Dagur - 25.09.1968, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síinar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÉÐSSON
Augiýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Stjórnlaga-
breyting
Á KJÖRDÆMISÞINGI Framsókn-
armanna á Laugtim 31. ágúst sl. var
m. a. samþykkt einróma ályktun þess
efnis, að þingið legði áherzlu á, að
stjórnarskráin yrði tekin til ítarlegr-
ar endurskoðunar og þeirri endur-
skoðun lokið svo tímanlega að ný
lýðveldisstjórnarskrá geti tekið gildi
eigi síðar en árið 1974 á aldarafmæli
hinnar fyrstu stjórnarskrár íslands.
í sömu ályktun segist kjördæmisþing
ið telja rétt, að tekin verði upp ein-
menningskjördæmi og landinu verði
skipt í umdæmi (fylki), sem öðlist
sjálfstjóm í sérstökum málum. Lýsti
þingið yfir þeirri skoðun sinni að sú
breyting myndi hafa það í för með
sér, að bein áhrif fólksins í dreifbýl-
inu á stjóm þjóðfélagsins yrðu meiri
en þau em nú og jafnframt stuðla að
auknu jafnræði milli landshlutanna.
Áður en gömlu kjördæmin voru
lögð niður 1959, var hér blandað
kosningafyrirkomulag. í höfuðborg-
inni og sex kjördæmum öðmm var
listakosning, en hin kjördæmin voru
einmenningskjördæmi. Svo var, eins
og nú, úthlutað eftirá ellefu uppbót-
arsætum, sem þingflokkamir fengu
handa föllnum frambjóðendum sín-
um. Nú er listakosning í öllum kjör-
dæmum og því allsstaðar flokkar í
kjöri, en flokkamir fá svo uppbótar-
sæti. Ef tekið yrði upp hreint ein-
menningskjördæmafyrirkomulag og
þingmannatala óbreytt, yrði landinu
skipt í sextíu kjördæmi. Kjördæm-
um yrði þá væntanlega skipt í jafn-
mörg kjördæmi og þingmenn em
þar nú. Kosningin yrði persónuleg
og þingmenn yrðu fyrst og freinst
ábyrgir gagnvart kjósendum sínum
og þá sjálfstæðari gagnvart flokkn-
um. Sennilega myndu myndast tveir
aðalflokkar í landinu. Einmennings-
kjördæmafyrirkomulag virðist nú
njóta vaxandi fylgis meðal ungs
fólks.
Þótt hverjum þyki sinn fugl fagur,
verða þeir, sem flokkum fylgja, að
gera sér grein fyrir því, að stjóm-
málaflokkar em breytileg fyrir-
brigði. Það er úrelt kredda að þjóð-
inni beri skylda til, að haga stjóm-
skipulagi sínu og kosningum eftir
þörfum flokka. Þjóðin verður að
velja sér það fyrirkomulag, sem hún
telur sér hollast. Þar skiptir mestu
máli, að almenningur geti valið þá
menn til þingsetu, sem hann þekkir
og treystir. □ 6
MINNING
Sára Ingóiíur Þorvaldsson
fyrrum prestur í Olafsfirði
EKKI minnist ég þess að dauð-
inn hafi nokkru sinni áður
höggvið jafn mörg skörð í vina-
hóp minn á eins skömmum tíma
og á þessu ári. Vinirnir hafa
horfið einn eftir annan. Sumra
þeirra hef ég getið á prenti. Ann
ara ekki, þó þeir séu mér líka
hugstæðir. Nú á sunnudaginn
15. þ. m. barst mér svo tilkynn-
ing um það, að séra Ingólfur
Þorvaldsson fyrrum prestur í
Ólafsfirði hefði látizt þá um
morguninn. Mér kom þessi and-
látsfregn algerlega á óvart. Ég
vissi að vísu að séra Ingólfur
gekk ekki algerlega heill til
skógar, en fundum okkar bar
saman hér á Akureyri í sumar
og mér fannst hann þá óvenju-
lega hraustlegur. Glaður og
reifur var hann og þá sem
jafnan.
Séra Ingólfur Þorvaldsson var
fæddur í Stærra-Árskógi á Ár-
skógsströnd 20. júlí 1896, kom-
inn af hinni kunnu Krossaætt.
Foreldrar hans voru Þoi'valdur
Þorvaldsson og kona hans Jóna
tína Kristjánsdóttir. Hann
braust til mennta á unglings-
aldri og vann þá töluvert fyrir
sér á sumrum. Stúdent varð
hann árið 1919. Las guðfræði við
Háskólann og tók guðfræðipróf
árið 1923. Sama ár var hann sett
ur prestur í Þóroddstaðapresta-
kalli í Suður-Þingeyjarsýslu og
sat þá á Vatnsenda. Vígður var
hann til prests 25. maí 1923.
Á meðan sr. Ingólfur var í
Háskólanum, eða 6. nóv. 1920,
kvongaðist hann Önnu Nordal,
systur Sigurðar Nordal pró-
fessors. Þar held ég að sr. Ingólf
ur hafi stigið sitt mesta gæfu-
spor í lífinu, því frú Anna er
hin mesta ágætiskona og hefur
verið manni sínum stoð og styrk
ur í lífinu og alveg sérstaklega
eftir að heilsa hans bilaði. Þau
hjóhin hafa eignazt 3 syni. Þeir
eru nú fyrir löngu fulltíða menn
og kvæntir. Nöfn þeirra eru:
Viihjálmur, Ragnar og Sigurður
Jóhannes. Frú Anna var alin
upp hjá Vilhjálmi Bjarnarsyni
fyrrum bónda í Kaupangi og
síðar á Rauðará við Reykjavík
og konu hans. Vilhjálmur var
bróðir Þórhalls Bjamarsonar
' biskups. Mun frú Anna hafa
alizt upp á hinu mesta myndar-
heimili, enda bar hún þess vott,
því á heimili hennar og sr. Ing-
ólfs ríkti jafnan hinn mesti
myndar og rausnarbragur.
Sem fyrr segir var séra Ing-
ólfur í fyrstu vígður til Þórodd-
staðaprestakalls, en ekki voru
hin ungu prestshjón þar þó
nema árið. Árið eftir, 1924, fékk
. séra Ingólfur Ólafsfjarðarpresta
kall og fluttust þau hjónin þá
þangað. Má segja að í Ólafsfirði
innu þau aðal lífsstárf sitt á 4.
áratug. Fók þá séra Ingólfur að
kenna sjúkleika, sem varð til
þess að hann sagði af sér prests-
skap og fluttu þau hjónin til
Reykjavíkur. Eignuðust þau þar
íbúð við Hagamel 45 og bjuggu
þar. Þegar til Reykjavíkur kom
tók séra Ingólfur að sér starf
fyrir líknarfélag og vann við
það á meðan ég vissi til.
Störf séra Ingólfs sem sóknar
prests þekkti ég eðlilega lítið
sökum fjarlægðar. Vissi þó að
hann var vinsæll af mörgum
sóknarbörnum sínum. Veit og
af kynnum við manninn Ingólf
Þorvaldsson, að hann vildi
rækja hvert starf vel og sam-
vizkusamlega og mun svo einnig
hafa verið um prestsstarfið. Það
var á öðru sviði sem ég kynnt-
ist þeim prestshjónunum og það
náið: á heimili þeirra. Gestrisni
þeirra var frábær. Ég var í
fyrsta sinn boðinn heim til
þeirra haustið 1924, ásamt Ein-
ari sáluga á Eyrarlandi. Það var
í fyrsta sinn sem ég kom til
Ólafsfjarðar. Hafði ekki komist
þangað haustið áður. Þau hjónin
voru þá ný komin þangað og
tæplega búin að koma sér fyrir,
en samt fengum við hinar ágæt-
ustu viðtökur. Eftir þetta kom
ég á hverju ári til Ólafsfjarðar
og stundum oftar en einu sinni
og var jafnan getur prestshjón-
anna og síðari árin bjó ég hreint
og beint hjá þeim þegar ég var
á ferð í Ólafsfirði, þar til þau
fluttu suður.
Þá vil ég einnig þakka per-
sónulegan og pólitískan stuðn-
ing séra Ingólfs og þeirra hjóna
beggja í alþingiskosningum, öll-
um sem háðar voru á meðan
þau voru í Ólafsfirði.
Já ég þakka alla gestrisnina
og fylgið. AUra mest þakka ég
þó vináttuna. Hún verður mér
dýrmæt minning þann stutta
tíma, sem ég kann að eiga ólif-
aðann. Á hana bar aldrei neinn
skugga og hún hélst þó fundum
fækkaði.
1 dag verður séra Ingólfur
lagður til hinztu hvíldar. Ég
hefði viljað vera þar viðstaddur
og fylgja honum síðasta spöl-
inn, en get ekki komið því við.
Ég veit að margir munu senda
honum og ástvinum hans hlýjar
kveðjur nú. Ef ekki með nær-
veru og orðum, þá í huganum,
bæði Ólafsfirðingar, þeir sem
hann vann fyrir í Reykjavík og
margir vinir víðsvegar að. Ég
sendi honum hinztu kveðju með
hjartanlegri þökk fyrir öll okk-
ar kynni, sem voru frá hans
hendi með ágætum. Frú Önnu
Nordal og sonum þeirra sr. Ing-
ólfs sendum við hjónin bæði
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Akureyri 21. sept. 1968.
Bemharð Stefánsson.
- SIGURBJÖRG MEÐ
150 LESTIR
(Framhald af blaðsíðu 1).
áður með 150 lestir fyrra sunnu
dag. Saltaðar voru röskar 500
tunnur af þeim afla og ennfrem
ur fór nokkuð í hraðfrystingu.
Alls hafa verið saltaðar hér 1825
tunnur.
Flestir bændur hafa heyjað
allvel í sumar og er heyskap lok
ið, eða þar um bil. B. S.
- SJÓNVARPIÐ
(Framhald af blaðsíðu 8).
Ástæðurnar fyrir þessu tóm-
læti eru sjálfsagt margar, en
eflaust munu aðgerðir í gjald-
eyrismálum hafa haft áhrif, sér
staklega á þann hátt, að þeir
sem voru reiðubúnir að kaupa
keyptu það sem til var. Hluti
félagsmanna hefur óskað eftir
að félagið leitaði samninga um
uppsetningu sjónvarpsloftneta
og er það nú í athugun.
Nokkur seinkun, miðað við
það sem búist var við, hefur orð
ið á sendingu „stillimyndar“, en
álitið er að hún hefjist í lok
þessa mánaðar. Rétt er að vekja
athygli félagsmanna á því að
ekki er hægt að ganga endan-
lega frá sjónvarpsgreiðum fyrr
en eftir að sending „stillimynd-
ar“ er hafin.
Einnig er rétt að nefna að
margt mælir með því að þeir
sem geta notað sendingu frá
endurvai'psstöðinni á Skipalóni
geri það, en hverjir það geta,
fæst ekki endanlega ákvarðað,
fyrr en sending þaðan hefst. Við
viljum árétta það, að til þess að
fá sem bezta sjónvarpsmynd er
mælt með að allir hafi að
minnsta kosti 6—8 elementa úti
loftnet, jafnframt viljum við
minna á samþykkt bæjarstjórn-
ar og ákvæði byggingasamþykkt
arinnar um loftnetsstangir.
Ákveðið er að hafa skrifstofu
félagsins að Geislagötu 5, 3 hæð,
opna miðvikud.-, fimmtud. og
föstudag 25.—27. sept. frá kl.
17—19, og eru félagsmenn
hvattir til að taka þar félags-
skírteini sín. Félagið mun fram
vegis sem hingað til leitast við
að útvega upplýsingar og vera
málsvari þeirra félagsmanna
sem þess óska og eru menn
hvattir til að notfæra sér það.
Stjórnin.
KAFFISALA
SL. SUMAR efndu KFUM og
KFUK á Akureyri til kaffisölu
að sumarbúðum félaganna að
Hólavatni. Varð aðsókn svo
mikil að einhverjir urðu jafnvel
frá að hverfa án þess að kom-
ast að. N. k. sunnudag verður
aftur efnt til kaffisölu að Hóla-
vatni. Verður nú reynt að girða
fyrir það, að allir fái ekki af-
greiðslu. Kaffisalan hefst kl. 3
e. h. og verður síðan afgreitt
kaffi og brauð til kl. 10 um
kvöldið. Fólki skal bent á, að
búast má við mestri aðsókn um
kl. 3 til 4, svo að þeir sem forð-
ast vilja mikil þrengsli geta
hagað ferðum sínum eftir því.
Hringferð um Eyjafjörð á fögr-
um haustdegi er ánægjuleg og
hressandi kaffisopi að Hóla-
vatni ætti ekki að spilla ánægj-
unni.
Verið velkomin að Hólavatni
á sunnudaginn.
KFUM og KFUK.
Barna-
buxurnar
„STRETCH"
ódýru — eru komnar
aftur
VEFNAÐARVÖRUÐEILD
HELGI VALTÝSSON
FLUTTUR
HELGI VALTÝSSON rithöf-
undur á Akureyri, flutti búferl-
um til Akraness sl. mánudag,
eftir 33 ára dvöl í höfuðstað
Norðurlands. Hann er háaldrað
Helgi Valtýsson, rithöfundur.
ur orðinn og heilsuveill en and-
lega hress.
Blaðið þakkar öll samskipti
við rithöfundinn, blaðamanninn
og hinn vökula borgara, sem
unnið hefur að fjölda menning-
armála með penna sínum, í við-
tölum og úr ræðustóli — og vin-
áttu hans í minn garð og ýmsar
leiðbeiningar þakka ég sérstak-
lega. E. D,
VOLKSWAGEN
árg. 1963, í góðu lagi, til
sölu.
Uppl. gefnar í síma
1-20-26 næstu þrjá daga
kl. 7 til 8 e. h.
TIL SÖLU:
MOSKVITHS
bifreið, árg. 1963.
Uppl. í síma 1-15-18.
OPEL RECORD
árg. 1958 til sölu.
Haraldur Bjarnason,
sími 1-29-08.
TVEIR JUNIORAR
ásamt varahlutum seljast
ódýrt. — Einnig Taunus
station. — Engin útborg-
un. — Góðir greiðsluskil-
málar.
Hjálmar Jóhannesson,
sími 1-29-08.
TAÐA - KÝR!
Þann, sem vantar töðu, og
vill selja unga og snennn-
bæra kú, getur gert góð
kaup við mig, ef samið er
strax.
Guðmundur Jónsson,
Mýrarlóni.
Pedegree
BARNAVAGN
til sölu.
Sími 2-10-15.
Sem nýr Pedegree
BARNAVAGN
til sölu. — Verð aðeins kr.
2.500,00.
Uppl. í sírna 2-15-58.
5
Frá Bridífefélasi
O CJ
Akureyrar
FYRIR skömmu fór fram hin
ái'lega bæjarkeppni í bridge
milli Siglfirðinga og Akureyr-
inga. Sóttu Akureyringar Sigl-
firðinga heim, og kepptu 4 sveit
ir frá hvorum aðila, en tvöföld
umferð var spiluð. Akureyring-
ar sigruðu með 41 stigi gegn 23.
Starfsemi B. A. hefst þriðju-
daginn 1. okt. með aðalfundi í
Landsbankasalnum kl. 8.30. □
HÖFÐINGLEG GJÖF
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚS-
INU á Akureyri hefir nýlega
borizt mjög höfðingleg gjöf, að
upphæð kr. 100.000.00, frá hjón-
unum Nönnu Valdemarsdóttur
og Jóhannesi Árnasyni á Þóris-
stöðum, Svalbarðsströnd. Gjöf
þessi er til minningai' um dóttur
þeirra hjóna, Hrafnhildi, er and
aðist sl. vor.
Vil ég fyrir hönd sjúkrahúss-
ins færa gefendunum hinar
beztu þakkir fyrir þessa stór-
rausnarlegu gjöf og fyrir það
traust og þann velvildarhug í
garð stofnunarinnar, sem hún
ber vitni um.
Guðmundur Karl Pétursson.
HERBERGI
til leigu á Suður-Brekk-
unni.
Uppl. í síma 1-14-91.
Til sölu er tveggja herb.
ÍBÚÐ
í gömlu húsi á Oddeyri.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-25-45.
Tveggia herbergja
ÍBÚÐ ÓSKAST
strax til leigu.
Uppl. í síma 1-19-24.
HERBERGI
til leigu.
Uppl. í síma 1-21-46.
TVÖ HERBERGI
til leigu í nýju húsi á Ytri
Brekkunni. — Reglusemi
áskilin.
Uppl. í síma 1-15-29.
TIL SÖLU:
GÓÐ ÍBÚÐ
'á efstu hæð í húsi nálægt
Miðbænum. — Greiðslu-
skilmálar.
Uppl. í síma 1-26-84.
GÓÐUR BÍLSKÚR
óskast til leigu í vetur.
Ágúst Steinsson,
Sími 1-12-06.
Báru j árnsklæddur
SKÚR TIL SÖLU
til niðurrifs. — Ódýr.
Uppl. í síma 1-28-27,
eftir kl. 6 e. h.
TIL SÖLU
er 4ra herbergja nýleg
ÍBÚÐ.
Góð lán fylgja.
Uppl. í síma 1-15-40.
Aukin þjónusta
ÞURRHREINSUN - HRAÐHREINSUN
Tökum eftirleiðis fatnað til hreinsunar eftir vigt. —
1 kg á kr. 50,00 - 2 kg á kr. 90,00 - 3 kg á kr. 120,00
og 4 kg á kr. 150,00.
EFNALAUGIN LUNDARGÖTU 1
FATAHREINSUNIN HÓLABRAUT 11
GUFUPRESSUNIN SKIPAGÖTU 12
Bifreiðaeigendur
Eigum fyrirliggjandi ýmsar stærðir af
Weed snjókeðjum
Á GAMLA VERÐINU
VÉLADEILD
AUGLÝSING
UM
s j ónvarpsloftnet
Athygli skal vakin á því, að samkvæmt byggingarsam-
þykkt skal vera ein útvarps og sjónvarpsstöng á húsi,
er sé sameiginleg fyrir allar íbúðir þess. Einnig hefur
Bæjarráð Akureyrar samþykkt að beina þeim tilrnæl-
um til eigenda eldri húsa í bænurn, að þeir komi sér
saman um uppsetningu og notkun sjónvarpsloftneta,
svo ekki þurfi að setja fleiri en eitt loftnet á hvert hús.
Bæjarstjóri Akureyrar,
Bjami Einarsson.
Til
sláturgerðar
Frá Kjörbúðum KEA:
Rúgmjöl — Haframjöl — Rúsínur — Slát-
urgarn — Vambakalk — Rúllupylsukrydd
^ Salt — Saltpétur — Plastpokar
KJÖRBÚÐIR KEA
Telpupeysur
Kvenpeysur
VEFNABmÖRUDEILD
ORÐSENDING
FRÁ NÝJU RAMMAGERÐINNI
Þar sem Nýja rammagerðin, Strandgötu 11, er hætt
starfsemi sinni, eru allir þeir, sem ekki hafa tekið
myndir sínar úr innrömmun, beðnir að vitja þeirra
föstudaginn 27. þ. m. — eða gera ráðstafanir í sírna
1-28-96.
Sama dag verður útsala á myndum. Einnig verða
seld þar ýrnis þörf smíðaáhöld, ásamt nokkrum hús-
gögnum.
O O
Frá Iðnskólauum
Nemendur þeir, sem hafa í hyggju að stunda nám í
4. bekk skólans næsta vetúr, mæti til viðhals og skrán-
ingar í skólahúsinu (Húsmæðraskólanum) þriðjudag-
inn 1. október kl. 8,30 síðdegis. (3. bekkur janúar—
rnarz 1969).
Þeir, sem sóttu undirbúningsnámskeið skólans í
teiknigreinum síðastliðið vor, en þurfa á frekari bók-
legri kennslu að halda, til þess að geta staðizt próf
upp í 3. bekk, rnæti til viðtals í G. A. miðvikudaginn
2. október kl. 6 síðdegis,
Nánari upplýsingar um skólann veitir skólastjórinn,
Jón Sigurgeirsson, Klapparstíg 1, sími 1-12-74.
Akuréýri, 25. september 1968.
Skólanefndin.
HúsmæSur!
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ OG SPARIÐ!
VerzliS í Kjötmarkaði
KJÖTVÖRUR OG MATVÖRUR
á lægra verði en annars staðar
FISKFARS
á þriðjudögum og fimmtudögum
SALTAÐ DILKAKJÖT
á hagstæðu verði
GULRÓFUR
á kr. 16,00 pr. kg
SVÍNALIFUR
ljúffeng í steik — kr. 50,00 pr. kg
Kjötmarkaðsverð
STJARNAN - KJÖTMARKAÐUR
VIÐ LUNDARGÖTU
(RÉTT VIÐ STRANDGÖTU)