Dagur - 16.05.1970, Blaðsíða 2
2
Kylfingar
UM þessar mundir eru kylfing-
ar hér á Akureyri að vakna af
vetrardvalanum, og eru í þann
veginn að hefja sumarstarf sitt.
Golfvöllurinn er kominn undan
snjó, og er orðinn sæmi’egur til
leiks, miðað við árstíma. —
Laugardaginn 9. maí sl, kl.
13.30 var fyrsta keppni Golf-
klúbbs Akureyrar, en það var
svonefnd Flaggkeppni, sem leik
in er með fullri forgjöf.
Mikill hugur er í kyifingum
nú, og alls eru fyrirhugaðar 25
keppnir á vegum klúbbsins í
sumar, auk þess sem klúbb-
Minnispeningur
sleginn á íslandi
ÍÞRÓTTAHÁTÍÐARNEFND
ÍSÍ ákvað fljótlega í starfi sínu
að gefa út sérstakan minnis-
pening í tilefni hátíðarinnar.
Hefur hann því verið í undir-
búningi í nokkurn tíma. Hall-
dór Pétursson listmálari var
fenginn til að teikna hann og
eru allir sammála um, að hon-
um hefur tekizt vel í því starfi.
Á framhhð hans kemur fram
merki ÍSÍ og orðið íþróttahátíð
1970 og lárviðarsveigur. Á bak-
hlið er mynd af fjöldagöngu
íþróttafólks með fána í broddi
fylkingar, þar sem stendur á
talan 50. Þá eru þar lárviðar-
sveigar og nafn íþróttasam-
bands íslands.
Leitað var tilboða í smíði
meðlimir munu að sjálfsögðu
taka þátt í íslandsmótinu í
golfi, sem að þessu sinni verður
haldið í Hafnarfirði og Kefla-
vík.
Margir nýir meðhmir hafa
bætzt í klúbbinn að undan-
förnu, og má geta þess, að
nokkrar konur hafa nú tekið
upp æfingar, en golfið er ákaf-
lega heppileg íþrótt fyrir konur,
sem alla aðra.
Nýir meðlimir fá ókeypis
kennslu í 5 skipti, — V2 klst.
hvert, — við inngöngu í klúbb-
inn, og í sumar verður golf-
Íþr.hátíðarínnar
peningsins bæði innanlands og
utan og 'hefur nú verið ákveðið
að framleiða hann hér heima.
Mun það vera í fyrsta skipti að
slíkt er gert. Verkið hefur tekið
a ðsér Magnús Baldvinsson úr-
smiður í Reykjavík, en hann
hefur um nokkui-t skeið fram-
leitt margvíslega verðlaunapen
inga fyrir' íþróttahreyfinguna.
Ekki mun enn ákveðið magn
minnispeningsins né heldur úr
hvaða málmi hann verður fram
leiddur. ..Þó hefur verið talað
um bronze og svo ekta si'lfm’-
pening. Hins vegar mun þegar
vera mikill áhugi fyrir honum
á méðal myntsafnara og ann-
arra áhugamanna og myndir af
honum komnar í innlenda og
erlenda verðlista, og má því
vænta pantana á honum víða
að. □
- Starfsemi UMFÍ
(Framhald af blaðsíðu 8).
fundarreglur, fi’amsögn og
mælsku, uppbyggingu félaga og
félagasamtaka og annað, er að
gagni má koma í frjálsu félags-
starfi. Sérstaklega skal fjallað
um starf og skipulag UMFÍ og
viðfiangsefni ungmennafélag-
anna.
Tveimur námskeiðum er nú
þegar lokið í Félagsmálaskóla
UMFÍ. Hið fyrsta fór fram í
íþróttaskóla Sigurðar Greips-
og 22. febr. sl. og voru þátttak-
sonar í Haukadal, dagana 21.
endur 10.
Annað námskeið skólans var
haldið fyrir ungmennafélögin á
SuðurnesjiUim, og hófst í Stapa
23. febr. ög lauk mánud. 20.
apríl sl. Skráðir þátttakendur í
námskeiðinu voru 24, og kennt
eitt kvöld í viku, samtals um 20
kennslustundir.
Kennarar skólans á þessum
námskeiðum voru Sigurfinnur
Sigurðsson frá Birtingaholti og
Hafsteinn Þorvaldsson formað-
ur UMFÍ. Námskeið Félagsmála
skólans verða ekki fleiri í vor,
en hefjast aftur með hausti.
Landsþing UMFÍ í skák 1970
er að hefjast, en UMFÍ hefur í
nokkur ár gengizt fyrir slíiku
landsmóti í skák. Þátttakendur
að þessu sinni eru frá 9 héraðs-
samböndum víðsvegar af land-
inu, og keppt í 4ra manna sveit
um. Keppt er um glæsilegan
farandverðlaunagrip „Skinfaxa
styttuna“.
Landgræðslustörf ungmenna-
félaganna hafa verið mikil og
vaxandi á undanfömum árum,
þessa dagana er unnið að at-
hugun á þátttöku og viali í venk
efnum í sumar á þessum vett-
vangi.
Eins og áður getur hefur út-
gáfustarfsemi verið stóraukin á
vegum UMFÍ. Málgagn samtak
sL lielffi
kennari á vellinum flesta daga,
en nánar verður tilkynnt síðar
á hvaða tímum. Þeim, sem
áhuga hafa á að ganga í Golf-
klúbb Akureyrar, er bent á að
hafa samband við einhvern af
eftirtöldum mönnum: Frímann
Gunnlaugsson í Sportvöru- og
hljóðfæraverzl. Ak., Þórarinn
B. Jónsson hjá Sjóvátryggingar
félagi íslands, Sævar Gunnars-
son hjá KEA.
(Frá Golfklúbbi Akureyrar)
ÍBK pp ÍB
anna, Skinfaxi, kemur nú út 6
sinnum á ári, og er prentað í
2000 eintökum. Ritstjóri Skin-
faxa er Systeinn Þorvaldsson.
Gefið héfur verið út fræðslu-
rit um samtökin sem nefnist
„Starf og stefna UMFÍ“. Stög-
ugt er unnið við útgáfu á
fræðsluritum um starfsíþróttir,
og endui-nýjun eldri rita.
Þá hefur stjórn UMFÍ ákveð-
ið að hefja útgáfu og söfnun á
stuttum leikþáttum og öðru
skemmtiefni, til útvegunar sam
bandsfélögunum, og síðast en
ekki sízt útgáfu vasasöngbókar,
sem ætlunin er að komi út nú
í sumar.
Ymsar framkvædir eru á döf
inni í Þrastarskógi, og starf-
ræksla Þrastalundar verður á
hendi sömu aðila og undanfar-
in sumur.
(Úr fréttatilkynningu)
Á LAUGARDAGINN kl. 3.30
e. h. fer fram á malarvellinum
hjá Sana þriðji leikurinn í
Meistarakeppni KSÍ 1970. Það
eru Akureyringar og Keflvík-
ingar, sem eigast við í þessari
keppni, og fyrsta leik þessara
liða, á Akureyri, lauk með jafn-
tefli 1:1, en Akureyringar sigr-
uðu í öðrum leiknum, í Kefla-
vík, með 2:0. ÍBA hefur því 3
stig en IBK 1 stig Takist Akur-
eyringum að sigra á laugardag-
inn hafa þeir tryggt sér sigur í
Meistarakeppninni, en fjórði og
síðasti leikurinn fer fram í
Keflavík mánudaginn 18. maí,
annan í hvítasunnu. — Og nú
fara allir á völlinn og ‘hvetja
Akureyringa til sigurs.
PLAST
1. Plastefnin eru framleidd úr
ýmsum lífrænum næringar-
efnum.
2. Þrátt fyrir það geta engar
lifandi verur notað þau sem
fæðuefni.
3. Þau geta því ekki rotnað, og
náttúruleg eyðing þeirra tek
ur þúsundir eða milljónir ára
4. Eina örugga leiðin til að eyða
þeim er að brenna þeim.
5. Umfram allt ætti að forðast
að setja þau í sjó eða vötn,
eða þar sem sjór eða vatn
nær til þeirra.
6. Það er siðferðisleg skylda
hvers einasta manns, sem
notar plastefnin, að sjá til
þess að þeim sé eytt.
7. Þar sem ekki eru eldstæði,
ættu menn að koma sér upp
opinni tunnu, til að brenna
plastefnin. Þau brenna vel
með pappírsúrgangi.
8. Allt það sama gildir um önn-
ur gerviefni, sem notuð eru
í föt, skó o. s. frv., svo sem
nælon, perlon, dralon, orlon
o. s. frv.
Samtök um nátíúruvernd
á Norðurlandi.
RitgerSarsamkeppni
BARNABLAÐIÐ V O RIÐ ,
fyrsta hefti 1970, er komið út.
Hefst það á viðtali við Ingunni
E. Einarsdóttur íþróttakonu, en
á sl. sumri setti hún 10 íslands-
met í frjálsum íþróttuon. Þá eru
í heftinu: stuttar bamasögur,
framhaldssaga, þulur, leikrit og
skrýtlur. í þessu hefti hefja
göngu sína þrír nýir þættir.
Fjalla þeir um íþróttir, flug og
hljómsveitir.
I heftinu er skýrt frá, að á
þessu ári efnir Vorið til rit-
gerðasarnkeppni og er hún
bundin við 10—14 ára kaupend-
ur blaðsins. Fyrstu verðlaun
verða ferð til London með ís-
lenzku þotunni. Mun verðlauna
hafa einnig verða gefinn kostur
á að fara í skoðunarferðir um
borgina.
Guðrún
Jóhannes-
dóftir
frá Sandvík
Kveðja
Vorið og sólin vöktu yl í hjarta
vonglöð í huga eygðum daga bjarta.
Fréttin þá kom, skugga á birtu brá,
burtu var kölluð, heimili sínu frá.
Húsfreyjan mæta, móðirin góð,
mikið er skarðið eftir stöndum hljóð.
Hlýtt átti hjarta og ríka lund,
horfin og kvödd, en aðeins um stund.
Guð gefur frið og læknar sorgarsár,
gleði aftur veitir af augum þerrar tár.
Að eiga á himnum, horfinn ástvin sinn,
hamingja er, sem gefur frelsarinn.
Innilegar þakkir fyrir öll gömlu árin.
Frá Rósu Garðarsdóttur.
Barnablaðið Vorið er nú 35
ára. Næstum allan þann tíma
hefur það komið út undir rit-
stjórn Hannesai’ J. Magnússon-
ar og Eiríks Sigurðssonar, en
þeir voru báðir skólastjórar á
Akureyri'. Blaðið hefur flutt
fjölmörg stutt leikrit og í það
hafa skólar, bai-nastúkur og
önnur félagasamtök sótt efni til
flutnings.
Langflest börn eru sólgin í
að lesa sögiu- og ævintýri, flytja
leikrit og leysa gátur því eiga
bamablöðin eigi síður vinsæld-
um að fagna á heimilunum en
stjórnmálablöðin. Mun vissu-
lega óhætt að mæla með, að
yngsta kynslóðin eignist lesefni
við sitt hæfi.
I. Ú.
Kveðja frá Hildi Pálsdóítur frá Brautarholti
Ég þakka þér Guðrún öll gæðin til mín
er gafst þú af kærleika þínum.
Ég guð bið að launa öll góðverkin þín
er geymd eru í huganum mínum.
Signi þig Guðrún nu'n sumarsins dís
í sölum guðs Ijós þér mun skína.
Til upphæða Drottins er vegur þér vís
hann vakir við hvíluna þína.
Það sakna þín margir og svo er um mig
vor samleið var ljósgeislum vafin.
En sú kemur tíðin að sjá mun ég þig
þín sál er til gxtðsríkis hafin.
Að síðustu ert þú með kærleika kvödd
við kynningu þökkum þér alla.
Það er sem að heyrum við himneska rödd
þar herskarar guðs á þig kalla.
H. J.
Kveðja
í sumarkveðju sorgarómur býr
og sólargeislinn bak við skuggann flýr.
Þá húsfreyjan er kvödd við hinztu för
við heitum spurnuxn verður fátt um svör.
En eigin sköpum enginn renna má
og árin fyrr en varir líða hjá
að baki þeirra eilífð ríkir ein
og endurvekur blóm og græðir mein.
Ég minnist þín, er sólin gyllir sund
og söngur vorsins berzt um gróinn lund.
Ég minnist þín, er blærinn svalar brá
og bylgjan rís úr djúpi sterk og liá.
Þú áttir heita og djarfa lietjulund
og heit og traust og gjöful var þín mund.
Þín vinátta á bjargi reyndist byggð.
Það báru margir vitni þeirri dyggð.
En þeim, sem háðir voru harmi og neyð
var hægust æ og greiðust til þín leið.
Þú skildir rétt og varðir minni mátt
og merkið þannig hófst í sólarátt.
Á ævimorgni glöð þú varst og glæst
á glöðu vori bar þig kvenna hæst.
En stundum fölna rósir fyrr en veit
og forsælunni bregður yfir sveit.
Þín heilsa brást þá húmið yfir dró
og harmur ríkti, þar sem gleðin bjó.
En birta mun við þessi þátta skil
og þinnar móður fylgd er rík af yl.
Svo hverf þá heim til liærri sviða nú
þér hugir fylgja í þökk og bæn og trú.
Af minningunum fagra birtu ber.
Nú bregzt ei sumar það, sem heilsar þér.
Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum.