Dagur


Dagur - 19.08.1970, Qupperneq 2

Dagur - 19.08.1970, Qupperneq 2
2 A Hópur kylfinga á e'.zta velii G. A. Þarna þekkja gamlir Akureyringar sjálfsagt rnarga, en fyrir ® f miðju (á hvítri pcysu) er Gunnar Schrarn, fyrsti formaður klúbbsins. % Vigður nýr golfvöllur é Akureyri Schram, fyrsti formaður klúbbs er velkomið að koma upp á ins, slá fyrsta höggið. Jaðar á meðan keppnin stendur Bent skal á, að áhorfendum yfir. □ Vinna kvenna kreíst menntunar 'HINN 19. ágúst árið 1935 var Golfklúbbur Akureyrar stofn- aður. Fyrstu stjórn skipuðu: Gunnar Schram, formaður, Svanbjörn Fiímannsson og Jakob Frímannsson. Fyrsti völl- ur félagsins var þar sem nú er athafnasvœði Slippstöðvarir.nar, en 1945 keypti klúbburinn land sunnan og ofan Menntaskólans á Akureyri og þar hefur verið leikið fram á þennan dag. Laugardaginn 22. ágúst verð- ur vígður nýr völlur klúbbsins að Jaðri við Akureyri. Er það nú 9 holu völlur, en ætlunin er að stækka hann í 18 holu völl. Keppnin nú verður 3G holu 'höggleikur, og er það opin keppni fyrir alla kylfinga lands- ins. Búizt er við töluverðri þátt- töku utan af landi. Vígsla vall- arins fer fram á laugardaginn kl. 13.30, og mun Gunnar Fyrr á ]>essi: ári tóku flugfreyj- ur F. í. upp búning þann, er hér geíur að líta og þykir fallegur, og sýnist klæða hina fríðu konu vel. HINN síaukni þáttur, sem kon- ur í vanþróuðum löndum eiga bæði í landbúnaðarstörfum og efnahagslífinu 'yfirleitt, krefst menntunar, sem geri þeim kleift að takast á hendur þá ábyrgð sem á þær er lögð í sambandi við efnahags- og félagsmála- þróunina í landbúnaðarlöndum. Þetta er eitt þeirra atriða, sem lögð er áherzla á í skýrslu um faglega menntun í sveitum, sem lögð var fram á alheimsráð- stefnu um menntun sveitafólks í Folkecentret í Kaupmanna- höfn dagana 28. júlí til 8 ágúst. Ráðstefnan var 'haldin og skipu- lögð af Matvæla- og landbún- aðarstofnun Sameinuðu þjóð- anna (FAO), Menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóð anna (UNESCO) og Alþjóða- vinnumálastofnuninni (ILO). í skýrslunni er ennfremur bent á hið útbreidda ólæsi með- al kvenna — einkanlega í hita- beltislöndum — þar sem það er algengara en meðal karlmanna. Eigi að síður er lögð á konur vaxandi ábyrgð í sambandi við landbúnaðarstörf, og það eru þær sem nálega alls staðar bera ábyrgð á fjárhagsafkomu fjöl- skyldunnar. í skýrslunni er lögð áherzla á, að nauðsynlegt sé að veita konum betri upp- lýsingar um heilsuvernd og tak mörkun barneigna. Flóttinn úr sveitunum. í skýrslunni er einnig fjallað um eitt mesta vandamál fátæku landanna í heiminum, sem sé flóttann úr sveitum til borga og bæja. Það eru einkum ungt fólk sem yfirgefur landbúnað- inn og heldur til borganna. Það tekur sig upp af margvíslegum orsökum — að nokkru vegna þess að jörðin veitir ekki nægi- legan afrekstur, að nokkru vegna þess að jarðarskikarnir eru ekki nógu stórir til að fram fleyta allri fjölskyldunni, og að nokkru vegna þess að þvLfinnst tilveran úti á landsbyggðinni ömurleg og finnst það vera ein- angrað, bæði andlega og efna- lega. Eftir því sem menntunarskil- yrðin batna, eykst straumurinn til borganna. Þess vegna er ofur eðlilegt, að ýmis ríki telji, að betri menntun orsaki flóttann úr sveitum til bæja og þar af leiðandi atvinnuleysi í þéttbýl- inu. Það hefur víða komið á daginn, að ungt fólk af báðum kynjum, sem lýkur skólagöngu um 16 ára aldur, lítur á það sem fullkomna niðurlægingu að snúa aftur heim til foreldrahús- anna til að stunda landbúnaðar- störf. í skýrslunni er þó lögð áherzla á, að þéttbýlismyndun sé eðlilegt fyrirbæri í landi þar sem efnahagskerfið er að breyt- ast. í stað þess að leitast við að stöðva þessa þróun eru hlutað- eigandi lönd hvött til að horf- ast í augu við hana og færa sér hana í nyt með því að veita því sveitafólki, sem er fastákveðið að flytjast í þéttbýlið, faglega grundvallarmentun, sem búi það undir vistaskiptin og hina nýju lífshætti. Fyrir þá, sem búa áfram í sveitunum, er fag- leg menntun einnig nauðsynleg, svo þeir geti gert landbúnaðinn nýtízkulegri og arðbærari. Einn helzti þröskuldur þess að veita sveitafólki í vanþróuðu löndunum faglega tilsögn er ólæsið, sem er algengara í sveit um en í þéttbýli. D AUÐ AREFSIN G AR eru að hverfa úr sögunni nálega um allan heim. Fjöldi afbrota, sem leiða til dauðadóms minnkar, eða þeim er ekki fullnægt. Á einum stað er þessi þróun í gagnstæða átt og það er í Suður-Afríku, samkvæmt upp- lýsingum alkirkjuráðsins þar. Samkvæmt þeim eru í S.- Afríku framkvæmdar jafnmarg ar aftökur og í öllum öðrum löndum heims, samanlagt. Frá 1911—1966 var 2107 dauða- dómum fullnægt fyrir morð, nauðganir, rán, innbrot og skemmdarverk, og flestar þess- ar aftökur hafa farið fram á síð- ustu 15 árum. En í skýrslunni kom einnig fram, að hvítir menn hlutu sjaldan slík örlög vegna morða á hörundsdökku fólki, né heldur fyrir nauðganir á svörtum. Hins vegar var flest- um dauðadómum fullnægt, ef sakamaður var svartur en fórn- arlambið af hvíta kynstofnin- um. Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt magar ályktanir, þar sem dauðarefsingarnar eru vítt- ar. En engar breytingar eru enn sjáanlegar í þessu efni í Suður- Afríku. í rnörgum löndum vex þeirri stefnu fylgi, að breyta mjög refsingum þeirra manna, er brjóta reglur samfélagsins á Umf. Haríi vann sundn£! UMSE HIÐ árlega sundmót Ungmenna sambands Eyjafjarðar fór fram í Sunglaug Hríseyjar 25. júlí sl. Umf. Narfi í Hrísey, yngsta fé- lagið innan UMSE, vann mótið að þessu sinni. Sundá'hugi er mikill í Hrísey. Halldór Gunn- arsson íþróttakennari hefur ver ið þar að undanförnu við sund- og aðra íþróttakennslu. Þess skal getið að sundlaugin í Hrís- ey er aðeins 12.5 m. að lengd. Helztu úrslit urðu þessi: 100 m. bringusund. mín. Frímann Guðmundss., M. 1.22.1 Árni Hjartarson, Þ.Sv.A. 1.23.5 200 m. bringusund. mín. Frimann Guðmundss., M. 3.08.4 Árni Hjartarson, Þ.Sv.A. 3.13.3 100 m. frjáls aðferð. mín. Þórarinn Hjartars. Þ.Sv.A. 1.13.8 Árni Hjartarson, Þ.Sv.A. 1.19.7 50 m. baksund. sek. Þórarinn Hjartars., Þ.Sv.A. 42.5 Sævar Sigmarsson, N. 46.8 4x50 m. boðsund. mín. Sveit Umf. Þorsteinn Svörfuðar og Atla 2.19.1 Sveit Umf. Narfa 2.20.5 Kvennagreinar. 50 m. bringusund. sek. Sigríður Stefánsdóttii', Sv. 44.9 Hrönn Ottósdóttir, N. 46.4 100 m .bringusund. mín. Dóroþea Reimarsd., Sv. 1.41.4 Hrönn Ottósdóttir, N. 1.44.6 50 m. frjáls aðferð. sek. Hrönn Ottósdóttii', N. 38.4 Steinunn Hjartard., Þ.Sv.A. 39.0 50 m. baksund. sek. Dóroþea Reimarsdóttir, Sv. 47.2 Steinunn Hjartard., Þ.Sv.A. 48.0 Hrönn Ottósdóttir, N. 48.0 4x50 m. boðsund. mín. Sveit Umf. Narfa 2.50.9 Sveit Umf. Svarfdæla 3.00.0 eru að hverfa hverjum stað, milda þær, en þó fyrst og fremst að koma afbrota mönnum til hjálpar, fremur en refsa þeim, nema viðkomandi sé 'beint hættulegur umhverfi sínu, en þá er um andlega eða líkamlega sjúkdóma að ræða, sem ekki hverfa á mönnum í fangelsi, heldur á sjúkrahúsum. Stig félaga. stig Umf. Narfi (N) 42.0 Umf. Þorsteinn Svörfuður og Atli (Þ.Sv.A.) 39.5 Umf. Svarfdæla (Sv.) 23.5 Umf. Möðruv.sóknar (M) 10.0 Umf. Skriðuhrepps 7.0 Umf. Narfi van nú í fyrsta skipti Sundskjöld UMSE. Móts- stjóri var Halldór Gunnarsson íþróttakennai'i. (Fréttatilkynning) Umf. Svarfdæla vann handknattleikskeppni KVENNAMÓT UMSE í hand- knattleik var haldið nýlega. Fjögur lið tóku þátt í því. Umf. Svarfdæla vann mótið, fór með sigur af hólmi í öllum sínum leikjum. Stigin skiptust þannig: stig Umf. Svarfdæla.............. 6 Umf. Ársól og Árroðinn .... 3 Umf. Reynir..................2 Umf. Narfi ................. 1 VINNINGASKRÁ Happdrætti H. I. Vinningar í 8. flokki 1970 Akureyrarumboð Þessi númer hlutu 10.000 kr. vinning hvert: 8049, 8846, 9178, 14388, 53823. Þessi númer hlutu 5.000 kr. vinning hvert: 3153, 12183, 13264, 13963, 18466, 21732, 23012, 23555, 29014, 44814, 49127, 53933. Þessi númer hlutu 2.000 kr. vinning hvert: 540, 1550, 2940, 2949, 3170, 3351, 3374, 5205, 5672, 5675, 6007, 6024, 6559, 6894, 7030, 7135, 7141, 7514, 8517, 9835, 10093,10137,10209, 10224, 11879, 11999, 12083,12200, 12430, 12681, 12693, 13268, 13395, 13961, 14934, 15566, 16913, 16947, 17629, 17946, 18204, 18224, 18471, 19053, 19070, 19351, 19427,19583, 19596, 19911, 19919, 19923, 20721, 21265, 21760, 22150, 22229, 22408, 22416, 23230, 23590, 23857, 24025, 24774, 25960, 26316, 28676, 29293, 30506, 30559, 31559, 31565, 33193, 33406, 33419, 35057, 35585, 36470, 37018, 40592, 41162, 42001, 42615, 43078, 43305, 44744, 44885, 48297, 49094, 51709, 51899, 52139, 53221, 53240, 53244, 53808, 53829, 53912, 53941, 54084, 54093, 57911, 58033, 59765. (Birt án ábyrgðar) Þessi mynd er frá 17. júní í sumar er Björg Baldvinsdóttir flutti fornt spekimál á úíihátíðinni á íþróttaleikvangi Akureyrar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.