Dagur - 12.11.1969, Side 6
6
Heimildarkvikmynd tekin í N.-Þingeyjarsýslu
(Framhald af blaðsíðu 8).
málfundir verið myndaðir, og
menn, sem hafa komið meira
við sögu en aðrir, hvað stjórn
félagsins snertir svo og fyrr-
verandi starfsmenn.
En sérstaka viðburði?
Já, fleira á þessi kvikmynd að
sýna en það, sem er í tengslum
við kaupfélagið. Til dæmis var
mynduð försetakoman í N,-
Þing. nú i sumar. Móttakan var
'bæði mynduð í Ásbyrgi og í
Skúlagarði. Einnig var héraðs-
mót í Ásbyrgi myndað og mynd
aðir voru hinir ýmsu staðir, sem
kunnir eru að fegurð og eru
sérkennileg fyrirbrigði í náttúr
unni, og þeim myndum verður
dreift um kvikmyndina og eiga
þar að göfga og glæða fegurðar-
skyn áhorfandans á þeim nátt-
úruundrum víða í sýslunni, sem
mannshöndin hefur hvergi kom
ið nálægt til mótunar.
Hvenær fáið þið sjónvarpið?
Á Snartastaðanúp hefur ver-
ið unnið að byggingu sendi-
stöðvar sjónvarps og á hún að
komast í gagnið fyrir næstu jól.
Gert er ráð fyrir að hún nái til
Vestur-Sléttu, Núpasveitiar og
e. t. v. í Axarfjöi'ð og Keldu-
hverfi. Stofnaður hefur verið
félagsskapur um þessa fram-
kvæmd, því fjármagn til hennar
þurfum við að lána vaxtalaust,
en fáum lánið endurgreitt þegar
varanleg stöð verður byggð á
þessu svæði. Fyrir nokkrum ár-
um lánuðum við fé til þjóðvega
bóta með samskonai' kjörum.
Með því var verið að reyna að
tryggja, að viðunandi samgöng-
ur innanhéraðs gætu haldist.
Hvað miðar í raforkumáluni?
Sumarið 1968 var lögð raflína
frá Keldunesbæjum um austur-
hluta Kelduhverfis og um
syðstu bæi Axarfjarðar að Ær-
læk. í þessa framkvæmd lánuðu
viðkomandi bændur og skólinn
í Lundi 1.5 millj. kr., þar af
helminginn til eins árs, en af-
ganginn til tveggja ára. Þetta
lán er vaxtalaust og er vaxta-
upphæðin 225 þúsund krónur.
Gegn þessu var lofað að leiða
rafmagn inn á öll heimili á
svæðinu sumarið 1969, að frá-
teknum Lundi, sem fékk raf-
magn 1968. Við þetta loforð hef-
ur verið staðið. Þessi háttur, um
vaxtalaus lán til nytsamlegra
framkvæmda, er orðin kvöð á
okkur Norður-Þingeyingum,
sem við neyðumst til að ganga
að, því dreifbýlið verður að geta
boðið fólki sínu lík kjör og þétt
býlingum er boðið.
Nú er Iítið kvartað i.ndan
ágangi gæsanna?
Nú hafa þúsundir gæsa ítogið
af landi burt, eftir að haía mat-
að krókinn á túnum bænda, en
tún voru í sprettu allan septem-
ber og mikil mei'gð af gæsum
spilltu uppskeru, eins og svo oft
áður.
Uinræðumar um kalið?
Vart er við þær bætandi, enda
- FRUMKVÆÐI
(Framhald af blaðsíðu 4).
vinnutæki með nýju sniði,
þar sem öðrum verður um
tilraunastarfsemi að ræða,
sem þó er þjóðarnauðsyn.
Hér er eðlilegt, að ríkið
hlaupi undir bagga, enda á
þjóðfélagið mikið í húfi.
Hér er um stórmál að ræða,
sem ekki á að taka með
ólund, eins og sumir núver-
andi valdhafar gera. jNfenn
verða að muna, að atvinnu-
vegirnir eru undirstaða alls
annars í þessu landi. □
sannast mála, að hvað sem
fræðimenn segja um orsakir
kals, vitna túnin á móti þeim
sitt á hvað. Ein er sú getgáta,
að þai' sem tún séu seint slegin
hafi jurtirnar ekki nægan tíma
til að búa sig undir veturinn,
frost og svellalög. Hvað verður
þá um þau tún, sem gæsirnar
skilja eftir í örtröð seint í októ-
ber? Þær bíta eins nærri og
ljárinn sker. Fáfróðir löggjafar
geta verið hættulegir þjóð sinni,
það sanna gæsafriðunarlögin,
segir Þórarinn Haraldsson að
lokum og leyfir tíminn ekki
lengra samtal að sinni.
Blaðið þakkar svörin. E. D.
Vantar vanan MANN
í sveit.
Vinnumiðlunarskrif-
stofan, Akureyri, gefur
upplýsingar.
Til sölu nýr
RAF.VIAGNSGÍTAR.
Uppl. í síma 1-24-88.
SINGER SAUMAVÉL,
422G, sem ný, til sölai.
Uppl. í síma 2-12-05.
Til sölu:
Heklaðar HYRNUR úr
lopa og garni.
Hafnarstræti 53, gengið
inn að vestan.
ELDRI-DANSA-
KLÚBBURINN:
Dansleikur í Alþýðuhús-
inu laugardaginn 15.
nóv. hefst kl. 9 e. h.
Miðasalan opnuð tkl. 8.
Góð músík.
Stjórnin.
ÍBÚÐ óskast.
Þriggja til fimm her-
bergja íbúð óskast til
leigu.
Sana h.f.
sími 2-14-44 (sími eftir
lokun 1-10-25).
Til sölu:
EINBÝLISHÚS,
getur verið tvær íbúðir.
Skipti á minni íbúð
koma til greina.
Uppl. í síma 1-26-63.
Lítil ÍBÚÐ
óskast til leigu.
Uppl. í síma 1-10-73,
eftir kl. 7 e. h.
ÍBÚÐIR TIL SÖLU:
3ja herbergja íbúð á
Brekkunni og 3ja her-
bergja íbúð í Hafnar-
stræti.
Freyr Ófeigsson, lull.
sími 2-13-89.
LEIKFÉLAG
BRÖNUGRASIÐ
RAUÐA eftir Jón Dan.
Tónlist: Magnús
Blöndal Jóhannsson.
Leikmynd: Jón Þórisson.
Leikstjóri: Sigmundur
Örn Arngrímsson.
Frumsýning í Leikhús-
inu finrmtudag 13. nóv.
kl. 20.30.
Frunrsýningargestir vitji
miða þriðjudag og mið-
vikudag kl. 3—5 í Ferða-
skrifstofuna.
Næstu sýningar laugar-
dags- og sunnudags-
kvöld.
RJÚKANDIRÁÐ
í Sjálfstæðislrúsinu föstu-
dagskvöld kl. 20.30.
Næst síðasta sinn.
Kjarakaup!
BARNASKÍÐI
- lækkað verð
- frá kr. 398.00.
BRYNJÓLFUR
SVEINSSON H.F.
SMÁVÖRUR:
-k KÁPUTÖLUR
-K KJÓLATÖLUR
-K PEYSUTÖLUR
-K JAIvKATÖLUR
-K VESTISTÖLUR
-K FRAKKATÖLUR
-K SAUMAVÉLA-
NÁLAR
-K SAUMNÁLAR
-K BENDLAR
-K SKÁBÖND
-K BLÚNDUR
Mjög hagstætt verð.
VEFNAÐARVORU-
DEILD
Ógangfær ÍSSKÁPUR
óskast til kaups.
(Minnst 250 1.).
Uppl. í síma 1-13-65.
Tek að SAUMA og
MERKJA rúmföt, líka
handklæði.
Uppl. í Munkaþverárstr.
20, sími 1-16-44.
UN GLIN GSSTÚLK A
óskast til að fylgja barni
á barnaheimili kl. 1 e. h.
og heinr að kvöldi.
Uppl. í Skarðshlíð 4E.
Munið
rýmingarsöluna.
STENDUR ÞESSA
VIKU.
D ömur!
Gerið góð kaup á
ÞYKKUM PEYSUM
og JÖKKUM
í vetrarkuklanum.
VERZLUNIN DRÍFA
Jólin nálgast!
ff PERSÓNULEG JÓLAKORT -
eru skemmtilegustu jólakortin.
-K -K -K
Pantið nú þegar til að tryggja afgieiðslu í tíma.
PEDROMYNDIR - Hafnarstræti 85.
Verið með
ánýju
nótunum
Háir og lágir
tónar, sem þér haf ið
ekkiheyrtfyrr
JHL
Philips framleiða nú segulbandsiæki með
tóngæðum, sem eru fegurri og skýrari
en fyrr. Þessi nýju tæki skila nær óskertu
því tónsviði, sem eyra mannsirjs greinir.
Þér munuð raunveruiega heyra mismuninn.
Philips segulbandstækin eru einkar stílhrein
og hæfa hverju nútíma heimili.
MODEL 4307
Fjórar tónrásir
Einn hraði 9.5 cm á sek.
Hámarks-spilatími 8 klst. á einni spólu.
Tónsvið 60—15000 rið á sek.
Þrepalaus tónstillir.
MODEL 4308
Fjórar tónrásir
Tveir hraðar 4.75 cm á sek. og 9.5 cm á sek.
Hámarksspilatími 16 klst. á einni spólu.
Tönsvið 60—15000 rið á sek.
Þrepalaus tónstillir.
• Þér getið kannað gæði Philips-
segulbandstækjanna
hjá næsta umboðsmanni eða í
HEIMILISTÆKI SF., Hafnarstræti 3.
PHILIPS
Umboðsmaður á Akureyri:
RADIOVIÐGERÐARSTOFA STEFÁNS
HALLGRÍMSSONAR, Glerárgötu 32.