Dagur - 29.05.1969, Page 2
I
Knattspyrnumót íslands liafið Knattspyrnuæfingar hjá KA munu
Valur sigraði Fram 2:0, Akurnesingar og Kefl-
r
víkingar gerðu jafntefli 1:1, leik IBA og Vest-
mannaeyinga varð að fresta.
Knattspyrnumót íslands hafið
ÍSLÁNDSMÓTIÐ í knatt-
spyrnu hófst á annan í hvíta-
sunnu eins. og áður var frá sagt.
í Keflavík léku heimamenn við
Akurnesinga og lauk leiknum
með jafntefli 1:1. — Akureyr-
ingar áttu að leika við Vest-
mannaeyinga og flugu suður að
morgni annars í hvítasunnu, en
þeir komust ekki til Eyja vegna
þess, að flugvöllurinn þar var
lokaður allan daginn. Þar fóru
ca. 30 þús. kr. í kostnað, en inn
koma engin. í athugun mun, að
ÍBA-liðið leiki við Vestmanna-
eyinga í kvöld, en ef af því verð
ur ekki verður leiknum frestað
þar til síðar í sumar. Á sunnu-
daginn kemur eiga Akureyr-
ingar að mæta Fram í Reykja-
vík.
Valur og Fram léku svo á
Laugardalsvelli sl. þriðjudag og
sigraði Valur 2:0, og hefur Val
ur þar með tekið forustu í 1.
deild. □
heíjast 3. júní
KNATTSPYRNUÆFINGAR
hjá yngri flokkum fara nú að
byrja, og hefjast æfingar hjá
KA þriðjudaginn 3. júní n. k.
og eru allir KA-félagar, sem
ætla að æfa í sumar, hvattir til
að mæta strax á fyrstu æfingu.
Æft verður á þriðjudögum og
föstudögum, og lítur æfinga-
taflan þannig út:
Kl. 5 e. h. 6 flokkur.
Kl. 6 e. h. 5. flokkur.
Kl. 7 e. h. 4. flokkur.
Kl. 8 e. h. 3. flokkur.
Verið getur, að breytingar
verði gerðar á æfingum síðar
og verður þaó þá tilkynnt.
Knattspyrnuæfingar hjá KA
Skólaþroskðpróf a Akureyri
- HAFNARFRAMKYÆMDIR
(Framhald af blaðsíðu 1).
skera niður framkvæmdir. Bæj
arstjórnarfundurinn samþykkti,
að hækka útsvarsstigann um
4% en skera jafnframt niður
nokkra liði á fjárhagsáætlun-
inni, svo sem 2 millj. kr. til
framkvæmdasjóðs og nokkrar
minni upphæðir. Var því í
þessu efni mætzt á miðri leið og
hlaut þessi afgreiðsla 7 atkvæði
gegn 3. Til máls í þessum um-
ræðum tóku þátt, auk bæjar-
stjóra: Gísli Jónsson, sem sagði
það „prinsip“mál þeirra Sjálf-
stæðismanna að hækka ekki
útsvarsstigann en skera heldur
niður framkvæmdir, og Sigurð-
ur Óli Brynjólfsson, sem sagði,
að þótt hækkun skattstiga væri
óæskileg, væri samdráttur fram
kvæmda og atvinnu enn óæski-
legri, en hér væri farinn milli-
vegur er samcinað gæti hin
ólíku sjónarmið. Haukur Har-
aldsson lýsti stuðningi við til-
lögu G. J. um að hækka ekki
útsvarsstigann.
Höfnin.
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
reifaði hafnarmálin og sagði
lánsloforð til hafnarfram-
kvæmda nú liggja fyrir frá at-
vinnumálanefnd ríkisins, gengis
tryggð. Hann minntist og á þá
frestunartillögu þeirra Jóns G.
Sólness og Stefáns Reykjalíns,
sem fræg er orðin. Jón G. Sól-
nes hélt langa ræðu um þetta
mál og nokkuð grófa. Fjallaði
hún nær eingöngu um þá grein-
argerð, sem bæjarstjóri hafði
um málið ritað og var fylgiskjal
með fundargerðum til bæjarfull
trúanna. Lýsti hann sig að lok-
um andvígan hafnarmannvirkj-
um sunnan á Oddeyri.
- Skoðunarferðir
(Framhald af blaðsíðu 1)
ardaginn 14. júní í þeim tilgangi
einkum, að skoða fjörur og
fjörulíf. Farið verður frá skrif-
stofu Ferðafélagsins kl. 2 e. h.
og ekið að Víkurbakka á Ár-
skógsströnd. Gengið í fjör.ur þar
og ef til vill víðar á Ströndinni.
Á eftir gefst þátttakendum kost
ur á að skoða smáverur úr fjör-
unni í smásjám.
Daginn eftir, sunnudaginn 15.
júní, ei’ svo ferð í Drangey, til
skoðunar á fuglalífi þar. Hefst
hún kl. 8 f. h. og verður komið
samdægurs til baka.
Þann 27. júlí verður svo
gönguferð gegnum Þorvaldsdal,
og verður hugað að ýmsu á
þeirri lieð, m. a. gömlum og
nýjum framhlaupum, og ágætt
tækifæri gefst þá til plöntuskoð
unar og söfnunar á plöntum.
Innritun er nauðsynleg í tvær
síðari ferðirnar, en æskileg í
hinar.
Skrifstofa Ferðafélagsins,
Skipagötu 12, verður opin kl.
8—9 kvöldið fyrir ferðir, sími
1-27-20. ' □
Sigurður Óli Brynjólfsson
mótmælti nokkrum atriðum í
ræðu Sólness og bæjarstjóri
öðrum. Gísli Jónsson sagðist
fylgja þeirri áhættu, að styðja
áður samþykktar framkvæmda
áætlanir því það gæti verið
meiri áhætta að grípa ekki gæs-
ina þegar hún gæfist og lýsti
fylgi við mannvirkjagerð sunn-
an á Oddeyrartanga. Þorvaldur
Jónsson sagðist andvígur frest-
unartillögu Sólness og Reykja-
líns, enda væri áður búið að
samþykkja hafnarframkvæmd-
ir í öllum nefndum og ráðum og
fylgdi hann þeim samþykktum.
Jón Ingimarsson vísaði frest-
unartillögunni á bug á þeim
forsendum, að hér væri um
mjög atvinnuaukandi fram-
kvæmd að ræða. Haukur Har-
aldsson taldi fyrirhugaðar hafn
arframkvæmdir myndu auka
hagvöxt bæjarins og mótmælti
frestunartillögunni.
Frestunartillagan var síðan
felld með 8:3 atkvæðum.
Iðnskólinn.
Bæjarstjórn samþykkti að
taka gengislán til lúkningar iðn
skólabyggingunni á tveim ár-
um.
Fegrunarvika.
Samþykkt var með öllum at-
kvæðum sú tillaga Fegrunar-
félagsins, sem Ingibjörg Magnús
dóttir flutti, að hafa á Akur-
eyri árlega fegrunarviku. □
ODDEYRARSKOLANUM var
slitið föstudaginn 23. maí. Und-
ir barnapróf gengu 66 börn og
stóðust öll prófið. Skólinn starf
Margrét J. Vilhelmsdóttir.
aði í vetur í 19 bekkjardeildum
og nemendafjöldi við skólalok
var 463.
í vetur var kennd danska í
6. bekk og haldið var áfram
með mengjafræðinám í yngri
deildum. Sigurður Flosason,
kennari, lærði til heyrnarpróf-
unar hjá Heyrnarhjálp í Reykja
vík. Leiðbeindi hann síðan
hjúkrunarkonum skólanna við
heyrnarprófanir. Við rannsókn-
ir í skólanum, kom í ljós, að
meira er um heyrnarskerðing-
ar, en reiknað hafði verið með.
Margar íþróttakeppnir voru í
skólanum í vetur og veittir far-
andbikarar. Síðast var svig-
keppni, er haldin var í Hlíðar-
fjalli. Sigurvegarar urðu börn
úr 6. bekk í 8. stofu. Sveitina
skipuðu: Atli Hermannsson,
Birgir Kristbjörnsson, Margrét
J. Vilhelmsdóttir og Svanhvít
Ragnarsdóttir. Vilhelm Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri,
gaf fyrir nokkrum árum farand
bikar, sem veittur er beztu svig
sveit skólans. Einnig hefur hann
gefið verðlaunapening, sem sá
einstaklingur hlýtui', sem hefur
beztan brautartíma. Að þessu
sinni hlýtur Margrét J. Vil-
helmsdóttir þennan fagra verð-
launapening til eignar, en hún
ei' efnileg skíðakona.
Við skólaslitin barst skólan-
um 10.000.00 króna gjöf frá
Eiríki Sigurðssyni fyrrv. skóla-
stjóra. Er þessi upphæð vísir að
sjóði, sem veita á úr tvenn verð
laun á hverju ári. Nánari reglur
verða settar um sjóðinn. Til við
bótar þessari höfðinglegu gjöf
veitti Eiríkur Sigurðsson verð-
laun fyrir beztu ritgerðina á
barnaprófi og bezta samanlagða
einkunn í íslenzku.
Þá bárust skólanum margar
verðlaunabækur frá Kvöldvöku
útgáfunni, en þær voru veittar
fyrir háar einkunnir og góða
hegðun.
Hæstu einkunn á barnaprófi
hlaut Kristjón Falsson, var hún
9.40.
Skólastjóri þakkaði gefend-
um og órnaði nemendum allra
heilla. Hann gat þess, að skóla-
þroskapróf væru nú að hefjast
við Oddeyrarskólann og yrðu
síðar í öðrum barnaskólum bæj
arins. Ásgeir Guðmundsson,
yfirkennari í Hlíðarskólanum í
Reykjavík, væri að koma hing-
að norður og ætlaði að leiðbeina
kennurum með prófin. Þessi
próf hafa um nokkur ár verið
reynd í skólum Reykjavíkur og
hafa þótt gefa nokkuð öruggar
niðurstöður. Sálfræðingur verð
ur fenginn til leiðbeininga og
frekari rannsókna ef þurfa þyk
ir. í haust hefja börn í 4., 5. og
6. bekkjum nám 15. september.
Skólastjóri Oddeyrarskólans
er Indriði Ulfsson. □
- Tryggingarfélagið Andvaka 20 ára
(Framhald af blaðsíðu 8).
Hinn 1. janúar 1929 tekur Jón
Ólafsson, hæstaréttarlögmaður,
við stjórn íslandsdeildar félags-
ins, og undir farsælli stjórn
hans ei' deildin rekin til ársins
1949, þegar hinn íslenzki trygg-
ingastofn var seldur Líftrygg-
ingafélaginu Andvöku, sem
stofnað var sama ár fyrir for-
göngu Sambands íslenzkra sam
vinnufélaga.
Líftryggingafélagið Andvaka,
sem alíslenzkt félag, tók svo til
starfa síðari hluta árs 1949. Var
Jón Ólafsson þegar ráðinn fram
kvæmdastjóri félagsins og
gegndi hann því starfi til 1.
ágúst 1958. Við starfi Jóns Ólafs
sonar, sem framkvæmdastjóri
beggja félaganna, tók Ásgeir
Magnússon, lögfræðingur, og
hefur hann gegnt því síðan.
Árið 1949 voru iðgjöld félags-
ins kr. 211.624.00, trygginga-
stofn kr. 4.988.000.00, trygginga
sjóður kr. 2.757.000.00 og bónus
sjóður kr. 109.680.00. Árið 1968
voru sambærilegar tölur hins
vegar iðgjöld kr. 4.164.182.00,
tryggingastofn kr. 518.204.714.00,
tryggingasjóður kr. 32.730.000.00
og bónussjóður kr. 4.013.844.00.
Á 20 ára starfstíma félagsins
hafa iðgjöldin þannig 20 faldazt
og tryggingastofninn 100 fald-
azt.
Stjórn Líftryggingafélagsins
Andvöku skipa nú: Erlendur
Einarsson, forstjóri, formaður,
Ingólfur Ólafsson, kaupfélags-
stjóri, Jakob Frímannsson, kaup
félagsstjóri, Karvel Ögmunds-
son, útgerðarmaður, og Ragnar
Guðleifsson, kennari.
Hefur stjórnin á fundi sínum
í dag afhent Bjarna Bjamasyni,
lækni, f. h. Krabbameinsfélags
íslands, og Sigurði Samúelssyni,
prófessor, f. h. Hjartaverndar,
hvorum um sig kr. 25.000.00 í
tilefni 20 ára afmæli félagsins.
Reykjavík, 9. maí 1969.
(Úr fréttatilkynningu)
Niðursuðudós, sem opna má með einu handtaki
f APRÍLMÁNUÐI efndu full-
trúar ameríska álfyrirtækisins
Alcoa til sýningar fyrir Lands-
samband norskra niðursuðu-
verksmiðja, sem hefir aðsetur í
Björgvin, á nýrri gerð niður-
suðudósa, sem vænta má, að
ryðji sér brátt til rúms víða um
heim.
Þessi nýja dós er léttari en
aðrar af svipaðri stærð og jafn-
framt með endurbótum á efni,
TIUNDI HVER SVII A LEIÐ TIL GLÖTUNAR?
TILTÖLULEGA frjáls sala á
áfengi í Svíþjóð undanfarandi
hálfan annan áratug hefur vald
ið því, að svo stefnir nú að 10.
hver Svíi muni verða áfengis-
sjúklingur, segir sænska blaðið
„Dagen“ í grein eftir Elis Ström
berg.
Þegar skömmtunarkerfið
(Bratts-kerfið) var afnumið í
Svíþjóð árið 1955, lögðu margir
trúnað á þá kenningu, að áfeng-
isneyzla þjóðarinnar myndi auk
ast fyrst í stað, en síðan minnka,
en reynslan varð önnur.
Ymiskonar yfirsjónir og af-
brot af völdum ofdrykkju hafa
fjölgað geysilega, einkum meðal
kvenna, unglinga og barna.
Samkvæmt skýrslum fangels
anna kemur í ljós, að 75—80%
fanga afplána refsidóma vegna
lögbrota, sem framin eru í
ölvunarástandi eða af völdum
áfengis.
Það er einnig upplýst að 5000
manns deyr árlega í landinu þar
sem áfengið er dauðavaldurinn
beinlínis eða óbeinlínis.
Áfengisneytendur greiða ár-
lega um 2.5 milljarða sænskra
króna (42.5 milljarða ísl. kr.)
fyrir áfenga drykki.
G. T. blaðið 5/3 1969.
Áfengisvarnaráð.
sem gera að verkum, að hún er
með afbrigðum sterk. Auðvelt
er að opna hina nýju dós í sam-
anburði við eldri gerðir, því að
til þess þarf aðeins eitt handtak
með því að kippa í hring í einu
horni loksins, sem losnar þá í
einu lagi. Lokbrúnin, sem eftir
er, situr í gróp í hlið dósarinn-
ar, svo að auðvelt er að komast
að innihaldinu og tæma dósina.
Brún er á dósarhliðinni, sem
ver lokið hnjaski og er líka að-
hald við flutning á tómum dós-
um, en unnt er að stafla þeim
hverja í aðra, þar sem örlítill
flái er á hliðunum.
Sérstök rif eða fætur eru
þrykktar í botn dósanna til að
styrkja hana og auðvelda stöfl-
un. Efnið í dósunum er sérstak-
lega hert ál, sem Alcoa fram-
leiðir eingöngu til nota í dósir
af ýmsu tagi.
Meðal annara mikilvægra
atriða í augum framleiðenda,
sem berjast gegn vaxandi kostn
aði, og þeirra, sem annast hönn
un umbúða, er sú staðreynd, að
auðvelt er að prenta á sjálfan
málminn, svo að ekki er þörf
sérstakra umbúða, pappa eða
pappírs, um dósirnar.