Dagur - 04.11.1970, Qupperneq 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sfmi 12771 - P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Verðslöðvun - og verðhækkanir
Á FUNDI verðlagsnefndar sl.
laugardag var samþykkt eftir-
farandi tillaga, sem felur í sér
stöðvun vöruverðs frá þeim
degi að telja:
„Samkvæmt heimild í lögum
nr. 54 frá 14. júní 1960 samþykk
ir verðlagsnefnd að frá og með
1. nóvember 1970 skuli óheimilt
að hækka verð eða álagningu á
hvers konar vörum og þjónustu
nema leyfi verðlagsnefndar
komi til.
Gildir þetta um allar vörur,
sem eru verðlagðar samkvæmt
sérstökum lögum, eða eru seld-
ar úr landi, ennfremur um alls
konar þjónustu og greiðslur
fyrir hvers konar verk, sem
ekki hafa verið ákveðnar með
samningum stéttarfélaga.“
Á sama tíma dynja yfir hækk
anir á mörgum vörum og þjón-
ustu, svo sem hjá Pósti og síma,
á fargjöldum og flutningsgjöld-
um, rafmagni, lyfjum, brauðum,
gosdrykkjum, tóbaki og áfengi.
Hins vegar er verðlækkun að-
eins á mjólk og rjóma. □
Hifaveita í síðusfu húsin á Dalvík
MEÐALVIGT dilka á Dalvík
var í haust 13.216 kg. og er það
um 150 gr. lakara en í fyrra.
Lógað var 11.593 kindum og á
Hátölurum stolið
FYRIR skömmu var tveim köss
um með nokkrum hátölurum í
hvorum, stolið við Sundlaugina.
Lögreglan biður þá, sem upp-
lýsingar geta gefið um mál
þetta, að gera aðvart. □
fjórða hundrað stórgripum hef-
ur verið lógað, og er með mesta
móti slátrað, bæði af sauðfé og
stórgripum, vegna lítilla heyja.
Þyngsti dilkurinn í haust var
28 kg. og átti Sigurður Ólafsson
í Syðraholti hann. Er þetta
þyngsti dilkur, sem um ár og
jafnvel áratugi hefur komið á
sláturhúsið á Dalvík.
Rjúpnaskyttur eru að byrja
að huga að rjúpum, en sjá lítið
af þeim og þær eru auk þess
styggar.
Nú er verið að stækka frysti-
húsið verulega. Vinnupláss verð
ur aukið og frystigetan aukin,
og um leið afköstin. Þótt veiði
hafi verið misjöfn hefur verið
nokkuð stöðug vinna þar.
Verið er nú að leggja fyrir
hitaveituna inn í síðustu húsin
og hefur það gengið vonum
betur. Hins vegar er ekki unnt
að hleypa heita vatninu á allt
kerfið og getum það ekki fyrr
en við fáum dælu eða bor til
að auka vatnsmagnið. En þau
(Framhald á blaðsíðu 6)
Svalbarðskirkja komin til Akureyrar.
(Ljósm.: E. D.)
Svðlbðrðskirkja llufl fil Akureyrar
ÁRIÐ 1863, eða ári síðar en
Akureyri fékk kaupstaðarrétt-
indi, var kirkja byggð í Fjör-
unni og hleypt af fallbyssuskot-
um er hún var reist en fagnaðar
veifa blakti á hverri stöng í bæn
um. Stórhneykslanlegt þótti, að
turninn var að austan og var
því breytt, en turn og forkirkja
sett að vestan. Akureyringar
áttu áður kirkjusókn að Hrafna
gili. Hrafnagilskirkja var á
sama tíma rifin og úr henni
notaðir viðir í þessa fyrstu
kirkju á Akureyri, sem stóð
fram yfir 1940. En ný kirkja var
byggð, sú er enn stendur, árið
1940, vígð 17. nóvember það ár.
Lóð gömlu kirkjunnar á Ak-
ureyri er norðan við Kirkju-
hvol, þar sem nú er Minjasafn-
ið á Akureyri, milli Aðalstrætis
58 og 54. Þar var í sumar steypt
ur og hlaðinn grunnur. Og 29.
október var Svalbarðskirkju
komið á þann grunn.
Svalbarðskirkja var byggð af
Þorsteini Daníelssvni á Lóni
1846 og afhelguð 1957, er önnur
kirkjubygging hafði risið þar í
sveit. Gamla kirkjan er 5x10
metrar að grunnmáli, turnlaus
trékirkja með bekkjum, predik
unarstól, altari, altaristöflu og
einni klukku. Hún var flutt í
heilu lagi á dráttarvagni til
Akureyrar, undir stjórn Þórðar
Friðbj arnarsonar safnvarðar
Minjásafnsins á Akureyri, en
safn það eignaðist kirkjuna
1963. Kirkja þessi hlýtur nú
nauðsynlega viðgerð, enda
kirkjuviðir þegar búnir og bíða
þess að vera settir á sinn stað.
Síðan verður þetta forna hús
sennilega vígt á ný til kristi-
legrar þjónustu. Safnvörður bið
ur blaðið fyrir þakkir til allra
þeirra, sem að kirkjuflutningn-
um unnu.
Svalbarðskirkja, sem er orð-
in forngripur, er sögð gefa góða
mynd af kirkjum sinnar tíðar.
Guðjón Jónsson látinn
Árni Jónsson látinn
Framboðslislinn á Auslurlandi
arasjómenn innbrot og stálu
skartgripum og öðru girnilegu.
Voru þeir auk þess illir viður-
eignar og þurftu heimamenn
aðstoð vopnaðra manna af ís-
lenzku varðskipi til að járna og
hemja baldinn lýð. En slíkt er
mjög óalgeng framkoma
brezkra sjómanna hér á fjörð-
unum. Hér var um að ræða tog-
arann Arsenal frá Grimsby.
Þýfið talið 150 þús. krónu virði.
Togarinn liggur enn á Seyðis-
firði.
Framsóknarmenn héldu kjör
dæmisþing á Reyðarfirði um
(Framhald á blaðsíðu 2)
GUÐJÓN JÓNSSON frá Finna
stöðum andaðist á Kristneshæli
31. október. Hann var tæpra 103
ára, mikill atorku og skapgerð-
armaður fram í háa elli og hafði
fótavist til siðasta dags. □
Einyrkjubóndi þiggur boð háskóla
FYRIR nokkrum árum ræddi
Dagur við sérkennilegan mann,
Jón Normann á Selnesi á Skaga,
og birti það viðtal. Jón er Skag
firðingur, var lengi kennari í
Reykjavík, þar til hann festi
kaup á Selnesi, byggði þar og
hefur búið síðan, einsetumaður,
bóndi og fræðimaður í senn.
Jón Normann hefur um ára-
bil staðið í bi'éfaskriftum við
bandaríska háskólamenn er
norrsen fræði stunda, og fýsir
að fræíast iu» skaðanir Jóns »g
skýringar á Hávamálum og um
seiðinn og fleira fornlegra
fræða.
Og í boði háskóla í Pennsyl-
vaníu og að áeggjan prófessors
eins við Harvard-liáskóla, er
bóndinn á Selnesi nú kominn
vestur og hyggst dvelja þar
fram í desember.
Jón Normann er rúmlega sjö-
tugur, Ijúfur í viðmóti, dulræn-
um gáfum gæddur, ötull og sjálf
stæður fræðimaður og bóndi
jöfnum höndum. □
Engar sællir í deilunni um Laxá
DEILURNAR alkunnu um
virkjun Laxár komust næst því
að lykta með sættum hjá iðnað-
arráðherra, Jóhanni Hafstein, á
síðasta vori. Grundvöll þeirra
sátta er að finna í ráðherrabi'éfi
frá 13. maí, en hann leiddi þó
ekki til niðurstöðu. í vor hófust
framkvæmdir við fyrsta af fjór-
um áföngum Gljúfurversvirkj-
unar og hafa staðið síðan, þrátt
fyrir hörð mótmæli landeigenda
KJÖRDÆMISMNGIÐ
KJÖRDÆMISÞING Framsókn-
armanna hér -í kjördreminu
liefst á laugardaginn kl. 10 f. h.
í Varðborg. Fulltrúar eru beðn-
ir að mæta stundvíslega. Q
og lögbannskröfu um stöðvun
framkvæmda. Hinn 18. júlí fjöl-
menntu Þingeyingar með mót-
mælabréf til Akureyrar og af-
hentu bæjarstjóranum. Tæpum
mánuði síðar svaraði bæjar-
stjórn Akureyrar bréfi þessu og
óskaði sátta. Iðnaðarráðuneytið
skipaði þá sýslumennina Ófeig
Eiríksson og Jóhann Skaptason
sáttasemjara 20. ágúst. Hinn 26.
ágúst sprengdu Mývetningar
Miðkvíslarstíflu, en sprengingar
við jarðgöng í Laxárgljúfri voi'u
þá hafnar. Hinn 7. október hélt
sáttanefnd fund með báðum
deiluaðilum og aftur 28. sama
mánaðar, en án árangurs. Þing-
eyingar lýstu því yfir, að fram-
hald slíkra funda væri aðeins
tímasóun. Ráðherra tilkynnti,
að hann myndi kalla deiluaðila
til fundar í miðjum nóvember-
mánuði. Sáttanefnd fór fram á,
að verklegum virkjunarfram-
kvæmdum væri frestað á með-
an unnið væri að samkomulagi.
Því var hafnað. Lögbannskrafa
Þingeyinga og kærur hafa lent
á biðstofu dómstólanna, sáttatil
raunir mistekist og málið er á
ný komið í hendur stjórnvalda,
eftir einskonar misheppnað sum
arleyfi. í lok október báðu Bún
aðarfélag íslands, Stéttarsam-
band bænda, Nýbýlastjórn,
Veiðimállanefnd og Náttúru-
fræðistofnun íslands, iðnaðar-
ráðherra að stöðva virkjunar-
framkvæmdir til að auðvelda
samninga deiluaðila og á meðan
(Framhald á blaðsíðu 2)
ÁRNI JÓNSSON bókavörður á
Akureyri andaðist 29. október.
Hann var aðeins 53 ára, en hafði
kennt sjúkleika um skeið. Með
honum er genginn gáfaður mað
ur og góður drengur. □
Egilsstöðum 3. nóv. Líkamlegt
heilsufar er allgott, en ýmsir
eru andlega hrjáðir vegna þess,
að kólguský þau af aðgerðum
Gylfa og félaga sem miðast nú
við kosningar, eru farin að sjást
á himni og spá ekki góðu.
Hafin er vinna við háspennu-
línuna milli Lagarfoss og Eiða
og ennfremur vegagerð vegna
væntanlegrar virkjunar.
Landsfundur hestamanna var
nýlega haldinn í Valaskjálf, fjöl
mennur og stóð í tvo daga með
miklum gleðskap, sem títt er
hjá slíkum.
Róstusamt var nýlega á Seyð-
isfirði og frömdu brezkir tog-