Dagur - 20.06.1969, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræli 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Mannmargt var á Ráðhústorgi 17. júní. (Ljósmyndir frá þjóðhátíðinni tók Friðrik Yestmann)
Geysilegt fjölmenni 17. jíiní hér á Akureyri
Allir flugmenn
veikir í gær?
I GÆR féll niður allt flug Flug-
félags fslands og Loftleiða, bæði
utan lands og innan, því flug-
menn boðuðu veikindaforföll.
En undanfari þessa er sá, að
í fyrradag slitnaði upp úr samn
ingaviðræðum flugmanna ogi
flugfélaganna um kaup og kjör,
eftir að flugmenn höfnuðu 5%
kauphækkunartilboði atvinnu-
rekenda.
Þá tók ríkisstjórnin það til
bragðs, að setja málið í gerðar-
dóm, er upp skuli kveða úr-
skurð í deilumáli þessu og gerð
ist það síðdegis í fyrradag.
Gerðardómurinn, er við það
bundinn, að miða úrskurð sinn
í meginatriðum við þá samn-
inga, sem í gildi liafa verið í
sanmingum við atvinnuflug-
menn og flugvélstjóra, með hlið
sjón af nýlegri lausn í almenn-
um vinnudeilum, 19. maí sl.
Stjóm Félags íslenzkra at-
vinnuflugmanna mótmælti þess
ari málsmeðferð harðlega. í
framhaldi af þessu brugðu flug-
menn á það ráð, sem fyrr segir,
að boða veikindaforföll. Trún-
aðarlæknum flugfélaganna, sem
rannsaka áttu heilsufarið, var
ekki hleypt inn í hús flug-
manna.
(Framhald á blaðsíðu 7)
Ófeigsstöðum, Kinn, 18. júní. —
Víða eru nýjar kalskellur og á
stöku bæ er mikið kalið í ár.
En yfirleitt er þetta verulega
betra en í fyrra.
Nokkuð vel gengur á menn-
ingarsviðinu. Til dæmis má
nefna, að hingað hafa komið
þrír fyrirmyndar karlakórar,
hver öðrum betri og sungið í
óskírðu félagsheimili okkar,
sem sumir hafa nefnt Ljósvetn-
IÐNSKÓLI var starfandi hér í
vetur frá 15. nóvember til 3.
maí sl. í 3. bekk, sem starfaði
frá 15. nóv. til 13. febrúar, voru
20 nemendur. Af þeim héldu 15
áfram námi í 4. bekk og luku
allir burtfararprófi í vor. Tveir
þeirra áttu aðeins eftir að ljúka
prófi í iðnteikningu og efnis-
fræði. Hæstu einkunn hlaut
Gunnar Sigurbjörnsson 8.54 og
annar varð Vigfús Ái'nason með
8.33. í 3. beklí hlaut hæsta
einkunn Sverrir Eðvaldsson frá
Siglufirði 8.40.
Skólinn starfaði sem kvöld-
skóli að mestu leyti. Stunda-
kennarar voru 5 auk skóla-
stjóra, Björns Stefánssonar, sem
annazt hefir skólastjórn við skól
ann frá því er hann tók fyrst til
starfa haustið 1946.
Var þetta tuttugasta starfsár
skólans og sennilega um leið
það síðasta, þar sem fyrirhugað
er samkvæmt nýju iðnskólalög-
gjöfinni, að iðnnemar hér sæki
skóla á Akureyri, þegar hinn
nýi iðnskóli þar tekur til starfa
á komandi hausti.
HÁTÍÐARHÖLDIN á Akureyri
17. júní voru hin ánægjulegustu
á flestan hótt og fóru þau fram
undir berum himni. Eru þau
talin þau fjölmennustu, er þar
hafa verið þennan hátíðisdag,
en þó voru þau í aðalatriðum
ingabúð. Höfum við því ekki
orðið afskiptir í söngmenntinni.
Sauðburði er lokið fyrir
nokkru. og var hvergi vanfóðr-
að. Rekið hefur verið á afrétt,
þangað, sem fyrsti íslendingur-
inn fæddist, en þar heita Nátt-
faravíkur og er þar land gott.
Við skólaslit í maí sl. rakti
skólastjóri sögu skólans að
nokkru og gat þess m. a., að
skólinn hefði brautskráð alls
rétta 90 nemendur að þeim með
töldum er hann útskrifaði að
þessu sinni.
Hæstu einkunn í þessum hópi
hafði Karl G. Þorleifsson, tækni
fræðingur, I. ágætisemkunn
9.32.
Barnaskóla Ólafsfjarðar var
(Framhald á blaðsíðu 2)
Vopnafirði 18. júní. Betur hafa
vorverk gengið nú en fyrrfar-
andi vor, og gróður er miklu
meiri. Ekki hafa túnin kalið í
ár og eitthvað mun gróa upp úr
gömlum kalsárum.
Vinna hefur verið allgóð í
þorpinu því Brettingur landaði
700 tonnum til 11. maí og hefur
síðan bætt við rúmum 200 tonn-
um. Þetta er í fyrsta sinn að
eins og mörg hin fyrri ár, en þó
vandað til hátíðar og skemmti-
atriða meira en venja er.
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
flytur lýðveldisræðuna.
Hið mesta og bezta á þessari
miklu hátíð, 17. júní, sem jafn-
framt er 25 ára afmæli lýðveldis
ins, lagði skaparinn sjálfur til
og það var sól og 24 stiga hiti.
bátur er gerður út á vetrarver-
tíð héðan og er árangurinn góð-
ur. En afkastageta frystihússins
er mjög takmörkuð og ekki
nægileg ef hinn báturinn okkar,
Stefán Valgéir, hefði lagt hér
upp líka.
Kristjón Valgeir er að búa sig
á síld og Brettingur fer e. t. v.
síðar á síld líka. Þ. Þ.
Hefur það sjaldan við borið á
útihátíð, að karlar klæddu sig
hundruðum saman úr jökkun-
um vegna hita, en það gerðist
nú.
Klukkan 10 árdegis gengu
skátar um bæinn undir lúðra-
blæstri og bumbu og báru
myndir af landvættum. Og að
þessu sinni fóru bæjarbúar í
fjórar miklar skrúðgöngur, er
sameinuðust á Ráðhústorgi en
héldu þaðan á íþróttasvæðið um
kl. 2 e. h. og þar setti formaður
þjóðhátíðarnefndar, Þóroddur
Jóhannsson, hátíðina en séra
Birgir Snæbjörnsson sóknar-
prestur flutti stutta guðsþjón-
ustu með aðstoð kirkjukórsins.
Lýðveldisræðuna flutti Bjarni
Einarsson bæjarstjóri, en ávarp
nýstúdenta flutti Jón Árnason.
Karlakór Akureyrar söng,
Lúðrasveitin lék og ávarp Fjall
konunnar flutti frú Þórey Aðal
steinsdóttir.
Kvæði eftir Davíð og Matt-
hías las Arnar Jónsson leikari
og skemmtiþátt flutti Karl Ein-
arsson. Kórar bæjarins sungu
sameiginlega og Kári Árnason
stjórnaði fimleikaflokki, er
sýndi. Og enn má nefna fim-
leikaflokk frá Ólafsfirði, sem
Björnþór Ólafsson stjórnaði, en
allt slíkt er Akureyringum tölu
veriS tilbreyting.
Þá var þarna ýmislegt fyrir
börnin. Þau fengu að koma á
hestbak og keppa í hjólreiðum.
Frj álsíþróttakeppnin tókst
ekki vel og gleymdu sumir að
mæta.
Hátíðarhöldin hófust svo að
nýju á Ráðhústorgi um kvöldið.
Þar fóru fram mörg skemmti-
atriði. Gígjan söng, Margrét
(Framhald á blaðsíðu 2)
Þórey Aðalstemsdóttir flytur ávarp Fjallkonunnar.
Þangað, sem fyrsti íslendingurinn fæddist
Húsvíkingar hafa fiskað með
eindæmum vel um lengri tíma.
B. B.