Dagur - 12.11.1969, Page 1
BEZTA HÚSHJÁLPIN
ÞRIFUR
ALLT
LII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 12. nóv. 1969 — 44. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstrætj 104 Akureyrl
Slmi 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Læknir kominn a Raufarhöfn
Raufarhöfn 11. nóv. Hér hefur
verið snjókoma í meira en viku
og kominn töluverður snjór og
erfiðleikar á landleiðum. Ekki
hefur verið farið á sjó þennan
tíma.
Góð tíðindi þóttu okkur það,
þegar hingað kom læknirinn
Guðbrandur Kjartansson fyrir
viku eða svo og starfar hér í
vetur og sennilega lengur. En
læknisleysið var búið að valda
okkur miklum áhyggjum.
Héðan fóru um daginn 8 þús.
kassar af fiski á Ameríkumark-
að með Hofsjökli.
Jökull hefur aflað á sjötta
hundrað tonn síðan í byrjun
ágúst.
Rjúpnaskyttur hafa mest feng
ið 20 rjúpur á dag en flestir
rniklu minna. II. H.
Rólegt mannlíf á Fljótsdalshéraði
Egilsstöðum 11. nóv. Komið er
þæfingsfæri í byggð og allir
f jallvegir ófærir. Og það er jarð
laust að kalla á Héraði. Snjór-
inn er þó ekki mjög mikill og
jafnfallinn, enda krapaði fyrst
en síðan hljóp allt í storku. Enn
er hríð og hefur kólnað veru-
lega. Jeppum einum og stórum
bílum er fært um byggðir.
Nemendur Eiðaskóla eru í
vetur 123 en ekki 110 eins og
stóð í fréttapistli frá mér síðast.
Engin hreindýr hafa komið
hér í nágrenni, svo ég hafi
heyrt, enda skotin, er nálægt
voru byggðum á veiðitíma.
Skjóta mátti 600 hi’éfrídýr, en
hvort sú tala hefur fallið fyrir
skotum veiðimanna, er óvíst því
enn er eftirliti ábótavant og
skotglaðir menn fara ekki allir
að settum reglum, því miður.
Á leið hingað eru fjórir vöru-
flutningabílar og komust þeir
við illan leik að Möðrudal og
hafa setið þar síðustu daga.
Mun þeim verða veitt aðstoð
þegar upp birtir.
Víða slitnuðu símalínur á
Suðurfjörðum, vegna ísingar og
hvassviðris. Ti-uflanir urðu á
rafmagninu vegna ísingar.
Öll útivinna liggur nú niðri
og mannlífið er fremur hljóð-
látt þessa haustdaga, síðan veð-
ur spilltust.
Flug hefur fallið niður síð-
ustu daga og bíða margir ferð-
búnir hér, þeirra á meðal nokkr
ir, sem mæta þurfa á tveim
fundum í höfuðborginni, er
fjalla eiga um raforkumál. V. S.
Magnús Ólafsson við störf í rannsóknarstofunni. (Ljósm.: E. D.)'
FYRIR skömmu, eða um mán-
aðamót sept.—okt. tók til starfa
á Akureyri ný rannsóknarstofa.
Það er Mjólkursamlag KEA,
sem kom henni upp og rekur
hana í sínum húsakynnum.
Á þessari rannsóknarstofu er
daglega fylgst með gerlamagni
í öllum seldum mjólkurvörum,
svo og því vatni, sem samlagið
notar. Tryggir þetta alveg efa-
laust jöfn gæði vörunnar og
hverskonar vandvirkni í með-
ferð þessarar viðkvæmu og
þýðingarmiklu matvöru, allt frá
því hún kemur í mjólkurbrús-
um frá framleiðendum og þar
til hún er fengin neytendum í
hendur.
Rannsóknarstofan hefur þeg-
ar fengið ýmis önnur verkefni
og má þar nefna rannsóknir á
kjöti og kjötvörum frá Kjöt-
iðnaðarstöð KEA og ennfremur
Víða liafði snjórinn gert myndir í samvinnu við trjágróðurinn um helgina. (Ljósm.: E. D.)
Gamla Svalbarðskirkjan flutt til Akureyrar í vor
Friðlýsing gamla bæjarhlutans var ranghermi
SJÖUNDI aðalfundur Minja-
safnsins á • Akureyri var hald-
inn á Hótel KEA á mánudag-
inn. Þar eiga sæti 15 fulltrúar,
9 frá Akureyrarkaupstað, 3 frá
Eyjafjarðarsýslu og 3 frá Kaup-
félagi Eyfirðinga, og er það í
hlutfalli við eignahlutföll þess-
ara aðila í Minjasafninu. Á þess
um aðalfundi voru 12 fulltrúar
mættir, auk stjórnar og
Tryggva Þorsteinssonar skóla-
stjóra, sem var gestur fundar-
ins.
Stjórnarformaður, Jónas
Kristjánsson, setti fundinn.
Fundarstjóri var kjörinn Sig-
urður O. Björnsson og fundar-
ritarar þeir Valur Arnþórsson
og Björn Þórðarson.
Skýrslu safnsstjórnar flutti
Sverrir Pálsson skólastjóri.
Safnvörðurinn, Þórður Frið-
bjarnarson, sagði frá starfi sínu
við safnið og Jónas Kristjáns-
son las og skýrði reikningana.
Fram kom m. a. að loksins
væru nú fengin öll leyfi til að
flytja gömlu Svalbarðskirkjuna
til Akureyrar og setja hana nið-
ur þar, norðan við Kirkjuhvols-
gai'ðinn, eins og lengi hefur ráð
gert verið og að unnið undan-
farin misseri.
Þær fréttir sjónvarps, að frið
lýstur hefði verið hluti elzta
bæjarhlutans á Akureyri, Fjar-
an, eða hluti hennar, hafa ekki
við rök að styðjast. Hins vegar
hagar svo til á Akureyri, að á
örlitlu svæði og einmitt á áður-
nefndum stað, er hverfi húsa,
sem staðið hafa fast að hálfri
annarri öld, lítt breytt og enn
notuð til íbúðar. Hafa hús þessi
margvíslegt sögulegt og forn-
minjalegt gildi. Unnið er að því,
að þessi hús verði varðveitt.
Starfsemi Minjasafnsins var
síðastliðið ár með sama hætti og
áður, en húsnæði takmarkar
stækkun safnsins og notagildi.
Skólar sækja safnið meira en
áður. Fjárhagur Minjasafnsins
er sæmílegur nú, en fyrirhug-
aður kii'kjuflutningur og við-
gerð á hinni gömlu kirkju,
kr.efst .allmikils fjármagns, auk
alls annars, sem fyrirhugað er
að gera á vegum Minjasafnsins.
Maður varð úti
ÁSGRÍMUR GUÐMUNDSSON
frá Þorbjargarstöðum í Skefils-
staðahreppi í Skagafirði, varð
úti í fjárleit og fannst örendur
á mánudaginn skammt frá
Skíðastöðum í Laxárdal. Hann
var þrítugur að aldri, ókvæntur
og bjó með foreldrum sínum og
bróður. Hundur Ásgríms vísaði
leitarmönnum á líkið. □
Ógurlegl brim í Úlalsfirði
hefur heilbrigðisfulltrúi sent
henni sýnishorn af mjólkurís til
rannsóknar. Og án þess að
nefna einstök dæmi hefur þessi
litla stofnun nú þegar gefið
ákveðna úrskurði, er leitt hafa
til betri framleiðslu.
Blaðamaður Dags leit inn á
rannsóknarstofuna á mánudag-
inn og hitti að máli Magnús
Ólafsson, er rannsóknir fram-
(Framhald á blaðsíðu 2)
Ólafsfirði 11. nóv. Hér hefur
verið norðaustan stórhríð frá
því á föstudagsmorgun og þar
til í gær og lokaðist þá Múla-
vegur og snjókoma svo mikil,
að allir vegir urðu ófærir og
mjólk barst ekki nema frá þeim
tveim bæjum, sem næstir eru.
Talið er, að brimið, sem hér
gerði, sé það mesta, sem komið
hefur síðan 1961. Engar skemmd
ir urðu þó á bátum og hafnar-
mannvirki virðast óskemmd,
eftir því sem séð verður.
Aftui' á móti hafa orðið nokkr
ar skemmdir á Kleifum. Brotn-
aði árabátur, sem settur hafði
verið upp undir bakka og lá við
að trillubátur færi sömu leið, en
það tókst á síðustu stundu, að
koma böndum á hann. Þá braut
brimið hlið á stóru salthúsi, er
stendur þar upp undir bökkun-
um, eign Sigurðar Baldvinsson-
ar útgerðarmanns, og eyðilagði
salt o. £1. er það var geymt. í
þessu húsi voru einnig geymdir
þrír árabátar, en þeir skemmd-
ust ekki.
í dag er minni stormur og
minna brim. Líkur eru á því,
að Drangur komist hingað inn
í dag.
En um brimið á sunnudaginn
má segja, að það gekk upp á
land og hafnargarðarnir sáust
ekki nema öðru hverju. Marg-
föld bönd voru á bátunum og
sjómenn stóðu þar vörð, bæði
þann dag og mánudagsnóttina
líka. B. S.
F ulltrúaráðsf undur
Framsóknarfélaganna á Akur-
eyri verður haldinn fimmtudag
inn 13. nóv. kl. 8.30 e. h. í Félags
heimilinu, Hafnarstræti 90.
Fundarefni: Skoðanakönnun
fyrir næstu bæjarstjórnarkosn-
ingar. □