Dagur - 15.10.1969, Síða 2
2
- EITT OG ANNAÐ FRÁ BÆJARSTJÓRN
Skáidssga um
Nðpóleon og
Jósefínu
BLAÐINU hefur borizt bókin
„Ég kem í kvöld“, .eftir Lozanía
Prole í þýSingu Axds Thor-
steinssonar. Bók .þeasi ifjallar
um ástir og örlög Napoloons og
Jósephinu og er þó skáldsaga.
Árið 1804 voru þau gefin saman
og ki'ýnd að .því loknu, hann
sem keisari og hún sem keisara
drottning. En hún gaf manni
sínum eða Frakklandi ekki son
og önnur kona kom í hennar
stað. Þessi bók er mikil og
spennandi ástarsaga, studd sögu
legum heimildum.
Útgefandi er Bókaútgáfan
Rökkur, Reykjavík, en Leiftur
prentaði. Bókin er tæpar 250
blaðsíður. □
(Framhald af blaðsíðu 5).
þann tíma, er þau áttu bæði eft-
ir ólifað. Guðný andaðist þann
23. sept. árið 1965, og Halldór
þann 4. október sl.
Með Halldóri í Hvammi er
fallinn í valinn einn af forustu-
mönnum eyfirzkra bænda.
Hann var mikill félagshyggju-
maðui', ötull talsmaður sam-
vinnustefnunnar svo og marg-
háttaðs samstarfs í menningar-
og hagsmunamálum sveitanna.
Hann var trúr og tryggur í
hverju starfi. Þessi málefnavið-
horf hans og skapger'ð gerði
hann að eftirsóttum forustu-
manni í sínu sveitarfélagi svo
og' í félagsmálum bænda í öllu
héraðinu.
Eins og áður er vikið að, var
Halldór í Hvammi rnjög hag-
sýnn og hirðusamur búmaður
og átti jafnan afurðamikinn og
góðan búpening. Árið 1929 var
Halldór einn aðalhvatamaður
að stofnun Sambands nautgripa
ræktarfél. Eyjafjarðar (SNE) og
var frá upphafi kjörinn formað-
ur þess. Þessu formannsstarfi
gegndi hann samfellt í 28 ár, er
hann baðst undan endurkjöri. Á
öllum aðalfundum SNE flutti
hann ræður til hvatningar og
samstöðu eyfirzkra bænda um
að bæta nautgripastofninn og
gera hann afurðamikinn og
hraustan. Þessi markvissu
livatningarorð Halldórs hafa án
efa átt sinn þátt í þeim góðu og
miklu framförum, sem orðið
hafa í nautgriparæktinni hér
við Eyjafjörð.
Halldór Guðlaugssyni voru fal-
in oddvitastörf fyrir sitt sveitar
félag og mun hann hafa gegnt
því starfi samfleytt í 16 ár.
Hann var einnig starfandi í
stjórn Kaupfélags Eyfirðinga í
allmörg ár. Öll þau marghátt-
uðu störf, er honum voi'u falin
rækti hann af sömu trú-
mennsku og hæfni, er honum
voru í blóð borin, en sem hlutu
vöxt og þróun á þroskaárum
hans þegar hann starfaði sem
ungmennafélagi á fyrstu ára-
tugum aldarinnar. — Haft er eft
ir sveitungum Halldórs, sem
bezt þekktu til um störf hans, í
þágu sveitarfélagsins, að hann
tók fremur á sjálfan sig að
greiða ýmiskonar ófyrirsjáanleg
útgjöld, varðandi oddvitastörf-
in, heldur en að láta slíkt falla
á sveitarfélagið. Þessi vitnis-
burðui' frá samsveitungum hans
lýsir manninum betur heldur
en mörg orð fá gert.
(Framhald af blaðsíðu 8).
þeim teikningum, og verða þær
lagðar fyrir næsta fund bygg-
inganefndar.
Samþykkt. Stærð 2. áfanga
183 fermetrar og 1226 rúmmetr-
ar. Byggingarleyfisgjald kr.
7.356.00.
- KVENNASKÓLINN
(Framhald af blaðsíðu 8).
maður skólanefndar er Sigurð-
ur Þorbjörnsson, Geitaskarði og
aðrir í nefndinni er.u Guðmund
ur Jónasson, Sólveig Sövik,
Torfi Jónsson og Þórhildur ís-
berg. Núverandi forstöðukona
Kvennaskólans á Blönduósi er
Aðalbjörg Ingvarsdóttir.
Við skólann staifa nú 3 fast-
róðnir kennarar auk forstöðu-
konu og stundakennara, þær
Sólveig Benediktsdóttir Sövik,
Erna S.veinbjarnardóttir og
Steinunn Pálsdóttir. Aðstoðar-
stúlka er Erla Ólafsdóttir.
Skólinn éi'" fuMsetinn í vetur
eiris og öftast áðúr.
(Aðsent)
Þó að lífi og stai-fi Halldórs í
Hvammi sé nú lokið þá geymast
margar kærar minningar lið-
inna daga um hann í hugum
okkar samferðamannanna. Og
nú við leiðarlokin minnist ég, —
sem þessar línur rita, — margra
góðra samverustunda okkar,
allt frá æskuárum til hinztu
daga, með innilegu þakklæti. Ég
vil einnig, fyrir hönd minna
gömlu sveitunga í Hrafnagils-
hreppi og allra þeirra er með
honum unnu á vegum SNE og
víðar, flytja honum innilegar
þakkir og hugheilar kveðjur,
þegar hann nú hefir kvatt þetta
jarðlíf og fallið í faðm hvíldar-
innar eftir langan og árangurs-
ríkan starfsdag.
Systkinum Halldórs, börnum
hans svo og fjölskyldum þeirra,
sendi ég hér með innilegar
samúðarkveðj ur.
Jónas Kristjánsson.
(Framhald af blaðsíðu 1)
Á Suðurlandi hefur sveitar-
félag með færri en 200 íbúa 1
fulltrúa, sveitarfélag með 200—
700 íbúa 2 fulltrúa og fjölmenn-
ari sveitarfélög 3 fulltrúa.
í Reykjaneskjördæmi hefur
hvert sveitarfélag 1 fulltrúa.
Þar eru tekjur sambandsins frá
sveitarfélögunum 1 kr. pr. íbúa,
þó hvergi meira en 1 þúsund kr.
úr sveitarfélagi.
Á Austurlandi og Suðurlandi
ber að miða árstillag hvers
sveitarfélags við útsvör þess og
aðstöðugjöld.
Hjá Sambandi íslenzkra sveit
arfélaga ákveður landsfundur
árgjald sveitarfélaganna, en þó
aldrei lægra en 250 krónur frá
sveitarfélagi.
Ekki verður séð, að á fundum
þessarra samtaka sé neinn sjálf
kjörinn fulltrúi, vegna starfa
sinna eða embættis. Eðlilegt
mætti þó telja og gagnlegt, að
sýslumenn ættu þar sæti, sem
slíkir, þar sem þeir eru oddvitar
sýslunefnda og hafa yfirlit um
starfsemi allra sveitarfélaga,
hver á sínu svæði. Þróunin virð
ist ætla að verða sú, að starf-
andi verði sveitarfélagasam-
bönd, er fari með hagsmunamál
landshlutanna, en að Samband
íslenzkra sveitarfélaga verði
allsherjar hagsamband þeii'ra
Óseyri 6.
Erindi dagsett 24. þ. m. frá
Norðurverki h.f., þar sem sótt
er um lóð fyrir starfsemi fyrir-
tækisins að Óseyri 6. Fyrir-
hugað er að reisa samskonar
hús og þegar hefur verið reist
á lóð nr. 4 við sömu götu, þó er
gert ráð fyrir að vegghæð verði
meiri, eða 4.0 m. Stærð húss er
ráðgerð 32.4x15.0 m.
Samþykkt. Lóðarleiga í sam-
ræmi við aðrar lóðarleigur á
þessu svæði og reiknist frá 1.
október. Á lóðinni skal vera 1
bifreiðastæði að stærð 25 fer-
metrar fyrir hverja 75 fermetra
gólfflatar í varanlegum bygg-
ingum á lóðinni. Lóðin leigist í
núverandi ástandi. Kvöð er um
umferðarrétt um lóðina vegna
frágangs Glerárfarvegs. Leyfi-
legui' gólfflötur bygginga er 984
f ermetrar. Gatnagerðargj ald
alls kr. 284.670.00 og greiðist
samkvæmt gildandi reglum þar
um.
Leikhúsnefnd.
Með bréfi dagsettu 22. sept. sl.
tilkynnir Leikfélag Akureyrar,
að það hafi tilnefnt Jón Krist-
insson í leikhúsnefnd af sinni
hálfu og til vara Guðmund
Gunnarsson.
Leikhúsnefnd er þá þannig
skipuð:
Ágúst Berg.
Haraldur Sigurðsson.
Jón Kristinsson.
Nefndin kjósi sér sjálf for-
mann, en bæjarráð felur Ágústi
Berg að kalla nefndina saman
til fyrsta fundar.
Umboð til undirritunar
skuldabréfs.
Bæjarráð leggur til, að Val-
garði Baldvinssyni, bæjarritara,
verði veitt fullt og ótakmarkað
umboð til þess að undirrita
skuldabréf fyrir láni hjá Lána-
sjóði sveitarfélaga að upphæð
kr. 750.000.00.
Lánið er veitt til vatnsveitu-
framkvæmda og er til 10 ára
með 9.5% vöxtum.
og hafi með höndum fræðslu-,
fyrirgreiðslu og ráðgjöf.
Einhver áform munu vera
uppi um það, að samband norð-
lenzkra sveitarfélaga, ef stofnuð
verða, taki að sér hina hálfunnu
„Norðurlandsáætlun" Efnahags
stofnunarinnar. □
- Björg Sigfúsdóttir
(Framhald af blaðsíðu 4)
hún að spyrja, þegar maður
kom í heimsókn, því hugurinn
var alltaf heima á Þverá og
alltaf bjóst hún við að komast
heim. Nú ert þú komin heim,
vinan, þangað, sem við öll för-
um að enduðu dagsverki.
Ég man síðasta daginn, sem
ég heimsótti þig á sjúkrahúsið.
Það var einn þessara ógleyman-
legu vordaga, glaða sólskin og
blíða logn. Þegar ég opnaði
dyrnar var eins og geislabaugur
í kringum gráa höfuðið á kodd-
anum. Sólargeislarnir brotnuðu
á blómunum í glugganum og
glaðlegt var brosið, sem færðist
yfir andlitið, þegar þú leitst til
dyranna og sást mig með blóm
í fangi. Björg elskaði blóm og
aldrei sá ég hana glaðari en
þegar hún sá útsprungna rós
að vori. Þá minnti svipur henn-
ar á engilsásjónu. Vinkona.
- HALLDÓR CUDLAUGSSON, HVAMMI
- Sambönd sveitarfélaga
NÚ á laugardag verða undan
rúsir í firmakeppninni í hand
knattleik, og verða leiknir 5
leikir, því 10 lið tilkynntu
þátttöku, og verður fróðlegt
að fylgjast með þessum leikj
um, og er það í fyrsta skipti
sem 10 meistaraflokkslið
leika í íþróttaskemmunni
sama dag.
Fyrirkomulag keppninnar
verður þannig, að lið sem
tapar tveim leikjum fellur úr
keppninni.
En þessi lið leika á laugar-
dag:
1. Útgerðarfélag Akureyr-
inga :— Trésmiðjurnar Einir
og Þór.
2. KEA — Vélsmiðjan
Oddi.
3. Rafveita Akureyrar og
Hagi — Gunnar Óskarsson
og Árni Árnason.
4. Lögreglan og kennarar
— Aðalgeir og Viðar og Tré-
smíðaverkstæðið Reynir.
5. SÍS — Slippstöðin.
Keppt er um glæslega
styttu sem Samvinnutrygg-
ingar hafa gefið og er það
farandverðlaun, en önnur
minni stytta vinnst til eign-
ar.
Það er von okkar að fólk
fjölmenni í skemmuna, og
þarf ekki að taka fram að
þarna koma fram margir af
okkar beztu handknattleiks-
mönnum, og kannske fáum
við að sjá nýjar stjörnur
birtast. Ath. Lágt miðaverð.
Handknattleiksdeild Þórs.
Vil taka á leigu
2ja herbergja ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 2-16-38.
Tveggja herbergja
ÍBÚÐ til leigu.
Uppl. í síma 1-17-52.
Gott HERBERGI til
leigu nákegt M. A.
Uppl. í síma 2-10-84
eða 2-10-88.
Stúlka óskar eftir
HERBERGI með eld-
unarplássi.
Uppl. eftir kl. 18.00
í síma 2-12-80.
Til sölu:
Þriggja herbergja ÍBÚÐ
á Brekkunni,4 herb.
ÍBÚÐ í Hafnarstræti.
Freyr Ófeigsson, hdl.,
sími 2-13-89.
Til leign er
HERBERG í miðbæn-
nm.
Uppl. í síma 1-10-94,
eftir kl. 8 e. h.
Heimilis
trygging
betri hagkvoRinari
S.AMM þl 1S cmiwui ÍSCiAR
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
- Einföld hevverkun
J
(Framhald af blaðsíðu 4)
þykkt, er ónýtt, en j>ar fyrir
neðan er heyið gott og af því
nánast ávaxtalykt og skepn-
ur eta jrað með beztu lyst.
Að sjálfsögðu er meiri
vinna við að gefa jretta hey
á vetrum en jrar sem hey-
geymslur eru sæmilegar eða
góðar og liaganlega fyrir
komið. En ef sunnlenzkir
bændur hefðu haft jiennan
liátt á í sumar, og verkað ein
hvern verulegan hluta heys-
ins á Jiennan hátt, hefði
niðurskurður, mjólkurskort-
ur og hallærishjálp naumast
verið á dagskrá. □
Norskur söngvari
NORSKI barytonsöngvarinn
Olav Erikson er hér söng á Ak-
ureyri 6. október sl. vakti hrifn-
ingu. Umsögn Si G. um tón-
leika þessa er meðal þess efnis,
sem ekki var rúm fyrir í þessu
blaði. □
Ti-1 sölu:
BARNARÚM
með dýnu.
Verð kr. 1.700.00.
Uppl. í síma 1-16-56.
HJÓNARÚM með
idýnum og skápum
til sölu.
Uppl. í síma 1-19-33.
etfir kl. 5 e. h.
BARNAKERRA
til sölu.
Uppl. í síma 2-17-22.
Til sölu:
Bimini 40 TALSTÖÐ.
Tómas Eyþórsson,
sími 2-13-70.
Ungar ÆR til sölu.
Uppl. í síma 1-13-06.
KÝR til sölu.
3 ungar kýr til sölu.
Sigurður Jósefsson,
Torfufelli, sími um
Saurbæ.