Dagur - 02.10.1968, Page 4

Dagur - 02.10.1968, Page 4
4 5 Skrifstofur, Hafuarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. „Engilssvipur er á hvarmi“ í OPINBERRI fréttatilkynningu segir, að gagnasöfnun um helztu þætti efnahagsmálanna standi yfir og sé þeirra að vænta um miðjan mánuð infl. En nokkrum vikum áður báðu stjómarflokkarnir stjórnarandstöð- una um viðræður um vanda efna- hagsmálanna því vá væri fyrir dyr- um. Viðræðurnar hófust og standa yfir „án þess nokkurra frétta sé af þeim að vænta fyrst um sinn,“ eins og sagt hefur verið, og án þess að ríkisstjómin hafi í höndum nauðsyn legar upplýsingar. Er það mál manna, að stjórninni bæri fremur að segja af sér en biðja um hjálp, og láta kjósendur ákveða forystu þjóð- málanna, eftir uppgjöf íhalds og krata. Víst fer, x fljótu bragði séð, ekki illa á því, að ríkisstjómin hefur snú- ið sér til stjómaiandstöðunnar og beðið hana um viðræðu til að leita ráða til þess að koma þjóðarskútunni út úr þanghafi þeirra efnaliagsörðug- leika, sem stjómin hefur siglt henni inn í. En spumingin er þó, hvaða hugur fylgir máli hjá stjóminni með til- mælum þessum. Er lienni það aðal- atriði, að vandinn verði fljótt og örugglega leystur með sem heillavæn legustum hætti fyrir þjóðfélagið? Vill hún láta gera við og breyta þeim vitlausa áttavita, sem hún hef- ur siglt eftir? Eða vill hún fleka stjómarand- stöðuna til að samþykkja siglingu eftir vitlausa áttavitanum lengra inn í þanghafið? Eða hyggst hún koma því svo fyr- ir, að stjórnarandstaðan hljóti að liafna samvinnu, en á þann hátt að takast megi að túlka það fyrir al- menningi sem þvergixðing? í þessum spumingum þykja máske vera slæmar getsakir í garð ríkis- stjórnarinnar um léttúð. En er það ekki líka fyrir léttúð hennar í stjóm efnahagsmálanna, að nú er komið í óefni? Og er það ekki sú almenna efna- liagsmálaléttuð, sem stjómarfarið hefur skapað, sem gerir þetta óefni miklu erfiðara viðfangs en ella væri? Er það ekki af stjórnmálalegri léttúð, að hún segir ekki af sér, eins og ástandið er? Er það ekki blygðunarlaus léttuð, að hún lætur blöðum sínum líðast að segja — og segir jafnvel sjálf — að „viðreisnin“ hafi náð tilgangi sínum? Skáldsnillingurinn Einar Bene- diktsson lýsir léttúðardrós þannig: „Engilssvipur er á hvarmi undirheimabros á vör.“ Þeir, sem eiga nú í samstarfsvið- ræðunum við stjómina, gái að undir- heimabrosinu. □ Nýr verðlagsgrundvöSlur landbúnaðarvara Viðtal við Inga Tryggvason, bónda á Kárhóli Á FIJNDI í sexmannanefnd 4. sept. sl. var ákveðið að skjóta til yfirnefndar ágreiningi um ákvörðun verðlagsgrundvallar fyrir landbúnaðarvörur fram- leiðsluárið 1968—1969 og 1969— 1970. Þau atriði sem yfirnefnd var falið að úrskurða voru: 1. Allir gjaldaliðir grundvall- arins. 2. Bústærð og afurðamagn. 3. Verð á ull og gærum. Ekki varð í sexmannanefnd samkomulag um oddamann yfir nefndar. Fulltrúar framleiðenda kusu af sinni hálfu Inga Tryggvason bónda á Kárhóli í Reykjadal. Fulltrúar neytenda notuðu ekki rétt sinn til að kjósa mann í nefndina og skipaði þá félags- málaráðherra Jón Þorsteinsson alþingismann til að taka þar sæti af neytenda hálfu. Hæsti- réttur skipaði svo Guðmund Skaftason lögfræðing formann nefndarinnar. Dagur náði í gær tali af Inga Tryggvasyni og lagði fyrir hann nokkrar spurningar um störf yfirnefndarinnar og hinn nýja verðlagsgrundvöll. Hvenær hóf nefndin störf? Fyrsti fundur nefndarinnar var boðaður 10. sept. En þar sem þá hafði ekki verið tilnefndur fulltrúi frá neytendum hófust ekki regluleg nefndarstörf fyrr en 16. september. En þá lögðu fulltrúar framleiðenda og neyt- enda tillögur sínar fyrir yfir- nefnd, ásamt þeim gögnum, sem þeir töldu styðja málstað sinn. Yfimefndin kannaði síðan þessi gögn og aflaði nýrra. Hvenær lauk svo nefndin störfum? Aðal störfum nefndarinnar lauk 25. sept. En þá voru ein- stakir liðir verðlagsgrundvallar- ins ákvarðaðir. Hins vegar er ekki enn lokið að úrskurða nokkur atriði varðandi dreifing arkostnað, sem vísað var til yfir nefndar. Hverjar eru svo niðurstöður á hins nýja vreðlagsgrundvallar? Megin breytingar grundvall- arins eru í því fólgnar, að grund vallarbúið hefur verið stækkað og au'ka búgreinar, hlunnindi, tekjur af hrossum og vinnutekj- ur utan bús hafa verið felldar niður. Miðað er nú við 400 ær- gilda bú: 180 kindur og 12 naut gripi og auk þess 10 tunnur garð ávaxta. Er þessi bústærð í sam- ræmi við tillögu framleiðenda og varatillögu neytenda. Eftir að bústærð hafði verið ákveðin, voru aðrir þættir ákvarðaðir með hliðsjón af bústærðinni. Niðurstöðutölur hins nýja grundvallar eru kr. 570.742.00. Kostnaðarliðir á gjaldahlið verð lagsgrundvallarins eru þessir: Laun bónda og annarra, sem að búskapnum vinna kr. 294.836.00, kjarnfóður 61.304.00, áburður kr. 57.471.00, kostnaður við vél- ar kr. 50.088.00, vextir kr. 44.590.00, flutningskostnaður kr. 21.459.00, viðhald og fyrning húsa kr. 16.257.00, viðhald og girðingar kr. 4.625.00 og annar kostnaður kr. 18.912.00. Tekjumegin eru svo: Naut- gripaafurðir kr. 335.881.00, sauð fjárafurðir kr. 226.371.00 og garð ávextir kr. 8.490.00. Hvað valda þessar breytingar miklum hækkunum á landbún- aðarvörum? Verðgrundvöllur landbúnaðar vara var síðast umræðumál vegna verðhækkana 1. júní sl. Hæklkun til bænda frá verðinu þá er rösklega 10% þar af 3% vegna kauphækkana í sumar og 20% aðflutningsgjalds, sem að Ingi Tryggvason. nokkru leyti kemur inn í verð- lagið nú. Verð til neytenda á kjöti og mjólkurafurðum hækk- ar lítið eitt meira í prósentum talað. En það er vegna þess að ullarverð lækkar og gæruverð stendur því sem næst í stað, og eins vegna hins, að niðurgreiðsl ur ríkissjóðs haldast óbreyttar að krónutölu á sölueiningu. Urðu nefndamienn sammála um einstök atriði verðlagning- arnar? Auðvitað voru menn ekki á einu máli um áreiðanleik þeirra gagna, sem nefndarmenn fengu í hendur, og ekki heldur um túlkun þeirra. Samstaða var um bústærðina og suma stærri liði grundvallarins, en ágreiningur um stærstu liðina, sem allir voru samþykktir með atkvæði oddamanns og flestir aðeins með atkvæði annars meðnefnd- armanns. Er það fleira, sem þú vilt taka fram? Mér finnst rétt að vekja at- hygli á því, sem áður er um getið, að ullarverð hefur lækk- að mjög í grundvellinum og er nú kr. 10 hvert kg. og líklegt, að það verð náist tæplega. Stór- kostlegt verðfall erlendis veldur þessu. En verðið innanlands er miðað við útflutningsverð. Enn- fremur þykir mér rétt að taka fram, að ég tel, að enn sem fyrr séu ýmsir kostnaðarliðir grund vallarins mjög vanreiknaðir. Mikilvægt er, að búreikninga- stofa landbúnaðarins verði efld og bændur bregðist vel við þeg- ar til þeirra er leitað um upp- lýsingar um vinnumagn og fjár_ magnsþörf landbúnaðarins, því hvernig sem verð landbúnaðar- vara verður ákveðið í framtíð- inni, hljóta glögg og ábyggileg gögn um afkomu landbúnaðar- ins að verða bændum mikilvæg vopn í kjarabaráttu þeirra, segir Ingi Tryggvason að lokum og þak'kar Dagur svörin. □ KLUKKUFJÖLTEFLI YIÐ 10 MEISTARA NÚVERANDI fslandsmeistari í skák, Guðmundur Sigurjónsson, heimsækir Akureyri um næstu helgi í boði Skákfélags Akur- eyrar. Hann mun tefla klukku- fjöltefli við 10 meistaraflokks- menn á laugardag kl. 2 e. h. Um kvöldið kl. 8 verður hraðskák- mót og á sunnudag kl. 1.30 e. h. teflir hann fjöltefli og er öllum heimil þátttaka. Keppendur eru beðnir að hafa með sér töfl. Keppnin fer fram að Hótel KEA. Komið, sjáið spennandi keppni. Skákfélag Akureyrar. MINNING Sigurður Haraldsson SJALDNAST er það metið sem skyldi, hve gott það er að eiga góða granna. En stundum gleym ist að minnast þess og þakka svo sem vert er þar til granninn er fluttur. Sambýlismaður Dags, í gamla kaupfélagshúsinu, Hafn arstræti 90 á Akureyri, var m. a. Sigurður Haraldsson, sem þar bjó um nær þrjá áratugi. Hann andaðist 23. ágúst í sumar, hálf áttræður. Sigurður var Jökuldælingur, fæddur á Merki, sonur Harald- ar Sigurðssonar og Aðalbjargar Hallgrímsdóttur, sem bjuggu á ýmsum heiðarbýlum austur þar, svo sem í Veturhúsum, Ranga- lóni og Háreksstöðum. Má því með sanni segja, að þessi nýlátni granni okkar hafi verið sonur heiðanna miklu, sem orðlagðar eru fyrir fegurð og víðfeðmi og fyrir það einnig, að ala upp hraust fólk og sjálfstætt í orði og athöfn. Kona Sigurðar var Hróðný Stefánsdóttir Einarssonar frá Möðrudal og hófu þau þar bú- skap en fluttust í Rangalón 1922 en síðan að Stuðlafossi í Jökul- dal. Árið 1930 fluttust þau hjón til Akureyrar og áttu þar heima til lokadægurs. Hróðný lézt fyr- ir tveim árum. Börn þeirra hjóna, er upp komust, eru fimm. Sigurður var lengi umsjónar- maður Nýja Bíós á Akureyri, vann við bókband, kennslu og síðast mörg ár á Skattstofu Norðurlands. En mörg sumur vann hann við brúarsmíðar í vinnuflokki Jónasar Snæbjöms sonar. En hér átti ekki að segja ævisögu aldraðs manns, heldur að minnast góðs sambýlismanns, sem bæði var prúður og drengi- legur og átti jafnan tiltæk hóg- vær gamanyrði. Við skiptumst daglega á orðum við samliggj- andi útidyr eða úti á götu. Náin kynni voru engin — en þó sakna ég hans, sem vinar og góðs drengs, sem gott var að kynnast. Fyrir þau kynni þakka ég að leiðarlokum. E. D. SAMVINNUÞJÓÐFÉLAG FJÁRHAGS-, launa_ og at- vinnumál, hafa löngum verið einhver helztu deilumál stjórn- málaflokka, svo og alls almenn- ings, má og segja að það sé ekki óeðlilegt, því hér er um að ræða þau mál, sem einna mestu valda um afkomu fólksins og þjóðar- búsins. Hin síðustu misseri má segja að deilur þessar hafi verið óvenju háværar, sól undangeng is hátekju og eyðslu tímabils, hefir skyndilega gengið til við- ar, en svalt rökku refnahags- örðugleika lagzt yfir landið. Um ástæður, eða forsendur, þessara ömurlegu umskipta, greinir menn allmjög á, samt liggur að vísu í augum uppi, svo sem minnkandi aflabrögð, harðæri, og mjög lækkað verð á flestum útflutningsvörum. Um hitt er deilt, hvei-n þátt aðgerðir, eða aðgerðaleysi stjórnarvalda, eigi í því ástandi sem skapazt hefir. Ekki er ætlan mín að leggja orð í þann belg. En fleira gæti kom ið til greina, sem minna hefir verið um rætt, gæti ekki hugs- ast að viss form, eða fyrirkomu lag, í félags- og launamálakrefi okkar, eigi hér nokkra sök á. í eftirfarandi línum mun ég ræða það mál nokkuð. 1. Ein hin mesta meinsemd í óbeint, hvei-ju skildi það nema? Öll mál á að sækja með rök- um, en ofbeldisaðgerðir að hverfa úr sögunni, þær skapa úlúð, og margskonar óréttlæti og tjón. Hvað verkföllin snertir, þá grípa þau inn í hag og af- komu fjölda manna, sem standa algerlega utan við það mál, sem átökin standa um, og valda þeim, og þjóðinni í heild, oftlega stórtjóni. Við íslendingar erum með fá- mennustu þjóðum heims, það þykir ekki stór borg, með millj- óna þjóðum, sem telur 200.000 íbúa. Sum stórfyrirtæki hafa álíka marga menn, eða fleiri, í þjónustu sinni. Það sýnist því ekki óeðlilegt að við þurfum að hafa okkar ráði nokkuð á annan veg en milljóna þjóðir, ef vel á að fara. Við þolum ekki þau harðvítugu hagsmunalegu inn- anlandsátök, þar sem barist er svo að segja um hvern spón og bita, við verðum að söðla um, og hefja samstarf, í stað sundr- ungar, þar sem hver stétt og starfshópur stendur hlið við hlið, og vinnur að sameiginleg- um hagsmunum, sem allir fái réttláta hlutdeild í. 2. Víxlliækkun kaupgjalds og verðlags, er stórhættulegt fyrir- komulag. Hefir sú svikamylla átt drjúgan þátt í að ýta okkur út í ógöngur verðbólgunnar. 3. Að miða kaupgjald við vísi- tölu virðist vera mjög hæpið, og jafnvel háskalegt fyrii'komu- lag. Eðlilegast sýnist að miða það við þjóðartckjur, það er hinn eini raunhæfi grundvöllur. Það er órofa samband á milli þess sem oftast, og þess sem hægt er að eyða. Það blessast aldrei til lengdar, að eyða meiru en aflað er, hvorki fyrir einstakl inga né þjóðir, fyrr eða síðar kemur að skuldadögunum, og fylgir þá gjarna fjárhagslegt hrun, hafi ekki verið snúið við í tíma. Þetta verða menn að læra að skilja, og haga sér í sam ræmi við það, allt annað er blekking, sem fyrr eða síðar hefnir sín. Ég hefi hér að framan minnzt á þrjú atriði, sem ég álít að hafi verkað óheppilega á þjóðarbú- skap okkar. Vil ég nú að lokum koma fram með tillögu um gjör breytingu þessara mála, en hún er í sem stystu máli á þessa leið. Ákveða skal, að beztu manna yfirsýn, hver hlutur hinna ýmsu stétta og starfshópa í þjóðar- tekjunum skuli vera, þegar það er fengið, sé kaup ákveðið í sam ræmi við það. Greinargerð. Árlega reiknar Hagstofan út þjóíartekjurnar, sömuleiðis tekjur hinna ýmsu stétta, bænda, sjómanna og iðn- aðarmanna, þá er og að miklu leyti farið að ákveða, eða hafa íhlutun um, kaup þessara stétta, af opinberum aðilum. Þá kveð- ur og kjaradómur á um laun opinberra starfsmanna. Segja má því, að gengið hafi verið að verulegu leyti inn á þá braut, sem í tillögunni felst. Hér er lagt til að þetta verði gegnum- gangandi yfir þjóðarheildina. Að sjálfsögðu þarf að koma til samþykki allra hlutaðeiganda, að hlýta þessu fyrirkomulagi, sem síðan verði lögfest. Sjálf- sagt mun það reynast erfitt í byrjun, að finna réttlátan grund völl fyrir tekjuskiptingunni, og reynir þar mjög á þegnskap allra aðila um samkomulag. En að sjálfsögðu verður ekki sú upphaflega skipting einsdæmi um alla framtíð, hana þarf vitan lega að endurskoða, og breyta, eftir því sem reynslan, og breytt ar aðstæður gefa tilefni til. En allar kröfur til breytinga verður að sækja með rökum, verkföll koma ekki til greina. í áratugi hafa íslenzkir bænd- ur búið við það launafyrirkomu lag, sem hér er lagt til að verði gegnumgangandi, og nái til allra. Þeim hefir verið ákveðið kaup. Þeir hafa að vísu ekki alltaf verið ánægðir með það sem þeim hefir vreið úthlutað, en þeir hafa aldrei gert verk- fall, þ. e. sölustöðvun. Með rök- inn hafa þeir smátt og smátt aflað sínum málum betri skiln- ings, og aukinna úrbóta. Því ættu ekki aðrar stéttir að geta setið við sama borð? (Þær mis- fellur, sem urðu á meðferð þess ara mála á síðastliðnu ári, verð- ur að telja sérstætt fyrirbæri, sem vonandi ekki endurtekur sig). Hvað mundi þá vinnast við þetta fyrirkomulag? Mjög mik- ið. í stað þess að standa í stöð- ugu ófrjóu stríði um kaup og kjör, stæði nú öll þjóðin sam- einuð, sem ein fjölskylda, ein skipshöfn, þar sem allir bera sanngjarnan og eðlilegan hlut frá borði, í stað sundrungar kemur samstaða. Kjör fólksins fylgja, og verða í samræmi við þjóðartekjur á hverjum tíma, þjóðlífi okkar Islendinga, eru (Framhald af blaðsíðu 8). Á starfsliði Samvinnuskólans Bifröst verða þær breytingar í haust að Húnbogi Þorsteinsson, sem verið hefur kennari í hag- nýtum skrifstofu- og búðarstörf um, lætur af starfi og gerist sveitarstjóri í Borgamesi. Við starfi hans tekur Hrafn Ma-gnús son, sem um nokkur ár hefur unnið hjá Samvinnutrygging- um. Þá hættir Jón Sigurðsson, húsvörður skólans starfi, en við tók Rafn Guðmundsson. Skóla- stjóri þakkaði þeim sem burtu hurfu fyrir störf í þágu skólans og staðar og bauð hina nýju starfsmenn velkomna til Bifrast ar. Á námstilhögun skólans verð- ur sú breyting gerð að bókleg kennsla og verkleg verður að- skilin meira en áður. Verður gert hlé á -bóklegri kennslu á miðju skólaári og þá haldið hin sí harðnandi átök í kaup- gjaldsmálum, sem ná hámarki í bölvun verkfallanna. Eru átök þessi komin á það stig, að þau ógna öllu fjármálakerfi þjóðar- innar, og efnahagslegu sjálf- stæði. Verkföll eru ofbeldis- aðgerðir, og eiga með öllu að þurrkast út úr íslenzku þjóð- félagi. Má vera, að fjölmennar og auðugar þjóðir, með fjölþætt atvinnulíf, geti staðið af sér ógn þeirra, en okkar litla þjóðfélag þolir þau ekki. Og hagnaðurinn sem verkföllin gefa, hver er hann? Oftast harla lítil. Þær kjarabætur sem fást í bili eru fyrr en varir horfnar í hækkun á vöruverði, og allskonar þjón- ustu, sem siglir í kjölfarið, auk þess tjóns, sem vinnutapið skap ar þeim, sem í verkföllum standa. Raunverulegár kjara- bætur verða því harla litlar, eða engar. Sé það rétt, sem sumir halda fram, að kaupgeta laun- þega sé litlu eða engu meiri nú, en fyrir 8—10 árum, (hér er miðað við það ástand sem var, meðan atvinna var næg) þrátt fyrir öll þau verkföll sem orðið hafa á þessu tímibili, þá sjá allir hvílík fásinna þetta er. En tjón- ið sem þau hafa valdið, beint og hækka, með batnandi hag þjóð- arbúsins, og þegar á móti blæs, taka a'llir á sig byrðarnar hlut- fellslega. Þetta er hið eina heil- brigða og réttláta fyrirkomu- lag. Það hlýtur að ýta undir alla að gera sitt bezta, svo þjóð artekjurnar megi vaxa, og sem mest verða til skiptanna. Vissan um það að allh’ fái sanngjama hlutdeild í ágóðanum, verður það sigursæla afl, sem stælir hug og hönd, til sameiginlegra átaka. Þá væri það sjálfsögð öryggis ráðstöfun að leggja nokkuð af þjóðartekjunum í varasjóð, þeg ar meðalært er, eða betur, til að hlaupa uppá, og jafna milli ára, þegar erfiðleikar staðja að. Ég get í þessu sambandi ekki stillt mig um að minna á, að varasjóður er forn íslenzkur menningararfur. Heyfyrningar íslenzku bændanna voru ekkert annað en „varasjóður" þeirra tíma. Til hans gripu þeir þegar í harðbakkann sló, og björguðu, ekki aðeins sínum eigin fénaði, og sinni eigin afkomu, heldur og fjölmargra annarra, sem lakar voru staddir. Sennilega má full- yrða, að þjóðin hefði ekki kom- izt yfir hin erfiðustu eldgos og harðindatímabil, hefði ekki hey fyminganna notið við. Nú er, í fjögurra vikna námskeið í hag- nýtum verzlunarfræðum. I tilefni 50 ára afmælis Sam- vinnuskólans verður haldin ráð stefna í næsta mánuði um skóla mál samvinnusamtakanna. Á þeirri ráðstefnu verður gerð grein fyrir könnun, sem nú fer fram á vegum skólans, á verzl- unarfræðslu nágrannalandanna, en eldri nemendur skólans lögðu fram allmikið fé, sem hag nýtt er í þessu skyni. Á ráð- stefnunni mun fjallað um fram- tíð Samvinnuskólans og þarfir íslenzkrar æsku fyrir skóla, er rækja hlutverk áþekk því, sem verzlunarskólar landsins hafa nú með höndum. í niðurlagi ræðu sinnar gat skólastjóri um hugsanlega skip- an verzlunar- og viðskipta- fræðslu á íslandi á næstu ára- tugum. Bifröst — fræðsludeild. samræmi við breytta tíma, eðli- legt að þetta verði útfært þann- ig, að þjóðin eigi sameiginlegan varasjóð, til að hlaupa uppá, þegar af einhverjum ástæðum harðnar í ári. Anðvitað þurfa bændurnir að eiga sínar hey- fyrningar eftir sem áður, reynsla síðustu ára hefir sýnt og sannað að þær eru enn sem fyrr, ein öruggasta trygging fyrir traustum búrekstri. Ekki er að efa, að á öllum sviðum atvinnulífsins má ná 'betri árangri, gera reksturinn hagkvæmari, auka framleiðn- ina, bæði með því að draga úr tilkostnaði, og auka afköst. Tök um t. d. húsnæðismálið, vafa- laust er hægt að lækka húsnæð iskostnað til verulegra muna, en hann er, eins og vitað er flestum fjölskyldum þyngsti út- gjaldaliðurinn. Að þessu þarf að vinna eftir öllum tiltækum leið- um, en þær eru margar. Er skyn samlegra að vinna að því að lækka húsnæðiskostnað, heldur en að berja stöðugt lóminn, og hrópa á hærri lán, sem svo auð- vitað kalla á meiri tekjur, hærri laun, ef takast á að standa undir þeim. Að þessu, og mörgu fleiru í sömu átt, þarf að vinna af at- orku og framsýni í sambandi við nýjan grundvöll á útreikningi launa, enda ýtir hið nýja fyrir- komulag mjög undir að svo verði gert, mun það sýna sig, ef að þessum málum er unnið af dugnaði og hagsýni, að hægt er að þrýsta niður kostnaði á flest- um sviðum framleiðslunnar, til hagsbóta fyrir þjóðarheildina. Sú hætta virðist vofa yfir, að offjölgun verði í ýmsum þjón- ustu- og atvinnugreinum, má þar t. d. tilnefna verzlun, og sama virðist vofa yfir í sam- göngum o. fl. En slíkt hlýtur að leiða til annars tveggja, óeðli- lega hárra þjónustugjalda, eða fjárhagslegs hruns þeirra, sem að þjónustunni standa. Sama má segja um sumar greinar iðn_ aðar, t. d. í sambandi við síldar- og fiskvinnslu. Hér þarf að vera öruggt skipulag, sem tryggi að ekki leiði til öngþveitis, til stór- tjóns fyrir alla aðila. Það skipulag þyrfti að kom- ast á, í sambandi við iðnrekstur, að starfsfólkið fengi aðstöðu til að fylgjast með rekstri og af- komu fyrirtækisins, hefði trún- aðarmann, sem hefði aðgang að þeim gögnum sem þetta varða. Þá ættu og atvinnurekendur, eða forstjórar, að hafa fundi öðru hvoru með starfsfólkinu, þar sem stjórn og starfræksla fyrirtækisins væru rædd, og hefði starfsfólkið málfrelsi og tillögurétt um þau mál. Mundi án efa margt gott af þessu leiða, gagnkvæmur skilningur og traust, og viðræður um rekst- urinn geta leitt til margvíslegra úrbóta. En þetta allt, sem hér ■hefir verið drepið á, stuðlar að því að skapa betri fjárhagsaf- komu þjóðarheildrinnar, og um leið hvers einstaklings hennar. Ég hefi leyft mér að hafa yfir skriftina yfir þessu greinarkomi „Samvinnuþjóðfélag“. Ég hefi viljað leitazt við að benda á að þjóðfélagi okkar mundi betur farnast, væri tekin upp sam- vinna, í stað þeirrar miklu tog- streitu og átaka, sem nú eiga sér stað, um fjármuni þá sem þjóðin aflar. Samvinnufyrir- komulagið mun vera það rétt- látasta félagsmálakerfi sem þekkt er. Því ætti ekki að vera hægt að reka þjóðfélag, og þá einkum lítið þjóðfélag, á þeim grundvelli? Grein þessi er rituð til -að hreyfa því máli. Vil ég hér með skjóta þessari tillögu til allra vel þeinkjandi manna, til athugunar, umræðu og at- hafna. Stefán Kr. Vigfússon. - SAMVINNUSKÚLINN og dó hún fyrir nokkrum árum. Syni sína tvo misstu þau, annan í bernsku, hinn uppkominn. Pálmi gekk í Gagnfræðaskóla Akureyrar laust eftir aldamótin og var lengi síðan barnakennari í heimabyggð sinni og kenndi einnig unglingum. Til Akureyr- ar flutti hann svo á efri árum og bjó þar til dauðadags. Pólmi Kristjánsson hneigðist snemma til fræðistarfa og ritaði allmikið í blöð, svo sem lesendur Dags vita. Ornefni allra bæja í Saur- bæjarhreppi skrásetti hann í félagi við Angantý Hjálmarsson skólastjóra. Og skólasögu hreppsins skráði hann einnig. Með ungu fólki þótti Pálma jafnan gott að vera og í hóp þess var hann ávallt velkominn. Áhugasamur ungmennafélagi var hann og kjörinn heiðurs- félagi síns gamla ungmenna- félags. Pálmi var síungur og leitandi maður til æviloka, glöggur, skemmtinn í viðræðum, tillögu- góður og því jafnan veitandi í umhverfi sínu. Stór var hann vexti og karlmannlegur, traust- ur maður og hreinskiptinn, — Þökk sé honum góð kynni. E. D. EINN þeirra rosknu manna, sem oft litu inn á skrifstoíur Dags og nú eru horfnir sjónum, var Pálmi Kristjánsson kennari, sem var Eyfirðingur og átti lengst heima í Saurbæjarhreppi. Hann andaðist 10. sept. sl. nær 83 ára. Kona hans var Frí- manía Margrét Jóhannesdóttir Vilhjáimur Rikharðsson, sútunarmeistari. F. 18. júni 1915. - Dáinn 14. sept. 1968. VILHJÁLMUR dáinn. Þegar við starfsfólk hans á Iðunn, mættum til vinnu að morgni mánudagsins 16. september, fengum við þessa fregn. Það var sem skugga drægi yfir. Menn setti hljóða, þeir urðu lostnir djúpri hryggð. Þennan morgun var algjör þögn í kaffistofunni, þótt annars ríki þar glaðværð og háreisti. Það hafði brostið strengur í vitund okkar, mynd- azt tóm, er vakti söknuð í fyllstu merkingu orðsins. Er ferðalagi lauk, síðla laugar dags 14. september, hafði hann að skilnaði þrýst hönd ferða- félaga sins, þakklátur með bros á vörum, eftir friðsælan dag og vel heppnað ferðalag. Hann hélt síðan heim til sín, og þar leið hann útaf örendur fáeinum augnablikum síðar. Við samferðamenn hans stönd um sem agndofa. Það er svo erfitt að skilja að Vilhjálmur skuli vera horfinn að fullu og öllu. En þetta minnir okkur á þá staðreynd, að líf mannsins er sem grasið á vellinum. Það grær og blómgast í dag, á mor.gun hnígur það fyrir ljánum. Þá er gott að geta sagt í fullkomnu trausti til Guðs, sem hefir lífs- anda mannsins í hendi sér: „Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri hans heilaga nafn.“ Vilhjálmur átti vissulega mörg óleyst verkefni hér á Iðunn, sem horfðu til bóta og svara skyldu kröfum tímans. Hann vann að hvers konar um- bótum með einstakri lipurð, en einbeitni þó, þann stutta tíma, sem hann dvaldi hér. Er mér óhætt að segja, að vonir miklar hafi verið við hann bundnar. En oftlega stöndum við í þeim sporum, að vonirnar verða að engu, og hugsjónirnar hverfa á kaf í sandinn. Nú er höndin hlýja, sem vakti traust og virðingu okkar snögg- lega horfin. Persónuleikinn sanni, fullur góðvildar og sann- girni, er skyndilega kallaður brott af sjónarsviði jarðneska lífsins. Hvað lifir eftir hér? Óvenju hugstæð minning, er laðar fram hvöt til meiri ár- vekni og umhyggju gagnvart samtíðarmanninum, ef unnt væri að gera göngu hans léttari. Við nánari kynni af Vilhjálmi Ríkharðssyni sáust æ fleiri mannkostir hans. Þess vegna skil ég' betur, hvers ástvinir hans hafa misst, er fráfall hans bar svo skyndilega að höndum. Guð blessi þá alla og styrki x þessari erfiðu raun. Jóhann Sigurðsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.