Dagur - 02.10.1968, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Fyrsta og eina síldarsöltunin á Akureyri á þessu- sumri það sem af er, var í Krossanesi sl.
fimmtudag. Súlan kom þangað með 200 tonn af ísaðri síld, auk þess nokkuð af síld, sem söltuð
hafði verið á miðunum. (Ljósm.: E. D.)
SAMVINNUSKÓLINN 50 ÁRA
SAMVINNUSKÓLINN Bifröst
var settur í dag, 26. september,
í hátíðasal skólans. Guðmundur
Sveinsson skólastjóri flutti setn
ingarræðu og bauð nemendur,
starfsfólk og kennara velkomin
til starfa. í ræðu skólastjóra
kom fram, að skólinn er 50 ára
í næsta mánuði og er nú hafið
51. starfsár skólans frá stofnun,
en hið 14. frá flutningi skólans
að Bifröst. Skólastjóri minntist
sérstaklega Jónasar Jónssonar
frá Hriflu, fyrrum ráðherra, en
\
LOGAÐ ALLT AÐ 43 ÞUS. FJAR
Á SAUÐÁRKRÓKI
Frostastöðum 19. sept. Sauðfjár
slátrun hófst hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga sl. mánudag, þann
16. sept., eða viku fyrir göngur,
Ekki mun þó gert ráð fyrir því,
að hámarksafköstum verði náð
fyrstu dagana en úr því er
áformað að slátra 1500 kindum
á dag. Samkvæmt sláturfjárlof-
orðum mú búast við að slátrað
verði í haust lijá félaginu 42—
43 þús. fjár og er það nokkru
fleira en áður hefur verið. Auk
þess verður trúlega einhverju
slátrað hjá svonefndu Slátur-
samlagi Skagfirðinga, en sá fé-
lagsskapur mun á sinni tíð hafa
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR fór á veiðar frá
Reykjavík 24. sept. Hann iandar
eftir helgina.
SVALBAKUR fer á veiðar
kl. 8 í kvöld, eftir hreinsun í
slipp.
HARÐBAKUR er væntan-
legur 3. okt. með um 80 tonn.
SLÉTTBAKUR fór 27. sept.
á veiðar en kom inn í gær með
bilaða ljósavél. Fer út aftur á
morgun eða fimmtudag.
(Frétt frá Ú. A. 1. okt.)
verið í einhverskonar tengslum
við Verzlunarfélagið sáluga.
Undanfarin haust hefur ekki
fengizt að slátra á Sauðárkróki
fullorðnu fé austan yfir Héraðs-
vötn og hefur það verið flutt í
Hofsós. Var það gert til þess að
forðast garnaveikissýkingu vest
an Vatna. Nú eru hins vegar
brostnar forsendur fyrir því
banni þar sem garnaveikin hef-
ur numið land í vestanverðu
héraðinu og er nú leyft að slátra
öllu fé austan yfir Vötn á Sauð-
árkróki.
Áætlað er að sauðfjárslátrun
verði lokið hjá kaupfélaginu 23.
—25. okt. en þá tekur við stór-
gripaslátrun. Um 110—120
manns vinnur við slátrunina.
Vænleiki dilka hér í haust
verður naumast ráðinn af því
sýnishorni, sem enn er komið í
sláturhúsið. Það er eingöngu fé,
sem verið hefur í heimahögum
eða hið næsta afréttargirðing-
um og verið sótt þangað og er
það oft rýrara en hitt, sem unir
sér í afrétt. Þó virðast þeir dilk-
ar, sem enn eru heimtir, lofa
góðu fremur en hitt.
Góðviðri er nú með eindæm-
um dag hvern og hefur svo ver-
(Framhald á blaðsíðu 2).
stofnanda Samvinnuskólans og
skólastjóra hans í áratugi, þakk
aði störf Jónasar og bað við-
stadda minnast hins látna með
því að rísa úr sætum.
Skólastjóri skýrði frá að 76
nemendur myndu stunda nám
við skólann í vetur, 39 í 1. bekk
og 37 í 2. bekk. Hafa nemendur
aldrei verið jafn margir í skól-
anum frá því hann var fluttur
að Bifröst. Um skólavist í 1.
bekk á þessu hausti sóttu 288
ungmenni, eða sjö sinnum fleiri
en hægt var að taka í skólann.
(Framhald á blaðsíðu 5).
EKí-
SAUÐFJÁRSTÍÐIÐ
í REYKJAVÍK
í réttunum skarst verulega í
otlda milli yfirvalda höf-
uðborgarinnar og sauðfjáreig-
enda, sem bannað var að flytja
fé sitt frá rétt í Fjárborg (fjár-
húsahverfi). Varð lögreglan að
skerast í málið. En sauðfjárhald
hefur verið bannað í landi borg
arinnar, sauðfjáreigendur mót-
mæltu banninu svo lögreglu-
valdi varð að beita.
SKÚRASTÍÐ Á AKUREYRI
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa
verið að stríða við það undan-
farin ár, að losna við nokkra
tugi kofa og skúra, einkum á
Oddeyri. Húsnæði þetta er m. a.
notað sem hesthús. Sauðfjár-
hald er ekki bannað í landi bæj-'
arins og áttu bæjarbúar á þriðja
þús. fjár á fóðrum sl. vetur, enn
fremur 3—400 hesta. Löghlýðnir
kofaeigendur liafa fært sig um
set, en aðrir þráast við. Auðvit-
að verða kofarnir að víkja eins
og hvert annað skran. En mynd
arleg hesthús og kindahús gætu
verið augnayndi í sjálfum mið-
bænum ef ströngum kröfum í
umbúnaði og umgengni er full-
nægt.
KALLAÐI Á GÆSIRNAR
Norðlenzkur bóndi var að kalla
á gæsahópinn sinn að kveldi
dags. Þær voru bústnar og
verða enn bústnari þegar líður
að jólum — og jafnframt drjúg
tekjulind eiganda sínum —.
Furðulegt er, hve fáir nota gras
lendið til alifuglaræktar. Sum-
um hefur tekizt að lokka æðar-
fuglinn til að mynda varpsam-
félag á nýjum stöðum, til mikilla
nytja. Dúnninn hækkaði nýlega
mikið í verði.
SELUR ÁSKERI
Á snöggri ferð um Vatnsnes í
sumar sáust hundruð sela
sleikja sólskinið á lágum skerj-
um. Við læddumst fram á sjávar
bakkann til að sjá selina betur.
En þeir voru ekki mannfælnir
og höfðu líka gaman af að sjá
fólk. Hættum við þá feluleikn-
um og gengum frarn á bakkann
þar sem liann var hæstur. Sel-
irnir blésu hátt og sumir góluðu
og allir stungu þeir sér í sjóinn.
En þeir fóru ekki heldur komu
þeir upp að fjöru og léku þar
listir sínar fyrir okkur. Þeir
voru eins og húsdýr, gæfir, for-
vitnir og skemmtilegir.
SÁ AFTURMJÓI
Fimm ára gamlir Iaxar, sem
veiðast í Laxá eru oft um 20
pund. Þeir hafa þó aðeins verið
tvö ár samfleytt í sjó, en gengið
3ja ára úr ánni (gönguseiði) þá
15—18 cm. langir og mjóslegnir
fiskar. Vöxtur laxanna, eftir a5
þeir yfirgefa árnar, er ótrúlegur.
Talið er, að unnt sé að marg-
falda laxagöngur í íslenzkum
laxveiðiár, með því að hjálpa
náttúrunni við uppeldið. En.
grundvöllur að allri ræktun lax
fiska, sem í sjó ganga, er það
eðli þeirra að vitja æskuslóð-
anna, sem stórir og verðmiklir
nytjafiskar.
Mikið norðanveður um
UM SÍÐUSTU HELGI var
hvöss norðanátt um land allt og
mikilli snjókomu um norðan-
vert landið og á hálendinu. Fé
fennti í Svarfaðardal, í gær var
verið að leita að fé í sköflum í
Vinhælishreppi og Höfðahreppi
á Skaga, svo dæmi séu nefnd.
Holtavörðuheiði varð þung-
fær, skaflar á vegum hjá Holta-
stöðum og Móbergi í Langadal
og veruleg umferðartruflun í
Húnavatns- og Skagafjarðai'-
sýslum en greiðfært orðið í gær.
Múlavegur tepptist, heiðavegir
norðaustanlands urðu þungfær-
ir í bráð. Oddsskarð og Fjarðar-
heiði lokuðust, svo og Hálsaveg-
Stórbruni á Másseli í Jökulsárhlíð
Egilsstöðum 1. okt. íbúðarhúsið
Mássel, norðarlega í Jökulsár-
hlíð, brann til ösku í gær. Eld-
urinn varð laus kl. 11 í gær-
kveldi, átti sennilega upptök í
viðbyggingu íbúðarhúss, þar
sem olíurafstöð var. Vindur var
hvass, 7—8 vindstig af norð-
austri. Eldurinn magnaðist fljótt
svo húsið varð alelda á skammri
stund.
Við eldsupptök voru í húsinu
bóndinn Þórarinn Guðjónsson,
ÖSKRANDl GUFUGOSI BJARNARFLAGI
EINS og vegfarendum um Bjarn
arflag og Námaskarð er kunn-
ugt, hafa tvær borholur spúð
sjóðandi gufu með öskrum og
óhljóðum skammt frá þjóðvegi.
Þriðja borhola og yngri var
virkjuð og notuð í Kísiliðjunni.
í sumar var fjórða holan boruð,
með tilliti til raforkuframleiðslu,
þeirrar fyrstu hér á landi. Því
verki er nýlega lokið og hola sú
gýs stöðugt síðan. Gufumagnið
er mikið og ómælt og hitinn er
281 stig og vaxandi. Holan er
1138 m. djúp. Verið er að tengja
gufuna Kísiliðjunni til bráða-
birgða, eða þar til hún verður
tekin til raforkuframleiðslunn-
ar. Verið er að byggja raf-
stöðvarhús við holuna. Enn-
er byrjað á nýrri holu í Bjarnar
flagi og er hún gerð vegna Kísil
iðjunnar. Eldri borholur tvær,
sem hvæsa að vegfarendum eru
ónýttar enn, þóttu ekki nægi-
lega heitar til raforkufram-
leiðslu. En þar er óhemju orka,
sem enn fer út í loftið, engum
til gagns.
Jarðborunardeild ríkisins sér
um borunarframkvæmdir í
Bjamarflagi. Og enn hefur eng-
inn hugmynd um orkumögu-
leika á því jarðhitasvæði, sem
kennt er við Námaskarð og
Bjarnarflag, sem fást kynnu
með borunum. □
sem var uppi á efri hæð, enn-
fremur kona 'hans, Árný Þórðar
dóttir, ásamt dóttur og þrem
dótturbömum. Mæðgumar voru
í kjallara en komust upp á hæð
ina, brutu glugga og björguðu
út börnunum og svo sjálfum
sér. En móðir barnanna, Elín-
borg, brenndist nokkuð og var
síðar gert að sárum hennar á
Egilsstöðum. Guðbjörn, sonur
hjónanna gat bjargað föður sín
um út um glugga á efri hæð og
einhverju af fatnaði fólks. Allt
annað brann. Húsið var timbur-
þiljað steinhús og er gjörónýtt.
Er því brunatjónið mjög mikið.
Bóndasyni tókst einnig að
bjarga þrem nautgripum úr
áföstu fjósi en kálfur brann inni
og nokkur hænsn.
Ekki varð í síma komist, en
er nágrannar sáu eldinn, komu
þeir til hjálpar og skjóta þeir
skjólshúsi yfir fólkið. Alllangt
er til næstu bæja, en skemmra
til eyðibýlis þar sem fólkið býr
e. t. v. um sig til bráðabirgða,
svo unnt sé að halda búskap
áfram og nýta hey í vetur. □
ur, Axafjarðaiheiði og Möðru-
dalsöræfi. Vaðlaheiði var snjó-
lítil og Fljótsheiði nær snjó-
laus. '
Margir vegfarendur voru
keðjulausir og varbúnir vetrar-
veðri um helgina. Tafir urðu því
mun meiri af þeirri ástæðu en
þurft hefði að vera á vegum úti.
Er á það minnt nú, að ekki er
að treysta góðu veðri og greið-
um vegum þegar um lengri
ferðalög er að ræða og þessi árs
tími kominn. Q
SLEGIST VIÐ
HÖFNINA
í NÓTT kom til átaka milli
bæjarbúa og enskra sjómanna
af togaranum Arsenal, sem lá í
Akureyrarhöfn. Lögregla bæjar
ins skabkaði leikinn og handtók
4 hinna erlendu sjómanna,
þeirra á meðal skipstjórann.
Tveir íslendingar meiddust lítil
lega í átökum þessum og var
gert að sárum þeirra. Útlending
arnir voru látnir lausir í dag,
eftir að yfirheyrslum var lokið.
Óróaseggirnir voru ölvaðir.
Nokkrir erlendir togarar
komu til Akureyrar til að liggja
af sér garðinn um síðustu helgi.
Fleiri óspektir urðu af völdum
áhafna þeirra, en þau mál komu
ekki til kasta lögreglunnar.
(Samkv. viðtali við lögreglu-
varðstofuna í gær). □