Dagur - 04.03.1970, Qupperneq 7
7
Ekker! prófkjör veg na
hræðslu Sjállstæðismanna
Dalvík 3. niarz. Fyrir hálfum
mánuði eða svo, var sett upp
300 metra löng togbraut í
Böggvisstaðafjalli og hefur hún
verið mikið notuð. Togbrautin
er drifin af dráttarvél með spili.
Það voru Kristján Jónsson
hótelhaldari, Baldur Friðleifs-
son, Jón Halldórsson o. fl., sem
að þessu stóðu, með aðstoð fyrir
tækja og velviljaðra manna.
Arnar hefur verið í rækjuleit
og rækjuveiðum og nú um helg
ina fékk hann ágæta veiði einn
dag norðaustur af Grímsey á
miðunum, sem Hafþór fann í
vetur. Niðursúðuverksmiðja K.
Jónssonar & Co. tók aflann til
vinnslu.
Níræður er í dag merkur Dal
víkingur, Halldór Sigfússon, nú
á Elliheimilinu Grund, smiður
og sjómaður fyrrum.
Ekki hefur prófkjör farið hér
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar rnóður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SOFFÍU JÓNSDÓTTUR,
Karls-rauða-torgi 16, Dalvík.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og
starfsliði Fjórðungssjúkrainissins á Akureyri og
Kristneshælis, fyrir góða umönnun og hjúkrun í
dvöl hennar þar.
Haraldur Zophoníasson, Þuríður Magnúsdóttir,
Sveinbjörn Zophoníasson, Geirrún ívarsdóttir,
Petrína Zophoníasdóttir, Sveinn Jóhannsson,
Rósa Sveinsdóttir.
Kveðjuathöfn um móður okkar, tengdamóður og
önnnu,
KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR
írá Syðra-Holti, Svarfaðardal,
sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
25. febrúar, fer fram í Dalvíkurkirkju laugar-
daginn 7. marz kl. 2 e. h.
Jarðsett verður að Tjörn sama dag.
Synir, tengdadætur og börn.
Föðursystir mín,
HLAÐGERÐUR LAXDAL,
verður jarðsungin frá Svalbarðsstrandarkirkju
föstudaginn 6. marz kl. 2 e. h. — Blóin vinsam-
legast afþökkuð. Þeim, senr minnast hennar, er
bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Oddný Laxdal.
Alúðarþakkir til allra þeirra, er sýndu okkur sam-
úð og lieiðruðu minningu
PÁLMA FRIÐRIKSSONAR,
Gránufélagsgötu 5, Akureyii.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Jóhanna M. Pálmadóttir, Matthías Einarsson,
Andrea Pálmadóttir, Bjarni Jónsson,
Guðbjörg Pálmadóttir, Gunnar M. Guðmundss.,
Jóliannes Pálmason, Jóhanna Árnadóttir,
barnabörn og systir hins látna.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem vottað
hafa okkur samúð sína og veitt hjálp við andlát
og jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
AÐALSTEINS TRYGGVASONAR
frá Jórunnarstöðum.
Læknar og hjúkrunarlið að Kristneshæli, hafið
öll hjartans þökk fyrir umönnun við hinn látna.
Guð blessi ykkur öll.
Pálína Frímannsdóttir og aðrir vandamenn.
*-gjg3EBSBMMWWHW1iílTiBBr»WI»llililí8llPfWgBBBBMW—W8W——
fram svo ég viti. En Framsókn-
arfélagið gekkst fyrir því, að
skoðanakönnun eða prófkjör
færi fram sameiginlega á Dal-
vík. Samþykktu félögin það
nema félag Sjálfstæðismanna
og strandaði málið á því.
Afli togbáta hefur verið sæmi
legur þegar gefur og fiskurinn
er góður, en ógæftir hamla
veiðum. Hrognkelsaveiði er enn
mjög lítil. Atvinna er nckkur
en auðvitað of lítil. J. H.
FRÁ BRIDGEFÉLAGI
AKUREYRAR
NÝLEGA lauk sveitahrað-
keppni B. A. Sigurvegari varð
sveit Halldórs Helgasonar,
hlaut 2467 stig. Auk Halldórs
eru í sveitinni Ármann og Jó-
hann Helgasynir, Alfreð Páls-
son og Guðmundur Þorsteins-
son. Alls tóku 11 sveitir þátt í
keppninni.
Röð efstu sveita er þessi:
1. Sv. Halldórs H. 2467 stig
2. — Harðar St. 2373 stig
3. — Mikaels J. 2249 stig
4. — Páls Pálss. 2235 stig
5. — Guðm. Guðl. 2202 stig
6. — Soffíu G. 2167 stig
Meðalárangur er 2160 stig. —
Vegna vetraríþróttahátíðar ÍSÍ
hér á Akureyri gengst Bridge-
félagið fyrh- sveitahraðkeppni
að Bjargi á sunnudaginn 8.
marz kl. 1.30. Þriðjudaginn 11.
marz hefst einmenningskeppni
félagsins að Bjargi kl. 8. Er öll-
um heimilt að koma og spila. □
Kosninga-
Egilsstöðum 3. marz. Fært er
um allar trissur, svo sem til
Reyðarfjarðar og suður uim
firði og til Eskifjarðar. En Odds
skarð er ófært, þar er nú verið
að gera tilraun með snjóbíl.
Jarðýta treður leiðina. En Norð
firðingar búa við hinar léleg-
ustu samgöngur á vetrum, ef
Oddsskarð er ekki fært. Ég held
að oft sé auiðveldara að kcmast
til Stóru-Stalingrað en þeirrar
litlu við Norðfjörð.
Bændur eru allhressir í anda
'held ég. Þeir voru í haust vel
heyjaðir. Nú eru svellalög
mikil og veturinn hefur verið
gjafafrekur.
Kosningaskjálfti er að koma
í áhugasama pólitíkusa. Verða
sjálfsagt fjórir listar hér. V. S.
-Vinna í Öxnadal
(Framhald af blaðsíðu 8).
grafnir til að þurrka land til
túnræktar og beitar. Hlutur
hvers bónda í því verki er senni
lega um 60 þús. kr. Þegar mikil
jarðýtuvinna bætist við á sama
ári, má segja, að við reynum að
vinna ofurlítið fyrir framtíðina
þótt fáir séum, og að það er
ekki uppgjafarandi í okkur
ennþá.
Búskapur er blandaður, all-
stór bú til og efnahagur senni-
lega ekki verri en gengur og
gerist. Sauðlönd eru talin góð
víða í Oxnadal og fé reynist
vel til frálags.
í sumar byggðum við skila-
rétt við Þverá og kostaði hún
sennilega um 700 þús. krónur.
Þar hefur hver bóndi sinn dilk,
auk þess nágrannahreppar. Al-
menningurinn tekur allt að 700
fjár. En á bæjum voru nær
engar byggingaframkvæmdir á
síðasta ári.
Vegir hafa verið gi'eiðfærir í
allan vetur og mjólkurflutning-
arnir hafa aldrei fallið niður. □
I.O.O.F. — 151368V2 —
□ RÚN 5970347 — 1. Frl .:
MESSAÐ í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kl. 2 e. h. Mið-
fasta. Sálmar nr. 390 — 367 —
208 — 54 — 207. Safnaðar-
ráðsfundur að lokinni messu.
Öldruðum veitt aðstoð til
kirkjunnar. Hringið í síma
21045 fyrir hádegi á sunnu-
dag. — P. S.
FÖSTUMESSA verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld (miðviku
dagskvöld) kl. 8.30. Sungið
verður úr Passíusálmunum
sem hér segir: 16. sálmuir 1—2
og 13—15; 17. sálmur 10—16;
19. sálmur 17—21 og 25. sálm
ur 14. vers. Flutt verður
einnig fögur lítanía af presti,
kór og söfnuði.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 8. marz. Sunnu
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. — Samkoma kl.
8.30 e. h. Ingólfur Georgsson
talar. Allir hjartanlega vel-
komnir.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Sunnudagaskóli hvern sunnu
dag kl. 1.30 e. h. Öll börn vel-
komin. — Almenn samkoma
hvern sunnudag kl. 8 e. h.
(athugið breyttan tíma). Söng
ur og vitnisburðir. Allir vel-
komnir. — Saumafundir fyrir
telpur hvern föstudag kl. 5.30
e'. h. Allar telpur velkomnar.
— Fíladelfía.
MÖÐRU V ALL AKL AU STURS -
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Bakka, Öxnadal, n. k.
sunnudag 8. marz kl. 2 e. h.
— Sóknarprestur.
HJALPRÆÐISHERINN
Fimmtudaginn kl. 8.00
/ýýýlgJjA æskulýðsfundur og
sunnudaginn kl. 8.30
almenn samkoma. Allir vel-
komnir.
ÁHEIT á Akureyrarkirkju kr.
500 frá G. B. — Beztu þakkir.
— Birgir Snæbjörnsson.
HJÚKRUNARKONUR. Fund-
ur verður í Systraseli mánu-
daginn 9. marz kl. 9 e. h. Þór-
oddur Jónasson héraðslæknir
kemur á fundinn. — Stjórnin.
ÞINGEYINGAFÉLAGIÐ á Ak
ureyri heldur skemmtikvöld
laugardaginn 7. msarz og hefst
það kl. 20.30. Spiluð verður
félagsvist, söngfélagar úr
Karlakór Akureyrar, dans. —
Nefndin.
SKÍÐAMOT U M S E,
fyrri hluti, fer fram 14.
og 15. marz. Keppt verð
ur í göngu og stökki.
Nánar auglýst í bréfi. —
UMSE.
ÞRIÐJA spilakvöld SKT á
föstudagskvöld kl. 8.30 að
Bjargi. Dansað til kl. 1.00.
KONUR ath. Alþjóðabænadag-
ur kvenna er föstudaginn 6.
marz. Að þessu sinni verður
samkoma í sal Hjálpræðis-
hersins kl. 8.30 e. h. Allar kon
ur hjartanlega velkomnar.
MINNIN G ARSP J ÖLD Fjórð-
ungssjúkrahússins fást í bóka
verzl. Bókval.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öilum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í Bókabúðinni Huld og
hjá Laufeyju Sigurðai’dóttur
Hlíðargötu 3.
FRA SJÓNARHÆÐ:
Drengjafundir á mánudögum
kl. 5,30. — Saumafundir fyrh-
telpur á fimmtudögum kl.
5.15.
Samkoma að Sjónarhæð kl. 5
á sunnudaginn.
Sunnudagaskóli í skólahúsinu
í Glerárhverfi kl. 1.15 á sunnu
daginn.
Æ.F.A.K. Fundur verð
Ur í Stúlknadeild n. k.
fimmtudagskvöld kl. 8.
Drengjadeild boðið á
fundinn. — Fjölmennið. —
Stj órnin.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju er á sunnudaginn
kemur kl. 10.30 f. h. Nýja
myndin komin. Yngstu börn
í kapellu, eldri börn í kirkju.
— Sóknarprestar.
LIONSKLÚBBURINN
HUGINN. Fundur að
Hótel KEA fimmtudag-
inn 5. marz kl. 12.00. —
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur mánudaginn 9.
þ. m. kl. 8.30 e. h. í Kaup-
vangsstræti 4. Fundarefni:
Vígsla nýliða önnur mál.
Eftir fund: Kaffi, skemmti-
atriði. — Æ.t.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
VESTFIRÐINGAR. Árshátíð
félagsins verður á Hótel KEA
laugardaginn 7. marz og hefst
með borðhaldi kl. 7 e. h. Að-
göngumiðar afhentir á Hótel
KEA fimmtudaginn 5. marz
og föstudaginn 6. marz kl. 8
til 10 e. h. — Árshátíðanefnd.
MINJASAFNIÐer opið á
sunnudögum kl. 2 til 4 e. h.
Tekið á móti skólafólki og
ferðafólki á öðrum tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62 og safnvarðar 1-12-72
GJAFIR til Rauða krossins. Frá
Margréti Jónsdóttur, Þór-
höllu Hallsdóttur og Önnu
Ólafsdóttur kr. 115, frá Rún-
ari, Ragnhildi, Ingu, Margréti
og Kristni kr. 365, frá ösku-
dagsflokki Eddu, Sólveigu og
Hönnu kr. 158.10, frá Eddu,
Ásu, Sigríði, Torfa, Sigríði,
Hafdísi og Sigríði kr. 500, frá
Hildi, Rannveigu, Evu, Val-
dísi, Goggu og Fiffí kr. 545,
frá öskudagsliði Sifjar og
Elvu kr. 547.90, frá Arndísi,
Þóreyju, Jóhanni og Björk
kr. 140, frá öskudagsliði Sig-
rúnar og Sólveigar kr. 165.
SLÆÐUR - HANZKAR
VASAKLÚTAR
SKÍÐAST AKK AR
— margar gerðir
— verð frá kr. 1.240.00
SKÍÐABUXUR
— stærðir 38—46
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61