Dagur - 18.12.1968, Síða 8
8
Fiskibátur á Stöðvarfirði fyrir rúmum þrjátíu árum.
mönnum miklar tekjur á tiltölu
lega skömmum tíma árið áður.
Þess vegna biðu flestir eftir síld
inni, sem þá var byrjuð að láta
bíða eftir sér. Af þessum ástæð-
um fékk ég kjark, til þess að
biðja Þorgrím formann um
pláss á trillu hans fyrir mig og
15 ára son minn, og var fúslega.
veitt það.
Og tveimur dögum síðar var
haldið af stað í fyrsta færaróð-
urinn í dásamlegu veðri klukk-
an 5 að morgni. Örstutt sigling
út fjörðinn, og þá tók við opinn,
víður faðmur Atlantshafsins.
Sæt-sölt hafgola fyllir vitin svo
ósegjanlgea hreinu og tæru
loft — að maður, sem vanizt
hefir næstum áratugi innilofti
blöndnu pakkhúslykt — andar
nú ósjálfrátt að sér af öllum
kröftum alveg ofaní maga —
þessu unaðslega sjávarlofti. Og
mér fljúga í hug minnisverður
Sœluvikur á Stöövarfirði í fyrra
Á MIÐJU ÁRI 1967 hætti ég
störfum hjá Kaupfélagi Héraðs-
búa, Egilsstöðum. Hafði ég þá
starfað sem kaupfélagsstjóri á
þrem stöðum í um þrjátíu ár.
Störf kaupfélagsstjóra hafa allt-
af verið erfið og vandasöm, en
það er skoðun mín að aldrei hafi
þau þó verið erfiðari en síðustu
tíma — ár mestu peningaveltu
á íslandi —. Peningahyggja og
félagsmálaáhugi eiga ekki alltaf
samleið.
Þó kaupfélagsstjóri hafi vilja
til að gjöra sitt bezta — eru
miklir möguleikar á að gjöra
ýrnis mistök — og nóg af áhyggj
um. Og svo þegar maður eftir
þriggja áratuga meiri og minni
áhyggjur í slíku starfi — losnar
frá ábyrgð og skyldum eru við-
brigðin ekki óveruleg — ekki
sízt, ef menn samfara því hljóta
það heillahlutskipti — að njóta
þess umhverfis, sem flestir
menn þrá, sem einu sinni hafa
kynnzt því — kyrrlátri byggð
úti á landi í fullkomnu sam-
bandi við náttúru lands og
sjávar.
Stöðvarfjörður er slíkur stað-
ur, með fjölbreyttan gróður í
grænum hlíðum langleið til
fjalla — og jafnhliða blasir við
opið hafið.
Tengdaforeldrar mínir áttu
hús og dálítið jarðnæði í kaup-
túninu á Stöðvarfirði. Þangað
hafði kona mín flutt, ásamt
tveim yngstu sonum okkar, sum
arið 1967 — hálfum mánuði á
undan mér.
Beið hún mín þar eins og
brúður í festum — og mátti helzt
segja að með komu minni til
Stöðvarfjarðar upphæfist okkar
brúðkaupsferð eða brúðkaups-
frí — þar sem brúðkaup okkar
fyrir 27 árum gaf ekki tækifæri
á fríi. Búskapur okkar byrjaði
strax með ábyrgð og stöðugri
vinnu okkar beggja. Ýmiskonar
vandamál og áhyggjur fólksins,
sem ég vann fyrir — urðu j.afn-
framt mín vandamál og konu
minnar, sem í allri okkar sam-
fylgd, hefir stutt mig í störfum
mínum, sem mest má verða.
Og með júlímánaðarbyrjun
1967 hófst okkar sex vikna sælu
tímabil.
Ég hafði stundað sjóróðra að
staðaldri á sumrin á Austfjörð-
um — milli fermingar og tví-
tugsaldurs, aðallega á opnum
bátum við handfæraveiðar, sem
mér þótti þá skemmtilegast. Og
þegar ég kom til Stöðvarfjarðar
fyrir þrjátíu árum sem kaup-
félagsstjóri — var þar all mikil
smábátaútgerð, aðallega opnir
vélbátar. Þó var þá enn aðeins
borið við að stunda þaðan sjó
á róðrabátum, tveggja manna
förum, settum að sumri til, ef
fiskur gekk nærri landi.
En þeir, sem sjó stunduðu,
sem aðalatvinnu réru nær allir
á opnum vélbátum, svokölluð-
um trillum, oftast 3 til 4 menn
á hverjum bát.
Var mér það mest skemmtun
á þeim árum — að skreppa frá
skrifstofusetu ofan á bryggju
þegar bátarnir komu að landi —
fylgjast með aflanum — og sjá
illa dulinn sigurglampa í svip
sjómanna þeirra, sem fengsæl-
astir urðu hverju sinni.
Á þessum árum fyrir og eftir
1940 var margt ungra manna,
sem stunduðu sjó ásamt þeim
eldri á 12 til 14 trillubátum,
sem þá voru gerðir út frá
Stöðvarfirði.
Allmikil keppni var þá ekki
sízt meðal yngri áhafnarmanna
að vera hæstir eða mest hæstir
að aflamagni. Mun þar oft hafa
meira ráðið heilbrigður metn-
aður, að standa sig sem bezt —
en tekjuvonir. Fengsæl fiskimið
út af Stöðvarfirði hafa byggt
upp staðinn til lands og sjávar.
Samfellt gróið ræktarland á
milli húsanna í kauptúninu á
Stöðvarfirði vekur athygli að-
komumanna. Þessi samfelldu
tún, sem setja svo hlýjan og
geðþekkan svip á allt umhvex-f-
ið — eru upprunalega , ræktuð
að langmestu leyti upp af fisk-
úrgangi. Dugmiklir smáútvegs-
bændur létu sig ekki muna um
að flytja upp á landareign sína
allan úrganginn þegar búið var
að gjöra að fiskinum. En nýtni,
hirðusemi og vandvirkni við
vei-kun fiskjarins — myndi ég
vilja telja aðalsmerki þeirra dug
miklu manna, sem á fyrri hluta
þessarar aldar sköpuðu fyrstu
undirstöðu að þéttbýli á Stöðv-
arfirði. Ætla ég t. d. að hvergi
á Austurlandi hafi þekkzt jafn
betur verkaður, sólþurrkaður
saltfiskur en þar.
Við komu mína til Stöðvar-
fjarðar sumarið 1967 — vai’ð
mér hugsað til alls þessa — sjó-
sóknar og fiskvei-kunar og dug-
mikilla sjómanna, sem undu
glaðir við sitt — og ósjálfrátt
langaði mig mikið til að geta
orðið aftur þátttakandi í því heil
brigða lífi að sækja fisk í sjó.
Og óskir verða stundum fyrr en
varir að veruleika. — Daginn
eftir komu mína til Stöðvar-
fjarðar frétti ég að kunningi
minn ■ og vinur frá veruárum
mínum þar, Þorgrímur Vilbergs
son, eigandi fjögurra tonna
trillu — vildi hefja sjóróðra, en
hefði engann mann ráðið með
sér, og enginn falað hjá honum
skipsrúm, því flestir verkfærir
menn á staðnum höfðu þá þeg-
ar ráðið sig til starfa hjá síldar-
vinnslustöðvunum, söltunar-
stöð og síldarbræðslu. En vinna
á þessum stöðvum hafði gefið
atburður frá bernskuárum í
sveitinni — á vori hverju —
þegar kúnum var hleypt út í
fyrsta sinn — eftir langa inni-
veru í loftlitlu fjósi. — Við börn
in nutum þess virkilega — að
sjá gleðiviðbi’ögð þessara þung-
lamalegu skepna, sem dönsuðu
um túnið með þandar nasir, og
teyguðu voi’loftið. — Og mikið
skil ég vel fögnuð kúnna.
En við höldum út og norður
og nálgumst Skrúðinn, þessa
dásamlegu, sígrænu, tignarlegu
eyju, sem nú iðar af lífi og fjöri
frá íbúunum, tugþúsundum
Björn Stefúnsson, fyrrverandi
kaupfélagsstjóri.
bjax’gfugla. Á síðustu áratugum
hefir súlan bætzt við búendur
þar — helgað sér land í efsta og
virðulegasta hluta bjargsins í
sunnanverðum Skrúðnum. Og
skammt frá Skrúðnum, við und
irspil bjargfuglanna, byrjum við
að í’enna færunum. Nælonfæri
með gervibeituönglum og til-
heyrandi færarúllu — eru létt
og þægileg veiðitæki — miðað
við það sem ég vandist sem
strákur. — Ef fiskur er viljugur
eru möguleikar á að fiskur sé
á hverjum öngli, og þá hægt að
draga upp í einu 5 til 6 fiska.
í þetta sinn er fiskur tregur
nærri Skrúðnum — og Þor-
grímur keyrir töluvert utar —
og þar verður sæmilega vel vart.
— Eðlilegur tími í færaróðri er
um 12 tímar — það er tvö sjávar
föll — og eftir þann tíma höfð-
um við reitingsafla. — Fiskur-
inn er slægður eftir því sem til
vinnst á landleiðinni — og eftir
að landi er komið ekki annað
að gjöra en losa bátinn og leggja
inn aflann.
Fyrstu dagana var ég óvan-
ingurinn allur með strengjum og
aumleika er af sjónum var kom
ið. — Og gott var að koma heim
gráðugur í mat eins og úlfur —
og unaðurinn að fá að sofna
eftir erfiða sjóferðardaga nær
(Framhald á blaðsíðu 4)
©
4-
f
I
£
£
SIGURÐUR SVEINBJÖRNSSON:
£
I
I
I
I
I
£
£
£
£
£
KONAN 1
HELLINUM
Svörtum helli sólskinslitlum
sagan greinir frá.
Sorgmædd kona sat þar inni,
sú var ljós á brá.
Augu hennar ávallt störðu
undarlega blá.
Þarna hafði hún lifað lengi
löng og döpur ár.
Farið var að flókna hennar
fagra, mikla hár.
Féllu á hennar fölu vanga
fáein gullin tár.
Hann, sem veröld verstan átti
vesæll, bundinn lá.
Yfir honum ein hún vakti
enga hjálp að fá.
Einn var hennar óskadraumur
ein var hennar þrá.
Árin liðu, eigi gat hún
ennþá leyst neinn hlekk.
Sá, að líf hans, er hún unni
enn á þræði hékk.
Þreytuleg í þessum ranni
þolinmóð hún gekk.
Hún var stærst í þyngstu þrautum
þræddi veg um hraun.
Fórnaði allri ástúð sinni
aldrei spurði um laun.
Fáir hafa á lífsins leiðum
liðið þyngri raun.
f
f
I
f
f
t
*
t
t
f
t
f
t
f
t
f
t
f
f
t
I
t
a
-v
f
*
t
t
1
|
f
©
f
t
t
t
f
|
f
1
f
t
f
t
f
t
Hún bað oft hinn hæsta anda
honum gefa frið,
sem hún hafði ung að aldri
ástir bundið við.
Eigi rættist óskin hennar.
Ó, sú langa bið.
T:'i -'f'
f
f
f
1
f
©
■f
*
4-
Þótt hún bergði á bikar lífsins
beiskum hverja stund,
sá hún ljós í svartnættinu
sól og fagran lund.
Eygði gegnum örðug kjörin
opin heiðblá sund.
f
|
f
f
f
f
t
f
4-
f
©
I
I-
1
$
1
£
£
£
£
Hún mun leysa hann úr böndum
heimsins versta mann.
Signa þann með sigurgleði,
sem hún heitast ann.
Fylgja homim heim á veginn
hátt í ljóssins rann.
Oft á margra ævibrautum
æða hatursél. ■
Göfgin, sem í brjóstum bærist
bræðir kuldaskel.
Kærleiksandinn aldrei tapar.
Ástin sigrar Hel.
f
<■
f
f
f
*
<■
íí'-
f
f
f
I 1
•í-