum vel
fagnáð, og varð hann að endur-
taka lög ög syngja aukalög. Það
er ofðinn fastur liður í starfi
Tónlistarskólans, að efna árlega
til slíkra tónleiká sem þessara
og fá til góða söngvara eða
hljóðfæraleikara.
Fiskveiði ' hefur verið mjög
góð á Húsavík að undanförnu,
svo að Fiskiðjusamlag Húsavík-
ur hafði um skeið ekki undan
að verka aflann. Róðrarstöðvun
varð þá í nokkra daga og þótti
mörgum súrt í brotið, sem von
var eftir mjög léleg aflabrögð í
allan vetur og í vor. Nú hefur
rætzt nokkuð úr.
Hinn 5. þ. m. varð skyndilega
(Framhald á blaðsíðu 7).
BÓNDI einn í Hörgárdal og
verzlunarmaður á Siglufirði,
Björn Jónsson að nafni, var
hvatamaður að stofnun prent-
smiðju á Akureyri árið 1849.
Hún tók nokkru síðar til starfa,
starfar enn og heitir Prent-
smiðja Björns Jónssonar h.f.
Saga hennar verður ekki rakin
hér, en fyrir nokkrum dögum
tóku þrír prentarar við rekstri
hennar á eigin ábyrgð. Það eru
þeir Svavar Ottesen, Haraldur
gufuaflstöðvar og lýsti fyrir-
hugaðri jarðgufuvirkjun, sem
Laxárvirkjun lætur reisa á
þessu ári við Námaskarð. Verð-
ur virkjunin um 2500 kw. að
stærð í fyrsta áfanga, en þess er
vænzt, að hægt sé að auka aflið
í 3000 kw. eftir smávægilegar
breytingar á gufuhverflinum.
(Fnamhald á blaðsíðu 7).
Dagur
Síðasta blað fyrir sumarleyfin,
kemur út á miðvikudaginn, 17.
júlí.
Ásgeirsson og Baldur Hólm-
geh-sson og starfa þeir þar allir.
En auk þeirra vinna þar Vil-
helm K. Jensen, er hefur unnið
í þessari prentsmiðju í 32 ár,
Þór Ingólfsson, báðir prentarar,
og einn nemi, Birgir Styrmisson.
Hitti blaðið þá að máli í prent-
smiðjunni á mánudaginn, morg
unglaða og hressa, með töluverð
verkefni framundan og bjart-
sýna á, að þau muni fljótlega
verða næg.
SUNNANFARI?
Nautkálfur einn af úrvalskyni
sunnlenzku, nokkurra vikna
gamall, lenti í ævintýri í liöfuð-
borginni í upphafi ferðar hingað
norður. Á Laugavegi í Reykja-
vík sá kálfurinn sér leik á borði
að skoða heiminn og stökk aftur
af bílpallinum. En hvorki knnni
liann H-umferð eða aðra og all-
ir störðu á liann eins og naut á
nývirki og hefur það þá ver-
ið gagnkvæmt. Næstu nótt gisti
hann ITótel Sögu, og næsta
morgun var hann meðal farþega
í einni af flugvélum F. f. til
Akureyrar og er nú kominn í
áfangastað. Einhver stakk upp
á að nefna káifinn Sunnanfara.
ALLT ER MATUR ....
Löngu áður en okkar tímatal
hófst hreinsuðu Forn-Egyptar
iður sín með stólpípu mánaðar-
lega, því þeir töldu fæðuna upp
sprettu allra sjúkdóma. Hippo-
kratis var ekki sama sinnis, því
hann taldi „rétt samsetta fæðu“
lykil að góðri heilsu. Forskriftir
hans um mataræði viku ekki
fullkomlega fyrr en undir 1900,
er nútímavísindi í efnafræði og
næringarfræði kollvörpuðu ýms
um fyrri kenningum. Allt er
matur sem í magann kemst, er
orðtak, sprottið upp á þreng-
ingartímum, þegar flest ætilegt
þótti notliæft til matar, og sult-
urinn var lielzta kryddið.
Prentsmiðja Björns Jónsson-
ar er til húsa í gömlu Skjald-
borg, sem temlarar og ung-
mennafélagar á Akureyri
byggðu af miklum stórhug á
sínum tíma. Vélakostur prent-
smiðjunnar er að nokkru gamall
og að nokkru nýlegur og á hún
að geta skilað góðri prentun
blaða, bóka og margskonar smá
prentun. Er það von þeirra, sem
nú reka þetta gamla og góða
fyrirtæki, að þá skorti ekki verk
VARMAEININGAR
Talið er, að Norðurameríkanar
og Evrópubúar þurfi 2900
varmaeiningar á sólarhring í
fæðu, til að lifa og starfa eðli-
lega. Fæðan er þó því aðeins
fullkomin, að hún innihaldi 45
efnasambönd og frumefni, til að
fullnægja öllum frumum líkam-
ans. Ef eitthvert slíkt efni vant-
ar til lengdar kennir fram
hörgulsjúkdómur. Engin ein
fæðutegund inniheldur öll þessi
45 efni, og því er „fjölbreytt
fæða“ æskileg.
MATARUPPSKRIFTIR
Alls konar mataruppskriftir eru
fleiri en tölum verði á komið.
Hollu fæði má ná eftir mörgum
leiðum. Máltíð með ostrum,
hvítstyrjuhrognum, frönskum
sniglum og ostaköku, krydd-
súpu, fisk- og kjötrétti og
salati, er ríks manns máltíð. En
grjónagrautur, ber, grænar
plöntur, villibananar og einhver
kjötréttur, sem er máltíð þeirra,
sem borða til að lifa og starfa,
er líkamanum jafn góð eða
betri, en kostar mörgum sinnum
minna. Þessar gerólíku máltíðir,
sem teknar hafa verið sem
dæmi í fræðibók eru áþekkar
að næringargildi.
STÆRSTA DÆI.USKIPIÐ
Við þekkjum þau tæki, sem hér
á landi eru notuð til að dýpka
liafnir. 1 Kalkútta vann til
skamms tíma stærsta dæluskip
Iieims og vinnur e. t. v. enn. Á
því vinna 92 hásetar og 18 yfir-
menn. Skipið dælir 2830 rúm-
metra af botnleðju á 50 núnút-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Snæfellið
aflar vel
Hrísey 9. júlí. Snæfell losaði hér
enn í gær og nú 70 tonn, og er
afli þess orðinn mikill á þessu
vori. Segja má, að hingað hafi
borizt mikill fiskur í vetur og
vor. En alls hefur Snæfell aflað
900 tonn frá því í febrúar.
Nótabátamir okkar eru í al-
gerðu banni hjá ríkisstjórninni
elskulegri. Varðskip rak bátana
frá veiðum í Þistilfirði og hótaði
hörðu. Á færi fæst mjög lítið
ennþá.
Skip tók hér saltfisk fyrir
tveim dögum og nú er verið að
taka beinamjöl. Það hefur verið
góð atvinna í Hrísey um lengri
tíma. S. T.
efni og munu þeir leggja
áherzlu á vandaða vinnu. En
einn þessara manná, Svavar
Ottesen, vann áður lengi í POB
og m. a. var hann auglýsinga-
setjari og aðal-umbrotsmaður
Dags um margra ára bil og vann
þau störf af mikilli prýði, sem
ljúft er og skylt að þakka, er
hann hverfur að annarri prent-
smiðju. Dagur óskar honum og
félögum hans allra heilla í þörfu
starfi. □
LAXINN GENGUR ÖRT í LAXÁ
Prentarar í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f. (Ljósm.: E. D.)
Nýir menn taka gamla prentsmiðju á leigu