Dagur - 10.12.1969, Side 2
2
- Bókin sem aldrei var rifuð
(Framhald af blaðsíðu 5).
áframhaldandi sölu bókarinnar.
Eitt var merkilegt við ritdóm
þennan. Svo sem að lí'kur læt-
ur koma fyrir fáeinar villur í
bókinni Búvélar og ræktun. þnð
hefði verið undur, ef slíkt hefði
ekki átt sér stað, þegar um slíka
frumsmíð var að ræða. En rit-
dómarinn bendir ekki á eina
einustu • villu, virðist ekki hafa
uppgötvað neina slíka. Þannig
ber meira á viljanum til að lasta
bókina og höfund hennar, held-
ur en getunni að leiðrétta.
Þessum mikla dómi þeirra
Búnaðarfélagsmanna var aldrei
svarað, ekki einu orði. Forlagið
taldi það vera fyrir neðan virð-
ingu sína, að snúast í því, að fá
dæmdar dauðar og ómerkar
ósæmilegar aðdróttanir ritdóm-
andans í garð forlagsins, þótt
slíkt hefði verið auðvelt. Ég
þagði lí'ka, nennti ekki að fást
við að hnek'kja fjarstæðum og
beinum ósannindum í ritdómi
þessurn, vildi heldur láta reynsl
una skera úr um það hvort bók
in kæmi að notum. Og svo vel
tókst til, þrátt fyrir það, þótt
ritdómarinn segði, að bókin
væri „lapgt frá því ,að vera not-
h;ef“ sem kennslubók (sjálfur
sagði óg í formála, að bókin
væri „ekki venjuleg kennslu-
bók“), var bókin um 15 ára
skéið notuð sem kennslubók við
bændaskólana báða. Var þáð
langt framar öllum vonum, þar
eð slíkar bækur verða fljótt
úreltar að nökkru, svo fljótt
breytist tækni og vélakostur
við búskapinn, er það hlutur
sem allir bændur kannast við.
— x —
Til hvers er ég svo að rifja
þetta upp, nú eftir 18 ár, úr því
að ég þagði við ósómanum 1952?
Til þess ber margt, en þó mest
eitt, að ég rýf nú þögnina. Nú
get ég fært bændum þau gleði-
tíðindi, að hin vonda og voða-
lega bók; Búvélar og ræktun,
var uppseld að fullu fyrir árs-
lok 1968. Nú er hún eltki lengur
að þvælast fyrir betri bókum
um búfræði. Og nú vaknar
spurningin: Eru bændur nú
ekki búnir að ná sér eftir það
áfall sem þeir urðu fyrir, er þeir
keyptu Búvélar og ræktun, 1950
og næstu ár? Er ekki alveg
óhætt fyrir snjalla og stórlega
búlærða menn, sem þá voru a-uð
vitað þess albúnir að gera betur
en ég gat gert, samanber ritdóm
inn margnefnda, að fara að
skrifa bækurnar sem bændurn-
ir bíða eftir og hafa engi beðið
eftir. Ég nefni aðeins sem dæmi:
Góða bók um búvélar, hentuga
til notkunar við kennslu í
bændaskólunum. Bók um
traktora, þar . er margt nýtt í
efni. Bók um viðhald og við-
gerðir búvéla, slík bók myndi
möi’gum bóndanum kærkomin.
Og hvað um bók um sauðfjár-
rækt? Við írlendingar eru-m
eina þjóðin á Norðurlöndum
sem á enga bók um sauðfjár-
rækt, þar geta Grænlendingar
skákað okkur þótt fámennir
séu. Fleira mætti auðvitað
nefna.
Útgáfa búnaðarbóka virðist
hafa lent í undarlegum öldudal
10—12 ár. eftir 1950. Óhugsandi
að 'kenna hinni fánýtu bók Bú-
vélar og ræktun, um það, fleira
hlýtur að koma til. Þótt á þess-
um árum kæmu út -þrjú, fjögur
afmælisrit varðandi landbúnað-
arstarf-semi og félög, kemst hin
bóklega búfræði ekki upp úr
öldudalnum svo að um muni
fyrr en 1966, er hinn kjarkaði
maður Gunnar Bjarnason
bændakennari sendir frá sér
hina miklu og sérstæðu bók
sína Búfjórfræði, sem Bókafor-
lag Odds Björnssonar gaf út
með glæsibr-ag. Með þessari bók
sinni slær Gunnar stói'u striki
yfir alla hremminguna, sem tal-
ið var að bændur hefðu orðið
fyrir 1950, er þeir voru með
„auglýsingaráróðri" narraðir til
að kaupa Búvélar og ræktun. —
Vel sé honum fyrir það. Nú er
öldin önnur heldur en var 1950,
nú kippa bændur sér ekki upp
við smámúni, nú leggur enginn
Fjérmagn tii Siippsföðvarinnar
AÐ SUNNAN bárust þær frétt-
ir í gær, að ríkisstjórnin telui'
skynsamlegt að styðja rekst-ur
stálskipasmíða á Akureyri. Um
þetta segir þingfréttaritari Tím
ans: ,
„í breytingatillögum fjárveit-
inganefndar kemur fram, að
ríkisstjórnin hefur ákveðið að
leggja 10 milljónir króna úr
■ ríkissjóði sem hlutafé í Slipp-
stöðina h.f. á Akureyri, „enda
nemi heildarhlu-tafé í fyrirtæk-
inu eigi lægri fjárhæð en 30
milljónum króna“, eins og segir
í nefndaráliti m.eirihlutans, sem
lagt var fraim á Alþingi í gæi'.
Mun ríkisstjórnin því. hafa
hætt við að fylgja fram frum-
varpi sinu um breytingar á lög-
um um Framkvæmdasjóð ís-
lands, sem rökstutt var með því,
að ætlunin væri að Fram-
kvæmdasjóður leggði fram
hlutafé í Slippstöðina.“ n
SKÚR BRANN
VINNUSKÚR norðan viðbygg-
ingar Hraðfrystihúss Ú. A.
brann í fyrradag. Mun hafa
kviknað í tjörupotti.
Nokkrir bifreiðaárekstrar
hafa orðið í hálkunni undan-
farna daga. Ölvun er nokk-ur
öðru hverju í bænum, en rólegt
á vettvangi lögreglunnar, þegar
á heildina er litið, tjáði hún
blaðinu í gær. □
Félag enskukennara á fslands
FYRIR nckkru var haldinn
stofnfundur Félags enskukenn-
ara á íslandi. Markmið félagsins
er að auka innbyrðis kynningu
allra ensku-kennara á öllum
skólastigum o-g að vinna að
fræðslu um enskukennslu. Fé-
lagið er opið öllum enskukenn-
urum á landinu.
Stofnfundurinn var mjög vel
sóttur, og hafa þegar um 70
manns gerzt stofnfélagar. Á
fundi þessum voru kosin í
stjórn félagsins: Heimir Áskels-
son (form.), Auður Torfadóttir,
Leo Munro, Haukur Sigurðsson
og Arngi'ímur Sigurðsson.
Framhaldsstofnfundur var síð
an haldinn í Menntaskólanum
við Hamrahlíð laugardaginn 6.
des. Auk venjulegra fundar-
stanöa voru á fundinum sýndar
nokkrar fræðslukvikmyndir úr
myndaflokknum View and
Teach. Myndi-r þessar eru gerð-
ar af BBC í samvinnu við
British Gouncil, se-m hefur lán-
að -þær hingað til lands fyrir
milligöngu ræðismanns Breta
•hér.
(Fréttatilkynning frá Félagi
enskukennara).
út í að hræða bændur eins og
gert var með ritdómnum um-
rædda 1952, í Frey, enda væri
nú að ráðast á hærri garð held-
ur en þá var. Ótrúlega fátt og
magurt hefir þó verið skrifað
um Búfjárfræði Gunnars, og við
að lesa formálsorð hans að bók-
inni, læðist að manni sá grunur,
að enn sé nokkuð eftir af þeirri
húð, sem af var rist, er forráða-
menn búnaðarmála dæmdu Bú-
vélar og ræktun 1952, þótt nú
sé farið hægar í sakirnar.
í næstu grein kem ég að enn
einni búnaðarbók, sem ekki
hefir verið rituð, og ég tel um-
ræðuvert.
Reykjavík, 28. janúar 1969.
Árni G. Eylands.
ÓSKILALAMB!
Síðastliðið haust var mér
dregið grátt hrútlamb
með mínu marki: biti
aftan liægra, stýft, iriti
aftan vinstra. Þetta lamb
á ég ekki og getur réttur
eigandi vitjað andvirðis
]>ess til mín.
Gunnþóra Jónsdóttir,
Skógum, Öxarfirði.
KVENÚR ftindið.
Uppl. í síma 1-23-14.
TAPAÐ
Eyíirðingar — Nær-
sveitamenn!
Rauðjörp HRYSSA tap-
aðist um mánaðamót
júní-júlí s.l. Hún er 8
vetra, íremur smá, ]>étt-
vaxin. Marik: Biti fram-
an, fjöður aftan bægra.
Biti aftan vinstra. —
Brennimerkt á framhóf-
um: S8. AK. Þeir, sem
gætu gefið upplýsingar
um dvalarstað bennar'
vinsamlegast bringi
í síma 2-13-65.
Fjögurra sæta SÓFI
til sölu.
Uj>pl. í síma 2-10-35.
Til sölu:
BRÚÐARIvJÓLL og
slör, st. 12. — Til sýnis í
Brekkugötu 6.
BARNALEIKGRIND,
sem leggja má saman, til
sölu.
Uppl. í síma 2-11-43.
Til sölu:
Ódýrt BORÐSTOFU-
BORÐ, ifjórir stólar og
rúmfataskápur.
Uppl. í síma 1-16-80.
Ný BORÐSTOFU-
HÚSGÖGN til sölu.
Mjög falleg.
Uppl. í síma 1-28-23.
HOKOPELLITTA snjóhjólbarðar
Eyrirliggjandi í flestum stærðum.
JÓHANN SIGVALDASON,
Smurstöð ESSO — við Þórshamar.
RÚMTEPPI
SÆNGURVERADAMASK
DÚNHELT LÉREFT
FIÐURHELT LÉREFT
GÆSADÚNN
HÁLFDÚNN
PLASTKURL
VEFNAÐARVÖRUDEILD
Nýjustu bækur Máls og menningar og
Heimskringlu
REYKJAVÍK
Verð íb. og í litprentaðri öskju, kr. 1200.00.
LETKRIT - IV. bindi
William Shakespeare. Helgi Hálfdánarson J>ýddi.
Verð ób. kr. 400.00, íb. kr. 500.00, skinnb. kr.
600.00.
INNAN HRINGSINS
Guðmundur Böðvarsson. Ljóðabók. Obundin kr.
290.00, íb. kr. 370.00.
ÞAÐ SEM ÉG HEF SKRIFAÐ
Skúli Guðjónsson. Ritgerðaúrval 1931—1966. —
Verð ób. kr. 360.00, íb, kr. 450.00.
MANNSÆVI - I og II
Konstantín Pástovskí. Halldór Stefánsson þýddi.
Verð hvors bindis ób. kr. 300.00, í 1>. kr. 360.00.
UPPELDI UNGRA BARNA
Mattbías Jónasson sá um útgáfuna. Verð ób. kr.
320.00, íb. kr. 410.00.
ÚRVALSRIT
Karl Marx og Friedrich Engels. Tvö bindi. Verð
íl). kr. 600.00.
ÆVISAGA ÁRNA PRÓFASTS
ÞÓRARINSSON AR
Þórbergur Þórðarson. Fyrra bindi. Verð ób. kr.
540.00, íb. kr. 650.00, skinnb. kr. 760.00.
GRIÐASTAÐUR
William Faulkner. Skáldsaga. Guðrún Jfelga-
dóttir þýddi. Verð ób. kr. 270.00, íb. kr’ 350.00.
LJÓÐMÆLI
Grímur Thomsen. Sigurður Nordal sá um útgáf-
una. Verð ób. kr. 600.00, íb, í alskinn kr. 900.00.
(Verðið er tilgreint án söluskatts).
MÁL og MENNING
LAUGAVEGI 18
REYKJAVÍK