Dagur - 27.11.1968, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
SKULDASÚPÁN
UM ÞAÐ LEYTI sem krónan var
felld á dögunum bar mönnum ekki
fyllilega saman um það, hver væri
heildarupphæð skulda íslands er-
lendis dagana fyrir og eftir gengis-
lækkunina og fóru þó þeir, sem um
þetta ræddu eftir upplýsingum frá
Seðlabankanum.
Mismunur á tölum, sem raunar
var ekki mikill, stafaði af því, að
stundum er talað um umsamið er-
lent lánsfé, sem ekki er alltaf búið að
nota að fullu en stundum um notað
lánsfé eingöngu, sem telja verður
réttara, en þá þarf það að liggja
glöggt fyrir, hvað búið er að nota af
umsömdu lánsfé.
Nú hefur Seðlabankinn birt tölu,
sem treysta verður um upphæð skuld-
arinnar þegar eftir gengislækkun,
miðað við notað lánsfé og var skuld-
arupphæðin samkv. henni ca. 12500
milljónir króna. Síðan er búið að
semja um 770 millj. kr. gjaldeyris-
lán erlendis og mun það koma fram
í skýrslum eftir áramótin, að hve
miklu leyti hér verður um raun-
verulega skuldaraukningu að ræða.
En vera má, að þetta fé verði að ein-
hverju leyti notað til að lækka lausa-
skuldir erlendis.
I árslok 1958, þ. e. fyrir tæpum 10
árum, námu erlendu skuldirnar ca.
4000 milljónum, breytt í núverandi
gengi íslenzkrar krónu. Skuldaaukn-
ingin síðan 1958 upp í 12500 millj.
kr. er því stórkostleg. Og þar sem
báðar upphæðimar eru reiknaðar
á sama gengi, er hér um að ræða
raunverulega skuldaraukningu í er-
lendum gjaldeyri.
Fyrir „viðreisn" komust fróðir
menn að þeirri niðurstöðu, að árleg-
ir vextir og afboiganir af þáverandi
skuldum væm um 5% af því sem
inn kæmi á ári fyrir útfluttar vömr
og þjónustu. Þennan hundraðshluta
þ. e. 5%, nefndu þeir greiðslubyrði
þjóðarinnar gagnvart útlöndum og
sögðu að hún mætti ekki þyngri vera
og væri í öðram löndum yíirleitt
léttari. — Forystumenn Sjálfstæðis-
ins deildu einkum á vinstri st jómina
fyrir það, að þessi greiðslubirði, sem
var 5%, væri of þung og töldu sig
ætla að ráða bót á.
í viðræðum stjómmálaflokkanna
í haust var upplýst, að greiðslubyrð-
in væri komin upp í 1350 milljónir
á ári, á gamla genginu og væri ná-
lægt 15% í staðinn fyrir 5% fyrir 10
árum. Þessi upphæð jafngildir því
sem inn í landið kom fyrir allar
frystar sjávarafurðir á árinu 1967 og
samsvarar nálega 2100 millj. kr. á
nýja genginu.
Þannig er skuldasúpan orðin við
útlönd eftir 10 ára „viðreisn“ íhalds
á íslandi. O
SKILJUM-SKILJUM EKKI?
NÚ BER HÁTT skrif og skraf
um atvinnu- og fjármálavanda
margs konar, sem þjakar þjóð-
ina. Ekki eru vandamálin ný-
tilkomin. Talið er að 2 að raun-
ar 3 árin siðustu hafi verið erf-
ið og áfallasöm, og að sífellt hafi
sigið á ógæfuhliðina, unz svo er
komið, að gjaldeyrisforði þjóð-
arinnar, sem átti að vera til ör-
yggis á erfiðum árum, er upp-
étinn með öllu. Hér er það sag-
an gamla um mögru kýrnar 7
sem átu upp hinar 7 feitu, í
nýrri útgáfu og með nútíma
stafsetningu. Þó er nú gengið
harðara. að en á Egyptalandi
forðum, því segja má að 2 magr-
ar kýr séu búnar að torga 7
. feitum.
Hagfræðingar og stjórnmála-
menn fræða lýðinn um þessi
mál margvíslega. Við „venju-
legir“ menn og konur leggjum
okkur fram um að skilja, en
tekst það misjafnlega. Sumt, og
jafnvel margt, skiljum við alls
ekki, þótt við séum öll af vilja
gerð.
'.'' En áður en lengra er farið,
mun rétt að skilgreina nokkuð,
hvað ég á við, er ég nota orða-
lagið „venjulegir menn og kon-
ur“ — „venjulegt fólk“ og
„venjulegar manneskjur“. Ég á
blátt áfram við obbann af fólki,
unga og gamla, í þessari borg
— Reykjavík — og um land
allt. Fólk misbúið að menntun
og atgerfi, en um eitt er það
yfirleitt á sama báti: Það hefir
engum eða litlum erfða-auði á
að byggja, né úr að spila, enda
er nú lítið um slíkan auð á landi
hér. Ennfremur: Það hefir ekki
sópað saman verzlunar- og um-
svifaauði á feitu árunum, í
bezta lagi ef það hefir aunglað
saman og lagt til hliðar að því
marki að verða vel efnalega
sjálfbjarga. Það hafa margir
gert sem betur fer.
Já, það eru margir sem falla
undir þessa heildar-skilgrein-
ingu, en þar eru sér í flokki, í
huga mínum, þeir mörgu sem
höfðu efnast nokkuð áður en
gengisfellingar-trúin og sýkin
grejp um sig í landi hér, en eiga
nú við felli vona ag hagsmuna
að búa, eftir að gengisfellingar
hafa látið greipar sópa um eig-
ur þeirra. Það er sízt að undra
þótt þetta fólk gerist blendið í
trúnni á vizku og forsjá leið-
toga þjóðarinnar og eigi erfitt
með' að skilja hagfræðiræður
þeirra fyrr og nú. Aldrað fólk,
sem svo er ástatt um, verður nú
daglega að velta fyrir sér því
reikningsdæmi hvort verðfelld-
ar .eignir muni endast og
hrökkva til, til viðbótar þeim
ellilífeyri sem ríkið nætur í té
og vel ber að meta, unz yfir
lýkux. Slíkt reikningsdæmi get-
Xir blátt. áfram horft þannig við
öldruðu fólki, að góð heilsa og
útlit fyrir að lifi lengi, verði
þeim- er í hlut á ærið áhyggju-
efni og vandamál. Fátt er dapr-
ára en að þurfa að óttast að lifa
of lengi, þar eð eyðilagður fjár-
hágur leyfi það eigi, og eiga þjóð
félaginu og stjóm þess fyrir það
að þakka.
En það er ekki sérstaða og
viðhorf hinna gömlu, sem eru
og verða að éta upp leifamar af
eignum sem margbúið er að
verðfella, sem er aðalumræðu-
efnið. Mest er um vert að líta
á viðhorf fjöldans venjulega
fólksins, éilþýðu manna.
— o —
Okkur er sagt að nú verði all-
ir að spara, nú eiga allir að hjálp
ast að, við að yfirstíga erfiðleik-
ana. Hin daglega reynsla verður
því miður á þann veg að svar
okkar einstaklinganna vel
flestra verður á þessa leið: Ég
hvorki get eða vil afsala mér
neinu, það verða aðrir að gera.
Þannig er hugsað og sagt oftast
í hljóði, en einnig upphátt. Hvað
veldur þessum hugsunarhætti,
þessu meini? Margt ber til, en
það sem lengst dregur og verstu
veldur, er sú tilfinning okkar,
reynsla og skilningur, að hag-
fræðingar ríkisins, fjármálafor-
kólfar og stjórnarvöldin sýni
harla litla viðleitni í þá átt að
spara útgjöld og herða ólina. Og
sem sé: ef ríkið bankarnir og
aðrar opinberar stofnanir þurfa
ekki að spara, hvers vegna eig-
um við einstaklingarnir, sem vel
flestir höfum ekki meira en til
hnífs og skeiðar, eða vel það, þá
að vera að spara, nei og aftur
nei!
Máli mínu til stuðnings skal
ég nefna nokkur dæmi sem við
höfum fyrir augum og eyrum
daglega. Hluti sem okkur geng-
ur illa að skilja.
— o —
Ríkið er að byggja tollahöll
mikla og veglega við höfnina í
Reykjavík. Við spyrjum: Hefði
ekki allt komizt af, við fyrir-
sjáanlegan minnkandi innflutn-
ing, þótt þeirra fleiri tuga
milljóna — ef til vill 100 millj-
óna — framkvæmd hefði verið
frestað um sinn, unz eitthvað
batnaði í ári? Hið sama gildir
vonandi um símabygginguna
nýju, sem er mikil og dýr bygg-
ing.
Búnaðarbankinn byggir stór-
hýsi við Rauðarárstíg, til við-
bótar fyrir starfsemi sína — tug
milljóna byggingu. Hefði það
staðið þjóðinni nokkuð fyrir
þrifum þótt þeirri framkvæmd
hefði verið frestað nokkuð? Er
ekki sama að segja um stór-
byggingu Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis við Skólavörðu
stig. „Nauðsyn“ þessara stór-
bygginga, þessara dýru fram-
kvæmda, nú þegar stjómarvöld
in segja að hart sé í ári og nú
þurfi að spara er eitt af þeim
fjármálavizku-úrræðum sem
við erum að reyna að skilja —
én tekst ekki.
— o —
Og um leið verður okkur hugs
að til fjárfestingar bankanna
yfirleitt, og útþenslu bankakerf-
isins hin síðustu ár. Við sjáum
að nýir bankar og bankaútibú
rísa upp og gróa eins og gor-
kúlur á haug út og suður um
borgina og víðar. Nú mun tala
banka og bankaútibúa á svæð-
inu Reykjavík—Hafnarfjörður
vera komin verulega á þriðja
tuginn. Er þetta eðlilegt? Er
þessi útþenslustefna fjármála-
yfirvaldanna rétt og heppileg í
sama mund og kvartað er um
peningaleysi og fjárskort í bönk
um, stofmmum og hjá ríkinu?
Við „venjulegir“ menn sem höf
um lítil viðskipti í bönkum skilj
um þetta ekki, að það þurfi að
fjölga bönkum eftir því sem fjár
skortur géri meirá vart við sig
og krónurnar verða verðminni.
En okkur er sagt að þetta sé
rétt og að jafnvel þurfi betur að
gera, fjölga bönkunum ennþá
meira. Málið var til umræðu á
Alþingi nú alveg nýverið. Þá
upplýsti viðskiptamálaráðherra,
að í Danmörku væru bankarnir
mun fleiri, miðað við fólksfjölda.
Við héldum að hann myndi láta
þau orð fylgja skýrslu sinni, um
fjölda banka hérlendis og fjár-
festingar á því sviði, að hér væri
bersýnilega of langt gengið, og
að nauðsyn bæri til að stinga
við fótum. Þar misskildum við
hlutina rétt einu sinni, fengum
tilvitnunina til Danmerkur í
hausinn.
Útþensla bankakerfisins og
fjárfesting er blátt áfram stork-
un við almenning í þessu landi
og við fjárvana atvinnuvegi, og
tilvísunin til Danmerkur er gróf
blekking. Annars vegar er fjöl-
menn þjóð, miðað við okkur, og
gróin að efnum. Hins vegar er-
um við fátækir og fámennir og
fjárvana. Já svo fjárvana að við
verðum af illri nauðsyn að
draga til okkar útlent fjármagn
við hálfgerða neyðarkosti, svo
ekki sé meira sagt. Allur saman
burður á okkur og Dönum, á
þessu sviði er fásinna.
— o —
Fjármálaréttlætið? Við skilj —
um nauðsyn þess og réttmæti,
að við hljótum sekt ef bíllinn
okkar stendur lengur við stöðu-
mæli en tilskilið er. Og við reyn
um líka að skilja að það sé eðli-
legt að bíllinn verði tekinn úr
umferð ef við greiðum ekki
sektina. Svipað er um síma, út-
varp, sjónvarp, rafmagn og hita
veitu að segja. Við vitum og
skiljum svona sæmilega vel, að
það er engin miskun hjá Magn-
úsi, það er einfaldlega lokað
fyrir ef við greiðum ekki á rétt-
um tíma.
En það er annað, sem við
skiljum ekki, svipaðs eðlis eins
og stöðumælasektirnar, en ólíkt
viðameira. Togarar og togbátar
eru teknir í tugatali við ólög-
legar veiðar. Þeir eru færðir til
hafnar, yfirmenn eru yfirheyrð
ir, og reynist hlutaðeigandi skip
stjóri sannur að sök, landhelgis-
broti, er hann dæmdur í ekt.
Þetta er einfalt og auðskilið.
Hitt er okkur öllu erfiðara að
skilja, að togarar og togbáta-
sektirnar eru yfirleitt aldrei
greiddar, að því er orðrómur
hermir, og hefir ekki verið af-
sannað. Landhelgisbrotin kosta
því eigi skipstjórana annað en
töfina við að sigla til hafnar og
sitja undir yfirheyrslu. Að
henni lokinni er farið á veiðar
aftur og lögbrotin endurtaka sig.
Þannig gengur þetta ár eftir ár,
einnig nú þegar sagt er að
þröngt sé í búi hjá ríkissjóði.
Það reynist erfitt fyrir „venju
lega“ menn með stöðumælasynd
ir á samvizkunni að skilja þetta
lögsögu-„samræmi“. Það er
ekki vel til þess fallið að örva
menn til löghlíðni og til þess að
bera virðingu fyrir peningum og
þeim stjómarvöldum sem tala
um sparsemi og reglusemi í fjár
málum, um rétt framtöl til
skatts o. s. frv.
— o —
Okkur er ljóst af dýrri
reynslu, að ef við stöndum ekki
í skilum með greiðslur á opin-
berum gjöldum, svo og gagn-
vart bönkunum með rentur og
afborganir af lánum sem hvíla
á íbúðum okkar, þá vofa yfir
lögtök og nauðungaruppboð.
Ennfremur, að þegar mikil
brögð verða að vanskilum blasir
við gj’aldþrOt, — við verðum
hreinlega „gérðir upp“. Og það
þurfa oft ekki að vera neinar
stórupphæðir á nútímavísu, som
leiða til lögtaks, fjámáms og
jafnvel gjaldþrots, þegar „venju
legir“ menn eiga hlut að máli.
Þetta er vitanlega einfalt mál
og auðskilið, einhver röð og
regla verður að vera á hlutun-
um. En svo kemur annað til,
annað og meira, sem okkur veit
ist erfitt að skilja.
Við aðgerðir þings og stjómar
gengur ríkissjóður í ábyrgð fyr-
ir félög, stofnanir og einstakl-
inga. Hér venjulega ekki um
neinar smáupphæðir að ræða,
alla jafna eru það milljónir og
stundum tugir milljóna.
Nýlega hefir verið birt furðu-
leg skrá yfir slíkar ábyrgðir sem
fallnar eru á ríkissjóð. Sennilega
koma þó ekki öll kurl til grafar
á skrá þessari, en Ijóst er af
skránni, að félög og einstakling
ar geta hlaupið frá greiðslu-
skyldum sínum í miklum mæli,
án þess að verða „gerðir upp“,
og bara látið rikissjóð, sem
ábyrgðaraðila, taka við súpunni,
milljóna og jafnvel tugmilljóna
skuldum. Og það virðist ekkert
vera því tií fyrirstöðu, að hinir
sömu aðilar geti lifað „praktug-
lega“, leikið sér og farið allra
sinna ferða, þrátt fyrir vanskil-
in, öruggir um að sleppa við lög
tök, nauðungaruppboð og gjald
þrot.
Þettá eiga venjulegir minni
háttar gjaldþegnar erfitt með að
skilja. Lögmálið virðist vera —
og er ekki nýtt — að það geti
verið erfitt og ábyrgðarhluti að
skulda lítið, en stórum betra að
skulda mikið, og vera í van-
skilum með skuldimar. Slíkt
getur blátt áfram verið vænlegt
til framdráttar og áhrifa í þjóð-
félaginu.
— o —
Gjaldeyrissjóðurinn gjörsam-
lega uppétinn. Fyrir löngu, já
meira en ári síðan, mátti sjá að
hverju fór um þá hluti. Nú al-
veg nýlega fóru gjaldeyrisyfir-
völdin að hamla ofurlítið á móti
miður nauðsynlegri gjaldeyris-
sölu. Okkur verður að spyrja:
Hvers vegna var ekki stungið
við fótum miklu fyrr — ög fast
ar? Hér er sama sagan sem blas
ir við, hið opinbera sparar ekki,
vill ekki spara, bara láta allt .
ganga sinn gang, unz allt er upp
urið og komið í öngþveiti. Er
þetta ekki hliðstætt við stór-
byggingar ríkis og banka? Al-
menningur á bágt með að átta
sig á nauðsyn sparnaðar þegar
þessu fer fram. Það er eins og
fjármólayfirvöldin hafi trúað
því, að kraftaverk myndi gerast
og beðið eftir því. En nú verður
ekki beðið lengur, og þá er hæg-
urinn hjá, fjármálayfirvöldin
gera bara kraftaverkið sjálf. í
kvöld var okkur tjáð í útvarpi,
að á morgim, á Marteinsmessu
verði gjaldeyrisbankarnir lokað
ir og á þriðjudag 12. nóvember
mætti búast við nýju gengi.
Kraftaverkið er fram komið,
það er ný gengisfelling, sem nú
á að bjarga þjóðinni ennþá einu
sinni.
Við sem ekki erum fjármála-
hagfræðingar spyrjum: Hve oft
er hægt að fella gengi krónunn
ar? Er. hægt að gera það enda-
laust? Og ennfremur spyrjum
við: Ef það er hagur að fella
krónuna t. d. um 30 prósent, er
þá ekki augljóslega miklu meiri
hagur að fella hana um 60 pró-
sent, eða jafnvel 90.prósent? Við
skiljum ekki þennan skollaleik,
og hann er- okkur engin hvöt né
uppörvun til þegnskapar né
sparn^ðar, því er fjarri.
— o —
En það er ekki bara gengi
krónunnar sem nú fellur. Gengi
leiðtoga stjómmálaflokkanna og
tiltrú almennings á landinu til
þeirra hrynur. Viku eftir viku
bárust fregnir af því að leiðtog-
arnir sætu á fundum og von
væri til þess, að þeir myndu
koma sér saman um bjargráð og
leið út úr ógöngunum. Við von-
uðum hið bezta, því að nú beið
þjóðarsómi og þjóðarheill. Við
vorum að vona að það krafta-
verk myndi gerast að stjórn-
málamennirnir virtu meira þjóð
(Framhald á blaðsíðu 2).
Jólðkort ÆSK í Hólaslilli
EINS og undanfarin ár gefur
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Hólastifti út jólakort. — í þetta
sinn er það mynd frá jólum í
Ólafsfirði, — og jólaversin á
kortinu eru úr kvæði séra Matt
híasar: Fullvel man ég fimmtiu
ára sól. —
Telpan á myndinni er Auður
Guðrún Ármannsdóttir 12 ára,
þar sem hún horfir hugfangin á
jólatréð sitt og jólaljósin. —
Myndina tók Ármann Þórðar-
son. —
Sérstök nefnd vinnur að gerð
jólakortanna og dreifingu
þeirra. — Formaður nefndarinn
ar er Þórarinn Jónsson skrif-
stofumaður, Stekkjargerði 14,
Akureyri. — Allur ágóði af sölu
kortanna rennur til styrktar
starfinu að Vestmannsvatni. —
Kort ÆSK hafa átt vinsældum
að fagna. — Q
LANDIÐ ÞITT,
annað bindi eftir Steindór
Steindórsson, skólameistara
Saga og sérkenni nter 700
staða í óbyggðum fslands ásamt
nafnaskrá yfir bæði bindin.
Prýdd 26 myndum eftir Pál
Jónsson og Þorstein Jósepsson.
Bókaútgáfan Orn og Örlygur
h.f. hefur nýlega sent á bóka-
markaðinn annað bindi bókar-
innar Landið þitt eftir Steindór
Steindórsson, skólameistara á
Akureyri. Eins og nafn bókar-
innar gefur til kynna, þá er hér
um að ræða framhald bókarinn-
ar Landið þitt eftir Þorstein
Jósepsson er kom út fyrir jólin
1966 og hlaut þá strax miklar
vinsældir.
Annað bindi er byggt upp á
sama hátt og hið fyrra hvað
niðurröðun efnisins snertir og
það er eðlilegt og nauðsynlegt
framhald hins fyrra. Það fjallar
að mestu um óbyggðir og öræfi
íslands en auk þess eru í ritinu
nafnaskrá yfir bæði bindin.
Nafnaskrárnar eru 7, þ. e. a. s.
mannanafnaskrá, skrá yfir bæk-
ur og rit, skrá yfir félög og stofn
anir, atburðaskrá, skrá yfir
þjóð- og goðsagnanöfn, staða-
nafnaskrá og að lokum skrá yfir
erlend staðanöfn.
Nú er ekki lengur nauðsyn-
Fréít frá samvinnunefnd banka og sparisjóða
RÉTT er, að nokkrar athuga-
semdir fylgi auglýsingu nefnd-
arinnar í blöðum um tékkavið-
skipti.
í henni felst, að frá og með
18. nóvember geta þeir, sem eiga
tékkaviðskipti við banka og
sparisjóði átt von á því að þurfa
að framvísa persónuskilríkjum
við afgreiðslu. Jafnframt hætta
þessar stofnanir almennt að
kaupa tékka á aðrar banka-
stofnanir, sem ætlazt er til að
séu innleystir með reiðufé. í
auglýsingunni er ennfremur
ábending um, að sölu slíkra
tékka sé beint til þeirrar stofn-
unar, sem tékki er gefinn út á.
Með þessari breytingu er tek-
in upp regla, sem hefur verið
ORÐSENDING TIL FORELDRA I DREIFBYLI:
Bréfaskólinn-sunnudaga-
skóli fyrir börn í sveilinni
MEÐ þessum linum vil ég vekja
athygli foreldra í sveit á merki-
legu starfi, sem verið er að
vinna fyrir börn í dreifbýlinu,
sem ekki hafa aðstöðu til þess
að vera í sunnudagaskóla, en
þetta starf er Bréfaskóli ÆSK
fyrir börn á aldrinum 8—12 ára.
Oll börn, sem vilja taka þátt
í þessu stárfi fá sent „Bréf“ —
sem er fjölritað lesefni til trúar-
legrar uppbyggingar, til fróð-
leiks og skemmtunar, — og eru
þegar um 200 börn á Norður-
RICHARD BECK:
VERTÍÐARVON
Þótt lækki sól á Iofti og haust
lengi skugga sína,
sett hef ég ekki enn í naust
alla báta mína.
Sumir glíma á sævi enn,
sóknardjarfir, þreyta,
en heim af djúpi halda senn,
hafnar tryggrar leita.
Von í hug mér vakir þó,
vermd af röðulhlýju:
Að báta mina í sókn á sjó
ég sendi á vori nýju.
landi, sem fá bréfið. — Þeim er
svo ætlað að svara spurningum,
sem beint er til þeirra, og skrifía
um þau atriði, sem skólastjórinn
spyr um, eða óskar eftir að fá
svar við.
Skólastjórinn er séra Jón Kr.
ísfeld prestur að Bólstað í Svart
árdal, A.-Hún. — En hann er
löngu þjóðkunnur maður fyrir
barnastarf sitt, enda er hann
manna færastur til að skrifa og
tala við börn. —
Bréfið er fjölritað í Fjölrít-
unarstofu Hilmars Magnússon-
ar, Akureyri og voru 6 bréf 'send
til barnanna á þessu ári, —
Reynslan hefir sýnt að bréfa-
skólabömin hafa mikla ánægju
af þessu sambandi við hið kirkju
lega starf. — Þátttökugjald er
100 krónur yfir árið. — Þeir
foreldrar, sem vildu láta börn
sín verða aðnjótandi þessarar
starfsemi, eru beðnir um að
senda afgreiðslu „Bréfsins" nafn
og heimilisfang þeirra til af-
greiðslunnar. Afgreiðslumaður
er Þorvaldur Kristinsson,
Munkaþverárstræti 15, Akur-
eyri. — Nægir, að eitt bréf komi
á hvert heimili, þó að um fleiri
börn sé þar að ræða. — Nýr
árgangur „Bréfsins“ hefst eftir
áramót, og þá er tækifæri fyrir
nýja þátttakendur að byrja.
Pétur Sigurgeirsson.
sjálfsögð og allsráðandi erlendis
um langt skeið. Þar geta menn
ekki gengið í hvaða banka sem
er og selt tékka gegn reiðufé.
Er þar ætlazt til, að menn geri
annað tveggja að fara í þann
banka, sem tékki er gefinn út á,
og leita innlausnar þar eða selji
hann í eigin viðskiptabanka til
innborgunar á reikning.
Þessi breytta afstaða banka og
sparisjóða við kaup í umrædd-
um tékkum hefur almennt kom
ið fram í sumum bankastofnun-
um, en er nú fyrst samræmd al-
mennt. Valda henni gerbreyttar
aðstæður. Tékkaviðskipti hafa
margfaldazt undanfarin ár, og
fjöldi bankastofnana hefur auk-
izt verulega og öll viðskipti orð-
ið viðameiri en áður var. Má
nefna sem dæmi, að ávísana-
reikingar við bankastofnanir á
Reykjavíkursvæðinu eru vel yf-
ir 60.000 og fjöldi tékka, sem
bókaðir eru daglega, er 10—15
þús. í kjölfar þessarar þróunnar
hefur misnotkun tékka aukizt
verulega.
Þessar aðstæður allar valda
því, að afstaða bankastofnana
hlýtur að breytast til aðila, sem
ekki eru í föstum viðskiptum
og er umrædd auglýsing til
komin þess vegna.
Vona þær stofnanir, sem að
þessu máli standa, að almenn-
ingur sýni því fullan skilning,
en markmiðið er að sjálfsögðu
að skapa aukið traust í banka-
viðskiptum og styrkja gildi og
örýggi tékka.
legt að vita undir hvaða upp-
sláttarorði skuli leita einhverra
upplýsinga varðandi einstök
nöfn, heldur nægir að slá upp
í skránni og fá þar tilvísun á
réttan stað i hverri bókinni sem
er.
í hinni nýútkomnu bók lýsir
Steindór um 700 stöðum og
óbyggðasvæðum. Saman við
náttúrulýsinguna er fléttað sögu
og sögnum af nýjum eða löngu
liðnum atburðum eftir því sem
efni hafa staðið til.
Steindór Steindórsson er þjóð
kunnur fyrir gróðurrannsóknir
og þjóðleg fræðistörf. Bók þessi;
er ávöxtur áralangra kynna
hans af hálendi íslands.
Myndir þeirra Páls Jónssonar
og Þorsteins Jósepssonar crq ,
mikil bókarprýði.
Landið þitt, annað- bindí, er
prentað og ‘bundið í Prentsmiðj-
unni Eddu, jrentmót gerðl'
Litróf, en káputeikriingu aimað
ist auglýsingastofa Gísla B.
Björnssonar.
PÍPUHATTUR GALDRA-
KARLSINS, fyrsta bindið
í stórum flokki
Höfundur er H. C. Andersen-
verðlaunahöfundurinn Tove Jan
son.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur.
h.f. hefur sent frá sér eitt mesta
listaverk barnabókménntanna,
þ. e. bókina Pípuhattur galdra-
karlsins eftir hina heimsfrægu
skáldkonu og teiknara Tove Jan
son. Tove, sem er finnsk, hlaut
árið 1966 hina eftirsóttu viður-
kenningu barnabókahöfunda, H.
C. Andersenverðlaunin, fyrir
bækur sínar um múmínálfanna,
en þau eru oft nefnd „Litlu
Nóbelsverðlaunin“. Múmínálf-
arnir urðu til í hugarheimi höf-
undar og eiga sér enga hlið-
stæðu í bókmenntum né þjóð-
trú. Þeir hafa hlotið frægð um
víða veröld. Teiknimyndasögur
hafa verið gerðar urii múmin-
álfanna og birtast þær reglúlega
í heimsblöðunum. Einriig hafa
verið gerðar sjónvarpskvik-
myndir og leikrit, sem nú er
sýnt á Norðurlöndum víð geysi-
legar vinsældir.
Pípuhattur galdrakárlsins er
prentuð í Prentsmiðjúnni Eddu,
prentmót gerði Litróf én kópu-
teikning Argus.
ÍSLENZKIR AFREKSr
MENN á leikvangi og í þrek
raunum daglegs lifs frá
landnámsöld til 1911
Gunnar M. Magnús tók sam-.
an. — Hringur Jóhannessori list
málari myndskreytti.- ' ■ ■
Bók þessi er send á markað áf'
Bókaútgáfunni Öm og Örlygur
h.f. cg er hún-fyrsta bindi í
merkilegum bókaflokki. Hér er
á ferðinni all nýstárlegt ritl
íslenzkir afreksméxm héfjast
á grein eftir Helga Pjeturs óg
nefnist hún Yaxtarbroddur
mannkynsins á íslandi. Þar lýsir
Helgi íslendingum tíuridu aldar
innar, en eins og að ofan getur,
þá spannar þetta bindi yfir tíma
bilið frá landnámi og fram til
ársins 1911.
Gunnar M. Magnúss er löngu
þjóðkunnur fyrir hin margvís-
legu ritstörf. Með íslenzkum af-
reksmönnum hazlar hann sér
enn nýjan stað á ritvellinum og
nýtur margs í senn; Hann er
afburða ritsnjall, mikill aðdá-
andi fornbókmenntanna og var
á sínum ýngri árum í flokki
vöskustu manna. Hann var í
hópi þeirra æskumanna sem
hrifust af hugsjón og íþrótta-
anda ungmennafélaganna og hef
ur æ síðan fylgzt náið með ís-
lenzkum afreksmönnum á öllum
sviðum þjóðlífsins.
Hringur Jóhannesson fékk
það vandasama verkefni að
myndskreyta bókina, en hún
nær að meginhluta yfir það tíma
bil íslandssögunnar, þegar ljós-
rmyndavélin var enn ekki komin
fram á sjónarsviðið.
íslenzkir afreksmenn er 192
blaðsiður. Bókin er prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Eddu,
' prentmót gerði Litróf en kápu-
teikningu Argus.
DAGFINNUR DÝRA-
LÆKNIR 1 LANG-
FERÐUM !
Ný bók — ný ævintýri
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
h.f. hefur sent frá sér bókina
Dagfinnur dýralæknir í lang-
ferðum eftir Hugh Lofting í þýð
ingu Andrésar Kristjánssonar,
ritstjóra. Hin nýja bók er fram-
hald bókarinnar Dagfinnur dýra
læknir í Apalandi, sem kom á
markað fyrir síðustu jól. Fyrir
Dagfinn í langferðum hlut höf-
undurinn eftirsóttustu barna-
bókaverðlaun Bandaríkjanna
Newbery-verðlaunin, og honum
hefur æ síðan verið ^skipað á
bekk með fremstu bamabóka-
höfundum í heiminum.
í hinni nýju bók lendir sögu-
hetjan og félagar hans í fjölda
ævintýra sem urðu aðaluppi-
staðan í kvikmyndinni um Dag-
vfinn dýralækni, en hún er nú
sýnd við metaðsókn víða um
heim.
Bókin skiptist í 6 aðalhluta,
sem skiptast svo aftur í fjölda
undirkafla. í fyrsta hlutanum
■ segir frá heimili og dýrum Dag-
finns og kynnum hans og sögu-
mannsins, Tomma Stefáns, sem
gerizt aðstoðarmaður læknisins
og flytur til hans. í öðrum hluta
segir frá undirbúningi að ferð-
• inni til Apaeyjar, réttarhaldi í
Pollabæ, er hundur var leiddur
., sem vitni, en Dagfinnur túlkaði.
,Þar segir einnig frá Purpura
'paradísarfugli, sem flytur fregn
• ir af indíánanum Löngu ör o. s.
frv.
Dagfinnur dýralæknir í lang-
ferðum er 2Ö8 blaðsíður að
stærð og er bókin prýdd fjölda
skemmtilegra teikninga eftir
höfundinn. Bókin er einkar vel
\ir garði gerð, prentuð í Prent-
smiðjunni Eddu, myndamót eru
(Framhald á blaðsíðu 2)
Orðsending frá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar
EINS og að undanförnu gengst
nefndin fyrir fjár- og fatasöfn-
un fyrir jólin. Þar sem nú eru
víða erfiðar ástæður leitum við
ennþá til ykkar, kæru samborg
arar. Skátar munu ganga um
bæinn fyrstu dagana í desem-
ber. Vonumst við eftir að þeim
verði vel tekið.
Þess er óskað að fötin séu
hrein. Það er ekki ætlast til
stórra upphæða hjá hverjum,
en ef átakið er almennt þá safn-
ast þegar saman kemur.
Neðanskráðar nefndarkonur
taka einnig á móti gjöfum:
Guðrún Jóhannesdóttir foim.,
Gránufélagsgötu 5, sími 11908,
Guðný Magnúsdóttir ritari,
.Hamarsstíg 41, sími 12407,
Margrét Antonsdóttir féhirðir,
Austurbyggð 8, sími 12115, Guð
rún Melstað, meðstj., Bjarma-
stíg 2, sími 11115, Ingibjörg Hall
dórsdóttir meðstj., Strandgötu
17, sími 11807, Guðrún Jóhannes
dóttir meðstj., Sandvík, sími
12429, Margrét Magnúsdóttir
meðstj., Hríseyjargötu 8, sími
11794, Hulda Tryggvadóttir með
stj., Þórunnarstræti 121, sími
11766. □