Dagur - 30.09.1970, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNÐAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Átfa létuzt í flugslysi í Færeyjum
ÁTTA manns létust í flugslysi
í Færeyjum, er leiguflugvél Ff,
Fokker Friendship, með 30 far-
þega fórst á fjallinu Knúkur á
Mykinesi á laugardaginn. Flug-
stjórinn, Bjarni Jensson, lézt og
sjö Færeyingar, margir slösuð-
ust mikið og aðrir minna.
Björgunaraðstaða var erfið,
þar sem veður var illt og sjó-
gangur mikill. Um sex klukku-
stundum eftir slysið barst fyrsta
lijálpin, leiðangur frá Hvíta-
birninum. En frá Mykinesi þar
sem um 108 manns búa, fóru
flestir karbnenn á slysstað, er
þeir fréttu um slysið. En það
var þegar þrír farþegar flugvél-
arinnar komu gangandi til
byggða. Þyrla Ilvítabjarnarins
flutti sjúklinga og aðra til Þórs
hafnar eða um borð og skipið
liélt síðan til Þórshafnar, þar
sem allir, er lífs voru og slas-
aðir lilutu hjúkrun. En flestir
þeirra liggja þar enn.
Rannsókn þessa liörmulega
slyss stendur nú yfir. Q
Nægileg vinna á Skagaströnd
FRÉTTARITARI Dags á Skaga
strönd sagði í gær:
Sumarblíða með 15 stiga hita
þegar bezt lætur, hefur verið
undanfarna daga og mjög kær-
komin.
Atvinna er nægileg eins og
er. Sauðfjárslátrun stendur yfir
og er lógað 3—400 á dag en alls
verður 10 þúsundum lógað.
Sláturhússtjóri er Björgvin
Jónsson.
Arnar hefur komið með tals-
verðan afla. Helga Björg er að
'koma úr viðgerð og fer strax á
veiðar. Hingað er búið að kaupa
lítinn bát, Blika frá Reykjavík,
sem veiða mun rækju, ásamt
Guðjóni Árnasyni, sem þær
veiðar stundar og aflar vel. □
Á þessari mynd halda dómarar héraðs-hrútasýningarinnar í þrjá heiðursverðlaunalmitana, er bezta
dóma hlutu. Dómararnir f. v. Sveinn Hallgrímsson lieldur í Ófeig, Sigurjón Steinsson í Þorra og
Iljalti Gestsson heldur í hornið á Nixon. (Ljósm.: E. D.)
Hrútasýning Búnaðarsamb. Eyjaljarðar
í HAUST fóru fram hrútasýn-
Metveiði í laxám landsins
ingar búnaðarfélaga hinna ýmsu
hreppa á félagssvæði Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar. En á
sunnudaginn var svo haldin
héraðs-hrútasýning á Ásláks-
LAXVEIÐI er lokið í ár, og
telur Þór Guðjónsson veiðimála
stjóri hana meiri en nokkru
sinni áður, samkvæmt viðtali
við hann í gær. Væru þó að
vísu ekki fram komnar allar
tölur um endanlega veiði, þótt
sýnt þyki engu að síður, að met
laxveiði hafi orðið þegar á
heildina er litið.
Elliðaárnar gáfu rúma 1000
laxa í sumar, Laxá í Kjós 1721,
í Norðurá veiddust 2150 laxar,
sem er algert met, í Þverá var
einnig metveiði og álíka margir
laxar. Langá á Mýrum gaf 1500
laxa, sem er langtum meira en
áður, en þar, eins og víða, hef-
ur verið gerður fiskvegur og
einnig vatnsmiðlun. Haukadalsá
gaf 975 laxa og Laxá í Dölum
1043 laxa, og er þar um met að
ræða í báðum. Miðfjarðará var
með 655 og hefur stundum ver-
ið gjöfulli, en Víðidalsá gaf 1050
og í Vatnsdalsá veiddust 625 og
Laxá á Ásum 640. Hrútafjarð-
ará var komin allhótt, en endan
leg laxatala er ekki komin.
Laxá í Þingeyjarsýslu var full
af laxi og veiði góð, sennilega
yfii' 1500 laxar. Þistilfjarðar-
árnar, svo og árnar í Vopna-
firði, voru mjög gjöfular í sum-
ar. Tölur cru ókomnar úr þeim
landshluta. Árnar í Árnessýslu
verðlaun. Að því loknu flutti
Hjalti Gestsson ráðunautur Bún
aðarsambands1 Suðurlands
ávarp, en Ármann Dalmanns-
son sleit svo sýningunni.
Á sveitasýningunum í haust
stöðum í Arnarneshreppi, og voru 413 hrútar sýndir. Fyrstu
voru goðar i sumar og stang- og var þar margt bænda saman verðlaun hlutu 240 eða 58%,
netaveiði mikil, ennfremur var komið með kynbótagripi sína. sem er nokkru betra en á hrúta
góð netaveiði í Hvítá í Borgar- Um klukkan tvö síðdegis setti sýningunum fyrir fjórum árum.
firði. Ármann Dalmannsson formað- En á héraðssýningunni á
Árið 1968 var mesta laxveiði- ur BSE sýninguna með stuttu
árið fram að þeim tíma, þá ávarpi. Að því loknu skýrði
veiddust 37000 laxar á landinu Ólafur Vagnsson ráðunautur
öllu. Nú mun veiðin enn meiri. BSE niðurstöður sýninga þeirra
Helmingur veiðinnar fæst í net. í sveitum, sem áður höfðu fram
í Kollafjarðarstöðina hafa farið. En Sveinn Hallgrímsson
gengið 3944 laxar, sagði Þór sauðfjárræktarráðunautur Bún
Guðjónsson veiðimálastjóri að aðarfélags íslands lýsti dómum
lokum. □ á héraðssýningunni og afhenti
Féð á öskufalSssvæðum allvænf
sunnudaginn voru 36 hrútar úr
öllum hreppum félagssvæðis-
ins, en Ólafsfirðingar og Sigl-
firðingar höfðu ekki tök á að
mæta til sýningarinnar.
Á héraðssýningunni hlutu 10
hrútar fyrstu heiðursverðlaun,
þ. e. fengu 80 stig eða meira, 15
hrútar hlutu fyrstu verðlaun A
og 11 hrútar fyrstu verðlaun B.
(Framhald á blaðsíðu 4)
DAGUR hafði samband við Guð
mund Jónasson bónda á Ási í
Vatnsdal og aðspurður sagði
hann efnislega:
Tíðin 'hefur verið framúrskai'
andi góð og nógir þurrkar. Hey-
skap er því víðast lokið, og þótt
hey kunni að vera úti á stöku
bæ, er það ekki teljandi. Hey-
fengur bænda var mjög misjafn,
allt frá því að vera mjög lítill
og upp í það að vera sæmilegur.
í heild eru hey minni en oftast
áður og bústofn verður skertur
í haust, t. d. ekkert látið lifa af
lömbum.
Sauðfjárslátrun stendur yfir á
Blönduósi og reynist féð í meðal
Votheysturninn sprakk
ÞAÐ bar til á Grund í Höfða-
hverfi fyrir helgina, gð 11—12
metra hár, steinsteyptur vot-
heysturn Helga Snæbjörnsson-
ar bónda þar, sprakk og hrundi
niður, yfir dráttarvél og blás-
ara.
Þennan dag var verið að
flytja grænfóðurhafra, í turn
þennan, og var bóndi og fólk
hans að drekka síðdegiskaffið,
er turninn brast. Var það hið
mesta lán, að menn voru- þar
ekki að störfum, er þetta bar
við.
Féð reynist nokkru léttara í
sláturhúsinu á Svalbarðseyri en
í fyrra, en þá var meðalvigt
dilka rúm 15 kg. Á Svalbarðs-
strönd er kartöfluuppskera lítil
að þessu sinni, en rneiri í sunn-
anverðum Grýtuibakkahreppi.
(Samkvæmt viðtali við Valtý
Kristjánsson).
lagi vænt. Ekki ber mikið á
veiki af völdum eiturefna í gos-
öskunni, en þó er ein og ein
kind hölt. Lógað verður upp
undir 50 þús. fjár á Blönduósi.
Kartöfluuppskera er með
betra móti.
Árnað voru gjöfular hér um
slóðir í sumar og meiri laxveiði
í þeim en venjulega, nema í
Miðfjarðará. Hérna í Vatns-
dalsá veiddust á þriðja hundrað
löxum fleira en í fyrra og Víði-
dalsá var betri en í fyrra.
Ur V.-Hún. var farið með
geldneyti vestur á Snæfellsnes
og við fluttum geldneyti, mest
kvígur, úr Vatnsdal og Þingi í
Eldjárnsstaði í Blöndudal, en
þar var girðing sett upp. Naut-
peningur þessi er allui' kominn
heim og hefur farið sæmilega
með sig í sumar.
Töluvert er spurt eftir hross-
um, bæði til lífs og einkum þó
til frálags. Verð er hækkandi,
eins og á. öðrum vörum.
Hross verða réttuð 1. októ-
ber í Undirfellsrétt. En á mánu
daginn eru aðrar göngur. Hross
um var áður smalað að nokkru
og eru þau nú í Víðidalsfjalli,
en allar heiðarnar verða hreins-
aðar, allt fram á Stórasand, til
öryggis. Veður var fágætlega
gott í fyrstu göngum. □
■
Gúðlaugur í Merkigili með bezta hrút sýningarinnar, Ófeig.
(Ljósm.: E. D.)
Piltur særðist af skoti
Grímsey 29. sept. Það slys varð
á sunnudaginn, að riffilskot
hljóp í læri 17 ára pilts hér í
Grímsey. Var hann fluttur til
Akureyrar, þar sem læknar
náðu kúlunni og gerðu að sári
hans. Mun þetta verða öðrum
ábending um, að fara gætilega
með skotvopn.
í sumar hefur aflazt vel. Sept
ember var ógæftasamur frarnan
af og nú hafa menn unnið um
hálfs mánaðar skeið að fisk-
mati, en fara síðan á sjó ef
gefur.
Gróður er enn grænn og féð
fer vel með sig. Slátrun er ekki
hafin ennþá. S. S.
SJOSETNINGIN A
LAUGARDAGINN
SLÍPPSTÖÐIN hefur í hyggju
að sjósetja nýja strandferða-
skipið, sem Skipaútgerð ríkisins
á þar í sniíðum, árdegis á laug-
ardaginu. □