Dagur - 18.03.1970, Síða 7
7
NÝJAR KÁPUR væntanlegar í dag.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Stúlkur óskast
Viljuim ráða stúlku til að starfa í gestamóttöku
og við símavörzlu. Góð enskukunnátta nauðsyn-
leg og herbergisþernu. — Vaktavinna. •
Uppl. gefur hótelstjórinn.
HÓTEL KEA
Allar tegundir af
ÁYÖXT-
NIÐURSOÐNUM
ÞURRKUÐUM
NÝJUM
1]
KJÖRBUÐIR
Nýkomið!
FERMINGARSKÓR telpna
- svartir og rauðir
-mjög ódýrir.
Svartir LAKKSKÓR kvenna.
KVENBOMSUR með fylltum hæl.
HERRASTÍGVÉL reimuð að ofan.
SKÓBÚÐ
- ÞÍNGEYINGAR
(Framhald af blaðsiðu 8).
kvenfélaga á Húsavík, Arnfríð
ar Karlsdóttur, firm. kvenfélags
Húsavíkur, Hrefnu Bjarnadótt-
ur, form. Slysavarnadeildar
kvenna og Þorgerðar Þórðar-
dóttur, form. Verkakvennafé-
lagsins. Félög þessi hófu söfnun
í sjóðinn og síðan hafa félög og
einstaklingar lgat fram fé og
starfskrafta, sjóðnum til efling-
ar, þeirra á meðal hinir víð-
kunnu hagyrðingar í Þingeyjar
sýslu, er söfnuðu fé með hinum
snjöllu vísnaþáttum sínum. En
Daníel Daníelsson læknir stjórn
aði að jafnaði þáttum þeirra. —
Fleiri gj.afa verður síðar getið.
Þ. J.
Vil taka á leigu 2ja her-
bergja ÍBÚÐ.
Uppl. í síma 1-12-54,
milli kl. 17.00 og 19.00.
ÖKUKENNSLA!
Nú geta allir lært á bíl.
Ég er byrjaður, og kenni
á VW.
Stefán Tryggr ason,
Lönguhlíð 7D,
sími 1-28-23.
Til sölu:
Hoover Matic
ÞVOTTAVÉL, hálf-
sjálfvirk. Varahlutir
fylgja.
Uppl. í síma 2-14-44.
SKÚR til sölu, 5x8 nr.
Uppl. í síma 2-11-55,
Sigurður Jónsson.
Útför
HERSTEINS AÐALSTEINSSONAR,
sem andaðist að Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík
11. rnarz s.l., verður gerð frá Akureyrarkirkju
laugardaginn 21. marz n.k. kl. 13.30.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Aðalsteinn Tómasson,
og systkini hins látna.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför föður okikar,
JÚLÍUSAR JAKOBS JÓHANNESSONAR,
innlieimtumanns, Oddeyrargötu 24.
Alúðarþakkir færunt við læknum og hjúkrunar-
liði Fjórðungssjúkrahússins svo og starfsfólki Raf-
magnsveitu Akureyrar.
Börn hins látna.
Við þökkum innilega samúð og hlý.hug við and-
lát og jarðarför móður okkar, tengdamóður,
örnmu og langömmu,
SIGRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hjalteyri.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
i t mi i/i«iii nil— MmiiHirm——immmsami■—mmm>
TILBOÐ óskast í
A-2314, Volkswagen, ár-
gerð 1967.
Uppl. í síma 1-23-14,
eftir kl. 7 e. h.
Góður VW-BÍLL af ár-
gerð ’65 eða ’66 óskast til
kaups.
Uppl. í síma 2-17-18.
Til sölu
er FÍAT 1800, station,
árgerð 1960.
Uppl. í síma 1-22-86.
Til sölu:
AUSTIN GIPSY, díesel,
árgerð 1963.
Eiríkur Hreiðarsson,
Grísará.
Til sölu:
WILLYS-JEPPI, árgerð
1947, í góðu lagi.
Brjánn Guðjónsson,
sími 1-24-91.
□ St:. St:. 59702137 —VIII Frl:.
I.O.O.F. — 1513208V2 —
□ RÚN 59701837 — 1:.
FÖSTUMESSA verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld (miðviku
dagskvöld) kl. 8.30. Verður
þetta síðasta föstumessan að
sinni. Sungið verður úr
Passíusálmunum sem hér
segir: 27. sálmur vers 8—13;
30. 10—14; 31. 6—10 og 25. 14.
Fjölmennið í síðustu föstu-
messuna. — B. S.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Sálmar: 4 — 25 — 143 — 189
— 202. — B. S.
MESSAÐ á Elliheimili Akur-
eyrar n.k. sunnudag kl. 4 e.h.
— B. S.
MESSUR í Laugalandspresta-
kalli. Pálmasunnudag Möðru-
völlum kl. 14. Skírdag Grund
kl. 13.30, Kristneshæli kl.
15.15. Föstudagurinn langi
Kaupangi kl. 14. Páskadagur
Munkaþverá kl. 14. Annan
páskadag Hólar kl. 13, Saulr-
bær kl. 15.
BRÚÐHJÓN. Þann 7. marz sl.
voru gefin saman í hjóna-
band brúðhjónin ungfrú
Kristín Magnúsdóttir og
Rögnvaldur Jóhannesson
ketil- og plötusmíðanemi frá
Húsavík. Heimili þeirra er að
Bjarmastíg 13, Akureyri.
BRÚÐHJÓN. Hinn 11. marz sl.
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Sigurlaug Halla Jökulsdóttir
og Garðar Pálmason sjómað-
ur. Heimili þeirra verður
fyrst um sinn að Ægisgötu 31,
Akureyri.
STÚDENTAR! Fundur verður
haldinn í Stúdentafélaginu á
Akureyri að Hótel KEA
fimmtudaginn 19. marz. Dr.
Jens Pálsson mannfræðingur
ræðir um mannfræði. Takið
með ykkur gesti. — Þor-
steinn Friðriksson.
KVENFÉLAGIÐ HJÁLPIN hef
ur brauðbazar laugardaginn
21. þ. m. kl. 3.30 síðdegis, að
Hótel Varðborg (Gengið inn
um vesturdyr). Mikið af góm
sætum kökum, tertum og flat
brauði. — Nefndin.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju verður n. k. sunnu-
dag kl. 10.30 f. h. Síðasti
sunnudagaskóli vetrarins. Oll
börn hjartanlega velkomin.
— Sóknarprestar.
HIN árlega minningarhátíð til
þess að minnast dauða Jesú
Krists. Sunnudaginn 22. marz
kl. 20.30 að Þingvallastræti 14
II hæð. Allir velkomnir. —
Vottar Jehóva,
SHJALPRÆÐISHER-
INN. Fimmtudag kl. 8
y e. h. æskulýðssamkoma.
Sunnudag kl. 8.30 e. h.
almenn samkoma. Allir vel-
komnir. Heimilasambands-
fundurinn á mánudaginn fell
ur niður.
BAZAR! KFUK heldur bazar í
Kristniboðshúsinu Zion laug-
ardaginn 21. þ. m. kl. 4 e. h.
FRA SJÓNARHÆÐ:
Drengjafundir á mánudögum
kl. 5,30. — Saumafundir fyrir
telpur á fimmtudögum kl.
5.15.
Samkoma að Sjónarhæð kl. 5
á sunnudaginn.
Sunnudagaskóli í skólahúsinu
í Glerárhverfi kl. 1.15 á sunnu
daginn.
DREN G J ADEILD! —
Fundur kl. 8 fimrntu-
dagskvöld. Stúlkna-
deild boðið á fundinn.
Stjórnin.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur verður haldinn mánu
daginn 23. marz kl. 8.30 e. h.
í Kaupvangsstræti 4. Venju-
leg fundarstörf. Vígsla nýliða.
Kaffi á eftir fundi. Félagar!
Athugið breyttan fundardag.
— Æ.t.
ÁIIEIT á Akureyrarkirkju kr.
1.000 frá N. N. — Beztu þakk
ir. — Birgir Snæbjörnsson.
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
lokað um óákveðinn tíma. Þó
verður tekið á móti skóla-
fólki eftir samkomulagi.
LEIÐRÉTTING. Undir forsíðu-
mynd í síðasta tölublaði, stóð,
að Reykvíkingar hefðu unnið
í ísknattleik á íþróttahátið-
inni. Þessu var öfugt farið og
leiðréttist samkvæmt því.
LIONSKLÚBBURINN
•jÍ‘jjí& HUGINN. Fundur að
Hótel KEA á fimmtu-
daginn 19. marz.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Tjam
argerðis heldur fund í Þing-
vallastræti 14 fimmtudaginn
19. þ. m. kl. 8.30 e. h. Kaffi á
staðnum. — Stjórnin.
KRISTNIBOÐS- og æskulýðs-
satnkomur verða haldnar í
Kristniboðshúsinu Zion mið-
vikudaginn 18. marz, fimmtu
daginn 19. marz, föstudaginn
20. marz, laugardaginn 21.
marz og sunnudaginn 22.
marz kl. 20.30 hvert kvöld. —•
Ræðumenn verða: Séra Þór-
hallur Höskuldsson, Möðru-
völlum. Benedikt Arnkelsson,
guðfræðingur, Reykjavík. Jón
Viðar Guðlaugsson, Akureyri.
Meðal dagskrárliða verða
skuggamyndir frá kristniboð-
inu í Konsó, kristniboðsþætt-
ir, einsöngur, tvísöngur og
mikill almennur söngur. Sýn-
ing verður á ýmsum munum
frá Eþíópíu öll kvöldin. Allir
velkomnir. — KFUM, Kristni
boðsfélag kvenna, KFUK.
BÁTAFÉLAGIÐ VÖRÐUR. —
Aðalfundurinn, sem féll nið-
ur sl. föstudagskvöld, verður
lialdinn í Hafnarstræti 90,
efri hæð, n. k. fimmtudags-
kvöld kl. 8.30.
I.O.G.T. st. fsafold-Fjallkonan
nr. 1. Fundur fimmtudaginn
19. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Kaup-
vangsstræti 4. Fundarefni:
Vígsla nýliða, önnur mál.
Eftir fund: Kaffi og bingó. —
Æ.t.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur n. k. fimmtudag
kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar
fjölmennið. — Æ.t.
Fáum næstu daga nýja
sendingu af
FRÚARKÁPUM og
UNGLINGAKÁPUM
úr ullarefnum.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61