Dagur - 29.10.1969, Side 8
SMÁTT & STÓRT
EITURLYF
Loksins er staðfest af yfirvöld-
unum, það sem margir vissu þó
áður, að neyzla eiturlyfja hefur
fest rætur hér á landi. Og loks-
ins hafa yfirvöld bannað inn-
flutning á nokkrum tegundum
eiturlyfja eða nautnalyfja, sem
grannþjóðir okkar hafa árum
saman barist við og bannað inn
flutning á. Hin nýbönnuðu lyf
eru: LSD eða Iíselgið, maríuhu-
ana eða kannabís og hassís.
Notkun eiturlyfja, einkum
meðal ungs fólks, er orðið eitt
af mestu vandamálunum á hin-
um Norðurlöndunum og mjög
vaxandi.
GERVISYKUR OG
KRABBAMEIN
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkj
unum hafa bannað notkun
gervisykurefnisins Cyklamat,
sem notað er í sykurlausa gos-
drykki og margskonar matvæli
erlendis. Þeir drykkir, sem hér
á landi eru framleiddir og þetta
efni notað í, eru Fresca, Orange
og Valash. En það þykir víst, að
cyklamat geti valdið krabba-
meini. Ótti hefur gripið um sig
víða um lönd vegna þessa banns
vestra og bæði hér á landi og
í nágrannalöndum, er þegar
hætt að nota þetta efni í drykkj
arvöru- og matvælaframleiðsl-
unni.
N ÓBELS VERÐL AUNIN
Sænska akademían veitti í síð-
ustu viku írska skáldinu
Samuel Beckett Bókmennta-
verðlaun Nóbels fyrir árið 1969.
Þessi írski höfundur er 63 ára
gamall og er ljóðskáld, sögu-
skáld og leikritahöfundur. —
Sagði svo í álitsgerð akademí-
unnar við verðlaunaveitinguna,
Fóðrun er hin brennandi spurning
Ási Vaínsdal 24. október. Sauð-
fjárslátrun er að ljúka: í dag
eða morgun verður lógað 300
lömbum í sérsendingu á brezk-
an markað. Kjötið verður kælt
og fyrir það á að fást gott verð.
Sláturfjárþungi hangir í meðal-
lagi, en féð er mjög misjafnt.
Nautgripaslátrun tekur svo við
og síðan hrossaslátrun. Enn er
eftir að selja lífhross til Sví-
þjóðar og verður það nú um
mánaðamótin.
Eftir óþurrkasumrin 1926 og
1934 urðu mikil vanhöld á sauð
fénu og vofir sú hætta yfir
einnig nú vegna þess, að heyin
eru ekki nógu gott fóður. Nú
þarf að notfæra sér þá fóður-
fræðiþekkingu, sem til er, til að
koma í veg fyrir vanhöldin.
Eflaust þarf að bæta heyfóðrið
á fleiri en einn veg og það þarf
að gera í tíma. En hvernig það
verður gert á hagkvæman hátt,
er hin brennandi spurning.
Nú er verið í þriðju leitum á
Grímstungu- og Haukagils-
heiði, en hinar miklu og þrálátu
rigningar hafa valdið því, að
þessu var ekki lokið fyrr í
haust.
Það var ráðgert að fá flugvél
til leitar, en horfið frá því ráði,
einkum vegna hins lélega
skyggnis, en snjóhrafl hefur
lengst af verið á jörðu. G. J.
9.
HINN árlegi bindindisdagur
hefur verið ákveðinn sunnudag
inn 9. nóv. n. k. Tilgangurinn
með bindindisdeginum er sá, að
vekja almenning til umhugs-
unar um þann mikla vanda, sem
við er að fást vegna áfengis-
neyzlunnar. Landssambandið
gegn áfengisbölinu hefur skrif-
að aðildarfélögum sínum og
hvatt þau til að minnast dagsins
á þann hátt, sem bezt hentar á
hverjum stað.
Jafnframt væntir Landssam-
bandið þess, að blöð, hljóðvarp
og sjónvarp ljái starfsemi þess
lið, með því að skýra frá bind-
indisdeginum í fréttum og koma
á framfæri efni, sem berast
kann í tilefni dagsins.
F. h. stjórnar Landssambands
ins gegn áfengisbölinu.
Páll V. Daníelsson.
Eiríkur Stefánsson.
Fróðleg sýning um náttúruvernd á Norðurlandi
Nátturuverndarsynmg í Hunaveri í sumar.
Opin um næstu helgar í Náttúrugripasafninu
Á LAUGARDAGINN var opn-
uð í húsakynnum Náttúrugripa
safnsins á Akureyri „Sýning
um náttúruvernd á Norður-
landi“ og verður hún opin til
30. nóvember á laugardögum og
sunnudögum kl. 2—7 e. h. Og
kl. 5 á sunnudögum eru sér-
stakar skuggamyndasýningar.
Sýning þessi er myndasýning
en nokkur uppstoppuð dýr eru
þar líka. Mun þetta fyrsta ís-
lenzka sýning sinnar tegundar
hér á landi og eru fleiri sýning-
ar Náttúrugripasafnsins á Akur
eyri fyrirhugaðar. Bera þær
þessi nöfn: Tunglið, Steinadjásn
og Lífið í moldinni.
Náttúrugripasafnið á Akur-.
eyri hefur nú fengið þriðjungs-
stækkun á húsnæði því, er það
hefur til umráða, og er þar
myndasalur kominn til viðbót-
ar, sérstakt herbergi fyrir steina
safn og rannsóknaraðstaða í
tengslum við það.
Mjög aukinn áhugi er nú á
náttúruvernd. í sumar voru
stofnuð norðlenzk samtök um
náttúruvrend. Bráðabirgða-
stjórn samtakanna skipa: Helgi
Hallgrímsson, Hjörtur E. Þór-
arinsson, Jóhann Skaptason,
Egill Bjarnason og séra Árni
Sigurðsson.
Sýning sú, er frá segir hér á
undan, er framhald sýninga, er
upp voru settar á Laugum í
Þingeyjarsýslu og Húnaveri í
Húnaþingi, í sambandi við stofn
fundi náttúruverndarsamtaka
sl. sumar.
Náttúruverndarfélög hafa
hvorki vald eða fjármagn til
mikilla átaka. En þau vinna að
(Framhald á blaðsíðu 7)
Spilakvöld á KEA
FR AMSÓKN ARFÉLÖGIN á
Akureyi hefja vetrarstarfið með
spilakvöldi að Hótel KEA n. k.
laugardagskvöld.
Þar verða að venju veitt góð
verðlaun og dansað til kl. 2 eftiK
miðnætti við undirleik þeirra
félaga Hauks og Kalla.
Sjáið nánar í auglýsingu í
blaðinu í dag. [J
Myndin sýnir bifreiðaárekstur í síðustu viku á Grímseyjargötu. Hlífðarborð vörubifreiðarinnar
stendur í gegn um hinn bílinn. Farþegi var í aftursæti en slasaðist ekki og má heita vel sloppið.
(Ljósm.: J. I.j
Fjórðungsþing Norðlendinga á Sauðárkróki
að Samuel Beckett hefði hlotið
verðlaunin fyrir „ritverk sín,
sem með nýju formi skáldsög-
unnar og leikritsins hafi lyft
þeim upp yfir örbirgð nútíma-
mannsins".
HITT OG ÞETTA
Forseti íslands hefur skipað dr.
Gunnar Thoroddsen dómara við
Hæstarétt, en dr. Gunnar var
eini umsækjandinn. — f New
York var á dögunum seldur á
uppboði demant á stærð við
sveskjustein, fyrir jafnvirði 85
millj. íslenzkra króna. — ís-
lendingar sigla liraðbyri í áttina
til EFTA. Nágrannaþjóðir okk-
ar hafa lofað að gefa okkur
stóran „iðnþróunarsjóð“ ef við
rifum ekki seglin. Sumir hafa
kallað þetta mútur. — Brezki
lestarræninginn Ronald Biggs,
sem á sínum tíma var dæmdur
í 30 ára fangelsi en tókst, ásamt
hinum lestarræningjunuin, að
flýja eftir eitt ár í steininum,
dvelur í Ástralíu og er ákaft
leitað þar. Ránsfengur lestar-
ræningjanna frá 1953 var 600
millj. ísl. króna, beinharðir
peningar í sekkjum. — Mary
sú, er sögð er vera höfundur
pínu-pilsanna, gengur nú
lengra en áður og hefur á kven
fatasýningu ekki aðeins sýnt
pínu-pils, heldur líka pínu-
pínu-pils, sem hafa Iitla sídd.
TOGARAR FYRIR NORÐUR-
LAND
Á nokkrum útgerðarstöðum á
Norðurlandi er verið, að undir-
búa togara- eða fiskiskipakaup.
Ætla má, að skip að sömu gerð
og stærð geti átt við alla þá
staði, sem nú vilja kaupa eða
láta smíða veiðiskip til hráefnis
(Framhald á blaðsíðu 7)
DAGANA 22. og 23. þ. m. var
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Sauðárkróki. Fjórð-
ungssamband Norðlendinga er
félagsskapur, sem búinn er að
vera starfandi um áratugi, en
nú að færast í aukana. Á fjórð-
ungsþingum hafa átt sæti fyrst
og fremst tveir fulltrúar frá
hverju bæjar- og sýslufélagi, en
auk þess í seinni tíð fulltrúar
Jólamerkin
JÓLAMERKI Kvenfélagsins
Framtíðarinnar eru komin út
og eru smekkleg að vanda,
teiknuð af frú Alís Sigurðsson,
Akureyri. Merki þessi fást í
Pósthúsinu og hjá Lenu Otter-
stedt, sími 11184.
Ágóði af jólamerki Framtíðar
innar rennur til innanstokks-
muna í nýja hluta Elliheimilis
Akureyrar, sem nú er í smíð-
um. Ætti því Akureyringum og
öðrum að vera það ljúft, að
kaupa þessi jólamerki og styðja
gott og göfugt málefni um leið.
frá nokkrum kauptúnum. Starf
andi eru milli þinga svonefnd
fjórðungsráð, en formaður þess
nokkur undanfarin ár hefur ver
ið Stefán Friðbjarnarson bæjar-
stjóri á Siglufirði.
Á fjórðungsþinginu á Sauðár
króki voi'u mættir 35 fulltrúar
með atkvæðisrétti frá sýslum,
kaupstöðum og kauptúnahrepp
um og áttu nú Húnvetningar
þarna fulltrúa í fyrsta sinn.
Auk þess voru boðnir til þings-
ins með málfrelsi og atkvæðis-
rétti alþingismenn allir úr báð-
um Norðurlandskjördæmum,
atvinnumálanefnd Norðurlands
og þar var einnig forstjóri Efna
hagsstofnunarinnar, Jónas Har-
alz, og starfsmaður hennar héð-
an frá Akureyri, Lárus Jónsson
viðskiptafræðingur.
Á þinginu var breytt lögum
fjórðungssambandsins og starf-
ar það nú á breiðari grundvelli
en fyrr, og er nú kallað Sam-
band sveitar- og sýslufélaga á
Norðurlandi. Samkvæmt þess-
um nýju lögum, eiga sæti á
fjórðungsþingi, sem hér eftir
verður haldið ár hvert, 5 full-
trúar frá sveitarfélagi, sem hef-
ur yfir 5 þús. íbúa, 3 frá hverri
sýslu og frá hverju sveitarfélagi
sem hefur yfir 1 þús. íbúa, og
einn fulltrúi frá hverju sveitar-
félagi sem hefur milli 300—1000
íbúa. Sýslumenn eru sem odd-
vitar sýslunefnda sjálfkjörnir
fulltrúar, án þess þó að það
hækki fulltrúatölu.
í fjórðungsráði eiga nú sæti
átta menn, fjórir úr Norður-
landskjördæmi eystra og fjórir
úr Noi'ðurlandskjördæmi vestra
og formaður, sem fjórðungs-
þingið kýs sérstaklega. Mar-
teinn Friðriksson bæjarfulltrúi
(Framhald á blaðsíðu 5)