Dagur - 18.12.1968, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstoíur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hJL
Eiga villtir aö
vísa leiðina?
í FJÓRA ÁRATUGI eftir að landið
varð frjálst og fullvalda ríki 1918,
var það álit allra stjórnmálaflokka
og allra eða nær allra ríkisstjóma, er
með völd fóru þessa áratugi, að þjóð-
félagið þyrfti að hafa heildarstjóm á
gjaldeyris- og fjárfestingarmálum og
breyttu samkvæmt því. Á þann veg
var hægt að auka framfarir og leggja
undirstöður annarra, sem þjóðin hef-
ur síðan notið.
Þótt land okkar sé, ásamt fiskimið-
unum, gjöfult land og eigi ærinn
auð, er framleiðslan fábreytt og þess
vegna nauðsynlegt að kaupa margar
lífsnauðsynjar frá öðmm löndum og
hafa mikil milliríkjaviðskipti.
Þegar þjóðin hafði notið frelsis og
fullveldis í 40 ár, komu þeir stjóm-
málaflokkar til valda á íslandi, sem
síðan hafa farið með æðstu stjóm.
Þeir brutu hefðina, sem skapazt hafði
um hið dýrmæta f jöregg og kepptust
við að eyða jafnóðum því, sem aflað
var og kölluðu það viðskiptafrelsi,
viðreisn og fleiri góðum nöfnum, og
hrósuðu sér af því að velja nýjar
leiðir! En þegar mestu veltiárunum
lauk kom upp ný og óvænt staða, sem
allir landsmenn verða nú, nauðugir
eða viljugir, að horfa uppá: Þjóðin
er sokkin í skuldafen vegna gengdar-
lausrar óhófseyðslu hins erlenda
gjaldeyris og skiþulagslausrar fjár-
festingar, auk hreinnar ævintýra-
mennsku á sviði viðskiptamála.
Stjómin talar um mikinn hagvöxt,
sem var ekkert annað en hagstæð
sveifla í aflabrögðum og markaðs-
málum um nokkurra ára bil.
Fram hefur komið á Alþingi fmm
varjj um Atvinnumálastofnun á veg-
um ríkisins, er marki í framtíðinni
stefnu í gjaldeyris- og fjárfestingar-
málum. Alþýðusambandið, Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja, Far-
manna- og fiskimannasambandið,
Stéttarsamband bænda, Sambandið,
iðnrekendur og bankamir kjósi sér
fulltrúa í Atvinnumálastofnunina.
Eins og nú er ástatt í landinu, má
ætla, að þessu lagafrumvarpi verði
vel tekið, eða af því spretti ný skipari
í meðferð gjaldeyris og fjárfestingar
og er þess hin fyllsta þörf. Viðskipta-
kreppa er þegar skollin yfir þjóðina.
Forystan hefur villzt af réttri leið, og
það er ekki síður háski fyrir þjóð en
einstaklinga, að láta villta menn ráða
för. Ný skipan gjaldeyris- og fjár-
festingarmála er nauðsynlegur þáttur
í því björgunarstarfi, sem íslending-
ar verða nú að vinna, í stað þeirrar
slýsastefnu, sem nú er farin og leiða
mun til þjóðargjaldþrots, ef svo held-
trr sem horfir. □
MERK SJÖÐSSTOFNUN
- NÝ UMBOÐSSKRIFSTOFA Á EGILSSTÖÐUM
ÞANN 6. des. sl. staðfesti for-
seti íslands skipulagsskrá fyrir
Menningarsjóð prófastshjónanna
á Hofi, séra Einars Jónssonar og
frú Kristínar Jakobsdóttur.
Stofndagur sjóðsins er talinn 7.
des., en þann dag fæddist séra
Einar prófastur fyrir 115 árum.
Til sjóðs þessa er upphaflega
stofnað með gjafabréfi Bene-
dikts Gíslasonar, fræðimanns
frá Hofteigi, dags. 29. ágúst 1965.
Með gjafabréfinu afhendir
Benedikt Eiðaskóla, skulda og
kvaðalaust, allar óseldar birgðir
af ritsafninu Ættir Austfirðinga,
sem séra Einar hafði samið en
Benedikt séð um útgáfu á að
eigin frumkvæði og ábyrgð, en
undir nafni Austfirðingafélags-
ins í Reykjavík. Undir gjafabréf
þetta rituðu ásamt honum, eftir-
lifandi böm séra Einars, þau
Jakob Einarsson, fyrrv. prófast-
ur og Ingigerður Einarsdóttir
ásamt mökum þeirra. Ennfrem-
ur eftirlifandi kona Vigfúsar
ráðuneytisstjóra frá Hofi Einars
sonar.
Andvirði hinna óseldu bóka
skyldi ganga til sjóðsstofnunar
til minningar um prófastshjónin
frá Hofi, séra Einar og frú Krist
ínar. Má ætla að með núverandi
verðlagi muni sú upphæð nálg-
ast eina milljón króna, þegar
allt upplagið er selt.
Tilgangur þessa menningar-
sjóðs er, samkvæmt skipulags-
skránni, að styrkja bókasafn
Eiðaskóla og stuðla að söfnun og
útgáfu á hvers konar austfirzk-
um sagna- og ættafróðleik.
Stjórn sjóðsins er í höndum
skólastjóra Eiðaskóla og tveggja
fulltrúa frá Múlasýslum, síns
frá hvorri.
Á síðasta hausti kom út
níunda og síðasta bindi þessa
mikla safns, nafnaskráin, saman
tekin af syni séra Einars, Jaköbi
prófasti frá Ho.fi.
í nafnaskránni eru um 15 þús.
nöfn, auk leiðréttinga og efnis-
yfirlits yfir öll bindin.
Ættir Austfirðinga ná yfir
nokkurra alda skeið og í því má
finna margvíslegan sagnafróð-
leik og litríkar upplýsingar um
austfirzka persónusögu.
(Fréttatilkynning)
- KVILLASAMT
(Framhald af blaðsíðu 1).
inflúensan breiðist ekki ört út í
bráð, er von til þess að bóluefn-
ið, ef fæst fljótt úr áramótum,
komi að gagni. En til þess að
koma í veg fyrir „faraldur",
þarf að bólusetja um 50% íbú-
anna. □
Hannes J. Magnússon:
ÖLDUFALL ÁRANNA.
Barnablaðið Æskan 1968.
JÓLIN, helg og há, nálgast. Nýj
ar bækur birtast unnvörpum
daglega í skreyttum gluggum
bókabúðanna. Þær eru boðberar
kærkominnar hvíldarstunda og
órækur vottur þess, að enn unir
íslenzk alþýða löngum stundum
við lestur og sjálfsnám. Bókin
hefir jafnan verið henni „langra
kvelda jólaeldur,“ og svo mun
verða á meðan íslenzk tunga er
töluð.
Af öllum þessum mikla sæg
nýrra bóka hefi ég aðeins lesið
eina ennþá: Öldufall áranna eft-
ir Hannes J. Magnússon, fyrrv.
skólastjóra. Hún er framhald af
æviminningum höfundar, en
áður hafa komið út af þeim tvö
bindi: Hetjur hversdagslífsins
1953 og Á hörðu vori 1958.
Þetta er góð bók, og ber
margt til þess. Hún er skrifuð á
hreinu máli, látlausu og án alls
yfirlætis, en á því hefir höfund-
urinn aldrei þurft að halda,
hvorki í ritum sínum né ævi-
stanfi.
Bókin greinir frá dvöl höf-
undar á Austurlandi og síðar á
(Framhald af blaðsíðu 1)
forstöðumaðurinn, Magnús Ing-
ólfsson, er jafnan til viðtals eftir
hádegi einn dag í viku á hverj-
um stað, utan Egilsstaðakaup-
túns.
Laugardaginn 30. nóvember
sl. varð sú breyting á starfsemi
þessari, að umboðsskrifstofan
flutti í nýtt húsnæði að Bjarkar
hlíð 6. Hefur þar verið innréttuð
smekkleg skrifstofa í tveimur
herbergjum, en forstöðumaður-
inn er einnig búsettur þar.
í hófi, sem 'Samvinnutrygging
ar héldu nokkrum gestum í
þessu tilefni, gat framkvæmda-
stjóri Samvinnutrygginga, Ás-
Akureyri, en þar var hann kenn
ari og síðar skólastjóri um langt
skeið sem kunnugt er. Þá er og
greint frá margháttuðum félags-
málastörfum höfundar og utan-
förum. Getið er fjölda manna,
%
sem hann hefir unnið með eða
kynnzt á langri leið.
Það, sem mér þykir einkenna
bókina alveg sérstaklega er góð
vild og samúð höfundar til alls
og allra. Hvert barn, sem í
geir Magnússon, þess, að þessi
breyting á umboðunum hefði
verið framkvæmd í fullu sam-
ráði við kaupfélögin á þessu
svæði, enda alls staðar verið vel
tekið og fyrst og fremst væri
stefnt að því, að veita viðskipta-
mönnum betri þjónustu.
Meðal þeirra, sem fluttu ræð-
ur við þetta tækifæri voru Þor-
steinn Sveinsson, kaupfélags-
stjóri, Egilsstöðum, Matthías
Eggertsson, oddviti, Skriðu-
klaustri, Sveinn Jónsson, bóndi,
Egilsstöðum, Pétur Jónsson,
bóndi, Egilsstöðum og Þorsteinn
Jónsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri,
Reyðarfirði. □
fyrsta sinn kemur inn í kennslu
stofuna, feimið og uppburðar-
lítið, er honum ævintýri, óráð-
inn, en bjartur og brosmildur
draumur. Harmleikur gömlu
hjónanna, Ólafs og Kristborgar
á Búðum, verður mér, held ég
ógleymanlegur, svo rík er sam-
úðin, svo meitlaðar og skýrar
eru myndir persónanna. Sorgin
sjálf, djúp og sár, en þó hljóð og
hóglát, vakir bak við hverja
línu. En í frásögninni ei' leikið á
fleiri strengi. Skemmtilegri, góð
látlegri kímni bregður þar fyrir
öðru hverju. Áreiðanlega leiðist
engum, er les kaflann: Sýnd
veiðin, en ekki gefin, þegar
draga átti höfundinn, honum
sjálfum alveg að óvörum, í póli-
tískan dilk. En hann slapp, og
hans biðu önnur störf á leik-
vangi lífsins en pólitísk umsvif
og erjur, enda hugðarmál hans
önnur.
Ég má ekki skrifa langt mál.
Blöðin hafa margs að.geta fyrir
jólin. En ég endurtek, að Öldu-
fall áranna er góð og hugnæm
bók.
Hún verður áreiðanlega víða
aufúsugestur á jólunum.
Brynjólfur Sveinsson.
- SÆLUVIKUR
(Framhald af blaðsíðu 8).
ólýsanlegur — og býsna and-
stætt lystarleysi áhyggjufulls
innisetumanns, sem oft fann
litla nautn í mat og svefni. En
strengir og harðsperra hvarf
eftir nokkrar sjóferðir — og ver
an á sjónum óblandin ánægja,
ekki sizt þegar vel fiskaðist. —
Ekkert get ég hugsað mér,
sem nálgast meira sanna ham-
ingju, en það frjálsa, áhyggju-
lausa líf, sem við hjónin nutum,
þessar sumarvikur á Stöðvar-
firði. Þá daga, sem stormur var
eða ekki farið á sjó — heyjuð-
um við túnblettinn — og notuð-
umst við orf og hrífu eins og
þegar við vorum unglingar. Og
um helgar fórum við hjónin
gönguferðir um fjöllin í steina-
leit. Því meðal auðæfa í Stöðvar
firði er gnægð gimsteina í fjöll-
um, sem gæddir eru þeirri nátt-
úru umfram gull og gimsteina
annarra landa — að gjöra leitar
menn og safnara að betri mönn-
um.
Þessar sælu-sumarvikur okk-
ar hjóna, sem liðu hratt eins og
allir góðir tímar, eru bundnar
við Stöðvarfjörð.
En áreiðanlega eru margir
slíkir staðir á landi okkar, þar
sem fólki úr þéttbýli væri hollt
að dvelja í lengri eða skemmri
tíma.
En ég held að til þess að slík
dvöl verði nægilega heillandi —
sé þátttaka í einhverskonar úti-
vinnu eða framleiðslustörfum
nauðsynleg.
Björn Stefánsson.
- FYRIRBÆRIN
(Framhald af blaðsíðu 1).
rauða bjarmanum sló á það,
virtist það stækka. í sjónaukan-
um sýndist þetta ekki kringlótt
og neðan undir því rautt ljós,
sem aðeins sást í sjónaukanum.
Um stærðina á þessu ókennilega
fyrirbæri get ég ekkert sagt, en
þetta var mjög áberandi og
hvarf svo bak við Súlurnar. □
BÓHfiFORLfiOSBÓK
Vala er ung og lögur stúlka í
blóma lífsins og Einar á Læk cr
glæsilegur ungur maður, scm
elskar hana heitt og vill giftast
hcnni. En hvaða ieyndarmál er
það, scm VaJa býr yfir, og licfur
ekki getað trúað neinurn fyrir
fram til þcssa?
Þetta er spcnnandi, íslenzk ástar-
saga, sem gcrist á stríðsárunum.
VERÐ KR. 240.00
án söluskatts.
. aÖKOfDRiJGSBÓK
V-V
GREVILLE YVVNNE:
MAÐURINN
FRÁ MOSKVU
Loksins getur GreviIJe Wynne
sagt frá öllu því, sem Rússum
lókst aldrci að fá hann til að
Jjóstra upp. Frásögnin er svo
spennandi, að hún fær hárin til
að rísa á höfði lcsandaus. Hinar
sönnu endurminningar Wynnes
cru miklu ævintýralegri en nokk-
ur James Bond skáldsaga. Her-
steinn Pálsson þýddi bókina.
VERÐ KR. 350.00
án söluskatts.
WILLY BREINHOLST:
ELSKAÐU
NÁUNGANN
Saga um kynþokkaskáld
Loksins kemur kynærslaskáldsaga,
sem ekki er (neitt verulega) óört-
ug. Fyrir bragðið er hún helm-
ingi skemmlilegri.
„ . . . . Elskaðu náungann er ó-
svikin skemmtisaga, sem lesa má
bæði sér til ánægju og afþreying-
ar . . . frásögnin cr hröð og
mögnuð með tilbreyting."
— Erlendur Jónsson
VERÐ KR. 330.00
án söluskatts.
INGIBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR
VEGUR HAM
INGJUNNAR
Þetta er nýjasta ástarsaga Ingi-
bjargar og hefur hvergi birzt áð-
ur. Hér segir frá Rcbckku, hinni
ungu hjúkrunarkonu, og læknun-
um tveim, Flosa og Skarphéðni,
sem báðir hafa fellt ástarhug til
hcnnar.
„ . . . Ingibjörgu tekst að upp-
fylla óskir lesenda . . . .“
— Erlendur Júnsson.
VERÐ KR. 240.00
án söluskatts.
Sr. BENJAMÍN
KRISTJÁNSSON:
EYFIROIKGA
BÓK
1 bók þessari cru ýmsir afburða-
skemmtilegir s a g n a þ æ 11 i r frá
fyrri öldum. Frásögnin af Jó-
hönnu fögru er einstök í sinni
röð, en þar greinir frá ævintýri
eyfirzkrar hcimasætu s u ð u r í
löndum á fyrri hluta 19. aldar.
Einnig er þarna sagan um Brúð-
kaupið á Stóruborg og örlög Egg-
erts Gunnarssonar umboðsmanns
og flciri frásögur.
VERÐ KR. 430.00
án söluskatts.
i ÁLÖGUM
MAGNEA FRÁ KLEIFUM
ÆTTIR AUSTFIRÐINGA
Níunda og þar með síðasta bindi Ætta Austf irð-
inga — nafnaskráin — er komin út, samantekin
af séra Jakobi Einarssyni, fyrrum prófasti á Hofi.
í nafnaskránni eru um 15 þús. nöfn ásamt leið-
réttingum og eins yfirlit yfir öll bindin.
Austfirðingar, kaupið ættartölu ykkar og styrkið
um leið Menningarsjóð prófastsb jónanna á Hofi,
séra Einars Jónssonar og frú Kristínar Jakobs-
dóttur, til efiingar austfirzkrar þjóðmenningar.
Nafnaskráin, svo og allt safnið innbundið í fjög-
iur bindi, er afgreitt bjá Einari Elelgasyni, bók-
bindara, Skeiðavogi 5, Þórarni Þórarinssyni, fyrr-
verandi skólastjóra, Skaptahlíð 10, og Ármanni
Halldórssyni, kennara, Eiðum.
SPORTKRAFT
AUGLÝSIR
SKAUTAR Á ALLA FJÖLSTYLDUNA,
stærðir 32—44.
Tökum upp síðar í vikunni hentugar jólagjafir,
svo sem:
SMÁSJÁR - SJÓNAUKA (ÚTDREGNA)
BADMINTON- OG BORÐTENNISSPAÐA
STÝRISSLEÐA - ÍSHOKKY HANZKA
og margt fleira.
GJÖRIÐ SVO VEL AÐ LÍTA INN.
SPORTKRAFT
Strandgötu 11 . Pósthólf 356 . Akureyri
BÓKAÚTGÁFAN HUduV
Höfundurinn að bók-
inni
FRÚIN Á MELLYN,
Vicforia Holt
er einn mest lesni rit-
höfundur í Englandi í
dag.
Munið, að seríu-bækur
Vicforiu Holt
munu koma áfram út
hjá forlaginu.
Rafmagnsþilofnamir
norsku frá Grepa og Mjelva eru nú til í eftirtöld-
um stærðum: 600, 800, 1000, 1200 og 1500 wött.
Þessir ofnar hafa nú þegar valdið skiptum í upp-
hitun húsa.
600 watta ofninn getið þér stillt á 60 wött til 600
wött.
1500 watta ofninn frá 150 wöttum til 1500 watta
og þannig fengið nákvæmlega það stig, er þér
kjósið.
NOTIDINNLENDA ORKU
RAFLACNADEILD - SÍMI 2-14-00
imiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiMiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiii
ÍSLENDINGA SÖGUR I
íjlenxkar fornjögur meí nútimastafsetningu i útgófu
Grrms M. Helgojonor og Vésleins Ólafssonar UppKof
ótta bínda beíidaröffléfu, Kr. 645,00
BÓKIN UM SÉRA FRIÐRIK
Tuttugu þjóðkunntr menn skrffa um eftÍrtektarvarSustg
þcettina ( fari hins ástswla aiskulýSsleiðtoga. Kr. 464,50.
HAGALÍN: SÖNUR BiARGS 00 BÁRU
Endurminninflar SigorSar J6ns GuSmundssonar, stofnanda j
BelgjagerSarinnar. Frásagnir af sjómennsku hans og af-
skiptum af (slenzkum iSnreksfri. Kr. 451,50.
HAGAtÍN: ÍSLENDINGUR SOGUFRÖÐI
| Orval úr verkum Hagalíns, allt frá œskuljáðum hans tii
lokakafla síðustu bákar hans, valið af þrettánvþjáSkunn-
um bókmenntamönmjm. Kr. 451,50. j
clausen Sögur og sðgnir aí Snæfellsnesí ii
SíSara bindi af sSgum og sögnum, munnmaeium og þátt-
um af óvenjulegu eSa sérstœSu fólki af Snœfelisnesl.
Kr. 430,00.
ÞORVAtOSSON: ÁÐUR EN FIFAN FYKUR
Frásagnir af lífi, störfum og bjargraíSisvegum fálks til
lands og sjávar, eins og gerðist um síöustu aldamát.
Kr. 365,50.
r dðuðans
Kér er fjallaS um lífiS, UauBann og spiritismcnn, um sál- j
farír áttg landskunnra manna, um djúptrans miSIa og
samtöi VÍS framUSna vlni höfundarin*. Kr. 365,50,
HAFSTEINN
SJÖRNSSON:
NÆTURVAKA
Sjö smásögur eftir hinn iandskunna ag dá6a mi6il. is-
tenzkar sveltas&gur, sögur um íslenzkt fólk og íslenxko
staðhaHri. Kr. 344,00.
VEST.EINN
tÚOVÍKSSON:
ATTÁ RADDIR ÚR WPULÖGN
Nýr höfundur kveður sér hljó8s á skáldabekk. Nýr tónn
f ísfenxkri tkáirfskaporgerS. Bák, sem vert er a6 kynnatt.
Kr. 322,50.
PER ■ ■
HÁNSSON.
H0G6VI0 I SAMA KNfRUNN
Saga Morsetfjatskyldunnar, hjánanno og sananna sjo,
eera naxlstar gáfu skipun um aS handtaka lifandt «S«
dquda, ~ saga flótta þetrra undan hundruíum þraut-
þjálfaíra vetrarhermanna Hitlcrs. Kr. 344,00,
SKUGGÍNN HENNAR
Saga um stárbrotnar persónur, sterkar í mátíoeti, stoltar
OQ bettbr í étívm. Heiliandi ásfarsaga eftir fádœma vin-
sattlan hðfund. Kr. 344,00.
SVIDUR í GÖMIUH 5ARUM
Saga urrt imgt, vinnusamt fálk, sem ástín gerir varfairiS,
af þvf þa5 er vant ats treysta fremur á viðbrögS *n til-
flnningar. Kr. 344,00.
JAWES
tÉA "OR:
lAEKNiR I LEYNIPJÖNUSTU
Frábœriejja skrifuS njásnasaga. Saga sem engan syfluir,
sem losa viti spennandi bák um njósnir og œvintýri.
Kr. 344,00.
S R I G E S 1 A
,liiiiiinimiiiii«iiimiiiiiiniiiiimimiiimiiiMitlmi»iii»iimiiiiiiimniiiiiMUiiiiiin«inimiiinmiiii|j»i,,,*M,,,,,,,R*