Dagur - 18.03.1970, Side 8
8
SMÁTT & STÓRT
Loftmynd af Akurcyri.
B555SS5S555555555555S5555555555S555SI'43555555553555555555555555555553555555535555555555553353555555555555»
SkoðanaköfHiunin var látin gilda eins og lofað var
RÉTT er að taka fram nokkur
atriði í sambandi við skoðana-
könnun Framsóknarfélaganna á
Akureyri og endanlega ákvörð-
un um framboðslistann til bæj-
arstjómarkosninganna í vor.
í fyrsta lagi var skoðana-
könnunin bundin við félags-
menn og aðra stuðningsmenn
við væntanlcgt framboð. Aðrir
fengu ekki að kjósa.
I öðru lagi var ákveðið, að
vilji fólksins, er fram kæmi uni
val manna á framboðslista yrði
virtur, einkum hvað snerti átta
efstu sætin, og frá því skýrt.
Þetta var gert og listinn ein-
róma samþykktur á fulltrúa-
ráðsfundi Framsóknarfélaganna
á mánudaginn, samkvæmt þeiin
vilja, sem fram kom ótvírætt í
skoðanakönnuninni. Ein undan
tekning var þó á þessu. Hún
var sú, að Amþór Þorsteinsson,
sem hreppti sjöunda sæti í
skoðanakönnuninni, óskaði að
færast neðar á listann og í það
sæti, er hann nú skipar, en aðr-
ir færðust þá sæti ofar.
í þriðja lagi varð nokkurt urrt
tal um seinagang á birtingu
niðurstöðu skoðanakönnunar-
innar. Afsökun fyrirfinnst eng-
in. En hins vegar stafar dráttur
sá, sem orðið liefur á endan-
legri ákvörðun listans af því, að
einn efstu manna listans dvald-
ist erlendis og var þess beðið að
hann kænii heim.
í fjórða lagi vill blaðið benda
„listamönnimum" á það, að hér
í blaðinu em opnar dyr fyrir þá,
ef þeir vilja tala við kjósend-
urnar um bæjarmálin. Efsti
maður listans svarar nokkram
spurningum blaðsins í dag og
gefur þannig gott fordæmi á
þessu sviði.
Og í fimmta Iagi fagnar blað-
ið því, hve framboðslisti Fram-
sóknarmanna er vel skipaður
og líklegur til þess að hljóta
bæði traust og fylgi kjósenda.
Miðað við vaxandi traust
fólks á forvstu flokksins í bæj-
armálum, fjölda nýrra manna í
Framsóknarfélögunum og far-
sæla stjórn bæjarmála á þessu
kjörtímabili, hlýtur markmiðið
að vera það, að fá fhnm menn
kjörna í bæjarstjórn í stað
fjögurra nú. □
LAPPAR VÖLDU RÉTT
Lappar tóku eitt sinn upp notk-
un smjörlíkis í stað smjörs aí
sparnaðarástæðum. En þeir
hættu bráðlega að borða smjör-
líkið, því þeir komust að raun
um, að það var ekki gott fyrir
augun. Þá voru fjörefnin ekki
orðin vísindagrein eins og síðarl
varð. En reynslan kenndi þeim
það, sem vísindin síðar stað-
festu um neyzlu þessara vöru-
tegunda. Og jafnframt er þetta
gott dæmi um skarpskyggni svo
kallaðra frumstæðra þjóða, varð
andi hollustu matvæla.
YFIRBOÐ ÚTLENDINGA
Útlendir menn hafa vaxandi
áhuga á íslenzkum veiðiám og
hafa þegar tekið laxár á leigu,
í samkeppni við innlenda veiði-
menn og þykir íslenzkum súrt
í brotið að þeir hækka leigui
ánna með yfirboðum. Þetta staf
ar bæði af því, að í flestum lönd
um minnkar laxveiði og silungs
veiði í ám vegna mengunar,
þeim mönnum fjölgar, sem vilja
stunda veiði laxfiska sem íþrótt
og á íslandi hefur mengunar-
vandamálið ekki enn spillt lax-
göngum í ár. Blaðið hefur frétt,
að leiga eftir stöngina á dag farii
upp í 4 þús. krónur í Laxá í
Kjós, og annað mun fara eitt-
hvað í áttina.
KORNAÐUR KJARNI
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
stækkun Áburðarverksmiðjunn
ar í Gufunesi og er talið, að
framkvæmdir hefjist áður en
langt líður, enda hefur tilboða
þegar verið leitað í vélar og
tæki. Þegar sú stækkun hefur
verið gerð, eiga bændur að fá
stórkornaðan köfnunarefnis-
áburð, gagnstætt því sem nú er,
einnig kalkblandaðan köfnunar
geyingar sfórgjöfulir fil sjúkrahússins, Húsavík
Húsavík 16. marz. Sjúkrahúsið
í Húsavík mun v.erða tekið í
notfcun innan skamms. Að und-
anförnu hafa sjúkrahúsinu bor-
izt margar stórgjafir. í gær
færði Kvenfélag Aðaldæla for-
manni sjúkrahússtjórnar 68.873
krónur, er verja skal til kaupa
á liimpum í skurðstofu, skipti-
Félagsvist Framsóknarfélaganna
FÉLAGSVIST á vegum Fram-
sóknarfélaganna í Norðurlands
kjördæmi eystra verður laugar-
daginn 21. þ. m, (n. k. laugar-
dag) á eftirtöldum samkomu-
stöðum:
Félagsheimilinu Freyvangi.
Þátttakendur úr Hrafnagils-,
Saurbæjar-, Ongulsstaða-, Sval
'barðsstrandar- og Grýtubakka-
hreppi.
Félagsheimilinu Melum, Hörg
árdal. Þátttakendur úr Oxn-
dæla-, Glæsibæjar-, Sliriðu-
og Arnarneshreppi.
Félagsheimilinu Breiðumýri'.
Þátttakendur úr Aðaldal,
Reykjahverfi og Reykjadal.
m BÁTUR
Húsavík 16. marz. Á föstudag-
inn var, 13. marz, kom nýr bát-
ur til Húsavíkur, 17 t onna.
Eigandi er Karl Aðalsteinsson
og synir hans. Báturinn heitir
Sæborg. Trausti Adamsson og
Gunnlaugur Traustason skipa-
smiðir á Akureyri smíðuðu bát
inn eftir teikningu Tryggva
Gunnarssonar. Þ. J.
Raufarhöfn í félagsheimilinu
Hnitbjörg.
Austan heiðar í Félagsheimil-
inu Þórshöfn.
Ólafsfirði í félagslieimilinu
Tjarnarborg.
Dalvík í Samkomuhúsi Dal-
víkur.
(Framhald á blaðsíðu 4)
stofu og fæðingarstofu sjúkra-
hússins. Gjöfin var gefin í til-
efni af 60 óra afmæli kven-
félagsins. Foi-maður þess er
Guðfinna Árnadóttir, Brána-
hlíð, Aðaldal.
Einstök kvenfélög í Húsavik
og í Þingeyjarsýslu, svo og sam
tök þeirra ha-fa ávallt sýnt
sjúkrahúsinu mikla rausn í
gjöfum og sjálfboðavinnau.
Um þessar mundir sitja kon-
ur í Húsavík og víðsvegar í
sveitum Þingeyjarsýslu við að
sauma gluggatjöld, rúmfatnað
o. fl. er lýtur að búnaði nýja
sjúkrahússins.
Kvenfélagasam-band S. Þing.
gefur sjúkrahúsinu 40% af
verði röntgentækja og fl. það,
sem konur leggja fram í því
skyni einu nema um eða yfir
700.000.00 kr.
Tveir öldungar, hinir list-
efnisáburð og blandaðan áburð,
og eftir þessu öllu hafa bændur
lengi beðið.
BANKASTJÓRAR MEGA
EKKI....
Alþýðublaðið hefur deilt fast á
kosningu Jóns G. Sólnesar
bankaútibússtjóra á Akureyri í
stjóm Slippstöðvarinnar h.f.
Minnir blaðið í því sambandi á
eftirfarandi lagagrein um Lands
banka íslands, en þar segir
meðal annars:
Ekki mega bankastjórar reka
sjálfir atvinnu, ekki vera í
stjórn atvinnufyrirtækja eða
hafa með höndum önnur launuð
störf, nema samþykki banka-
ráðs komi til.
LOÐIN SVÖR
Síðar barst svar bankastjórnar
en ekki bankaráðs, sem stað-
festir, að málið var ekki borið
undir bankaráð, eins og þó var
skylt, en bankastjómin telur
ekki rétt að bankastjórar eða
aðrir starfmenn bankans, þar
með taldir útibússtjórar hans,
eigi sæti í stjómum fyrirtækja,
sízt þeirra, sem viðskipti hafa
við bankann. Þrátt fyrir þetta
álit bankastjómar heimilar það
J. G. S. að taka sæti í stjórn
Slippstöðvarinnar uin takmark-
aðan tíma og með takmarkaðan
atkvæðisrétt, þ. e. nefndur J.
G. S. má ekki greiða atkvæði
(Framhald á blaðsíðu 2).
rænu bræður Stefán og Sigur-
björn Sigurjónssynir, hafa í
vetur, hvor í sínu lagi, fært
sjúkrahúsinu stórar gjafir. Stef
án gaf allan ágóða ag málverka
sýningu sem hann hélt í Húsa-
vík á sl. hausti, og Sigurbjörn,
sem er mikill tónlistarunnandi
og leikur sjálfur á orgel, ga-f fé
til kaupa á orgeli handa sjúkra-
húsinu.
Hinn 5. marz sl. var formanni
sjúkrahússtjórnar færð banka-
bók með sjúkraáhaldasjóði
sjúkrahússins í Húsavík, er
nam þá rúmlega 290.000.00 kr.
að forgöngu þriggja formanna
(Framhald á blaðsíðu 7).
SL. SUNNUDAG var fram-
haldsstofnfundur í Bó-k-aklúbbi
Akureyrar í Amtsbókasafninu.
Þar flutti Árni Kristjánsson,
menntaskólakennari, fyrirlestur
er hann nefndi: „Rabb í kring-
um lj óðagerð Halldórs Lax-
ness.“ Var góður rómur gerðujr
að máli hans.
Eftir fundinn var opnuð bóka
sýning í Amtsbók-asafninu á
vegum Bókmenntaklúbbsins og
safnsins. Þar eru til sýnis 150
bækur eftir 35 núlifandi rit-
höfunda á Akureyri og í Eyja-
firði og 85 bækur eftir um 20
burt flutta höfunda af sama
svæði. Verður bókasýning þessi
opin til 25. þ. m. á opnunartíma
safnsins.
(Aðsent)
DAGUR
kemur næst út á laugardaginn,
21. marz.
inu, Ákureyri
Búið að veiða 100 þúsund lestir
UM helgina var talið, að búið
væri að veiða um 100 þús. tonn
af loðnu við Suður- og Suð-
austui'land. Verð á loðnumjöli
er hagstætt um þessar mundir
ög er því kapp lagt á loðnu-
veiðarnar. Um eitt prósent eða
eitt þúsund tonn af loðnu verða
seld Japönum, sem undanfarin
ár ha-fa lceypt lítilsháttar af
þeirri vöru, en í vaxandi mæli,
og munu þeir sjálfir sækja loðn
una hingað til lands, frysta til
manneldis.
Fiskileitarskip haf.a fyl-gzt
með loðnugöngum norðan úr
hafi og fundu hana fyrst við
Norðausturland, á -hinni árlegu
göngu hennar suður með Aust-
urlandi. En hún hi-ygnir við
suðurströnd landsins þriggja til
fjögurra ára gömul og deyr að
hry-gningu lokinni.
Loðnan hefur lítið verið not-
uð hér á landi, fyrr en á síðustu
árum, að farið var að veiða
hana að nokkru ráði. Áður var
hún að vísu e-ftirsótt til beitu
og er ennþá, og v-ar veidd til
þess þegar hún gekk að landi,
ennfremur var hún notuð til
skepriufóðurs. En þessi litli fisk
ur er mjög góður mannama-tur
og fæst nú léttreyktur, niður-
lagður í dósir.
Síðustu daga hefur loðnan
einkum veiðzt við Skaftárósa.
ÞINGEYINGAFÉLAGIÐ á Ak
ureyri hélt aðalfund sinn í
febrúar sl. að Hótel Varðborg.
Fonmaður gerði þá grein fyrir
starfinu á liðnu ári, en það hef-
ur verið töluvert. Sjóðir félags-
ins hafa vaxið nokkuð, sérstak-
lega á sl. ári. Á fundinum var
ákveðið að gefa safnahúsinu á
Húsavík 25 þúsund krónur og
yrði því fé verið í samráði við
gefendur. Þá var einnig ákveð-
ið að veita Jóni G. Pálssyni
viðurkenningu fyrir mikið o-g
gott starf í þágu félagsins. Var
stjórninni falin framkvæmd
þess og færði hún Jóni góð-a
gjöf frá félaginu.
Undanfarandi ár hafa ætið
komið fram þær óskir, að reynt
yrði að hafa árshátíðir féla-gsins
með ódýrara sniði en verið hef-
ur. Árshátíðarnefnd hefur nú
ákveðið að verða við þessum
tilmælum og þó reyna að vanda
til svo sem kostur er. Að þessu
sinni verður því árshátíðin hald
in í Alþýðuhúsinu, laugardag-
inn 21. marz n. k. (nánar aug-
lýst í blaðinu). Þar verða hlað-
in -borð af gómsætu brauði og
heitt ka-ffi fram eftir nóttu.
Frumsýndar verða kvikmyndir
úr Þingeyjarsýslum ásamt fleiri
skemmtiatriðum. Aðgöngumið-
arnir gilda sem happdrættis-
miðar. Vísnakassi verður svo
með tilheyrandi verðlaunaveit-
ingu. Geta má þess, að Alþýðu-
(Framhald á blaðsíðu 5)
TONLEIKARNIR verða í Borg
arbíói annað kvöld, fimnitudag,
kl. 9. Aðgöngumiðar seldir í
Huld og við innganginn. 'Q