Dagur - 22.01.1969, Page 8
8
SMÁTT & STÓRT
Á æfingu Leikfélagsins. (Ljósmyndastofa Páls)
Nýtl barnaleikril sýnl í þessum mánuSi
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
æfir nú annað verkefni sitt á
þessu leikári og er það barna-
leikritið Súlutröllið eftir
Indriða Ulfsson skólastjóra Odd
eyrarskóla. En bann hefú'r sam
ið marga leikþætti fyrir skóla-
börn, þótt L. A. hafi ekki áður
sýnt sjónleik eftir hann. Leik-
stjóri er Ragnhildur Steingríms
dóttir. Sönglög gerði Birgir
Helgason kennari. Leikendur
eru tíu, þar af sjö böm og
Leikurinn verður frumsýnd-
ur síðar í þessum mánuði.
Þá munu æfingar hafnar á
skólaleik M. A. og verður vænt
anlega síðar sagt frá honum. □
HEITT VATN
Dalvíkingar fengu við borun
heitt vatn, sem nægir til að hita
húsnæði 1000 manna kauptúns,
og þykir þetta mikill fengur.
Akureyringar létu bora eftk
heitu vatni á Laugalandi á Þela
mörk og fengu vatnsmagn, sem
nægir 1500 manna byggð. Það
vatn rennur ónotað og engum
til gagns á borunarstað.
HÁTÍÐAHÖLD MEÐ
ÖÐRUM BRAG?
Þegar sá, er þetta ritar, heyrði
fyrst liugmyndir Tryggva Þor-
steinssonar um nýja tilhögun
17. júní hátíðahalda, var þess
óskað, að hann festi þær á blað
til birtingar hér. Nýjar hug-
myndir eru vel þegnar og þess-
ar vissulega athyglisverðar. Ef
vel tækist til um framkvæmd
hátíðahalda á þennan veg,
mundi það vekja þjóðarathygli,
en viðstaddir fræðast með ný-
stárlegum hætti um löngu
liðna, sögulega atburði. Bæjar-
stjórn þarf að taka þetta til
rækilegrar yfirvegunar — og
velviljaðrar.
hann rekizt á guð á leið sinni,
ekki heldur englana. Og ekki
ber á því, að þessir hálofta-
farar hafi rekið sig á festinguna.
ANNAÐ FERÐALAG
Mitt í hinum óskaplegu ferða-
lögmn manna um himingeim-
inn, kvaddi forsætisráðherra fs
lauds sér hljóðs. Flug hans var
lægra, sem von var. En hann
lét þó sem hann væri líka á
ferð, ríðandi að gömlum sið, yfir
óbrúað vatnsfall. Honum fannst
hann ekki geta haft hestaskipti
út í miðri á þótt óvíst væri um
landtökuna, bykkjan þreytt og
linotgjörn. Ráðherrann öfundar
sjálfsagt Rússana, sem geta
haft hestaskipti í lausu lofti.
Það er rétt hjá ráðherra, að það
er erfiðleikum bundið að skipta
um reiðskjóta, þegar út í ófær-
una er komið. En bástaddur
maður hefur stundum þegið
með þökkum, þegar svo stend-
ur á, að einhver kippi honum
yfir á hnakknefið hjá sér. Því
miður hefur þetta ekki gerzt
ennþá og forsætisráðherrann er
enn út í miðri á. Hann gónir á
Ullin umræðuefni fyrsta fundar
Bændaklúbbsins
Framsögumaður var Stefán Aðalsteinsson
Á MÁNUDAGINN, 20. janúar,
var fyrsti bændaklúbbsfundur
BSE á þessu ári haldinn á Hótel
KEA. Framsögumaður var Stef
án Aðalsteinsson búfjárerfða-
fræðingur hjá Rannsóknarstofn
un landbúnaðarins. Hann ræddi
einkum um kynbætur sauðfjár,
með hliðsjón af vaxandi kröf-
um um gæði ullar og gæra. Sá
þáttur hefur um langt árabil
Stefán Aðalsteinsson.
verið vanræktur í sauðfjárrækt
inni, en nú hefur þörfin kallað
á betri framleiðslu.
í upphafi ræðu sinnar skýrði
Stefán frá þeim vísindalega
grunni, sem byggt hefur verið
á í ræktun og framleiðslu hinna
ýmsu lita og litaafbrigða á ull
og gærum. í stórum dráttum
má segja, að það séu þekkt þrjú
sæti á litningum sauðkindarinn
ar, þar sem litaerfðavísa er að
finna. Tveir erfðavísar eru í
hverri kind í hverju sæti. B-
sætið gefur grunnlitina, svart'
og mórautt. Svart ríkir yfir mó-
rauðu. A-sætið hefur sex erfða
vísa: Hvítt, grátt, golsótt, botn-
ótt, grábotnótt og áhrifalaust.
Hver kind hefur aðeins tvo
erfðavísa í þessu sæti, af þess-
um sex. Þriðja sætið er svo S-
sætið og eru þar tveir þekktir
erfðavísar, S-1 fyrir einlitt, sem
ríkir og S-2 fyrir tvílitt, sem er
víkjandi. Mórautt er víkjandi
fyrir svörtu og kemur því að-
eins fram, að kindin hafi tvo
erfðavísa fyrir mórauðu.
Hagnýting á þessum niður-
stöðum hefur t. d. komið í ljós
í ræktun á gráum gærum í nær
20 ár, sem hafa gefið bændum
auknar tekjur, þótt talað væri
Flotvarpa reynd í vor
FRÉTTIR um mokveiði þýzkra
togara hér við land í flotvörpu,
hafa orðið til þess, að nú hefur
Sjómaður drukknar
HINN 15. janúar varð það slys,
að háseti á Harðbak drukknaði.
Var það Jón M. Pétursson, ætt-
aður af Árskógsströnd en átti
heima á Akureyri. Hann var 45
ára, ókvæntur. Togarinn var að
veiðum sunnan við land í vondu
veðri er slysið varð. Maðurinn
náðist fljótlega en var þá látinn.
um, að þetta væri aðeins tízku-
fyrirbrigði.
í sem fæstum orðum má nota
þekkinguna um arfgengi lit-
anna þannig: Að ærstofninn sé
alltaf hvítur. Nota arfhreina
gráa hrúta, þ. e. Ijósgráa, í
fyrsta ættlið. Síðan svarta hrúta
(Framhald á blaðsíð" 7)
GANDREEÐ
Gandreið Bandaríkjamanna um
jólin umhverfis tunglið, er víst
sú mesta, sem sögur tjá. Sovét-
menn léku einnig listir sínar
um loftin blá. Höfðu meira að
segja hestaskipti þar uppi.
Landi þeirra hafði orð á því
fyrir nokkrum árum, eftir eina
slíka loftferð, að hvergi hefði
bakkann hinu megin og sér þar
land, sem ber ekki svip íslands.
AÐ BLÁSA Á ERFEÐ-
LEIKANA
í sömu ræðu- kom það fram hjá
forsætisráðherra, að hann lang-i
aði til að blása erfiðleikunum
burtu. Hann belgdi sig þó ekki
einum, er á lilýddi, varð að orði
(Framhald á blaðsíðu 5)
Hafísbreiðan helur enn nálgasl landið
íshrafl er nú á siglingaleiðum við Norðurland
LAXÁ tilkynnti um hádegi í
gær, en skipið var á leið frá
Húsavík: Frá Horni að Kögri
eru strjálir ísjakar um allan sjó.
Fyrir helgina var íshroði við
Grímsey. Og þá þurftu tvo skip
að snúa við vegna landfasts
hafíss við Straumnes og stakir
Guðni Þorsteinsson fiskifræð-
ingur teiknað slíka flotvörpu í
smækkaðri mynd og verður
hún væntanlega reynd hér í
vor. Er varpa þessi ætluð fyrir
250 tonna skip.
Netastöðin Oddi á Akureyri
mun setja flotvörpuna upp.
Netagerðarmaður frá þessari
stöð mun dvelja um hríð í
ÞýzkaLandi ásamt Guðna, til að
kynna sér þetta veiðarfæri o. fl.
Með þessari flotvörpu eiga
veiðilíkur síldarskipanna að
aukast verulega, og samkvæmt
reynslu Þjóðverja, hentar hún
vel til þorskveiða. □
Hér er lítilsháttar ísing. Mikil ísing minnkar stöðugleika skipanna
og er fátt hættulegra. (Ljósm.: E. D.)
Isingin lekin til ðthygunar
SKIPASKOÐUNARSTJORI
hefur sent skipstjórum fiski-
skipa bréf, þar sem þeir eru
beðnir að fylla út sérstök eyðu-
blöð, varðandi ísingu á skipum
þeirra. Með þeim upplýsingum,
sem væntanlega fást af þessu,
verður unnt að ráða yfir meiri
þekkingu á þessu vandamáli og
miðla henni, e. t. v. líka að verj
ast hættunni á raunhæfari hátt
en fram til þessa.
Sérstakar spár, samhliða veð-
urspám, eru nú gefnar út um
ísingarhættuna á miðunum og
er þetta nýr þáttur og eflaust
mjög gagnlegur. □
ísjakar voru þá taldir á siglinga
leið frá Vestfjörðum til Langa-
ness.
Páll Bergþórsson veðurfræð-
ingur sagði við blaðið í gær:
ísinn fæi'ðist nokkru nær land-
inu í hinni sterku norðan og
norðaustanátt, en austanáttin
nú, er hagstæð. Hrafl af ís, sem
um daginn rak suður um Gríms
ey, Siglunes og jafnvel suður x
Reyðarfjörð á Ströndum, er
lausarek, sem losnað hefur úr
ísbreiðunni. Skipaleið er opin
nú, en ísrek er hættulegt, eink-
um í myrkri.
ísbreiðan var nærri Melrakka
sléttu fyrir nokkrum dögum.
Fx-emstu jakamir voru 10 sjó-
mílur norðvestur af Rauðanúpi
og 17 sjómílur þar fyrir utan
var orðinn allþéttur ís.
ísinn er gríðarlega mikill
fyrir Norðurlandi og nær langt
austur og hætt við, að hann geti
lagst að landi síðar í vetur, ef
vindátt verður þannig, og mest
ar líkur til þess. Sjókuldi er
mikill. □
Gamall maður á ísiaka
i/
MARGIR Akureyringar hafa
undanfarið dorgað þorsk upp
um ís á Pollinum. Afli er mjög
lítill. Á laugardaginn losnaði ís-
jaki og rak frá ísbrúninni. Á
honum var 79 ái’a gamall veiði-
maður og bjargaði lögreglan
honum í gúmbát, er hún hefur
og hefur bátur sá oftar komið
sér vel.
Blaðið hefur verið beðið að
vekja athylgi á, að ísinn á Poll
inum getur vei'ið hættulegur og
fara margir um hann með of
lítilli gát. □