Dagur - 05.02.1969, Síða 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 5. febrúar 1969 — 5. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarslræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Skotf æraþ j ófnaður-
inn er nú upplýstur
SEINT í ágústmánuði sl. sumar
var 25 þúsund riffilskotum stol
ið úr geymsluhúsi KEA á Odd-
eyri. Lögreglan fékk málið þeg-
ar til meðferðar. Nú fyrir
skömmu fannst þriðjungur þýf-
isins og leiddi það til þess, að
mest af skotunum fannst á öðr-
um stöðum. En fjórir ungir
utanbæjarmenn höfðu verið
þarna að verki og játuðu þeir
einnig fleiri þjófnaði. Ennfrem-
ur hafa fleiri þjófnaðir annarra
manna, m. a. bæjarmanna, ver-
ið upplýstir, svo sem olíu- og
benzínþj ófnaðir.
(Samkv. viðtali við fulltrúa
bæjarfógeta).
Sfcrbreyfingar á 0 K E á Dalvík
Dalvík 4. febrúar. Verið er að
gera miklar breytingar á útibúi
KEA á Dalvík um þessar mund
Dagleff a
o o
spurt
ÍSLENDINGAR hafa mikinn
áhuga á búferlaflutningum til
Ástralíu. Eru upplýsingar um
landvist og fyrirgreiðslú'
ástralskra yfirvalda gefnar á
ræðismannsskrifstofu Breta í
Reykjavík. Segir ræðismaður-
inn, að íslendingar spyrji dag-
lega um möguleika til Ástralíu-
ferða og sumir hafa ekki látið
sitja við orðin tóm í því efni. □
ir. Aðalverzluninni verður nú
skipt í deildir á nýtízkulegan
hátt. Sérskilin verður vefnaðar
vörudeild og svo nýlenduvöru-
deild, sem annast um leið verk-
efni núverandi kjötbúðar og
mjólkurbúðar. Þá verður ný-
lenduvörukjörbúð og bygginga
vörudeildin á að svara til Bygg-
ingavörudeildar KEA á Akur-
eyri. Sú deild verður í nýbygg-
ingu þar sem áður var pakk-
hús.
Allra þessar breytingar verða
væntanlega búnar í marz. Nýr
verzlunarstjóri hefur og verið
ráðinn hingað, Kristján Ólafs-
son kjörbúðarstjóri á Akureyri.
Þá er þess að geta, að hinar
nýju deildir verða í nánari
tengslum við samsvarandi aðal-
deildir KEA á Akureyri og fá
vörur sinar þaðan, nema þunga
(Framhald á blaðsíðu 5)
Verið að skipa nær 33 þús. Heklu-peysum út á Rússlandsmarkað. — Sjá nánar í leiðara.
Hvers á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri að gjalda?
Á SÍÐASTA fundi bæjarráðs
Akureyrar var eftirfarandi sam
þykkt:
„Bæjarráð Akureyrar fer þess
eindregið á leit við daggjalda-
nefnd sjúkrahúsa, að ákvörðun
um daggjöld Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri verði breytt
í samræmi við kröfur stjórnar
sjúkrahússins.
Á ráðstefnu ungra Framsóknarmanna.
(Ljósm.: G. P. K.)
Telur bæjarráð að ella sé
grundvelli kippt undan eðlileg-
um rekstri sjúkrahússins.“
Sérstök nefnd ákvarðar
sjúkrahúsum landsins daggjöld.
Fyrir jólin ákvað nefndin dag-
gjöldin fyrir árið 1969. Kom þá
í Ijós, að skertur er hlutur
Fjórðungssjúkrahússins á Akur
eyri, er því sjúkrahúsi var skip
að á bekk með mun verr bún-
um sjúkrahúsum í gjaldflokki,
er ekki geta veitt þá þjónustu,
sem hér er unnt að veita.
Daggjöldin voru ákveðin 760
krónur í þessum flokki. Til við-
miðunar getum við svo tekið
sjúkrahúsin í Reykjavík. Dag-
gjöld á Landsspítalanum eru
1600 krónur og 1500 krónur í
Borgarsjúkrahúsinu. í þeim
sjúkrahúsum er að sjálfsögðu
hægt að annast fullkomnari
þjónustu en á Akureyri, en
munur daggjalda er þó langt of
mikill.
Nefnd sú, er ákveður dag-
gjöld í sjúkrahúsum, á að miða
þessi gjöld við eðlilegan rekst-
urskostnað — miðað við hag-
kvæman rekstur og þá þjón-
ustu, sem þau geta í té látið.
Samkvæmt síðara atriðinu er
flokkunin röng og má færa að
því sterk rök. Manni sýnist,
að verið sé að „refsa“ Fjórð-
ungssjúkrahúsinu hér, fyrir
það, að hafa hagað rekstri sín-
um skynsamlegar en víða ann-
arsstaðar. Þetta er óþolandi
sjónarmið. sem verður að endur
skoða.
Til dæmis um óviðunandi mis
munun er, að daggjöld á fæð-
ingardeild Landsspítalans eru
1100 krónur og á fæðingar-
heimili Reykjavíkur 1000 kr. Á
Akureyri eru daggjöld sængur-
kvenna ákveðin 760 krónur.
Manni verður ósjálfrátt á að
spyrja: Hvers á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri að
gjalda? □
LÁNSÖFLUN
til þjóðvegar
BÆJARRÁÐ hefur lagt til við
bæjarstjórn Akureyrar, að hún
fari þess á leit við ríkisstjórn-
ina, að við gerð vegaáætlunar
fyrir 1969—1972 verði gert ráð
fyrir lánsfjáröflun til lagningar
þjóðvegar um Akureyri (sam-
kvæmt reglugerð nr. 44 frá
1965). Verði aflað 53 millj. kr.
láns til þessara framkvæmda,
til ráðstöfunar 1969 og 1970.
Ennfremur samþykki bæjar-
stjórn að fara fram á við ríkis-
stjórnina, að Akureyri verði, á
greiðslutíma láns þessa, úthlut-
að aukaframlagi til lagningar
þessa vegar, þannig, að framlag
til bæjarins hrökkvi til greiðslu
afborgana og vaxta af nefndu
láni. □
Ráðstefna um atvinnumál á veg-
um ungra Framsókiiarmanna
Á SUNNUDAGINN hélt Sam-
band ungra Framsóknarmanna
fund á Hótel Varðborg á Akur-
eyri um atvinnu- og efnahags-
mál. Hófst hann kl. 2 e. h.
Formaður Félags ungra Fram
sóknarmanna á Akureyri,
Hákon Eiríksson, setti fundinn
og stjórnaði honum. Gestur
fundarins var Stefán Reykjalín,
formaður atvinnumálanefndar
Akureyrar.
Frummælendur voru: Björn
Teitsson, ritari SUF, Hákon
Hákonarson, vélsmiður, Svavar
Ottesen, prentari, Hjörtur
Eiríksson, ullarfræðingur, Daní
el Halldórsson, verzlunarmaður
og Stefán Reykjalín.
Umræður urðu miklar að
loknum ræðum frummælenda
og þótti fundurinn takast vel.
Fundinn sóttu 40—50 manns.
(Frauuhald á blaðsíðu 7)
LAXNESS ENN
TILKYNNT hefur verið, að
skáldinu í Gljúfrasteini, Hall
dóri Laxness, hafi verið veitt
Sonning-verðlaunin, sem
Kaupmannahafnarháskóli
veitir og margir frægir menn
hafa áður hlotið. Mun skáld-
ið veita verðlaununum, sem
eru rúm hálf önnur millj. ísl.
HEIÐRAÐUR
króna, viðtöku í Kaupmanna
höfn 19. apríl.
Sonning-verðlaunin eru
árlega veitt manni fyrir þýð
ingarmikinn skerf til
evrópskrar menningar. Hef-
ur íslenzka skáldinu því
mikill sómi verið sýndur
með verðlaunaveitingunni.