Dagur - 20.11.1968, Side 1

Dagur - 20.11.1968, Side 1
EFNAVERKSMIOJAN SJÖFN LI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 20. nóvember 1968 — 50. tbl. FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SéRVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPiERING Fjölmennur fundur Fram- sóknarmanna á Hólel KEA Á FÖSTUDAGINN efndu Fram sóknarfélögin í Eyjafirði og á Akureyri til almenns fundar á Hótel KEA urn stjórnmál, eink- um síðustu aðgerðir í efnahags- málum og stefnu Framsóknar- flokksins. Aðsókn var mikil eða nær 200 manns úr mörgum nær liggjandi sveitarfélögum, auk bæjarbúa. Frummælendur voru þing- mennirnir, Gísli Guðmundsson, Ingvar Gíslason og Stefán Val- geirsson. Fundarstjóri var Þórir Valgeirsson bóndi í Auðbrekku og fundarritari Guðmundur Blöndal, Akureyri. Stóð fundur þessi fram yfir miðnætti og tóku 15 til máls og þingmennirnir oft 1111111111111111111111111 iii iminii iii ii iii iii ii ii iii SANA | i HINN 12. nóvember var É I Sana á Akureyri úrskurðað j | gjaldþrota fyrirtæki. Rann- É j sókn á rekstri og hag stend- i i ur yfir og á meðan hefur é i bæjarfógeti látið halda áfram É : framleiðslu og sölu drykkjar j i vara, vegna hagsinuna veð- j i hafa. j Skuldir fyrirtækisins munu j i vera 45 millj. kr. en eignir j : einnig miklar. f júnílok sl. j i voru skuldir taldar um 12 j : millj. kr. umfram eignir. j i Landsbankinn er helzti lán- j j ardrottinn Sana en einnig j i ríkissjóður vegna ógreiddra j i framleiðslutolla, tappagjald j j þar innifalið, og einhverjir j j einstaklingar munu einnig j j vera í ábyrgðum fyrir stór- j j um upphæðum. Þessi tími nú og fram að j j áramótum verður notaður til j j að fá kaupanda að fyrirtæk- j j inu. Bygginga- og vélakostn- j j aður Sana annars vegar og j j verðlagsákvæði á fram- : j leiðslunni hins vegar gerðu j j reksturinn frá upphafi von- j i lausan. Þegar svo verðlags- j j liöftum var aflétt sl. sumar, j j var verðið liækkað um ná- j j lega helming og salan „datt j j niður“. Borizt hafa eftirtektarverð j j tilboð í framleiðslu Sana er- j i lendis fró. □ j 11111111111111111111111111111111111 ar en einu sinni, enda var beint til þeirra fyrirspurnum. Ræðumenn, auk þingmanna, voru þessir: Haraldur Sigurðs- son, Bernharð Stefánsson, Frið- jón Júlíusson, Olafur Magnús- son, Ingi Tryggvason, Jón Krist insson, Sigurður Óli Brynjólfs- son, Þorleifur Ágústsson, Sig- urður Jóhannesson, Arnþór Þor steinsson, Bjarni Einarsson og Aðalsteinn Guðmundsson. □ Nokkrir fundarmenn á Hótel (Ljósm.: E. D.) Ofboðsleg flóð á Héraði og Austfjörðunum Egilsstöðum 18. nóv. Komin var mikil lausamjöll á Austfjarða- hálendið og víða um sveitir um fyrri helgi þegar asahláku gerði og úrhellisrigningu. Urðu þá meiri vatnavextir en í mestu vorleysingum, alveg ægilegir og ævintýralegir í senn. Allir ár- og lækjarfarvegir fylltust af vatni og víða ruddi vatnið sér nýjar leiðir, tók af vegi, gróf undan brúm og ræsum, gerði, ásamt skriðuföllum, millj. tjón. ÓÖLD í REYKJAVÍK Á SUNNUD AGSKV ÖLDIÐ voru 16 rúður brotnar í Alþingis húsinu og er sá atburður einn af mörgum og nú daglegum afbrot um í 'höfuðborginni. □ Sem dæmi er það, að vatnið í Lagarfljóti sleikti brúarbitana og geta menn af því gert sér nokkra hugmynd um flóðið. Eitt hvað af fé drapst í flóðum þess- um en fleira var bjargað, á sum um stöðum á bátum. Hross munu ekki hafa farizt, en þau stóðu lengi í vatni og tókst að bjarga þeim á þurrt að síðustu. Skriðuföllin urðu mest í ná- grenni Neskaupstaðar. Þar varð vgeasambandslaust með öllu. Nú er búið að gera við svo jepp um er fært og ef tíð leyfir, verð- ui' vegaviðgerðum haldið áfram. Urkoman mun hafa orðið mest til fjarðanna og á Suð- austurlandi og um ofanvert Fljótsdalshérað, eins og venja er í þessari átt, suðaustanáttinni. Það yrði langt mál að telja upp allar þær ár, sem flæddu yfir bakka og skaða gerðu. En nátt- úruhamfarir af þessu tagi eru alveg óvenjulegar eða jafnvel einsdæmi. Q ÞRIR KYNNTU SER SLÖKKVISTÖRF SLÖKKVILIÐIÐ á Keflavíkur- flugvelli bauð þrem mönnum frá Akureyri á vikunámskeið syðra, þar sem kynntar voru og æfðar nýjungar í störfum slökkviliðsmanna og einnig ný efni svo sem „létta vatnið“ til að kæfa eld. Þeir, sem héðan fóru og námskeiðsins nutu voru slökkviliðsmennirnir Víkingur Björnsson, Gísli Lorenzson og Tómas B. Böðvarsson. Töldu þeir för sína góða og eru þakk- látir þeirri fræðslu, er í té var látin. □ Skuldirnar viS úllönd og greiSslubyrSin FYRIR 10 árum skulduðu íslendingar, þar með talinn ríkis- sjóður, 4000 þús. millj. kr. í útlöndum og er þá erlendi gjald- eyririnn, sem skuldirnar eru reiknaðar í, talinn á nýja geng- inu. Nú eru skuldirnar við útlönd komnar upp í 13000 millj. kr. eða nálægt þeirri upphæð. Hagfræðingar koniust að þeirri niðurstöðu fyrir 10 árum, að greiðslubyrði íslands útávið, þ. e. árlegir vextir og afborg- anir af skuldum erlendis, mætti ekki fara yfir 50% af gjald- eyristekjum þjóðarinnar aí útfluttum vörum og útfluttri þjón ustu. Um það leyti var hún mjög nálægt þessu. Samkvæmt upplýsingum, sem átta manna viðræðunefnd stjórnarflokkanna voru gefnar í haust, var greiðslubyrðin þá um 1350 millj. kr. eða sem nemur öllum útflutningi landsins á frystum sjávarafurðum (fiskflökum, heilfrystum fiski, frystri síld, rækju og liumar) árið 1967. Þetta er ótrúlegt en satt, samkvæmt nýútkomnum verzlunarskýrslum Hagstofu íslands. Greiðslubyrðin mun nú vera yfir 15% eða rúmlega þrisvar sinnum meiri en á hættumarkinu stóð fyrir 10 árum. □ Fræðsluráð sýslunn- ar þingar á Aknreyri Hin stóru, sápufylltu kústakefli hreinsa bílinn á örfáum mínútum. (Ljósm.: E. D.) í ÁTTA skólahverfum sýslunn- ar af tíu er ekki hægt að full- nægja fræðsluskyldu barna. Fræðsluráð Eyjafjarðarsýslu boðaði til fundar um fræðslu- mál, á laugardaginn; þingmenn BÍLAÞJÓNUSTAN NÝTT FYRIRTÆK! Á AKUREYR! UM HELGINA tók nýtt fyrir- tæki til starfa við Tryggvabraut 14 á Akureyri, í nýju einnar hæðar húsi. Heitir það Bíla- þjónustan og eigandi Guðmund- ur Georgsson. Þar eru bílar þvegnir, þurrk- aðir og bónaðir og þar mun til viðbótar koma smurstöð, ryk- sugun og e. t. v. gúmmíviðgerð. Benzín og olíur fást þar, svo og gosdrykkir, sælgæti og tóbaks- vörur. Þvottur bílanna fer fram með stórum burstakeflum, vatn ið er blandað sápu og tekur að- eins fáar mínútur að þvo hvem bíl en ögn lengur að þurrka og bóna, fyrir þá, sem það vilja. Þessi þjónusta var vel þegin í gær, því segja mátti, að þvotta- kústarnir væru stöðugt í gangi, enda svo ástatt hér í bæ að farartæki verða auri ötuð í akstri á lítilli stundu. Þvottastöð af þessu tagi er sú fyrsta í þessum landshluta og munu margir eiga erindi þang- að, þótt stöðin sé aðeins fyrir fólksbíla og aðra af líkri stærð. kjördæmisins, skólanefndarfor- menn, hreppsnefndaroddvrta, sveitarstjóra, námsstjóra o. fl. Fundur þessi var haldinn á Akureyri. í fræðsluráði sýsl- unnar eru: Sveinn Jónsson, Kálfsskinni, formaður, Ásrún Þórhallsdóttir, Möðruvöllum, Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svava Friðjónsdóttir, Torfufelli, Eiríkur Brynjólfsson, Kristnes- hæli. Skipulagning skólamála í (Framhald á blaðsíðu 2). BÆNDAKLÚBBUR Eyfirðinga heldur fund að Hótel KEA mánudaginn 25. þ. m. og hefst hann eins og venja er kl. 21. Guðbrandur Hlíðar dýralækn ir flytur framsöguerindi um rannsóknir á júgurbólgu og notkun lyfja við henni. □

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.