Dagur - 04.06.1969, Blaðsíða 1
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 4. júní 1969 — 24. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Skrár um útsvör og aðstöðugjöld
á Akureyri fyrir árið 1969
Lagt var á eftir gildandi útsvarsstiga (sbr. meðfylgjandi greinar-
gerð framtalsnefndar), en síðan voru öll útsvör hækkuð um 3.5%
til þess að ná útsvarsupphæð samkvæmt fjárhagsáætlun með lög-
boðnu lágmarksálagi (5%).
Eftirtaldir gjaldendur bera yfir kr. 120.000.00 í útsvar:
Einstaklingar:
Guðmundur Karl Pétursson, yfirlæknir..................kr. 228.900.00
Sigurður Ólason, læknir............................... — 205.600.00
Baldur Jónsson, læknir................................ — 197.700.00
Baldur Ingimarsson, lyfjafræðingur.................... — 187.700.00
Bjarni Rafnar, læknir................................. — 154.300.00
Pétur Valdimarsson, forstjóri......................... — 148.400.00
Magnús Þórisson, bakari............................... — 147.000.00
Davíð Gíslason, læknir................................ — 146.600.00
Jónas Oddsson, læknir................................. — 144.800.00
Oddur C. Thorarensen, lyfsali......................... — 142.300.00
Gissur Pétursson, læknir.............................. — 133.900.00
(Framhald á blaðsíðu 5)
Sjómannadagurinn á Akureyri 1969.
(Ljósm.: E. D.).
Sjómannadagurinn á Akureyri
SJÓMANNADAGURINN var
að venju haldinn hátíðlegur á
Akureyri. Veður var sólríkt
þann dag en svöl hafgola er á
daginn leið. Hátíðasvæðið var
Ný verksmiðja og önnur í undirbúningi
Sauðárkróki 2. júní. Mikill afli-
hefur borizt hér á land í vetur
og vor, sem annarsstaðar á
Norðurlandi. Útgerð Drangeyj-
ar hefur gengið vel og sýnt okk
ur, að það er hægt að gera út
ÁTTI TVENNA
TVÍLEMBINGA
STEFÁN ÁRNASON, Höfða-
brekku á Grenivík segir svo
frá: í vor bar ein ærin mín og
átti hrút og gimbur, og voru
lömbin bæði hvít. Tveim dög-
um síðar, 19. maí, bar hún aft-
ur og átti tvö grákollótt lömb,
mjög lítil en vel frísk.
Þegar ærin bar í fyrra skipt-
ið var hún í húsi með bornum
ám eingöngu, og í síðara skiptið
var hún ein sér. Hér fer því
ekkert milli mála. Þess má geta,
að í vetur gengu tveir hrútar,
hvítur og grár, lausir í ánum í
50 kinda húsi. □
fiskiskip frá Sauðárkróki. Afli
skipsins frá febrúarlokum er
orðinn um eitt þús. lestir.
Fjöldi fólks hefur haft at-
vinnu við vinnslu aflans í landi.
Sokkabuxnaverksmiðja hefur
hafið framleiðslu á Sauðár-
króki. Að undanförnu hafa vél-
ar og tæki verksmiðjunnar ver-
ið reynd og virðist allt í bezta
lagi. Þarna fær nokkur hópur
fólks atvinnu og vonandi verð-
ur framtíð þessa fyrirtækis
björt. Samverk á verksmiðjuna,
og Pálmi Jónsson er aðaleig-
andi.
Á bæjarstjórnarfundi 20. maí
sl. var fyrirtækinu Loðskinn hf.
veitt lóð til verksmiðjubygging-
ar í iðnaðarhverfi bæjarins við
Borgarmýri. Loðskinn h.f. er
það fyrirtæki, sem hyggst reisa
hér og reka sútunarverksmiðju
fyrir 150—200 þús. gærur. Bygg
ingaframkvæmdir munu hefjast
mjög bráðlega.
Á sama fundi bæjarstjórnar
var samþykkt, að næsta íbúða-
Ragnheiður Vídalín 11 ára vann til Akureyrarferðar í teikni-
samkeppni á vegum fegrunarviku Reykjavíkurborgar. Með
n henni kom kennari liennar, Jósefína Ilansen. (Ljósm.: M. G.)
svæði yrði skipulagt fyrir Sauð
árkrók á Sauðárhæðum. Stefnt
verður að því, að úthluta þar
lóðum næsta vor. Svo til allar
lóðir, sem byggingarhæfar eru,
(Framhald á blaðsíðu 2)
tún sunnan sundlaugar bæjar-
ins.
Samkvæmt umsögn Baldvins
Þorsteinsson skipstjóra,' for-
manns Sjómannadagsráðs hér,
fóru kappróðrar fram á laugar-
daginn. Þar sigruðu sjómenn af
Árskógsströnd og hlutu til eign
ar bikar sem um er keppt. Þess
má geta, að þetta er í sjötta
sinn sem róðrarsveit af Árskógs
strönd sigrar í þessari keppni,
í röð, nema 1968 féll kappróður
niður. Róðrarsveitir voru átta.
Auk þess kepptu ungtemplarar
og Æskulýðsfélag kirkjunnar á
öðruvísi bátum og sigruðu
templarar. Af landsveitum vann
Vatnsveitan og Kaldbakur varð
sigursælust sjósveita.
Á sunnudaginn safnaðist fólk
(Framhald á blaðsíðu 2).
Nýtt bankaútibú
LANDSBANKAÚTIBÚIÐ á
Akureyri hefur fætt af sér ann-
að útibú í Stórholti 1. Það heitir
þó ekki útibú heldur afgreiðsla
og er hún opin kl. 1—6 virka
daga. □
Fegrunarvikan á Akureyri
ÁRLEG fegrunarvika á Akur-
eyri er nú ákveðin samkv. sam-
þykkt aðalfundar Fegrunai'-
félagsins og síðan bæjarstjórn-
ar, þar sem samþykkt var eftir-
farandi:
„Bæjarstjóm Akureyrar sam
þykkir að ein vika á hverju
Hafísinn rekur fram og aftur
Skagaströnd 2. júní. Mikil há-
tíð var á Skagaströnd á Sjó-
mannadaginn. Meðal annars var
kappróður nokkurra sveita og
sigraði áhöfn á Helgu Björgu
og ýmislegt var annað af íþrótta
taginu. Margt fólk var saman
komið og sólin skein glatt.
Dansað var á tveim stöðum í
lok hátíðahaldanna og fór allt
slysalaust fram þótt nokkuð
væri um ölvun.
Nógur fiskur hefur verið og
töluvert góð atvinna. Grásleppu
afli glæddist og varð góður fyr-
ir viku, en ísinn kom í veg fyrir
full not þeirrar göngu.
Nú í morgun var fullt af haf-
ís svo langt sem sást, en nú er
hann farinn að gisna. ísinn rek-
ur fram og aftur hér á Húna-
flóanum og stafar af honum
kuldi eins og jafnan. Jakar eru
miklu þynnri en í fyrra.
Kvenfélagið afhenti neyðar-
fatnaðinn, sem áður var búið að
minnast á, til sjómanna og var
það þakkað. X.
vori skuli vera fegrunarvika.
Fegrunarfélagi Akureyrar, bæj
arverkfi'æðingi og Skrúðgarða-
nefnd skal falið að annast fram
kvæmdir og velja vikuna."
Nefnd sú, er kjörin var til að
sjá um framkvæmdir, samkv.
framanskráðu skipa: Jón Krist-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Landsliðið kemur á morgun
ÞAÐ verður islenzka landsliðið,
sem leikur fyrsta leik sumars-
ins að þessu sinni við ÍBA, og
fer leikurinn fram annað kvöld
(fimmtudagskvöld) kl. 8.30 á
íþróttavellinum. Ekki var vitað,
þegar blaðið fór í prentun
livernig landsliðið verður skip-
að, en ekki er að efa að beztu
knattspyrnumenn sunnanlands
skipa það.
Líklegt teljum við að knatt-
spyrnuunnendur hér nyrðra
fjölmenni á þennan fyrsta leik
sumarsins, og verður því for-
sala aðgöngumiða frá kl. 1 á
finuntudag í söluskýlunum við
íþróttavöllinn. □
SÉRA Pétur Sigurgeirsson sókn
arprestur á Akureyri varð
fimmtugur 2. júní. Ilann fluttist
hingað fyrir 22 áruin, var fyrsta
árið aðstoðarprestur en var síð-
an skipaður þar sóknarprestur
og hefur gegnt því starfi síðan.
Kona hans er Sólveig Ásgeirs-
dóttir og eiga þau fjögur böm.
Séra Pétur Sigurgeirsson nýt
ur niikillar virðingar og vin-
sælda og er það verðugt.
Dagur sendir honuin og fjöl-
skyldu hans hinar beztu árnað-
aróskir og ég þakka ágæt sam-
skipti. E. D.
ÚTSVARSSKRÁIN var lögð fram 2. júní á Akureyri og er hún
kjörið umræðuefni næstu daga og vikur.
Lagt var á 3245 gjaldendur.
Álögð útsvör nema samtals kr. 74.191.800.00.
Þar af eru einstaklingar 3140 og bera...............kr. 70.146.000.00
og félög 105 og bera................................ — 4.045.800.00