Dagur - 04.11.1970, Side 2
2
Sérskófi fyrir
margvíslepr
KENNARAMÓT fyrir Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur, var
haldið í Oddeyrarskóianum á
Akureyri, dagana 16.—17. októ-
■ber sl. Fundarboðendur voru
stjórnir kennarafélaganna og
námsstjórinn á Norðurlandi,
sem einnig flutti erindi um fram
kvæmd skólamáia á kiörsvæð-
inu. Heimir Kristinsson, kenn-
ari á Dalvík, sagði frá Banda-
ríkjaför sinni á liðnu sumri.
Bjarni Kristjánsson, kennari í
Sólborg, skýrði frá starfseminni
þar og sýndi staðinn. Þá var, í
sambandi við mótið, þriggja
daga námskeið í handavinnu og
föndri, sem Rganheiður Val-
garðsdóttir kennari annaðist.
Síðasta dag mótsins, voru haldn
ir aðalfundir kennarafélaganna
og á fundi Kennarasambands
Norðurlands eystra, voru sam-
þykktar eftirfarandi tillögur:
„Aðalfundur K.S.N.E. hald-
inn á Akureyri 17. okt. skorar
á háttvirt Alþingi, að taka nú
þegar til endurskoðunar lögin
um skólakostnað frá 1967. Sér-
staklega bendir fundurinn á 19.
grein laganna, er fjallar um há-
mark stundafjölda, er skólum
er setlaður, þar sem komið hef-
ur í ljós að hámarkið reynist
ekki nægjanlegt til að fram-
kvæma fræðsluskyldu sam-
kvæmt námsskrá, í hinum fá-
mennari skólum. Lítur fundur-
inn svo á, að hámarks stunda-
fjöldi sá, sem skólum sé ætlað-
ur, þurfi að vera það rýmilegur,
að 70% af honum nægi fyrir
allri beinni kennslu, en 30% til
annarra starfa í þágu skólans.“
„Aðalfundur K.S.N.E. 1970
fagnar því, að frumvarp að nýj-
um fræðslulögum skuii verða
lagt fyrir yfirstandandi Alþingi,
en vill minna mjög rækilega á,
að hlutur byggðanna í dreif-
Perusala á laugardag
LIONSKLÚBBURINN Huginn
heldur sína árlegu perusölu n.k.
laugardag þann 7. nóvember.
Þá ganga Lionsfélagar í hús
og bjóða ljósaperur til sölu.
Verð pakkans kr. 150.00 er mjög
í hóf stillt, en allur ágóði sem af
sölunni verður rennur til líknar
mála.
Framtak Lionsklúbbsins Hug
ins á undanförnum árum hefur
mætt velvild og skilningi hjá
bæjarbúum og vænta félagarnir
þess að svo verði einnig nú í
þetta sinn.
(Fréttatilkynning)
esga s m\
leikum vil m
býlinu verði þar ekki fyrir borð
borinn.“
„Aðalfundur K.S.N.E. 1970
beinir þeirri eindregnu áskorun
til fjárveitingavaldsins, að stór-
auka framlög til námskeiðs-
halda og endurmenntunar kenn
araliðsins."
„Aðalfundur K.S.N.E. 1970
telur bæði óeðlilegt og óæski-
legt, að Kennaraskóli íslands sé
orðinn .að menntaskóla, svo sem
nú hefur verið um nokkurt
skeið. Fundurinn lítur svo á, að
skólinn eigi eingöngu að
mennta fólk til k'ennslustarfa,
og til þess að öðlast inngöngu í
skólann þurfi stúdentspróf eða
aði’a tiísVái’andi menntun."
Formaður K.S.N.E. er Tryggvi
Þorsteinsson.
Á aðalfundi Kennarafélags
Eyjafjarðar flutti stjórnin eftir-
farandi tillögur, sem voru sam-
þykktar:
„Aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar, háldinn á Akureyri
17. okt. 1970, skorar á fræðslu-
yfirvöld, að sem allra fyrst
verði komið á fastri sálfræði-
þjónustu við skyldunámsskól-
ana í landinu.”
„Aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar, lialdinn á Akureyri
17. okt. 1970, skorar á fræðslu-
yfirvöld á Akureyri og í Eyja-
firöi, að láta athuga þann mögu
leika að koma upp sérskóla eða
deild við barnaskóla, er annist
kennslu þeirra barna, sem að
ýmsu leyti eru ekki liæf til þess
að stunda nám í venjulegum
bekkjum, en hafa þó ekki svo
lága greindarvísitölu, að ætla
verði þeim dvöl í vanvitahæl-
um. Telur fundurinn nauðsyn-
legt, að í slíkum skóla eða deild,
starfi kennarar með sérmennt-
un á þessu sviði.“
Hér er átt við skóla með mjög
fámennum deildum (6—12 börn
í deild), er hefðu á allan hátt
betri aðbúnað en almennt ger-
ist í skólum, bæði hvað snertir
húsnæði, kennslutæki og
kennslukrafta. Var -stjórninni
falið að koma tillögunum á fram
færi við hlutaðeigandi aðila.
Þá kom fram á fundinum, að
um styrk til talkennaranáms
barst ein umsókn. Ákveðið var
að veita umsækjanda styrkinn,
Ketill Pálsson, kennari við Odd
eyrarskólann, var umsækjand-
inn, en umsókn hans með fyrir-
vara, enda enn ekki hægt að
segja til um hve hár styrkurinn
verður.
Eins og kunnugt er gefur fé-
lagið út uppeldismálaritið Heim
ili og skóla. Á þessu ári hafa
því bæzt æði margir nýir áskrif
endur, en enn hefur ekki verið
ráðinn fastur ritstjóri að blað-
inu, í stað Hannesar J. Magnús-
sonar, sem lét af ritstjórn um
sl. áramót.
Stjórn Kennarafélags Eyja-
fjarðar skipa nú: Edda Eiríks-
dóttir, Jóhann Sigvaldason og
Indriði Úlfsson. Jónas Jónsson
var áður í stjórninni, en baðst
undan endurkosningu.
Að loknum fundarhöldum
bauð Kennarafélag Eyjafjarðar
þátttakendum til kaffidrykkju.
(Aðsent)
AÐALFUNDUR Ræktunarfé-
lags Norðurlands var haldinn að
Hótel KEA þ. 30. okt. sl. Mættir
voru fulltrúar og ráðunautar af
öllu félagssvæðinu, en það nær
eins og kunnugt er yfir 6 sýslur
í Norðlendingafjórðungi.
í skýrslu stjórnarinnar kom
fram, að aðalstarf félagsins er
nú að mestu bundið við rekstur
Rannsóknarstofu Norðurlands á
Akureyri og útgáfu Ársrits fél.
Á vegum Rannsóknarstofunnar
var unnið að jarðvegs- og fóður
efnagreiningum fyrir bændur.
Ennfremur voru hafnar rann-
sóknir á magni snefilefna í jarð
vegi og heyi. Nánari skýrslur
um starfsemi Rannsóknarstof-
unnar verða birtar í Ársriti Rf.
Nl.
ENGAR SÆTTIR I LAXARDEILUNNI
(Framhald af blaðsíðu 1)
dómstólar fjölluðu um lögmæti
virkjunaráforma, en var synjað.
Á meðan þetta og fleira hefur
fram farið, hefur deilan um Lax
árvirkjun harðnað. Tækifæri
til að semja, sem fyrir nokki’um
mánuðum virtist mögulegt en
því miður ekki notað þá, er nú
glatað.
Forsætisráðherra hefur lýst
því yfir, að Gljúfurversvirkjun
sé úr sögunni, fallið frá bæði
Suðurárveitu og að sökkva Lax
árdal með 57 metra stíflunni.
Fullt leyfi sé hins vegar fyrir
þeim virkjunaráfanga, sem nú
er verið að gera (7 MW virkj-
un). Þingeyingar halda því hins
vegar fram, að jarðgöng og
neðanjarðarstöðvarhús, ásamt
vélum, sé allt miðað við fulla
Gljúfurversvirkjun og eigi það
enga stoð í lögum eða leyfum
stjórnarvalda.
Þótt hér séu aðeins rakin
nokkur atriði deilunnar miklu
um Laxá, sýna þau vanda orku
öflunar fyrir stórt svæði hér
norðanlands, sem enn er óleyst-
ur. □
Á fundinum flutti dr. Stefán
Aðalsteinsson erindi um rann-
sóknastarfsemi landbúnaðarins.
Lagði hann áherzlu á nauðsyn
þess að auka þyrfti rannsóknir
í þágu landbúnaðarins, og þeirri
aukningu ætti fyrst og fremst
að beina að lausn brýnna bú-
skaparvandamála, og að þær
rannsóknir o gtilraunir færu að
verulegu leyti fram út um sveit
ir hjá einstökum bændum.
Umræður urðu allmiklar um
landbúnaðarmál og ýmsar sam-
þykktir gerðar m. a. um aukna
leiðbeiningaþjónustu í landbún
aðinum og árlega fræðslufundi
á vegum Ræktunarfélags Norð-
urlands.
í tilefni af framkominni blaða
frétt um fundinn skal tekið
fram, að formaður félagsins
gekk af fundinum í mótmæla-
skyni við framkomna tillögu
varðandi málefni Laxárvirkj-
unar, þar sem hann taldi slíkt
mál vera algjörlega óviðkom-
- LYSISTRATA - frumsýning Leikfélagsins
(Framhald af blaðsíðu 8).
árabil hefur nú látið af störfum.
Lysiströtu leikur Brynja Grét
arsdóttir, Fógetann Gestur
Jónasson, Kalónítu Guðlaug
Hermannsdóttir, Lempídó Þór-
hildur Þorleifsdóftir, Myrrhinu
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Kinenias Sigmundur Orn Arn-
grímsson, en með önnur hlut-
I Suðurlandskjördæmi
FRAMBOÐSLISTI Framsóknar
flokksins í Suðurlandskjördæmi
hefur n verið ákveðinn. Hann
skipa: Ágúst Þorvaldsson, Björn
Fr. Björnsson, Helgi Bergs, Jón
Helgason, Jón R. Hjálmarsson,
Sigurgeir Kristjánsson, Albert
J óhannsson, Arnór Karlsson
Oskar Matthíasson, Júlíus Jóns
son, Olvir Karlsson og Sigur-
finnur Sigurðsson. □
verk fara: Bergþóra Gústavs-
dóttir, Helga Sigurðardóttir, Val
gerður Sverrisdóttir, Einar Har
aldsson, Gísli Rúnar Jónsson,
Níls Gíslason og Tryggvi Jakobs
son. í kórum kvenna og öldunga
eru: Björg Baldvinsdóttir, Krist
jana Jónsdóttir, Sigurveig Jóns
dóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir,
Arnar Jónsson, Eggert Þorleifs-
son, Kjartan Ólafsson og Þor-
grímur Gestsson. Aðalsteinn
Bergdal leikur á ásláttarhljóð-
færi.
í ráði var að Brynja Bene-
diktsdóttir annaðist einnig leik-
stjórn á næsta verkefni L. A.,
þ. e. barnaleikritinu „Lína lang
sokkur" eftir Astrid Lindgren,
en vegna anna hennar getur
ekki af því orðið. Verður „Lína
langsokkur" því væntanlega
frumsýnt upp úr áramótum.
(Fréttatilkynning)
INGIBJÖRG R. Magnúsdóttir á
Akureyri hefur þýtt og gefið út
kver um grundvallaratriði
hjúkrunar, en höfundur er
Virginia Henderson hjúkrunar-
kona og rithöfundur í Banda-
ríkjunum. Formála ritar Daisy
C. Bridges, framkvæmdastrjóri
Alþjóðasambands hjúkrunar-
kvenna.
Hjúkrunarkverið fjallar um
hlutverk hjúkrunarkonu, frum-
þarfir mannsins, hjúkrunarþörf
sjúklings og einstaka þætti al-
mennrar hjúkrunar og einstaka
þætti hennar, auk formála, inn-
gangs og eftirmála.
Hjúkrunarkverið er hið fróð-
legasta rit fyrir þá, sem hjúkr-
unarstörf stunda i stofum og
heimahúsum. Það á erindi inn
á heimilin, því að þar fara fram
meiri og minni hjúkrunarstörf
og fullorðið fólk þarf að horfast
í augu við þau, oft án fyrirvara,
er sjúkdóma ber að höndum.
Kverið ætti að auka skilning
almennings á margskonar hjálp
við sjúka, hvar sem er, þótt það
muni einkum ætlað þeim, sem
hjúkrun nema sérstaklega. □
andi starfsemi Ræktunarfélags
Norðurlands.
Endurkjörinn í stjórn félags-
ins til næstu 3ja ára var Jónas
Kristjánsson. Aðrir í stjórn Rf.
Nl. eru Steindór Steindórsson
og Jóhannes Sigvaldason. □
Frá Bridgefélagi Ak.
LOKIÐ er fjögurra kvölda tví-
menningskeppni B. A. Keppnin
var hörð um efsta sætið og
skemmtileg allan tímann. Sigur
vegarar urðu Baldur Ámason
og Ragnar Steinbergsson og
hljóta þeir sæmdarheitið tví-
menningsmeistarar Bridgefélags
Akureyrar.
Röð efstu para varð þessi:
1. Baldur — Ragnar 774
2. Ármann — Jóhann 772
3. Guðjón — Þormóður 743
4. Mikael — Sigurbjörn 742
5. Dísa — Rósa 708
Næsta keppni.
10. nóvember hefst sveita-
keppni félagsins, bæði í meist-
araflokki og fyrsta^ flokki, og er
bridgefólk beðið að láta skrá
sveitir sínar sem fyrst til stjórn
ar B. A.
Gekk úr flokknum
KARL Guðjónsson kvaddi sér
hljóðs í Sameinuðu Alþingi á
miðvikudaginn, og lýsti úrsögn
sinni úr þingflokki Alþýðu-
bandalagsins. Taldi hann sig
lítilsvirtan í flokki sínum, og
þau öfl ráðandi innan flokksins,
er ynnu gegn samvinnu vinstri
manna í landinu. Kvaðst hann
nú telja sig utan flokka og ekki
hafa í hyggju að ganga í annan
stjórnmálaflokk eða stofna nýj-
an. En úr Alþýðubandalaginu
gengu fyrir tveim árum þeir
Hannibal og Björn og stofnuðu
nýjan flokk, svo sem kunnugt
er. □
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
að hjá stóráfölluni verði komizt
fram yfir alþingiskosningar
næsta vor. Þannig er sagan að
endurtaka sig, og stjórnleysið er
hið sama og áður.
ÓTTI OG EITUR
í erlendu heilsuræktarhlaði seg
ir: „Öll starfsemi líkamans verð
ur fyrir áhrifum frá hugar-
ástandinu. Hatur, öfund, fyrir-
litning, afbrýðissemi og ótti
frainkalla eitur í líkamanum,
ekki sálarlegs eðlis, heldur raun
verulegt eitur og afleiðingin
verður, að líffærin missa mátt.
Því hefur margoft verið veitt
athygli, hvernig fólk, sem býr
við harðstjórn, stöðugan ótta
- FRAMBOÐSLISTINN Á AUSTURLANÐI
(Framhald af blaðsíðu 1).
síðustu helgi. Ákveðinn var
framboðslisti þeirra á Austur-
landi. Hann skipa: Eysteinn
Jónsson, Páll Þorsteinsson Vil-
hjálmur Hjálmarsson, Tómas
Árnason, Kristján Ingólfsson,
Þórður Pálsson, Refstað, Aðal-
steinn Valdimarsson, Eskifirði,
Kristinn Sævar Jónsson, Rauða
bergi, Vilhjálmur Sigurbjörns-
son, Egilsstöðum, Magnús Þor-
steinsson, Höfnum.
Sauðfjárslátrun er að mestu
lokið. Lógað var rúmlega 53
þús. fjár og meðalþungi var
13.56 kg. eða rúmu kílói minni
en í fyrra. Sláturfjártalan er allt
að 6 þús. hærri en í fyrra, því
margir fækka vegna lítilla
heyja. Slátrun nautgripa stend-
ur yfir. V. S.
eða eitthvað annað hliðsíætt
ástand, brotnar smám saman
niður og verður gamalt fyrir
aldur fram. Þetta er ekki ímynd
un ein, heldur viðurkennd stað
reynd. Þegar menn verða t. d.
liræddir, áhyggjufullir, spennt-
ir, reiðir eða afbrýðissamir,
framleiðist of mikið af adrena-
líni í líkamanum. Líka verða til
í honum önnur eiturefni, og af-
leiðingin er, að allt lífsstarfið
truflast.“
KAUPFÉLAG SIGLF.
GJALDÞROTA
Kaupfél. Siglfirðinga gjaldþrota
ÞAU leiðu tíðindi hafa borizt,
að Kaupfélag Siglfirðinga á
Siglufirði hefði hætt verzlunar-
rekstri og stjórn þess óskað eft-
ir því við fógeta, að bú félags-
ins yrði tekið til gjaldþrota-
skipta. Rekstur félagsins hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár,
og nú fyrir skömmu var svo
komið, að það leitaði eftir naúða
samningum við lánardrottna
sína. Þeir samningar tókust
ekki, og voru þá ekki aðrar leið
ir færar fyrir félagið en að óska
eftir gj aldþrotaskiptum. □