Dagur - 28.01.1970, Side 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
FERÐAKOSTNAÐUR SJÚKLINGA
í LÆKNISLAUSUM HÉRUÐUM
EITT mesta vandamál margra
héraða nú, er læknaskorturinn.
Ibúarnir búa þar við svo mikið
öryggisleysi oj* erfiðleika, að
vai-t er hægt að lýsa með orð-
um. Þótt aðstöðumunur lands-
ins barna sé mikill á mörgum
sviðutn, er hann e. t. v. mestur
í þessum efnum. Ef slys bera
að höndum eða snögg, lífshættu
leg vei'kindi, er ýmsum atvik-
um háð, að mögulegt reynist að
ná til læknis í tæka tíð.
Þótt óvissan sé mest yfir
vetrarmánuðina í afskekktum
og snjóþungum héruðum, sem
búa við ófullkomið vegakerfi,
er hún hvarvetna fyrir 'hendi
þar sem miklai' vegalengdir erul
til Iséknis í vetrarveðráttu. Það
hefur því orðið f-angarað, að
Fjárhagsáætlun rædd
FR AMSÓKN ARMENN ræða
fjárhagsáætlun Akureyrarkaup
staðar í félagsheimilinu Hafnar
stræti 90 í kvöld kl. 20.30 (At-
hugið breyttan fundardag).
Sigurður Óli Brynjólfsson
bæjarfulltrúi hefur framsögu.
Þarna gefst gott tækifæri fyrir
þá, sem kynnast vilja bæjar-
rekstrinum og er því sjálfsagt
fyrir framsóknarfólk að fjöl-
menna á fundinn. □
barnshafandi konur, sem búsett
ar -eru í slíkum héruðum, hafa
tekið sig upp nokkrum viku-m
áur en þær vænta sín og flutt
til þeirra staða, sem hafa næga
lækna og sjúkrahúsþjónustu.
Þessu fylgir mi-kill kostnaður og
ósanngjarn og óeðli-legt að þær
beri hann. Ef þessi sjálfsagða
þjón-usta -er ekki til staðar heimy
í héruðunum, eins o-g búið er að
viðurkenna að e-igi að vera,
með því að skipta landinu öllu
í lsöknishéruð, þá má ekki
minna vera en að þeir sem
þurfa á henni að halda o-g fá
hana ekki í sinni heimabyggð,
þurfi ekiki að borga ferðakostn-
aðinn. Annar kostnaður og
óþægindi er næg fyrir því.
í lögum um almannatrygging
ar segir nú, að sjúkrasamlög
skuli greiða „óhjákvæmilegan
flutningsk-ostnað sjúks samlags
manns í sjúkrahús innanlands
að þrem fjórðu hlutum, enda sé
flutningsþörfin svo bráð og
heilsu hins sjúka svo farið, að
hann verði ekki fluttur eftir
venjulegum farþegaflutninga-
leiðum að dómi samlagslæknis
og sjúkrasamlagsstjórnar."
Þetta lagaákvæði er gott svo
langt sem það nær. Hins vegar
skiptir a-ilt öðru máli séu héruð
in læknislauis. Þá er eðlilegra
(Framhald á blaðsíðu 7)
Á bændaklúbbsfundi á mánudaginn.
(Ljósm.: F. Vestmann)
Ylir 100 manns á bændaklúbbsfundi
Ekki var vanþörf á frestun
Á SfÐUSTU dögum þingtímans
fyrir jól, lagði fjárnválaráðherra
fram, í sambandi við EFTA-
málið, frumvarp að nýrri toll-
skrá og lagði áherzlu á, að það
yrði afgreitt fyrir jól, ásamt
sjálfu EFTA-málinu, söluskatts
hækkun o. fl. Framsóknarmenn
mótmæltu því kröfíuglega, að
slík flausturs vinnubrögð yrðu
viðliöfð, um afgreiðslu slíkra
stórmála.
Sá stjórnln þá sitt óvænna og
var tollskrá og söluskattinum
frestað fram yfir áraniót.
Þegar tollskráin kom úr þing
nefnd, úr fjárhagsnefnd neðri
deildar 22. jan. kom í ljós, að
nefndin í heild eða meirihluti
hennar, hafði Iagt fram hvorki
meira né minna en 160 breyt-
ingartillögur við tollskrána og
vorn þær allar samþykktar.
Er því fravn komið, nokkuð
glögglega, að ekki var vanþörf
á frestun málsins. Framsóknar-
menn lögðu til, að tollur yrði
felldur niður á ýmsum nauðsyn
legum vélum til atvinnuveg-
anna, en fram kemur, að ýmsar
af þessnm vélum munu hækka
í verði, af því að fyrirhuguð
söluskattshækkun er meiri en
lækkun á tolli. Ekki vildi fjár-
málaráðherrann á þetta fallast.
ÞRÁTT fyrir litla fundarsókn fé-
laga, sem svo mjög er undan kvart-
að á síðustu tímum, er aðra sögu
að segja um klúbbfundi eyfirzkra
bænda, sem jafnan fjölmenna.
I fyrrakviild mættu 110 á bænda-
klúbbsfundinum á Hútel KEA.
F.n fundir þessir eru oftast mjög
fróðlegir, þvi búvísindamenn flytja
þar erindi um einhvern þátt bú-
skapar hverju sinni. Á eftir bera-
bændur og ráðunautar þeirra
fram fyrirspurnir, skiptast á skoð-
unum og deila jafnvel um bú
fræðileg atriði. Framsöguerindi og
umræður vekja jafnan til umhugs-
unar og nýjungar eru kynntar.
Bændaklúbbsfundirnir eru eins
konar háskóli eyfirz.kra bænda.
Og þótt menn fari sjaldan af slík-
um fundum með „patent“-lausnir
í vasanum, eru menn jafnan
nokkru fróðari.
Á bændaklúbbsfundinum á
mánudaginn flutti Ólafur Sigurðs-
son forstöðumaður Teiknistofu
landbúnaðarins framsöguerindi
um byggingar, byggingarkostnað,
lánamál o. fl. En íundarstjóri var
Sveinn Jónsson.
Að erindi hans loknu hófust tun-
ræður er stóðu fram á nótt.
Ólafur Sigurðsson
flytur ræðu sína.
Reglugerð fyrir Framkvæmdasjóðinn
Á BÆJ ARST J ÓRN ARFUNDI
Akureyrar í gær, mun ný reglu
gerð fyrir Framkvæmdasjóð
Akureyrarlkaupst'aðai' hafa ver-
ið til fyrri umræðu. í nýju
reglugerðinni er m. a. þetta:
I
Framkvæmdasjóður Akureyr
ar er sjálfstæður sjóður í eigu
Akureyrarbæjar. Bæjarsjóður
Akureyrar er ábyrgur fyrir öll-
uim skuldbindingum sjóðsins.
Bræðslirfiskuriim er kærkominn
Vopnafirði 26. janúar. Nokkrir
sjómenn búa sig undir hákarla-
veiði eins og undanfarna vetilr.
Þorra var blótað að venju í þorra-
byrjun og fór blótið fram í fé-
lagsheimilinu í Vopnafjarðarkaup
stað. Þar komu um 200 manns og
skemmtu sér vel við mat, drykk,
söng og dans. Þessi samkoma var
f'yrir allt sveitarfélagið, bæði sveit
og kauptún.
Undanfarinn hálfan mánuð lief-
ur verið vorveður og er snjór nær
allur horfinn og svellin líka.
Félagslíf er ekki fjölskrúðugt,
en þó er ekki að sjá, að það hafi
dolnað með tilkomu sjónvarps.
Fiskur liefur enn ekki borizt á
land, en menn horfa vonaraugum
út á loðnumiðin og væri J>að sann-
arlega lieppilegt, ef einhver
bræðslufiskur fengist, því verk-
smiðjan býr sig undir það að taka
á móti loðnu, ef hún veiðist.
Kristján Valgeir býr sig undir
loðnuveiðar en Brettingur er á
togveiðum. — Þ. Þ.
Sjóðurinn er í vörzlu bæjar-
sjóðs, en með aðskildum fjár-
hag og bókhaldi.
Hlutverk og markmið Fram-
kvæmdasjóðs Akmeyrar er að
stuðla að viðha-ldi og eflingu at-
vinnulífs bæjarins. Markmiði
sínu skal sjóðurinn leitast við
að ná eiftir þvi, sem fjárhagur
hans hverjit sinni leyfir, með:
a) Lánveitingum til fyrir-
tækja ag stofnana, til langs eða
skamms tíma.
b) Lánveitingum til bæjar-
sjóðs og bæjarstofnana til fram
kvæmda sem beint eða óbeint
stuðla að bættri jvjónustu bæj-
arins við atvinnulífið.
c) Með því að ábyrgjast lán
fyi'irtækja og einstaklin-ga (veit
ingu bæjarábyrgða) samkvæmt
ákvörðun bæjarráðs og bæjar-
stjórnar að fengnum m-eðmæl-
um atvinnumálanefndar.
d) Með því að kosta eða veita
styrki til sérstakra kannana og'
athugana í sambandi við nýjar
greinar atvinn-urekstrar, sem til
greina k-oma á Akureyri. Einnvg
er sjóðnum heimilt að veita
styrki til ýmisk-onar fræðilegra
og hagnýtra athugana á atvinnu
líf bæjarins eða á skilyrðum til
atvinnurekstrar í bænum.
e) Að standa fyrir bvgging-
um á og leigja út eða selja staðl
að iðnðaarhúsnæði, sjálfstætt
eði í samei-gn með eða í samráði
(Framhald á blaðsíðu 6).
í kaffihléi afhenti formaður
Búnaðarsambands Eyjafjarðar.Ár-
mann Dalmannsson, farandgrip
þann fyrir snyrtimennsku í um
gengni," er Búnaðarsambandið
veitti nú í fyrsta sinn og kynnt
var á bændadeginum í sumar. En
verðlaunagripinn hrepptu búend-
(Framhald á blaðsíðu 2)
Kindur fundust
við Krossá
Stórutungu 26. janúar. í desember
pöntuðum við bóluefni gegn in-
flúensu. Fengum við helming þess
er við óskuðum og kom Aldís Frið-
riksdóttir, hjúkrunarkona, með
Jvetta fram í barnaskólann og
sprantaði fólkið þar. Öskubylur
var þegar leið á daginn og lentu
margir í harðræðum. Inflúensan
kom á fjóra bæi í dalnum og er
nú'búin.
í eftirleit fóru nýlega tveir
menn, Ásmundur Valdimarsson og
Tryggvi Höskuldsson og fóru á
tveim snjósleðum. Fundu þeir
tvær ær veturgamlar frá Einars-
stöðum í Reykjadal í beztu hold-
um. Þær voru sunnan við Krossá
í ágætum högum.
Greiðar samgöngur eru hér
fram á fremstu bæi. Gjaffrekt er
nokkuð en tíð er ágæt nú. — Þ. J.
Byrjaðir að skaflajárna á Dalvík
Bakkagerði, Svarfaðardal, 26. jan.
Allar bílaieiðir eru opnar og eiiin-
ig hefur vegurinn til Ólafsfjarðar
verið opinn síðustu 10 daga. En
hálka er hér i sveit og ekki nema
á stöku stað á vegum, að ekið er
á auðum vegi. Öll Svarfaðardalsá
er undir ís. Þar er bæði skauta-
svell og sleðafæri, og þar væri
hægt að teygja gæðingana.
Mikinn snjó gerði snemma í
nóventber og gerði harðfenni. —
Lægðir og gil eru full af gier-
hörðu hjarni og vinna hlákublot-
arnir undanfarið lítið á því.
Sauðkindur hafa ekki farið úr
húsi síðan í núvember en hross
liafa gengið fram undir þetta og
eru í góðurn holdum.
Byrjað er að skaflajárna, a. m.
k. á Dalvík og verður farið á gæð-
ingana ef að líkum lætur.
Kvenfélagið hafði spilakvöld f
þinghúsinu á Grund í gærkveldi.
Var spilað á 17 borðum og svo var
tombóla að gömlum og góðum sið.
Flensan kom iiingað um jólin.
Svo vilcli til, að samkomur voru á
þriðja í jólurn og aftur síðar og
fékk veikin þá mikil útbreiðslu-
skiiyrði og fór á flesta bæi en
nokkrir sluppu þó. Nú cr veikin
búin eða heyrist naumast nefnd
lengur. Og nú fara menn að hugsa
um skattaskýrslurnar sínar. tí.V.