Dagur - 08.10.1969, Page 8
8
SMATT & STORT
Smyrlabjargaárvirkjun.
Orkuver í
SMYRLABJARGARÁRVIRKJ
IJN í Suðursveit í Austur-
Skaftafellssýslu var vígð síðasta
föstudag, 3. október, með því að
raforkumálaráðherra ræsti vél-
ar virkjunarinnar í stöðvarhús-
inu.
Smyrlabjargará er 50 km.
vestur frá Höfn í Hornafirði.
Fallhæð á virkj unarstað er
meira en 100 metrar. Uppistaða,
11. þing Alþýðusambands Norð
urlands var haldið á Akui'eyri
sl. laugardag og sunnudag. Þing
ið sátu 50 fulltrúar frá 16 verka
lýðsfélögum í Norðlendinga-
fjórðungi, en alls eru nú innan
vébanda Alþýðusambands Norð
urlands 20 félög með tæplega
5000 manns. Þingforsetar voru
kjörnir Óskar Garibaldason frá
Siglufirði og Jón Karlsson frá
Sauðárkróki, en ritarar Árni
Björn Árnason, Akureyri og
Kolbeinn Friðbjarnarson, Siglu
firði.
í skýrslu stjórnar kom fram,
að starf sambandsins hefur ver-
ið all umfangsmikið frá því síð-
asta þing var haldið, en á marg
an hátt einkennzt af erfiðleik-
um og vonbrigðum, þar sem
mikið atvinnuleysi hefði verið á
sambandssvæðinu og reynzt
erfiðara en oft áður að halda
uppi kaupmætti launa. Þó væru
Ijósir punktar í þessu ástandi,
svo sem samningurinn um líf—
eyrissjóði og bygging orlofs-
heimilanna, sem væri stórvirki
og risaskref fram á veg í félags-
legu tilliti.
Nokkrar breytingar voru
gerðar á lögum sambandsins
með tilliti til skipulagsbreytinga
A.S.Í.
Sérstök ályktun var gerð um
atvinnumál á sambandssvæð-
inu, þar sem höfuð áherzla er
NÝR stálbátur, Halldór Sigurðs
son, er kominn til Hofsóss,
smíðaður í Stálvík, 105 tonna og
verður formaður Einar Ásgeirs
son, Reykjavík, en áhöfnin að
öðru leyti heimamenn. Hluta-
félag var stofnað til kaupa á
þessum fiskibáti, bæði á Hofs-
ósi og í næstu hreppum með
mjög almennri þátttöku. Nýi
báturinn er nú að búast á
veiðar.
Annað hlutafélag heima-
sem tekur þriggja mánaða
vatnsforða, á það að vera allgóð
trygging. En í stíflugarðinn fóru
nær 22 þús. rúmmetrar af grjóti,
möl og öðrum jarðvegsefnum.
Virkjunin framleiðir 1200 kw.
Kauptúnið Höfn og nálægar
sveitir njóta þess.
Aflvélarnar, ásamt gangráði
og þrýstivatnspípu, svo og rofa-
búnaði eru smíðaður í Tékkó-
lögð á leiðir til að útrýma at-
vinnuleysinu. Ennfremur var
gerð kjaramálaályktun, en þar
segir m. a., að þingið telji að
verkalýðshreyfingurini beri að
undirbúa almennai' samnings-
uppsagnir á næsta vori með það
að markmiði sem lágmark að fá
bættar hinar beinu skerðingar
síðustu 2ja ára á öll almenn
laun og jafnframt að ná fram
atvinnuöryggi.
Björn Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri, var einróma endur-
kjörinn formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands, og auk
hans í miðstjórn: Jón Helgason,
(Framhald á blaðsíðu 5)
Á LAU.GARDAGINN opnaði
Gunnar Dúi málverkasýningu í
Landsbankasalnum á Akureyri
og var aðsókn góð um helgina
og fimm myndir seldust þá
þegar.
Gunnar Dúi er Akureyring-
ur, gamall nemandi Hauks heit
ins Stefánssonar, málarameist-
ari að iðn en hefur auk þess
lagt stund á listmálun og leik-
tjaldamálun. í sumar hélt hann
sjálfstæða málverkasýningu í
Reykjavík.
manna var einnig stofnað á
Hofsósi til að kaupa og reka
frystihús staðarins. Hafa heima
menn því útvegsmálin í sínum
höndum, en verið er að sameina
kaupfélögin á Hofsósi og Sauð-
árkróki, formlega.
Atvinna hefur verið næstum
sæmileg í sumar. Byrjað er á
dálitlum framkvæmdum við
höfnina, nú í haust. — Slátrun
stendur yfir. □
slóvakíu, en Smyrlabjargarár-
virkjunin mun vera fimmta
vatnsaflsstöðin, sem er byggð
hér á landi með öllum búnaði
frá Tékkóslóvakíu.
Meðal aðila sem hafa unnið
við virkjunina eru: Verkfræði-
skrifstofa Sigurðar Thoroddsen,
Orkustofnunin, Sigurður H.
Thoroddsen og Rafmagnsveitur
ríkisins, en aðal framkvæmda-
aðili var Norðurverk h.f., sem
lauk verkinu tveimur mánuðum
á undan áætlun.
Virkjuninni er ætlað að starfa
án stöðugrar gæzlu. Búnaður
hennar gerir kleift að stjórna
henni frá Höfn i framtíðinni,
eftir að komið hefur verið á
fjarskiptasambandi í einhverri
mynd t. d. með háspennusíma,
símalínum eða loftsteytum. □
UM þessar mundir, er birtar
eru í blöðum norðanlands og
sunnan, rökræður Laxárvirkj-
unarstjórnar annars vegar og
Suður-Þingeyinga hins vegar,
um áætlaða stíflugerð í Laxá og
vatnsflutning milli stóránna
Á sýningu Gunnars hér á
Akureyri eru 32 myndir og eru
25 þeirra olíumálverk. Mynd-
irnar kosta frá 3 þús. kr. upp í
22 þús. kr. Verkefni sín sækir
málarinn í náttúru landsins.
Sýningin er opin 2—10 e. h.
til 12. október. □
VETRAR- OG SUMARMIÐ-
STÖÐ ÍÞRÓTTA
Akureyri er hin opinbera lands
miðstöð vetraríþróttanna og
þykir að vonum nokkuð til
koma. En Akureyringar hafa
ekki notið neinnar opinberrar
fyrirgreiðslu fram yfir aðra'
staði til að byggja upp þá að-
stöðu, sem í þessari grein er
fyrir hendi og gerir staðinn
nafnbótinni verðan, nema ef
telja má liálfrar millj. kr. lán,
sem er þó vísitölutryggt.
Laugarvatn er hin opinbera
landsmiðstöð sumaríþrótta og
þykir væntanlega nokkurs
virði þar syðra. En þar leggur
hið opinbera fram fjárfúlgur til
nauðsynlegrar mannvirkjagerð-
ar vegna íþróttanna. I þessu er
mikið ósamræmi. »
SÁTU Á TALI
Þrír ágætir Norðmenn voru í
sumar á ferð um Norðurland og
snæddu liádegisverð á Hótel
KEA, ásamt íslenzkum fylgdar-
manni. Fylgdarmaðurinn var
þá rétt búinn að sýna gestunum
höggmynd af Helga magra vest
an fþróttavallarins og rak ætt
lians til konunga. Þar sem þess
ir menn nú sátu að snæðingi á
hótelinu, verður einum Norð-
mannanna að orði, um leið og
liann benti á akfeitan síldar-
spekuland af Norðausturlandi
við næsta horð: Ekki mun þessi
maður vera út af Helga magra.
Nei, sagði fylgdarmaðurinn,
þetta er rétt athugað, en samt
er liann af norsku konungakyni,
kominn af Ólafi Haraldssyni
digra.
SKAFLAJÁRN O. FL.
Fréttir herma, að koma eigi á
markaðinn „skaflajárn“ á bíla í
stað keðja, og eru þau norsk.
f lok síðasta mánaðar voru 764
skráðir atvinnulausir liér á
tveggja þar í héraði, og þegar
samtímis er kunngerður boð-
skapur um nýjar stórvirkjanir
syðra, er ástæða til að velta fyr
ir sér þeirri hlálegu staðreynd,
að Norðlendingafjórðungur og
Austfirðingafjórðungur, sem
eiga innan sinna vébanda mörg
mestu fallvötn landsins, eru enn ■
„vanþróað land“ í raforkumál-
um. En orkulindum og útlendu
stóriðjufjármagni er veitt til
höfuðborgarsvæðisins í hrað-
vaxandi mæli.
Það mun hafa verið árið 1961
að allir þingmenn héðan úr kjör
dæminu, að meðtöldum uppbót
armönnum, urðu samtaka um
að flytja ú Alþingi tillögu um
að hraða gerð fullnaðaráætlun-
landi. Bandarískir tábaksfram-
leiðendur ncita að setja þá að-
vörun á sígarettupakka, sem ís-
lenzk lög mæla fyrir um. Stofn-
að hefur verið httndaræktar-
félag á íslandi. Skagstrendingar
ætla að láta smíða sér skut-
togara. Vöruskiptajöfnuðurinn
fyrstu átta mánuði þessa árs var
óhagstæður um 1226 milljónir
króna. Fyrirsjáanlegur er mikill
niðurskurður búpenings á Suð-
urlandi og í Borgarfirði vegna
fóðurskorts af völdum óþurrk-
anna. Fyrirsjáanlegur er einnig
mjólkurskortur á Reykjavíkur-
svæðinu í vetur.
ÚTIVIST BARNA
Samkvæmt lögreglusamþykkt
mega 12—14 ára hörn ekki vera
á almannafæri á Akureyri
seinna en kl. 22 frá 1. okt. til
1. maí, en klukkutíma lengur í
fylgd með fullorðnum. En börn
yngri en 12 ára mega vera á
almannafæri til kl. 20 á sama
tíma. Undanfarin ár liefur mörg
um foreldrum ekki tekizt að
láta börn sín fylgja þessum
reglum. Lögregla, kennarar og
barnaverndarnefnd þurfa liér
að koma foreldrum til aðstoðar
og er vænlegt til árangurs að
taka afmörkuð svæði bæjarins
fyrir í einu, til að koma á góðri
skipan þessara mála. En barn-
anna vegna er mjög nauðsyn-
legt, að lögreglusamþykktin sé
virt betur en verið hefur.
Skúli Guðmundsson,
alþingismaður,
látinn
SKÚLI GUÐMUNDSSON al-
þingismaður og fyrritm ráð-
herra andaðist sl. sunnudag, 5.
október, 69 ára að aldri. □
ar um virkjun Jökulsár á Fjöll-
um og fengu hana samþykkta.
Sjaldan hefur þingsályktun vak
ið slíkan áhuga og bjartsýni
meðal almennings, ekki aðeins
á Norðurlandi, heldur einnig á
Austurlandi, sem glöggt kom
fram í þeim mikla fjölda yfir-
lýsinga um nauðsyn Dettifoss-
virkjunar, sem fram kom frá
sýslunefndum, bæjarstjórnum,
félögum og almennum fundum
í þessum tveim landsfjórðung-
um. Svo öflug varð „Dettifoss-
hreyfingin" orðin síðla vetrar
1962, að 20 alþingismenn á
Norður- og Austurlandi úr öll-
um flokkum brugðu við og boð-
uðu til fundar á Akureyri næsta
sumar, allar sýslunefndir og
bæjarstjórnir eða fulltrúa
þeirra á gervöllu svæðinu norð
anlands og austan, milli Hrúta-
fjarðar og Skeiðarár. Varð sá
fundur fjölsóttur og skoraði
hann á „fólk allt á Norður- og
Austurlandi að mynda órjúf-
andi samstöðu í þessu máli“.
(Framhald á blaðsíðu 2)
GUFUAFLSTÖÐIN
STEFNT ER að þvi, að gufu-
rafstöðin nýja í Bjarnarflagi
verði tekin í notkun og tengd
kerfi Laxárvirkjunar einhvern
næstu daga. En þessi fyrsta
gufuraforkustöð á að geta fram-
leitt 3 þús. kw, þegar full gufu-
orka, sem borað er eftir, er fyr-
ir hendi.
Orkustöðin í Bjarnarflagi er
tilraunastöð öðrum þræði, og
gefur auga leið um framhaldið,
ef vel tekst til. □
ll.þing ASþ.sambands Norðurl.
Nýr bátur til Hofsóss
Gunnar Dúi sýnir í Landsbankasal
Áítð ára „vanþróun" í virkjunarmálum