Dagur - 12.11.1969, Qupperneq 8
Frá leikæfingu í Samkomuhúsinu. (Ljósmyndastofa Páls)
LA frumsýnir „Brönicgrasið rauða” á morgun
SMATT & STORT
LEIKFÉLAG Akureyrar er nú
iað leggja síðustu hönd á undir-
búning fyrstu leiksýningar vetr
arins í Samkomuhúsinu. Frum-
sýnt verður annað kvöld,
Ðrönugrasið rauða, eftir Jón
Dan, undir leikstjórn Sigmund-
ar Arngrímssonar, sem ráðinn
hefur verið framkvæmdastjóri
félagsins á þessu leikári. En
jafnframt þessu hefur gaman-
leikurinn Rjúkandi ráð verið
sýndur í Sjálfstæðishúsinu og í
undirbúningi eru sýningar á
Gullna hliðinu eftir Davíð Stef-
ánsson frá Fagraskógi, sem flutt
verður í tilefni af 75 ára fæð-
ingarafmæli þjóðskáldsins.
Brönugrasið rauða, sem leik-
húsgestir fá að kynnast á morg-
un, fimmtudag, er dálítið sér-
stakt að gerð og uppsetningu,
enda draumkennt og á mörkum
þess dulræna.
Með aðalhlutverkið fer Arnar
Jónsson en alls eru leikendur
tólf talsins.
Stundarkorn á leikæfingu í
Samkomuhúsinu á sunnudag-
inn, lofaði góðu um þennan ís-
lenzka sjónleik, en sýndi um
leið, að leikstjóra er vandi á
höndum að setja hann þannig
á svið, að menn njóti hans eins
og til er ætlast. Hvernig það
tekst, verður svo leikhúsgest-
'annia að dæma að frumsýningu
lokinni
Höfundurinn, Jón Dan, er 54
ára, ættaður af Vatnsleysu-
strönd. Hann hefur samið
Villigeit í björgunum
Gunnarsstöðum 11. nóv. Meðal-
vigt dilka á Þórshöfn í haust
var 16.838 kg. og hefur ekki
heyrzt um vænna fé í haust. En
alls var lógað rúmum 10 þús.
fjár.
Ógæftir hafa verið undanfar-
ið og ekkert ráið. Nokkur vinna
er þó enn við flökun kola síðan
í haust. — Kominn er vetur og
haglaust fyrir sauðfé.
í haust var-ð vart við eina geit
út í björgum, og mun hún vera
úr þeim hópi, sem tapaðist og
áður sagði frá í fréttum. En sé
svo, hefur hún gengið af í þrjá
vetur, enda var hún villt og
stygg. Ó. H.
Hrísey 11. nóv. Hér mun eins
meters jafnfallinn snjór og man
ég ekki eftir meiri jöfnum snjó
í Hrísey.
Ofurlítið af rjúpum er hér
við hús og það eru okkar rjúp-
ur, spakar mjög og njóta þær
friðhelgi og gæða sér á því, sem
til fellur.
nokkrar bækur, sögur og Ijóð.
En þetta er fyrsta leikrit hans,
sem sett er á svið.
Leikendur í Brönugrasinu
rauða eru: Arnar Jónsson, Rósa
K. Júlíusdóttir, Þráinn Kai'ls-
son, Þórey Aðalsteinsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, Þór-
í GÆR var verið að hjálpa bíl-
um frá Akureyri á Reykjavíkur
leið og fóru hjálpartæki Vega-
gerðar á undan og töfðust strax
verulega í Öxnadal. Einnig átti
að hjálpa bílum norður og var
búist við verulegum töfum á
Holtavörðuheiði, en lítið var í
gæi'morgun vitað um snjóalög
eftir norðanveðrið.
í nágrenni voru leiðir færar
að mestu, en þó aðeins stórum
bílum og jeppum.
Föndurnámskeið
GÓÐTEMPLARAREGLAN á
Akureyri hefur undanfarna vet
ur haldið opinni leikstofu fyrir
unglinga í Kaupvangsstræti 4.
Nú hefur húsakynnum þar ver-
ið breytt, gerður salur sem rúm
ar um 50 manns, og hyggst
Reglan reka allmikla starfsemi
þar í vetur, svo sem námskeið
í föndri fyrir börn 10—-12 ára
m^nudaga kl. 5.30—6.30 e. h.,
fyrh unglinga 13—15 ára þriðju
daga kl. 5.30—6.30 e. h. og fyrir
fullorðna annan hvern fimmtu-
dag kl. 8.30—10.00 e. h.
Unnir verða munir, sem ekki
hafa verið á ferðinni hér áður,
og er því tilvalið tækifæri til að
gera ódýra og smekklega jóla-
gjöf.
Þátttökugjald er ekkert að
námskeiðunum og efni selt á
kostnaðarverði.
í ráði er að auka fjölbreytni í
leiktækjum og hafa opið hús
fyrir unglinga. Verður það nán-
ar auglýst síðar. Innritun á nám
skeiðin verður í Kaupvangs-
stræti 4 uppi, miðvikudag 13.,
fimmtudag 14. og föstudag 15.
þ. m. kl. 5—7 e. h. Sími 2-12-93.
Þar verða einnig sýnishorn af
Atvinna er ekki nógu mikil
þótt enn sé unnið flesta daga í
frystihúsinu, við kolaflökun.
Sjómenn búa sig undir veiðar
með þorskanet og hrognkelsa-
veiðar þegar lengra líður á
veturinn og telja, að verð á
hrognum veröi hátt. S. F.
halla Þorsteinsdóttir, Páll Krist
jánsson, Jón Kristinsson, Odd
M. Júlíusdóttir, Kristín Kon-
ráðsdótth', Örn Bjarnason og
Níels Gíslason.
Áskriftaskírteini leikhússins
eru enn til sölu í miðasölum
félagsins. □
Telja má fært til Dalvíkur
traustum vörubílum, og mjól'k-
urbílar komu frá Grýtubakka-
hreppi en þungfært var á þeirri
leið. Ófært er til Ólafsfjarðar
og nær ófært til Húsavíkur. í
gærmorgun var ófært í Saur-
bæjarhreppi og voru mjólkur-
bílar aðstoðaðir þar.
Allir fjalla- og heiðavegir
voru í gær ófærir á Austurlandi
og fannfergi mikið á Vestfjörð-
um og víða á Vesturlandi. □
hjá templurum
því, sem unnið verður. Nánari
upplýsingar gefa Jódís Jósefs-
dóttir, sími 1-16-34, Ingimar
Eydal, sími 2-11-32 og Sveinn
Kristjánsson, sími l-13-60>
(Fréttatilkynning)
ÞEGAR ég kom að Laufási í
N.-Þing. í sumar og gekk
heim snyrtilega tröðina með
skrúðgarð á aðra hönd en grös-
ugt tún á hina, heilsaði mér
hra-fn einn eða kastaði á mig
krunki, en hreyfði sig hvergi og
sat sem fastast á garðsgirðing-
unni. Það var skrítinn fugl og
gaf frá sér hin undarlegustu
hljóð og var kátur þegar börn
komu og gældu við hann. Ekki
var ég kominn í Austurgarða
til að hitta fiðurfénað, heldur til
að biðjast gistingar fyrir mig og
ferðafélaga í félagsheimilinu
Skúlagarði, sem er þar skammt
frá og var erindinu vel tekið og
ekki í kot vísað til gistingar.
Þegar nói Þórarinn Haralds-
son bóndi í Austurgörðum leit
inn á skrifstofur Dags í haust,
spurði ég hann fyrst eftir
krumma og síðan almæltra tíð-
inda. Krummi er dauður, var
„svæfður" í haust vegna
hrekkja. Hann var farinn að
gera ýmislegt, sem slíkir mega
NOTA FUGLAMÁL
Vísindin hafa fundið út ýmis-
konar merkjamál æðri og lægrí
dýrategunda, er þau nota sín í
milli, bæði í sambandi við fæðu
öflun, ástir og aðvaranir. í vín-
ræktarbænum Oppenheim í
Þýzkalandi er mikill varðturn
og þegar varðmaður sér starana
koma fljúgandi í þúsundatali,
er vínuppskeran í hættu. Þá
gefur varðmaðurinn aðvörunar
merki, ekki til fólksins, heldur
til fuglanna. Þá hraða stararnir
sér burt. Þeir eru bókstaflega
hrakíir með eigin aðvörunar-
gargi, sem tekið hefur verið á
segulband og magnað. Svipað
þessu er notað á bandarískum
flugvöllum gegn fuglum þeim,
sem flugvélum stafar hætta af,
einkum í lendingu og flugtaki.
SKOÐANAKÖNNUN
Framsóknarflokkurinn liefur,
sem kunnugt er, beitt sér fyrir
skoðanakönnun í kosningum til
Alþingis og hafa kjördæmisþing
flokksins samþykkt að koma
henni á í hinum ýmsu kjördæm
um, m. a. í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Framsóknarfélög-
in á Akureyri undirbúa skoð-
anakönnun um val bæjarfull-
trúaefna í næstu kosningum,
eftir reglum, er um það verða
settar. Þykir slíkur undanfari
kosninga mjög lýðræðislegur og
eykur áhuga fólks og áhrif,
hvort sem um er að ræða skoð-
anakönnun, prófkjör eða bind-
andi prófkjör. Nú og á næstu
árum er líklegt, að skoðana-
könnun eða prófkjör þróist í
ákveðinn farveg, eftir því sem
reynslan kennir.
Grímsstöðum 11. nóv. Ekki er
mjög mikill snjór, en feikna
veður gerði á sunnudagskvöld,
og í allan gærdag var hið versta
veður, en vægt frost. Ekki hafa
hagar spillzt verulega, en ef-
laust eru nú komnir allmiklir
skaflar á vegi. Við vorum búnir
að taka fé og höfðum það heima
við þegar hann brast á, a. m. k.
flest.
Hingað komu frá Mývatns-
ekki gera í samfélagi manna,
sagði bóndi. Og þá spyrjum við
almæltra tíðinda.
Þórarinn Haraldsson.
Hvað er hezlt að frétta af
menningarmálum, Þórarinn?
Nefna má, að Menningarsjóð-
1078 ATVINNULAUSIR
Alls voru skráðir 1078 atvinnu-
Iausir hér á Iandi í lok október-
mánaðar, samkvæmt athugun
félagsmálaráðuneytisins. Mán-
uði fyrr voru 863 atvinnulausir.
Bendir þetta til þess, sem marg
ir óttast og liafa varað við, að
í vetur verði liörmulegt atvinnu
leysi víða um land. Það „batn-
andi ástand,“ sem oft er nefnt,
sýnist ekki auðfundið í atvinnu
málum um þessar mundir.
BÆNDUR OG BÚKOLLUR
Eyfirzkir bændur eru nú sagðir
eiga beztu kýr landsins og fram
leiða líka feitustu mjólkina,
yfir 4% feita. f því sambandi
eru nefndar góðar kýr og af-
bragðs naut, sem rétt er að
vekja athygli á með nokkru
stolti. En minna er um það rætt,
hvers vegna eyfirzkir bændur
hafa náð svo Iangt x nautgripa-
ræktinni, sem raun ber vitni, en
það er sannarlega engin tilvilj-
un. Hér má fyrst og fremst
þakka félagsstarfinu meðal
bændanna og frábærri atorku
einstakra manna, sem til for-
ystu hafa valizt í margþættum
málefnum. Eyfirðingar stofnuðu
fyrsta mjólkursamlag landsins í
nútímastíl, einnig fyrstu sæð-
ingarstöðina og hófu- síðan vís-
indalegar afkvæmarannsóknir í
nautgriparækt. Þessi saga er öll
hin merkasta og má ekki falla í
gleymsku.
DAGUR
kemur næst út miðvikudaginn
19. nóvember. Auglýsendur eru
beönir að senda handrit sín í
tíma.
sveit fjói'ir vörubílar og komust
í Möðrudal á sunnudagskvöldið,
en vegna óveðurs komust þeir
ekki lengra. Veghefill er á leið
að austan til hjálpar, en strax í
Jökuldal var töluverður snjór
til tafa.
í haust var óvenju góð tíð og
sumarið var líka hagstætt. Hey-
in urðu því góð og sæmileg
einnig að vöxtum. K. S.
ur Kaupfélags Norður-Þingey-
inga á Kópaskeri réði Eðvarð
Sigurgeirsson Ijósmyndara á
Akureyri til að gera kvikmynd
af starfsháttum félagsins, eins
og þeir eru núna og einnig af
þeim framkvæmdum í hérað-
inu, sem kaupfélagið hefur stutt
á einn og annan hátt. Bvrjað
var á myndatökunni 1968, og nú
er að mestu lokið við að mynda
það, sem gert er ráð fyrir að
setja á filmu. Á þessari kvik-
mynd kemur allt fólk fram við
störf sin, eins og þau eru við
kaupfélagið og útibú félagsins.
Sauðfjárslátruninni haf:a verið
gerð ítarleg skil, allt frá því
kindin er rekin á bíl, sem flytur
hana á sláturstað, og þar til kjöt
inu hefur verið raðað frosnu til
geymslu fyrir erlendan markað.
Þá hafa réttirnar verið mynd-
aðar, hrútasýningar i héraðinu,
fjárrekstrar og margt fleira.
Allir bæir á félagssvæðinu
koma þarna fram. Þeim verður
raðað á myndina með það fyrir
augum að áhorfandinn verður
fróðari um hreppa- og bæjar-
skipan eftir en áður. Þá hafa
(Framhald á blaðsíðu 6).
SNJÓRINN ER METER Á ÞYKKT
Heimildarkvikmynd tekin í N.-Þingeyjarsýsiu
VIÐTAL VIÐ ÞÓRARINN HARALDSSON
BÓNDA f LAUFÁSI í KELÐUHVERFI