Dagur - 21.10.1970, Side 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarniaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
LANDS6YGGÐ
HVERNIG á að hafa landsbyggð?
Þessi spurning brennur á vörum víða
um heim, en var til skamms tíma
lítill gaumur gefinn. Síðustu aldirn-
ar þöndust gömlu borgirnar út og
nýjar borgir voru reistar, einkum í
iðnaðarlöndum. Borgarlífið hefur
verið eftirsóttara. Þar er hámenning-
in talin vera, þægindin mest, mögu-
leikarnir flestir og hvergi önnur eins
tækifæri til að höndla hamingjuna.
En skuggahverfi stórborganna
segja sína sögu, og nú standa íbúar
stórborganna frammi fyrir nýju
vandamáli og geigvænlegri liættu.
Það er búið að spilla andrúmslofti
og vatni svo mjög, að gróður og dýra-
líf tortímist, og fólk er byrjað að
ganga með lofthreinsigrímur fyrir
andliti. Nú er atomöld, og véltækni
á háu stigi. Gífurleg brennsla elds-
neytis farartækja, mengað loft frá
verksmiðjum, lirgangsefni af ýmsum
toga, rányrkja og ofveiði hafa rofið
hið eðlilega samhengi allrar lifandi
náttúru, sem maðurinn og umhverfi
hans er hluti af. Við blasir svo geig-
vænleg tortíming, að hvarvetna er
snúist til vamar.
Ekki er það á valdi okkar íslend-
inga að leysa liið mikla vandamál
stórþjóðanna. En við megum minn-
ast þess með þakklæti í huga, að hér
var landsbyggð dreifð frá fyrstu tíð,
og fram á okkar daga, eins og aðrar
þjóðir óska nú eftir. Einnig, að enn
eigum við hálfnumið land og því
óteljandi möguleika til að skapa
byggð og búsetu á annan veg í frarn-
tíðinni, en þróun síðustu áratuga
bendir til og leitt hefur ófarnað yfir
aðrar þjóðir.
íslendingar hljóta að forðast það
nú, með reynslu annarra í huga, að
þjappa byggð sarnan á takmörkuð-
um svæðum lands, en vanrækja lands
byggðarstefnuna og þar með nýtingu
auðlinda að verulegu leyti. Lands-
byggðina þarf að efla, dreifa lands-
byggð, svo mikið gildi hefur hún
fyrir framtíð þjóðarinnar allrar. Of-
vöxtur Reykjavíkursvæðisins, á
kostnað landsbyggðar, er slys. En
þjóðfélagið liefur þó enn að veru-
legu leyti á valdi sínu, hvemig land-
ið verður byggt á komandi tímum.
Ráðstöfun fjármagns og raforku,
staðsetning opinberrar þjónustu og
nýting orkulinda mun ráða þar
rniklu um. En þessi mál öll verða
rædd á Alþingi næstu vikur og
mánuði. □
Beilur um Hornborgarsjöen í Svíþjo
Vatnsveitustjórinn bendir á stað, þar sem stífla yrði gerð í Glerá vegna vatnstöku, ef til kænii. Sá
staður er við Fosslæk og lítinn spöl framan við gamla göngubrú yfir ána. (Ljósm.: E. D.)
- Ný vafnsveifa fyrir Ákureyrarkaupsfað
MIKLAR umræður fara nú
fram í mörgum löndum heims
um náttúruvernd. Eitt' dæmi
um slíkar umræður fara nú
fram í Svíþjóð um þessar mund
ir og virðast umræðurnar vera
allharðar.
í sænska landbúnaðarviku-
blaðinu Jordbrukarnes Fören-
ingsblad frá 11. september er
skýrt frá harðri deilu, sem risin
er á milli nokkurra aðiia varð-
andi náttúruvernd á svæði Horn
borgarstöðuvatnsins í Skara-
borgslan í Svíþjóð. í umhverfi
vatnsins er og hefir verið all-
mikil byggð, en árið 1902 var
byggð rafstöð við afrennsli
þessa mikla vatns. Raforkufram
leiðendur vilja nú auka orku-
framleiðslu þessarar rafstöðvar
með því að hækka yfirborð
vatnsins með gerð hærri stíflu.
Landeigendurnir í nágrenni
vatnsins vilja hins vegar ekki
að yfirborð vatnsins verði hækk
að og sama gildir um náttúru-
verndarfélög og náttúruunnend
HAUSTIÐ 1968 var, á aðalfundi
Kennarafélags Eyjafjarðar, sam
þykkt tillaga þess efnis, að
stjórn félagsins var falið að
vinna að því, að kennari yrði
sendur utan til náms í tal-
kennslu, þar sem brýna nauð-
syn bæri til að minnst einn tal-
kennari yrði starfandi í hverj-
um landsfjórðungi. Vorið eftir
hóf stjórnin undirbúning þessa
máls.
Þar sem félagið hefur ekki
yfir neinum sjóðum að ráða,
þótti sýnt, að leita yrði til sveit
arfélaga og félagasamtaka þessu
máli til stuðnings. Var ákveðið,
að snúa sér til þessara aðila í
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
um. Skólastjórar á svæðinu
voru beðnir að leggja málinu
lið, hver í sínu skólahverfi, en
kvenfélögunum og sveitarfélög-
unum send tillagan og eftirfar-
andi greinargerð:
„Ollum er kunnugt, að æði
margir þjóðfélagsborgarar hafa
meiri eða minni talgalla. Má þar
til nefna: stam, smámæli, gor- ■
mæli, hljóðskrið o. fl. Viðkom-
andi fólki er mikil raun að tal-
gallanum, en flestir geta ekki
ráðið bót á honum hjálparlaust.
Árlega koma í skóla börn
með meiri eða minni talgalla og
jafnvel ófullkomna getu til þess
að gera sig skiljanleg.
Háir það mjög námi þessara
barna og veldur þeim oft sálar-
kvölum.
Almennt kennaranám er ekki
miðað við talkennslu.
Til þess þarf sérhæft nám, er
tekur tvö ár og verður að
stunda það erlendis. Kennarar,
er lokið hafa þessu sérnámi, fá
lítið hærri laun en almennir
kennarar, og tveggja ára nám
erlendis myndi varla kosta
minna en 360 þúsund krónur,
fyrir utan vinnutap, er næmi
nokkru hærri upphæð. Fáa mun
því fýsa til þessa náms og má í
því sambandi nefna, að aðeins
tveir talkennarar eru starfandi
í landinu við almenna skóla, og
eru þeir í Reykjavík. Hafa þeir
svo mikið að gera, að tæpast er
þess nokkur kostur að fá þá til
starfa úti á landi. Þó kom annar
þeirra til Akureyrar fyrir nokki-
um árum og vann ómtanlegt
starf. Var þó ekki hægt að sinna
nema örlitlu broti af þeim verk
efnum, sem fyrir lágu.
Að fenginni reynslu, sjáum
við okkur ekki annað fært, en
ur á þessu svæði, því með þessu
móti fara hundruð hektara und
ir vatn og þetta muni ekki hvað
sízt gjörbreyta fuglalífinu á
vatninu og í umhverfi þess.
Um þetta mál hafa margir sér
fræðingar látið í ljósi álit sitt
hér að lútandi, og á ólíkan hátt,
og í mörgum tilfellum hafa stór
yrðin ekki verið spöruð. Deil-
urnar um þetta mál hafa komið
allmikið fram bæði í hljóðvarpi
og sjónvarpi í Svíþjóð, og við-
horf almennings varðandi þetta
deilumál er talsvert ólíkt.
Hér eru aðallega þrír aðilar,
sem eiga í deilum. í fyrsta lagi
rafstöðvareigendur, í öðru lagi
landeigendur og í þriðja lagi
náttúruverndarráð og þeir sem
með því standa.
Landeigendur segja m. a. að
rafveitueigendur hafi ekki stað
ið við þá samninga, sem upp-
haflega voru gerðir varðandi
virkjunarframkvæmdir og hafi
oft brotið „Vatnalögin“. Stíflu-
gerðin við affallið úr vatninu
almenningur taki höndum sam-
an og vinni að þessu máli svo
sem kostur er. í því sambandi
snúum við okkur til sveitar-
stjórna og bæjarstjórna og biðj-
um liðsinnis. Hugmynd okkar
er sú, að hver bæjar- og sveitar
stjórn í Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarsýslum veiti af almannafé,
er þær hafa yfir að ráða, sem
næst finun krónum á hvern ein-
stakling sveitarfélagsins og
yrðu greiðslur þessar inntar af
höndum í tvö ár. Með þessu
framlagi væri vel hugsanlegt,
að kennari fengist til þess að
hefja þetta dýra nám. Kennar-
anum yrði sett ákveðin skilyrði
varðandi styrkinn og starf eftir
að námi r lokið. Myndu styrkj-
endur sitja fyrir starfi þessa
manns.
Við sendum yður hér með
eyðublað til útfyllingar og vilj-
um um leið taka fram, að okkur
er nauðsyn á að vita svarið, á
hvorn veginn, sem það verður.
Að lokum viljum við benda á,
að ef þetta mál fær ekki nægi-
legar undirtektir, getum við átt
von á, að börn og unglingar í
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýsl-
um muni enn um sinn verða
án leiðbeininga á þessu sviði og
vafalaust getum við reiknað
með því, að sum þeirra beri þess
merki alla ævi.“
Flest öll sveitarfélögin hafa
svarað, og öll svörin, sem borizt
hafa, verið jákvæð. Tvö kven-
félög hafa einnig ákveðið að
leggja þessu máli lið og annað
þeirra sent verulega fjárhæð. ’
Fyrir þessar góðu undirtektir
vill stjórn Kennarafélags Eyja-
fjarðar hér með þakka. Fram-
lögin, sem væntanleg eru, hafa
gert það kleift að auglýsa náms
styrk. Ekki er enn vitað, hversu
hár hann verður, en að sjálf-
sögðu er upphæðin niikið atriði,
ekki sízt vegna þess, að styrk-
þegi er bundinn starfi að námi
loknu. Þegar hefur verið tryggð
skólavist fyrir væntanlegan
styrkþega í einum fullkomn-
asta kennaraháskóla á Norður-
löndum og er gert ráð fyrir, að
námið þar hefjist haustið 1971.
Við treystum því, að þau
sveitarfélög og kvenfélög, sem
enn hafa ekki svarað bréfum
okkar, svari jákvætt og sem
allra fyrst.
Nokkur framlög til viðbótar,
geta ráðið úrslitum um, hvort
styrkþegi fæst.
Indriði Úlfsson.
hafi verið illa gerð og sígið nið-
ur í undirlögin og geri enn. Raf
veitan hafi af og til verið að
hækka stífluna en þó ekki í
neinu samræmi við sig stíflunn
ar, en þannig hafi yfirborð
vatnsins ýmist hækkað eða
lækkað og hafi slíkar sveiflur
'haft margbreytileg áhrif í dýra-
lífið í vatninu sjálfu svo og á
fuglalífið á vatninu og í ná-
grenni þess, ennfremur á lönd
jarðeigenda á þessu svæði. Slík
eyðilegging hafi aldrei verið
bætt, hvorki af rafveitueigend-
um eða ríkisvaldi. Og þrátt fyr-
ir kærur hér að lútandi, sem
sendar hafi verið í gegnum
náttúruverndarráð, þá hafi þeim
seint eða ekki verið svarað.
Ennfremur segja landeigend-
ur, að þeim sé ljóst að mál þessi
þurfi að meðhöndla með fyllstu
varúð og tillitssemi. Fyrir það
þurfi að hætta deilum og stór-
yrðum en reyna hins vegar að
leita samstarfs um málið.
Náttúruverndarráð segir m.
a.: Við eigum og þurfum að
gera „Hornborgarsjöen“ og ná-
grenni hans að dásamlegum
dvalarstað fyrir alla þá sem
unna náttúrunni og fegurð
hennar. „Hornborgarsjöen“ er
einstök fuglaparadís og þangað
streymir ferðafólk í þúsunda-
tali til að njóta náttúrufegurðar
innar oog horfa á fuglalífið og
þá ekki hvað sízt til að sjá
„stoi'k-dansinn" svonefnda. En
á margt annað er að líta í þessu
sambandi. Því miður er um-
gengni ungmenna og annarra á
slíkum stöðum sem þessum oft
mjög ábótavant og tillitslaus
gagnvart hinu fagra og dýr-
mæta umhverfi. En til þess að
bæta úr þessu þarf raunhæfar
aðgerðir og skilning allra aðila.
Þessi endursögn úr Jord-
'brukarnas Föreningsblad í Sví-
þjóð gefur tilefni til að renna
huganum til okkar sjálfra og til
þeirrar deilu, sem nú á sér stað
í S.-Þingeyjarsýslu í sambandi
við Laxá og Mývatn ásamt nær
liggjandi landsvæðum annars
vegar og Laxárvirkjunar hins
vegar. Hér er á ferðinni mál,
sem þarf að leysa með víðsýni
og samstarfi deiluaðila og ríkis
valds, en lausn þess getur haft
víðtæk áhrif um langan aldur.
Eins og réttilega er bennt á í
frásögn hins sænska blaðs, þá
duga hér engin stóryrði eða yfir
læti, slíkt er verulegur skað-
valdur í sambandi við rétta og
farsæla lausn þessa vandamáls,
sem varðar lífsafkomu og menn
ingarlegt samstarf allra, er búa
á þessu landsvæði. Réttlát og
farsæl lausn þessa máls fæst
naumast nema að ideiluaðilar
geti rétt fram hendur sínar til
samstarfs og það nú þegar.
EFTIR tvær umferðir í fjögurra
kvölda tvímenningskeppni B. A.
er röðin þessi:
A-riðill: stig
1. Halldór — Jóhann 395
2. Bjarni — Jóhann 379
3. Dísa — Rósa 374
4. Baldur — Ragnar 373
5. Birgir — Birgir 366
6. Mikael — Sigurbjörn 360
7. Jónas — Þorsteinn 356
8. Jóhannes — Sveinn 351
9. Hörður — Jón 339
10. Bogi — Gunnar 338
11. Guðm. — Haraldur 336
12. Baldur — Reynir 333
B-riðill: stig
1. Guðjón — Þormóður 332
2. Sigfús — Rafn 331
(Framhald af blaðsíðu 1).
inga. En samkvæmt eðli máls-
ins ættu Akureyringar þó að
nota sinn bæjarlæk, sem er
Glerá og er mikið vatnsból og
öruggt. Með nútímatækni getur
hún, gegn um hreinsistöð, gefið
bæjarbúum gott neyzluvatn,
eins og grunnvatnið við Hörgá
óhreinsað. Spurningin er því sú,
á hvorum staðnum vatnstakan
sé hagkvæmari, og að saman-
lögðu betri, þegar kostir og gall
ar hvers staðar liggja til grund-
vallar. Yfirvöld bæjarins hafa
raunar kosið Hörgáreyrar, en
þær boranir, sem enn standa
yfir þar, geta þó enn ráðið úrslit
um um val vatnstökustaðarins.
SJÓNVARPSTÍÐINDI
HEFJA GÖNGU SÍNA
BLAÐINU hafa borizt tvö
fyrstu tölublöð fjórblöðungs
eins, sem ber nafnið Sjónvarps-
tíðindi og er blað um fjölmiðla
og menningarmál. Eru í fyrra
blaðinu dómar um sjónvarpið
og kvikmyndir, bændauppreisn
og eiturhernað, spíritisma og
guðstrú, og í öðru tölublaði er
leikdómur um Kristnihald und-
ir jökli o. m. fl. Ritstjóri er Þor
geir Þorgeirsson. Ýmislegt er
læsilegt í þessum blöðum og eitt
og annað látið fjúka.
Blaðið Sjónvarpstíðindi á að
koma út hálfsmánaðarlega, kost
ar 25 krónur og er myndum
prýtt.
3. Júlíus — Sveinn 324
4. Bergsteinn —• Gunnar 308
5. Sveinbjöm —■ Stefán 306
6. Alfreð — Guðmundur 305
7. Hermann — Þorbergur 302
8. Ólafur — Þórður 302
9. Gunnlaugur — Magnús 297
10. Gunnar — Tómas 286
11. Páll — Ævar 270
12. Hákon — Pálmi 257
Meðalárangur er 330 stig.
Þriðja umferð verður spiluð
n. k. þriðjudagskvöld kl. 8.
Um sl. helgi fór bridgefólk frá
Akureyri til Siglufjarðar til að
spila árlega bæjakeppni við
heimamenn, og sigruðu Siglfirð
ingar með ofurlitlum mun. □
En mikið og gott vatn er, eitt af
frumskilyrðum byggðar og iðn-
aðar, og mörgum bæjarfélögum
ei'fitt úrlausnarefni. Hér er
vandinn fyrst og fremst fjárhags
legs eðlis, og að einhverju leyti
er hann kvöl þess, sem þarf að
velja. Sá á kvölina, sem á völ-
ina, er stundum sagt.
Blaðið snéri sér til Sigurðar
Svanbergssonar vatnsveitu-
stjóra á Akureyri og spurði
hann um nokkrar staðreyndir
Vatnsveitunnar, svo sem um
vatnsnotkun nú, vatnsþörf í
næstu framtíð, vatnsveitukerfi
það, sem Við nú búum við og
nýja vatnsveitu.
Til þess að tryggja nægilegt
vatn fyrir hámarksnotkun bæj-
arins þarf 110 lítra á sek. Upp-
sprettur þær, sem bærinn not-
ar nú, gefa frá 55 lítrum upp í
170 lítra í sekúndu. Vatnið er
minnst á vetrum og var sl. vet-
ur aukið um 40 lítra á sek. Til
að nýta betur það vatn, sem til-
tækt er og jafna aðstöðumun
bæjarbúa til vatnsnotkunar, hef
ur bænum verið skipt í tvö
þrýstikerfi, sem markast, af ca.
55 m. hæð yfir sjó, eða nánar
tjltekið, efra þrýstisvæðið nær
niður að Sjúkrahúsi, Þórunnar-
stræti norður að Hrafnagils-
stræti, Byggðaveg norður að
Hamarsstíg og Löngumýri. En
við það verða þeir, sem heima
eiga á hæstu svæðunum, ekki
afskiptir með vatn. Vatnsgeym-
ar fyrir hærra þrýstisvæðið
standa í 126 m. hæð en hinir í
90 m. hæð og var verki þessu
lokið í suniar, og skiptin fóru
fram í lok ágústmánaðar. Kom
þá í Ijós við aukinn þrýsting, að
sum vatnsrör þoldu ekki þrýst-
inginn og fóru að leka. En það
voru einkum galvaníseraðar píp
ur frá 1949, sem virðast hafa
verið gallaðar frá upphafi og
tærzt á blettum, þótt á þeim
sjáist ekki á öðrum stöðum.
Varð því að skipta á þessum og
nýjum. r
í sumar.voru lögð 12” víð stál
rör í Þingvallastræti, 900 metr-
ar, og í Hlíðarfjalli 1350 m. af
plaströrum, 5 þumlunga víðum,
auk nýlagna og ndurbóta hér og
hvar í bænum, samtals. 4 km.,
og eru þá ekki taldar heimæðar
og viðgerðú:..
Athygli skal vakin á því að
vatnsþrýstingur i vatnsveitu-
kerfinu er stöðugri eftir breyt-
inguna en áðm' og getur farið
upp í 8.5 kg/cm2 í lægsta hluta
bæjarins og um 7 kg/cm2 í
lægsta hluta efra þrýstisvæðis.
Árið 1968 var gerður saman-
burður á vatnsveitu frá Glerá
og Hörgáreyrum í landi Vagla.
Glerárveitan kostaði 28 millj.
kr. en vatnsveitan frá Hörgár-
eyrum, þ. e. frá Vöglum á Þela
mörk, um 34 milljónir. Auk
þess var Glerárveitan talin
nokkru ódýrari í rekstri. Hækk
andi verðlag síðan hefur að sjálf
sögðu breytt þessum tölum.
Gert er ráð fyrir hreinsistöð um
1.5 km. frá núverandi miðlunar
geymum en inntaksmannvirki í
Glerá verði um 2.3 km. frá
hreinsistöð. En vegalengdin út
að Hörgárgeymum, þar sem
boranir fara fram, eru í 14 km.
fjarlægð frá bænum. Þar þarf
að dæla vatni upp úr jörðinni
og lyfta því allt að 100 metra
yfir Moldhaugahálsinn.
Borholurnar á Hörgáreyrum
eru 12 þumlunga víðar með 10
þumlunga sigtisrörum. Ef vatn-
ið verður tekið þar, verður að
því stefnt að taka þar 60 sek.l.
af vatni, en þó yrði aðalæð til
bæjarins miðuð við 100—150
lítra á sekúndu.
Þakkar blaðið þssar upplýs-
ingar vatnsveitustjórans og von
ar að vel takist að leysa vatns-
þörf bæjarins.
Þess sakar svo ekki að geta,
í sambandi við bilanir vatns-
lagna í bænum, sem áður var
að vikið, að fólk getur tryggt
eigur sínar gegn skaða af völd-
um vatns.
Vonandi má telja lík-
legt, að bæjaryfirvöld taki til
athugunar, hvort ekki er tími
til þess kominn að fluorbæta
neyzluvatnið í því augnamiði að
koma í veg fyrir tannskemmdir,
svo sem Vestmannaeyingar
gera og Reykvíkingar hafa á
dagskrá.
Góð vatnsból hafa frá fyrstu
tíð verið frumskilyrði fastrar
byggðar og búsetu um allan
heim og svo er enn. Víða er
gífurlegum og stöðugt vaxandi
fjárupphæðum varið til að afla
vatns. Við getum þakkað for-
sjóninni fyrir okkar ágæta vatn,
sem við njótum og teljum þó
naumast umtalsvert fyrr en
greiða þarf verulegt fé til að
afla þess, en hjá því verður ekki
komist, hvort sem það verður
tekið úr Glerá í Glerárdal eða
á Hörgáreyrum í landi Vagla. □
Kennari fil náms í talkennslu
J. K.
Siglfirðingarnir reyndust sterkari
Svar íélags landeigenda á Laxársvæðinu við
greinargerS sfjórnar Laxárvirkjunar vegna
vafnsmiðlunar Laxárvirkjunar við Mývafn
I. Um mannvirkjagerð Laxár-
virkjunarstjórnar við Mývatns-
ósa.
I greinargerð stjórnar Laxár-
virkjunar, sem birtist fyrir
nokkru í dagblöðum, reynir hún
að bera af sér þær ásakanir Mý
vetninga, að stíflan við Mið-
kvísl, ein af útfallskvíslum Lax
ár úr Mývatni, hafi verið ólög-
leg. Eins og svo oft er háttur
þeirra, sem fara með rangt mál,
leiðir hún hjá sér að ræða þær
ásakanir, sem henni eru bornar
á brýn.
í upphafi segir, að vegna
hinna miklu rennslistruflana,
sem urðu í Laxá á vetrum, sér-
staklega þó við útrennsli árinn-
ar úr Mývatni, og þeirra miklu
truflana, sem þar af leiðandi
urðu á raforkuframleiðslu virkj
ananna við Laxá, þá hafi „eftir
ýtarlegar athuganir" verið talið
nauðsynlegt til úrbóta að gera
þær stíflur í hinum 3 kvislum
Laxár, sem hafa staðið, sú
fyrsta frá árinu 1946 og hinar
frá árunum 1960 og 1961. Þá
segir, að þessar framkvæmdir
hafi algjörlega komið í veg fyr-
ir þær alvarlegu truflanir, sem
þarna urðu, stundum oft á
hverjum vetri.
Það er rétt með farið hjá
stjórn Laxárvirkjunar, að síðan
framkvæmdirnar við Yztukvísl
voru gerðar hafa rennslistrufl-
anir í Laxá minnkað.
Hins vegar er það ný kenn-
ing hjá Laxárvirkjunarstjórn,
að þessar framkvæmdir hafi al-
gjörlega komið í veg fyrir þær
alvarlegu truflanii', sem þarna
urðu, því að þær hafa einmitt -
verið ein af röksemdunum fyrir
nauðsyn þess að fá uppistöðu-
lón í Laxárdal.
Allir vita, sem rafmagns hafa
notið frá Laxárvirkjun, að raf-
magnstruflanir urðu oft á vetr-
um á árunum 1960—69, en
minni veturinn 1969—70. Skýr-
ingin á þessu er sú, að Laxár-
vii'kjun hugðist nota lokuvirkin
við Mývatnsósa til daglegrar
vatnsmiðlunar. Hinar tíðu vatns
sveiflur í ánni, urðu þess vald-
andi, að aldrei komst traustur
ís á ána í Laxárdal, en hún
braut hann öðru hverju og
þannig myndaðist óeðlilegur ís-
ruðningur í ánni, er olli raf-
magnstruflunum og stórspjöll-
um á lífi í ánni. Þannig lá dauð
ur urriði uppi um bakka eftir
slíkar hamfarir, sem beinlínis
má rekja til aðgerða Laxárvirkj
unar. Síðastliðinn vetur var
þessu vatnsmiðlunarfikti hætt
og þá rann áin undir traustum
ís í Laxárdal og truflanir urðu
litlar sem engar.
Hér má einnig við bæta, að
Laxárvirkjun hefur ár eftir ár
framið það lögbrot að sprengja
ísstíflur úr ánni með dýnamíti.
Hefur Laxárvirkjun þannig ár
eftir ár valdið tjóni á silungi í
Laxá, en hún hefur ekki haft
neina lagaheimild til slíkrar
notkunar dýnamíts.
II. Mótmæll Mývetninga gegn
stíflugerð við Mývatnsósa.
Upphaf málsins var stíflugerð
in í Syðstukvísl. í greinargerð
stjórnar Laxárvirkjunar segir
um hana: „Stíflan í Syðstukvísl,
sem er í landi Haganess, var
gerð með fullu samþykki bónd-
ans þar, Stefáns Helgasonar, og
yfirlýstu samþykki hreppsnefnd
ar Skútustaðahrepps um bygg-
ingu stíflunnar.“
Stefán í Haganesi er nú gam-
all maður og kveðst ekki muna
fyrstu orðræður varðandi stíflu
gerðina, en Sigurður sonur
hans, sem þá var búsettur á
Skútustöðum, ber, að faðir sinn
hafi í fyrstu neitað, en þá hafi
þegar vei'ið vitnað til ráðherra-
leyfis eða eignarnáms og því
hafi faðir sinn gefið samþykki
að lokum. En samtímis hafi
Stefán sett það skilyrði, er grein
ir í svofeldri yfirlýsingu, sem
Stefán gaf hinn 29. september
sl.:
„Varðandi stíflugerðina í
Syðstukvísl við Drangsey voru
engir samningar gerðir, en ég
FYRSTI HLUTI
>4^><Í>«>«hS^x5><$>^><$>^k$>^><í><5>^><^
gaf samþykki mitt.til þess með
því skilyrði, að sama vatnsmagn
rynni um kvíslina sumar og
vetur og áður var, því að ég
taldi það skyldu mína gagnvart
sveitungum mínum að halda
eðlilegu rennsli í kvíslinni og
um leið eðlilegri vatnshæð í Mý
vatni.“
Stjórn Laxárvirkjunar færði
sér í nyt samþykki Stefáns, en
virti skilyrði hans að vettugi
strax og framkvæmdir hófust í
Geirastaðakvísl og frá árinu
1960 hefir Syðstakvísl verið lok
uð á vetrum.
í áðurgreindrj yfirlýsingu
Laxárvirkjunarstjórnar ségir
ennfremur, að hreppsnefnd
Skútustaðahrepps hafi lýst yfir
hlutleysi sínu um byggingu stífl
unnar. Enginn stafur finnst þó
um slíka hlutleysisyfirlýsingu í
bókum Skútustaðahrepps og þá
verandi oddviti hreppsins, Jón
Gauti, kannast ekki við slíka
yfirlýsingu.
1) Almennur sveitarfundur
1. marz 1945.
Nokkru Ijósi á forsögu þessa
máls varpar fundargerð al-
menns sveitarfundar, sem hald-
inn var hinn 1. marz 1945. Þar
var lesið upp bréf frá sr. Magn-
úsi M. Lárussyni til fundarins,
en sr. Magnús lá þá rúmfastur.
í fundargerðinni segir m. a.:
„Hann skýrir frá því, að St.
Steinsen bæjarstjóri á Akur-
eyri hafi leitað viðtals við sig
nýlega og tjáð sér, að bæjar-
stjórn Akureyrar vidi leita
samninga við landeigendur í
Mývatnssveit um, að rafveita
bæjarins setti stíflugarð í Laxá
til að hækka vatnsborð Mývatns
um allt að 50 cm. að vetrinum
til. Hafði bæjarstjórinn jafn-
framt látið í það skína, að mann
virki þéssi myndu gerð, hvort
heldur Mývetningum líkaði bet
ur eða verr. Er þó ekki vitað,
að bærinn hafi fengið eða farið
fram á nokkra eignarnámsheim
ild hér hjá Alþingi."
Síðan segir m. a. um viðbrögð
fundarmanna við málaleitan
þessari:
„Voru fundarmenn einhuga
um, að hér væri mjög athuga-
vert mál á ferð, sem full ástæða
væri til að afstýra, að til fram-
kvæmda kæmi, ef þess væri
kostur. Þar sem víst má telja,
að slíka vatnshækkun þyrfti að
hefja löngu áður en vatnið legði
á hverju hausti, gæti orðið mjög
mikil hætta á landbroti auk ann
arra spjalla, og gæti enginn
maður séð fyrir eða metið fyrir
fram, hvar það tjón kæmi nið-
ur, eða liversu mikið það kynni
að verða, er tímar liðu.“
Eins og kunnugt er, reyndist
ótti fundarmanna árið 1945 ekki
að ástæðulausu. ísrek á vetrum
hefur þegar brotið niður bakka
vatnsins, sem áður voru grasi
grónir, auk alls annars tjóns,
sem stíflugerðin hefur valdið.
2) Fundur stjórnar Laxárvirkj-
unar og Mývetninga hinn 12.
júní 1960.
Sunnudaginn 12. júní 1960
boðaði stjórn Laxárvirkjunar tii
fundar við Mývatnósa hina efri.
Komu þar þeir, sem bjuggu mecí
ofanverðri Laxá, en auk þess
komu á fundinn nokkrir ábú-
endur jarða umhverfis Mývatn.
í fundargerðinni segir m. a.;
„Sigurður Thoroddsen verk-
fræðingur tók til máls og skýrði
fyrirhugaðar framkvæmdii,
sem nú væru á dagskrá. Þá
tóku til máls nokkrir ábúendur
við Laxá og skýrðu sín sjónar-
mið og kom það fram, að ekk.
mundu allir hér um slóði:.’
hugsa gott til þeirra fram-
kvæmda, og Eysteinn Sigurðs-
son á Arnarvatni lýsti því yfir,
að ekki yrði gengið til neinm.
samninga af hálfu landeigendi.
um væntanlegar framkvæmdir,
fyrr en gerður hefði verið samr,
ingur um þær framkvæmdir,
sem þegar væri búið að gera
hér á þessum slóðum."
Til þessara samninga við lanc
eigendur um þegar gerðar fran.
kvæmdir gekk stjórn Laxár-
virkjunar aldrei, heldur veifað'.
ráðuneytisleyfi. Að vísu félls.
hún á að fresta framkvæmdun.
við Miðkvísl um eitt til tvö á:.
til að fá úr því skorið, hvorí;
hennar væri þörf. Síðar va-;
þessari frestun hafnað að hálfc
verkfræðings hennar, og þá
voru framkvæmdir hafnar.
3) Fundargerðabók lirepps-
nefndar Skútustaðahrepps.
í gerðarbók hreppsnefnda ?
Skútustaðahrepps segir m. s,
frá sveitarstjórnarfundi, sen.
haldinn var hinn 15. júlí 1960,
Þar segir í gerðarbókinni, ao
lagt hafi verið fram bréf frá.
ábúendum á Arnarvatni og;
Geirastöðum, þar sem farið er
fram á, að hreppsnefndin tak/
að sér sókn og vörn fyrir þeirrc
hönd og svo annarra sveitar- •
manna í þeim ágreiningsmálum,
sem risið hafa út af við mann-
virkjagerð og fyrirætlunun
stjórnar Laxárvirkjunar í Laxa
og kvíslum hennar. Samþykkt
hreppsnefndin að taka málið a<:
sér fyrir ábúendur.
4) Stjórn Laxárvirkjunar fcki;
ráðuneytisleyfið með því að
beita blekkingum.
Þá segir í gerðarbókinni, ai'
lesið hafi verið upp bréf stjóm- •
ar Laxárvirkjunar, dags. 12,
júlí 1960. Bréfinu fylgdi leyL
raforkumálaráðherra, dags. 5,
júlí 1960, þar sem Laxárvirkjun
var heimilað að gera stíílu :!
Miðkvisl og tvo hliðarfarveg1.
Syðstukvíslar. Kom þar fram,
að stjórn Laxárvirkiunar byggð >
beiðni sína á því, að samningai1
hefðu ekki náðzt við landeigentl
ur um leyfi til þessara fram-
kvæmda.
Þá segir í gerðarbók hrepps-
nefndarinnar orðrétt:
„Samkvæmt framkomnun'í
upplýsingum hlýtur hrepps-
(Framhald á blaðsíðu 2)