Dagur - 11.09.1968, Síða 8
8
Þrátt fyrir kalt vor urðu margir skrúðgarðar bæjarins fagrir í sumar.
(Ljósm.: E. D.)
SMÁTT OG STÓRT
RAKA SAMAN FÉ
Blaðinu hefur verið tjáð, að
hljómsveit, sem víða hefur aug-
lýst skenuntisamkomur, hafi
fyrst selt inn á skemmtiatriði á
150 kr., síðan rekið fólkið út og
selt því inn á dansleikinn á 200
kr. eða somtals 350 krónur.
Þetta gerðist í sveitum. Sama
hljómsveit, sem hélt samskonar
skemmtim á Akureyri seldi að-
ganginn á 150 krónur aðeins.
Hvers átti sveitafólkið að
gjalda? Hljómsveitir að sunnan
eru sagðar hafa rakað sarnan
fé hér norðanlands í sumar.
AÐ AKA
Enn ber það við hér á Akur-
eyri, að ökumenn brjóta flest
boðorð í umferðimii, aka jafn-
vel á ofsaliraða, svo hrehm
keppakstur sé ekki nefndur.
Hættan af þessu er mikil, og
BERJATÍNSLA
Víða náðu ber fullum þroska og
fólk þyrpist í berjamó rnn helg-
ar. Blaðið vill minna á, að berja
tínsla er óheimil án leyfis land-
eigenda og er það hinn mesti
dónaskapur að óvirða þann rétt
með berjaþjófnaði í löndum
bænda. Leyfi til tínslu eru hins
vegar oftast auðfengin gegn
nokkru gjaldi, sem hverjum og
einum á að vera Ijúft að greiða.
TOGARI STRANDAR
Togarinn Surprise frá Hafnar-
firði (smíðaður í Skotlandi
1947) strandaði á Landeyjar-
sandi að morgni sl. fimmtudags.
Mannbjörg varð. Skipverjar
töldu sig vera á Krossandi en
skip þeirra strandaði framan við
bæinn Sigluvík. Dimmviðri var
á. Björgun hefur ekki tekizt.
óbein áhrif á aðra ökumenn er
það einnig. Þvi miður virðist
almennur áhugi á því, að læra
umferðarreglur og fara eftir
þeim, sem svo lofsverður var í
umferðarbreytingunni miklu í
vor, fara dvínandi. Á þetta er
minnt að marggefnu tilefni.
BAKKUS EKKI MEÐ
I síðasta blaði sagði frá ungum
manni, sem ók út af við kirkj-
una. í næstu málsgrein er getið
lun ölvun. Til að fyrirbyggja
misskilning var hér ekkert sam-
band á milli ölvunar og útaf-
keyrslu og hefur lögreglan stað-
fest það. Hins vegar biluðu heml
ar bílsins og ökuhraðinn var of
mikill. Það tvennt var orsök
slysins. Mætti það dæmi undir-
strika þau orð hér að framan,
sem fjalla um of hraðan akstur.
Aðalfundur ÆskuSýðssambandslns
AÐALFUNDUR Æskulýðssam
bands kirkjunnar i HólastiftL
var haldinn í Olafsfirði um sl.
helgi og var hinn fjölmennasti
fram að þessu. Þar voru bæði
prestar, ungmenni og annað
áhugafólk um málefni kirkjunn
ar. Fundínum lauk með sam-
sæti í Tjarnarborg, sem sóknar-
nefnd og söfnuður í Ólafsfirði
boðaði til. Hófinu stjórnaði séra
Ingþór Indriðason. Aðalfundar-
gestir nutu gistivináttu 20 heim
ila í Ólafsfirði. Síðar verður e.
t. v. nánar frá fundinum sagt er
fréttatilkynning berst. □
FEGURSTU GARÐARNIR Á AKUREYRI
THULE-ÖL HÆKKAR
Thule-ölið frá Sana á Akureyri
sem hlotið hefur vinsældir neyt
enda, hækkar nú um 90% á
höfuðborgarmarkaðinum. Kost-
ar flaskan þá 18.75 í stað 10.00.
Hér á Akureyri var hver flaska
1.25 króninn ódýrari en syðra.
Ölverksmiðjan mun ekki hafa
treyst sér lengur til að fram-
leiða ó fyrra verði og verðlags-
yfirvöld því leyft þessa hækkun.
MISFERLI í SEMENTS-
VERKSMIÐJUNNI
Saksóknari ríkisins hefur nú til
meðferðar mál 42 starfsmanna
Sementsverksmiðjunnar, vegna
launaframtala, sem þykja mjög
í molum, og hafa verið það síð-
ustu árin. Má búast við að dóm-
stólarnir fjalli um þetta meinta
(Framhald á blaðsíðu 5).
HINN 5. september sl. hófst
kennaranámskeið á Laugalandi
á ÞeLamörk og þar einkum
kennd hin nýja stærðfræði —
mengi —■. Námskeiðinu lýkur
14. september. Valgarður Har-
aldsson námsstjóri hefur um
sjón með því, f. h. fræðslumála'
skrifstofunnar.
FEGRUNARFÉLAG Akureyr-
ar hefur veitt eigendum 200
skrúðgarða verðlaun og viður-
kenningar á undangengnum
árum.
Á föstudagskvöldið bauð það
til kaffisamsætis á Hótel Varð-
borg og veitti eftirtöldum viður
kenningu fyrir snyrtilega garða
með ávarpi og hinni ágætu
Skrúðgarðabók:
Herberti Tryggvasyni og frú
Kringlumýri 33, Guðna Þórðar-
syni og frú Hamarstíg 1, Jó-
hanni Malmquist og frú Ás-
byggð 3 Leonarð Albertssyni og
Sauðf j árslátrun hefst
á Akureyri 17. sept.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN á Akur
eyri hefst að þessu sinni hinn
17. september. Lógað verður þar
36 þús. fjár en auk þess á Greni
vík og Dalvík. Áætluð slátur-
fjártala hjá KEA á þessum
þrem stöðum er um 50 þúsundir.
Auknar kröfur eru nú gerðar
af erlendum kaupendum kinda-
kjöts um breyttar slátrunarað-
ferðir og meira hreinlæti í slát-
urhúsum, en unnt er víðast við
að koma. Um þriðjungur alls
dilkakjötsframleiðslunnar er
seldur úr landi ár hvert eða um
4 þús. tonn og því mikilsvert að
uppfylla kröfur kaupenda um
meðfefð vörunnar.
Framleiðendur, eða bændur
landsins gera kröfur til kaup-
félaga sinna um að mæta þess-
um kröfum með byggingu nýrra
og fulLkominna sláturhúsa. En
bankarnir hafa sett kaupfélög-
unum-stólinn fyrír dyrnar í .þess
um efnum eins og mörgum öðr-
um með sinni alkunnu lána-
tregðu.
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins og framleiðnisjóður vilja að
því vinna, að endurbyggja slát-
urhúsin og fækka þeim um leið
af praktískum ástæðum. Rekstr
arfjárlánin til landbúnaðarins
hafa ekki hækkað í krónutali
síðan 1960. Kaupfélög bænd-
anna eru því illa á vegi stödd og
hreinlega svelt..
Eins og áður segir verður
sauðfjárslátrun KEA á þrem
stöðum í haust eins og áður, en
heyrzt hefur, í bollaleggingum
um nýja skipan þessara mála, að
sláturhúsin í Grenivík og Dal-
vík verði lögð niður en slátrun-
araðstöðunni þannig breytt á
Akureyri, að hún fullnægi hin-
um nýju kröfum erlendra kaup
enda, en of kostnaðarsamt mun,
af opinberum aðilum talið að
koma þeirri breytingu á nema
á einum stað á félagssvæðinu.
Kennarar á stærðfræðinámskeiði Þelamerkurskóla.
(Ljósm.: E. D.)
frú Möðruvallastræti 8, Ólafi
Aðalbjörnssyni og frú Grænu-
mýri 14, Gesti Jóhannessyni og
frú Reynivöllum 2, Tryggva
Gunnarssyni og frú Norðurgötu
43. Ennfremur Dúa Björnssyni
fyrir góða hirðingu kirkjugarðs
ins.
Dómnefnd skipuðu: Jón Rögn
valdsson, Ingólfur Árnason og
Einar J. Hallgrímsson.
Er formaður, Jón Kristjáns-
son, hafði veitt þessar viður-
kenningar flutti hann ræðu, svo
og Jón Rögnvaldsson, sem sagði
að ekki hefðu öðru sinni verið
jafn-ljótari garðar á Akureyri,
vegna óhagstæðrar veðráttu.
í kaffisamsætinu voru um 30
manns og undu menn sér lengi
kvölds við samræður um skrúð-
garða o. fl. □
Þrír Þiiigeyingar sýna verk sín á Aknreyri
EINAR Karl Sigvaldason, bóndi
á Fljótsbakka í S.-Þing., opnaði
málverkasýningu í Landsbanka
salnum svo sem áður var frá
sagt og sýndi 40 olíumyndir o. fl.
Á fimmtudaginn var opnuð önn
ur sýning í aðalsal Hótel KEA.
Þar sýndi Jakob V. Hafstein, frá
Húsavík, nú í Reykjavík, 35
myndir, þar af 20 olíumálverk
og svo vatnslitamyndir og Jó-
hann Ingimarsson, N.-Þingey-
ingur, nú á Akureyri, 25 mynd-
ir, nokkuð sérstæðar, því þar er
— auk lita og lérefts notað tré,
stál o. fl. Hér er því um að ræða
verk þriggja Þingeyinga á
tveimur sýningum samtímis og
lauk þeim sl. sunnudagskvöld.
Einar Karl og Jóhami Ingi-
marsson hafa ekki áður sýnt
málverk sín, en Jakob V. Haf-
stein hefur hins vegar haldið
nokkrar sýningar.
Sýningar þessar voru sæmi-
lega sóttar og margar myndir
seldar. □
Leiðbeinendur eru: Guðmund
ur Arnlaugsson rektor, Björn
Bjarnason yfirkennari, frk.
Agnete Bundgord, Kristinn
Gíslason eftirlitsmaður, Ármann
Helgason, Akureyri og Helgi
Þorsteinsson, Dalvík. Fast að 30
sem einkum var ætlað Norð-
lendingum. Margir kennaranna
búa í skólanum en aðrir á Akur
eyri. □