Dagur - 18.03.1970, Page 2
- FRÉTTÍR FRÁ RÚNAÐARÞÍNGI - -
(Framhald af blaðsíðu 5).
að létta dvöl þess við nám fjarri
heimilum. Þingið leggur þó
áherzlu á að þetta er aðeins
lítið spor til að jafna þann
mikla mun kostnaðar, sem er á
aðstöðu dreifbýlisfó’.ks til ná.ns
í framhaldsskólum, fram yfir þá
nemendur, sem daglega geta
farið að heiman til náms. Einn-
ig leggur þingið áherzlu á, að
fjárhagsaðstoðin þarf jafnframt
að ná til skyldunámsstigsins a.
m. k. vegna þeirra fjölskyldna,
sem eiga fleiri en tvo nemend-
ur samtímis í heimavist.
Þingið skorar á menntamála-
ráðherra að verja því fé, sem
hér um ræðir, til aðstoðar þeim
nemendum, sem stunda nám á
yfirstandandi námsári. Við
skiptingu þess milli einstakl-
inga á breytilegum námsbraut-
um og ýmsum stigum námsins
verði haft samráð við fulltrúa
frá Bún. ísl. og Stéttarsambandi
bænda. Þar sem um tvo eða
fleiri nemendur úr sömu fjöl-
skyldu er að ræða í slíku fram-
haldsnámi, verði aðstoðin hlut-
fallslega meiri til hvers ein-
staklings.
Samþ. með 24 atkv.
Erindi Allsherjarnefndar um
undirbúning að framkvæmd
stórvirkjana.
Ályktun:
Búnaðarþing lýsir ánægju
sinni yfir því, að unnið er að
forrannsóknum á nýtanlegri
vatnsorku landsins, í framhaldi
af hugmyndum, sem settar 'hafa
verið fram um tæknilega mögu
leika á því sviði.
Þingið bendir jafnframt á, að
útfærsla þessara hugmynda get
ur, í mörgum tilfellum haft
mjög víðtækar og jafnvel ófyrir
sjáanlegar afleiðingar á bú-
rekstrarskilyrðum og lífs-
afkomu fólks í einstökum byggð
arlögum.
Því leggur Búnaðarþing
þunga áherzlu á að settar verði
ítarlegar reglur um alla fram-
kvæmd þessara mála er tryggi
m. a.:
1. Að virtur sé eignarréttur
viðkimandi aðila á fallvötnum
og landi.
2. Að allir þeir aðilar, sem
vatnaflutningar, vatnsmiðlun og
bygging orkuvers snertir, eiga
þess kostt að fylgjast með fram
gangi þeirra mála á öllum undir
búningsstigum verksins.
Sem aðila í þessu tilfelli má
nefna: Búnaðarfélag ísl., Nátt-
úruverndarráð, héraðsstjórnir
og búnaðarsamtök einstakra
héraða.
Búnaðarþing felur stjórn
Bún. ísl. að hlutast til um fram-
gang þessa máls og fyigja því
fast eftir.
Samþ. með 23 atkv.
Út af erindi Jónasar Jónsson-
ar vegna „Héraðsnefnda Þing-
eyinga í Laxármálum" um fyrir
hugaða Gljúfurversvirkjun, lít-
ur Búnaðarþing svo á, að ekki
hafi farið fram þær grundvallar
athuganir, að til greina komi að
framkvæma Gljúfurversvirkjun
í Laxá á grundvelli þeirrar
könnunar, sem stjórn Laxár-
virkjunar hefir látið gera og
áætlað er að sníða byrjunar-
framkvæmdir eftir. Síðan bend
ið þingið á marga liði í þessari
áætlun, þar sem ýmist ófull-
nægjandi rannsóknir hafa verið
gerðar, eða rannsóknum sé alls
ekki lökið.
Að síðustu varar Búnaðar-
þing eindregið við að ráðist
verði í þessar framkvæmdir á
grundvelli þess undirbúnings,
sem nú er til staðar.
Ályktun Búnaðarþings var
samþ. með 23 atkv.
Erindi Friðberts Péturssonar
um votheysverkun o. fl., erindi
Bún.s. S.-Þing. varðandi vot-
heysgeymslur og erindi Bún.s.
Eyjafj. um hækkuð lán á vot-
heysgeymslur.
Ályktun:
Búnaðarþing telur að aukin
grænfóðurræktun og verkun
heys í vothey leiði til verulegs
öryggis í fóðuröflun bænda og
felur því stjórn Bún. ísl. að
vinna að eftirfarandi:
1. Aukin verði leiðbeiningar-
starfsemi í grænfóðurrækt og
votheysverkun t. d. með útgáfu
á sérstöku fræðsluriti.
2. Bútæknideildin á Hvann-
eyri geri samanbufð á mismun-
andi gerð votheysgeymslna, þar
á meðal svonefndra „flatgryfja“.
Kannað verði annars vegar
munur á byggingarkostnaði,
tæknibúnaði og vinnu við hey-
skap í ýmsar gerðir af votheys-
geymslum og hins vegar hag-
kvæmni í mismunandi aðstöðu
og tæknibúnaði við fóðrun með
votheyi.
3. Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins vinni að fóðurtil-
raunum með vothey í ríkum
mæli, og hefji jafnframt efna-
greiningar á votheyi. Ennfrem-
ur verði hraðað útgáfu á niður-
stöðum af fóðurtilraunum með
vothey, sem gerðar hafa verið,
en ekki birtar.
4. Tilraunastöðin á Keldum
auki eftir megni rannsókn á
Hvanneyrarveiki, þar á meðal
samhengi milli heyverkunar og
sýkingarhættu og haldi áfram
tilraunum með lyfjanotkun til
sjúkdómsvarna og lækninga.
Jafnframt vinni stjórn Bún. ísl.
að því við ríkisvaldið að fjár-
skortur nefndra stofnana hamli
ekki framkvæmdum á þessum
málum.
5. Leitað verði eftir því við
Búnaðarbankann að hann láni
út á votheyshlöður allt að 80%
byggingarkostnaðar.
Ályktunin samþ. með 24 atkv.
Erindi búfjárræktarnefndar
um flokkun á ull og gærum og
FERMINGARSKEYTI SUMAR-
BÚBANNA verða afgreidd í Véla- og
raftækjasölunni, Geislagötu 14, og
í Kristniboðshúsinu Zion.
Opið fermingardagana frá kl. 10.00
f. h. til kl. 5.00 e. h.
Upplýsingar í SÍMA 1-28-67.
verðskráningu þeirra vara, og
erindi Bún.s. Eyjafj. um sama
efni.
Ályktun:
Búnaðarþing telur áríðandi
að taka upp flokkun á ull og
gærum og skorar á landbúnað-
arráðherra að undiibúa nauð-
synlegar lagabreytingar í því
skyni í samráði við Bún. ísl.,
Framleiðsluráð landbúnaðarins
og ullarmatsformann.
Um leið er nauðsynlegt að
taka upp verðskráningu á þess-
um vörum í samræmi við flckk
unina þannig að gæðamunur
komi að fullu fram í verði til
framleiðenda.
Þá verði jafnframt tekin upp
verðskráning í heildsölu til inn
lendra aðila, sem kaupa þessar
vörur til iðnaðar.
Búnaðarþing beinir því til
Framleiðsluráðs, að það beiti
sér fyrir því að tilfærzla verði
gerð milli sauðfjárafurða í vei'ð
lagsgrundvelli til hækkunar á
hinum eftirsóttari flokkum af
ull og gærum, og verði ríkisfé
varið til niðui'greiðslu á þeim
vörum á innlendum markaði til
styiíktar innlendum iðnaði.
Ályktunin samþ. með 23 atkv.
Erindi Sigurðar J. Líndal og
Guðmundar Jónassonar um
sölu á veiðileyfum.
Ályktun:
Búnaðarþing felur stjórn
Bún. ísl. í samvinnu við Lands-
samband veiðifélaga að kanna
möguleika á að fela sérstökum
aðila að annast um sölu veiði-
leyfa í ám og stöðuvötnum með
það að markmiði að auðvelda
sölu á veiðilandi á innlendum
og erlendum markaði.
Jafnframt verði kannað hvar
nauðsynlegt sé að koma á félags
skap veiðiréttareigenda til að
auðvelda framkvæmd á veiði-
leigu. Ennfremur verði kannað
hvar nauðsyn ber til að koma
uipp dvalaraðstöðu fyrir veiði-
menn við veiðivötn.
Ályktunin samþ. með 23 atkv.
Erindi stjórnar Bún. ísl. um
bann við laxveiði í Norður-
Atlantshafi.
Ályktun:
Búnaðarþing ályktar að beina
þeirri eindregnu ósk til ríkis-
stjórnarinnar, að hún haldi fast
við þá stefnu, sem verið hefir
hér á landi, að komið verði á
fullkominni samstöðu meðal
Norður-Evrópuiþjóða um al-
gjört bann við laxveiði í Norð-
ur-Atlantshafi.
Samþ. með 24 atkv.
Erindi stjórnar Bún. ísl. um
gengistryggð lán.
Ályktun:
Búnaðarþing felur stjórn
Bún. fsl., að vinna að því, við
ríkisstjórn og Stofnlánadeild
landbúnaðarins, að stofnlán til
vinnslustöðva landbúnaðarins
og ræktunar og búnaðarsam-
banda, verði veitt þeim, án
gengistrygging fylgi slíkum lán
um, eins og verið hefir í mörg-
um tilfellum.
Samþ. með 24 atkv.
Erindi Búnaðarsamb. Borgar
(Framhald af blaðsíðu 8).
um þau mál, er snerta viðskipti
Slippstöðvarinnar og bankans!
GOÐ AF STALLI
Undirbúningur sveitarstjórnar-
kosninganna mótast að þessu
sinni af prófkjörum og skoðana
könnunum. Það er nýjung í lýð
ræðisátt. En tilgangurinn er sá,
að koma betur til móts við ósk-
ir fólksins um val frambjóðenda'
en verið hefur, því það orð hef-
ur á legið, að of fáir ráði of
mörgu í hinum pólitísku félög-
um og flokkum og eiga skoðana
kannanir að koma í veg fyrir
það, um val frambjóðenda. Hafai
af því borizt fréttir, að goð hafa
steypzt af stalli við kosninga-
undirbúninginn og höfum við
nærtæk dæmi um það að skoð-
anakönnun breytir framboðs-
lista.
LISTI, SEM VEKUR TRAUST
í þessu blaði birtist framboðs-
listi Framsóknarmanna á Akur
eyri og lækkar nú mjög meðal-
aldur þeirra aðalmanna og vara
manna, sem koma til með að
vinna í bæjarstjórn af liálfu
Fyrir FERMINGAR
og PÁSKA:
SERVIETTUR og
KERTI í úrvali. "
Margt fallegt til
FERMINGAR- og
TÆKIFÆRISGJAFA.
Nýkomið
Vorlaukar, gróðurmold,
blómajrottar og ker,
blómaáburður, ásamt
úrvali af fallegum,
blómstrandi
POTTAPLÖNTUM.
BLÓMABÚÐIN LAUFÁS
fjarSar um ríkisframlag á skurS
hreinsun.
Ályiktun:
í trausti þess að stjórn Bún.
ísl. skipi nefnd, samkvæmt sam
þykkt Búnaðarþings 1968, til
þess að endurskoða jarðræktar-
lögin o. fl. mælii’ þingið með að
erindi Búnaðarsambands Borg-
arfjarðar verði þá tekið til at-
hugunar af þeirri nefnd.
Samþ. með 24 atkv. K. G.
Framsóknar. En 2 af fyrri aðal-
fulltrúum flokksins, þeir Sigurð
ur OIi Brynjólfsson og Stefán
Reykjalín sitja þar áfram við
mikið traust kjósenda, en þrjú
næstu sætin skipa: Valur Arn-
þórsson, Sigurður Jóhannesson
og Haukur Árnason. Jakob Frí-
mannsson gaf ekki kost á lengri
setu í bæjarstjórn og Arnþór
Þorsteinsson varð að láta í
minni pokann fyrir yngri mönn
um. Þessara tveggja manna
sakna eflaust margir, en listinn,
eins og hann nú er skipaður,
mun eflaust vekja traust kjós-
enda. I
ÞRÍR AÐRIR LISTAR
Þrír aðrir listar til bæjarstjórn-
arkosninga eru fram komnir á
Akureyri.
Alþýðubandalagið varð fyrst
til að ákveða sinn Iista og skipa,
þessi fjögur efstu sætin: Soffía
Guðmundsdóttir, Jón Ingimars-
son, Rósberg G. Snædal og Jón
Ásgeirsson.
Samtök vinstri manna eða
Hannibalistar hafa einnig ákveð
ið lista sinn og eru efstu sætin
þannig skipuð: Ingólfur Árna-
son, Jón B. Rögnvaldsson, Jón
Helgason og Bjöm Jónsson.
Sjálfstæðismenn skipa þannig
á sinn lista: Gísli Jónsson, Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, Lárus
Jónsson og Jón G. Sólnes.
| ’ i
ÞRENNT ATHYGLISVERT
Þrennt mun einkum þykja at-
hyglisvert við þessa framkomnu
lista. I fyrsta lagi framboð frú
Soffíu Guðmundsdóttur í efsta
sæti, en þar með fellur Jón Ingi
marsson sennilega út úr bæjar-
stjórn. í öðru lagi veita menn
því athygli, að Jón G. Sólnes
ætlar nú að draga sig í hlé, sem
fjórði maður á lista Sjálfstæðis-
manna. Munu margir á einu
máli um það, bæði flokksmenn
hans og aðrir, að það sé vel
ráðið. í þriðja lagi er það svo
eftirtektarvert, að nú munu
koma fram 5 listar á Akureyri
til bæjarstjórnarkjörs, og stafar
það af hinni miklu óeiningu í
Alþýðubandalaginu og skipt-
ingu þess.
- SMÁTT OG STÓRT . . .
FRAMSÓKNARVIST
AÐ HÓTEL IÍ.E.A.
Spiluð verður framsóknarvist að Hótel KEA laugardag-
inn 21. þ. m., og hefst vistin kl. 20.30.
Góð kvöldverðlaun verða veitt og möguleiki á góðum
aukaverðlaunum.
SIGURÐUR ÓLI BRYNJÓLFSSON, kennari, flytur
ávarp - HARALDUR M. SIGURÐSSON, kennari,
stjórnar vistinni.
F J Ö L M E N N I Ð — og mætið stundvíslega.
STJÓRNIRNAR.