Dagur - 04.03.1970, Side 6
6
Snjómokstur á götum Akureyrar. (Ljósm.: E. D.)
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
Þegar við sóttum um íbúðina,
átíi verð hennar að vera 780
þúsund, en það var komið úpp.
í 930 þúsund, þegar hún var af-
hént. Mann muaar um minna.
Svo að við keyptum okkur
bara gamalt hús, en gallalaust,
og þökkum okkar sæla að
sleppa.“
SAMÚÐ OG RÉTTUR
Eflaust á Iand eftir að hækka í
verði hér á landi, eins og svo
víða annarsstaðar, bæði til bú-
reksírar og annarra nytja, og
til að fullnægja þeirri „ástríðu“
þéttbýlisfólks, að eiga jörð til
að ganga á. Um það sagði for-
seti B. í. einnig:
„Það skal jafnframt tekið
fram, að pcrsónulega hef ég
samúð með kaupstaðafólki og
skil þörf þess að eiga stað að
sumri til, þar sem það getur í
ró og næði hvílzt andlega og
líkamlega utan við skarkala
þéttbýlisins. En bændur mega
ekki fórna um of jörðum sínumi
og búskaparaðstöðu fyrir þétt-
býlisfólkið. Aðgát skal höfð á
öllurri sviðum.
ASTRÍÐA
Með m'yridun þéttbýlis hér á'
landi Vex ástríða manna til að
MENNTAMÁLANEFND neðri
deildar Alþingis flutti í gær
frumvarp til laga um takmark-
aða náttúruvernd á vatnasvæði
Mývatns og Laxár. En í því
Enskt ráð við líkþorni
FÓLK, sem vill losna við lík-
þorn, á að fá sér eina sítrónu,
skerá áfhénrii þykka sneið, sem
er lögð yfir líkþomið og fest
vel. Tetta er gért, þégár farið
er að sofa. Næstá mórgún er
líkþómið skafið búrt. Verði
nokkuð eftir af því, er ný
sítrónusneið lögð yfir það næsta
kvöld, eðá óftár, gérist þess
þörfi
Kona hér í bæ, sem ég gaf
þessa ráðleggirigu, losnaði fljótt
við líkþornið. Þetta mun því
vera' mjög gott ráð, óg ódýr
læknirig er það.
eiga friðsælan blett eða land-
skika í sveit. Þetta gerði forseti
B. í. að umtalsefni fyrir
skönunu með eftirfarandi orð-
um:
„Allir íslendingar vilja eiga
land, þeiin er það í blóð borið.
Búnaðaríélag íslands varar
bændur alvarlega við því að
selja hluta af jörðúm sínum
undir sumarbústaði, sem svo
mjög hefur tíðkazt og er enn í
fullum gangi. Landið er góð
eign og glæsileg. Margir bænd-
ur, sem selt hafa land af jörð-
um sírium og gengið svo nærri
sér, að þeir geta varla þver-
fótað utan fyrir sínum eigin
bæjardyrum, sjá nú, að þeir
hafa „keypt köttinn í séknum“
cg harma horfið land. Bændur
eiga að leigja landið og láta
leiguna fylgja verðþróuninni.“
utangátta í þessu efni, að nauð-
SOFIÐ Á VERÐINUM
Þegar fíknilyfjaalda reið yfir
nágrannaþjóðir okkar, þótti það
fjarlægt mál. Þá var sofið á
verðinum. Þessi alda hlaut að
ná hingað, svo sem margt ann-
að öldurót umheimsins, er breyt
ir lífsvenjum. Og fíknilyfin
komu og þau breiddust út með-
al ungs fólks. Alþingi var svo
synleg löggjöf, hversu með ætti
felst m. a. stofnun náttúrurann
sóknarstöðvar við Mývatn. Gert
er ráð fyrir, að til þeirrar stöðv
ar komi fé úr erlendum vísinda
sjóði.
í menntamálariefnd eru:
Benedikt Gröndal, Birgir Kjar-
an, Bjartmar Guðmundsson,
Eysteinn Jónsson, séra Gunnar
Gíslason, Magnús Kjartansson
og Sigurvin Einarsson.
Frumvarpið er komið frá
Náttúruverndarráði. í fyrstu
grein frumvarpsins er kveðið á
um sérákvæði hvað snertir
vatnasvæði Mývatns og Laxár,
um verndun lands, jarðrask og
efnistöku til annars en búskap-
ar. Og óheimilt sé að raska hin-
um upprunalega svip landsins
á umræddu svæði nema með
samþykki Náttúruverndarráðs.
Breytingar á hæð stöðuvatna og
fallvatna sé óheimil, svo og
breyting á rennsli fallvatna
o. s. frv. □
að fara vantaði. í raun og veru
vai' sofið þar til ungt fólk reis
upp, kallaði til sín fréttamenn
og slöngvaði sannleikanum
framan í þjóðina. Þá hrukku
menn við. Eiturlyfjaneyzlan er
orðin margfalt útbreiddari en
nokkur hafði getað gert sér
grein fyrir áður af opinberumi
fréttum. Vel sé þessu unga
fólki, að benda á hættuna.
SÉRFRÆÐINGAR FENGNIR
Nú mun eiturlyfjadeild WHO
senda hingað til lands sérfræð-
inga til að kynna sér hið nýja
viðhorf, að því er heilbrigðis-
málaráðherra lætur hafa eftir
sér. En íslenzka tollgæzlan mun
hafa óskað þess, og jafnframt
er í ráði, að senda íslendinga
til að kynna sér erlendis, hvað
til varnar má verða hér á landi.
En hass- og maríjuananeyzla
unglinganna er þegar orðin við-
urkennd staðreynd, þótt í
byrjun sé.
HVAÐ GERIST IIÉR?
Ekki er lengur unnt, að láta
sem þetta mál komi okkur, hér
fyrir norðan, ekki við. Það eru
bæði mánuðir og ár sí'ðan áhang
enda fíknilyfja varð vart í höf-
uðstað Norðurlands, því miður
og var frá því sagt hér í blað-
inu, en komst ekki á umræðu-
stig að öðru leyti. En hvað ger-
ist nú hér þegar alda fíknilyfja-
neyzlunnar hefur náð hingað til
lands? Kynni ekki svo að fara
í skólum þessa bæjar, að innan
tíðar yrði hinn nýi bölvaldur
kominn þar, við hlið hins
gamla kunningja og sálufélaga,
áfengisins, sem tugir eða jafn-
vel hundruð skólafólks hefur
þegar fallið fyrir?
HVERS MÁ VÆNTA AF
ÞEIM UNGU?
Ungt fólk reis upp fyrir sunnan
og benti þjóðinni á ósómann,
sem enginn hefur mótmælt, og
þetta fólk tjáði sig fúst til sjálf-
boðaliðsstarfa í baráttunni við
eiturlyfin. Hvers megum við
vænta af okkar unga fólki, sem
hvarvetna vill láta til sín taka?
Vill það reisa það merki, sem
fullorðnir virðast ekki valda?
Viil það stíga á stokk og
strengja heit í baráttu við
áfengi og eiturlyf og ganga
sjálft á undan? Mikið fagnaðar-
efni væri það, og mikil og
verðug verkefni eru það ungri
og óánægðri kynslóð, sem lang-
ar til að bæta heiminn og tekur
brátt við hlutverki hinna eldri.
TAPAÐ
Sá, sem tók FRAKKA í
misgripum í Ak.kirkju
6. jan. síðastliðinn, vin-
samlegast skili honum í
Naust 4 (sími 2-16-57).
GÖNGUSTAFUR,
svartur, með hvítu hand-
fangi og silfurhólk, tap-
aðist fyrir all löngu.
Vinsamlegast skilist á
afgreiðslu Dags.
VESKI með peningum í
tapaðist síðastliðinn
laugardag við Útvegs-
bankann. Finnandi vin-
samlegast Iiringi í síma
1-20-32, eða í Efnagerð-
ina Flóru.
ÓSKAST TIL LEIGU!
Fullorðin, einhleyp
kona, sean vinnur úti,
/vantar 1 stofu og eldhús
eða eldunarpláss fyrir
1. apríl. Til greina kæmi
lítilsháttar heimilishjálp
eftir samkomulagi.
Uppl. í Eiðsvallagötu 22
þriðju hæð.
Menntaskólastúlku
vantar HERBERGI frá
1. apríl—20. júní.
Uppl. í síma 1-18-95,
herhergi 12 eða 18.
Piltur í M.A. óskar að
taka HERBERGI á
leigu.
Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Dags.
ÍBÚÐ!
3ja herbergja íbúð til
sölu á góðurn stað.
Freyr Ófeigsson, lidl.,
sími 2-13-89.
Til sölu:
HRÆRIVÉL
með hakkavél.
Uppl. í síma 2-16-61
á kvöldin.
Til sölu:
SKÍÐI, Kastle Snow
Prince, lengd 2.05 m.
Uppl. í síma 1-11-16
eða 1-25-47.
Til sölu:
2 TÆKIFÆRISKJÓL-
AR ásarnt tækifæris-
kápu. Sem nýtt. Meðal
stærð.
Uppl. í síma 1-18-51.
Til sölu:
Pedigree BARNA-
VAGN. — Barnakerra
óskast til kaups.
Uppl. í síma 1-17-87
á kvöldin.
Til sölu:
Vel meðfarin
Hoover ÞVOTTAVÉL,
sem sýður.
Uppl. í Skarðshlíð 12B.
Til sölu:
Nokkrir DÍVANAR,
ÚTVARP með segul-
bandi og BÓKASKÁP-
UR.
Uppl. í síma 2-12-33.
Til sölu:
Raf ha-ÞVOTT A-
POTTUR, 100 lítra.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-16-47.
Sel SMURBRAUÐS-
TERTUR.
Elín Friðriksdóttir,
sími 2-11-74.
BÆNDUR - athugið!
Þeir bændur, sem hyggjast byggja votheysturna
á komandi sumri með mótum Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, þurfa að hatfa pantað þau hjá ráðu-
nautum sambandsins fyrir 14. marz n.k.
BÚNAÐARSAMBAND EYJAFJARÐAR.
FYRIR DÖMUR:
GÖTUSKÓR - INNLEGGSTÖFLUR
IIÁ VAÐSTÍGVÉL
FYRIR HERRA:
GÚMMÍSKÓR - stærSir 41-46
INNLEGGSTÖFFLUR
BARNAVAÐSTÍGVÉL
— RAUÐ og BLÁ, dregin saman í opið
— stærðir 23—32.
SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL
FRUMVARP UM NÁTTÚRUVERND
á vatnasvæði Mývatns og Laxár
Sæmundur G. Jóhannesson.