Dagur - 04.11.1970, Page 7
7
- EITT OG ANNAÐ FRÁ BÆJARSTJÓRN
(Frsmhald af blaSsíðu 81.
eru samkv. till. leigðar á mjög
mismunandi verði eða frá 3 kr.
ferm. og upp í 54 kr. ferm. (í
miðbænum). En algengasta leig
an er 9—24 kr. á fermetra á ári.
Ekki er vitað hver endanleg
afgreiðsla verður hjá bæjar-
stjórn, né hvoi't þessi hækkun
fellur undir ákvæði um verð-
stöðvun.
Hækkar rafmagn?
Rafveitustjórn leggur fram
fyrir bæjarstjórn tillögur um
hækkun á seldri raforku. Þessi
hækkun er m. a. rökstudd með
því að raforkuverð í heildsölu
frá Laxárvirkjun hækkar um
12—15%.
í tillögum rafveitustjórnar er
gert ráð fyrir að algengustu
taxtar hækki frá 10—16%. T. d.
er gert ráð fyrir að heimilistaxti
hækki úr 1.82 kr. hver kwst. í
2 kr. eða 10%. Daghitun úr 69
aur. hver kwst. í 77 aur. eða
11.6%. Næturhitun úr 38 aur.
hver kv/st. í 44 aur. eða 15.8%.
Þess má geta að olíuverð hef-
ir nýlega hækkað yfir 30%.
Bæjarábyrgð vegna SIipp-
stöðvarinnar h.f.
Á bæjarráðsfundi 29. október
er þetta bókað:
Með bréfi dagsettu 22. októ-
ber 1970 fer Slippstöðin h.f. þess
á leit við bæjarráð, að Akur-
eyrarbær veiti fyrirtækinu
ábyrgð fyrir rekstrarlánum
(yfirdráttarheimild) hjá Lands-
banka íslands allt að kr. 15
milljónir, vegna vaxandi rekstr
arfjárþarfa og nauðsynlegrar
fyrirgreiðslu við ábyrgðaropn-
anir.
Fram kom svohljóðandi til-
laga frá Vali Arnþórssyni:
„í því augnamiði að tryggja,
eftir því sem föng eru á, að
Slippstöðin h.f. geti að jafnaði
notið beztu fáanlegu viðskipta-
kjara í vörukaupum sínum er-
lendis frá, svo og til þess að auð
velda fyrirtækinu að taka að sér
þýðingarmikil skipasmíðaverk-
efni á næstunni, samþykkir
bæjarráð að leggja til við bæjar
stjórn, að orðið verði við beiðni
Slippstöðvarinnar h.f. um
ábyrgð á yfirdráttarheimild hjá
Landsbanka íslands og/eða öðr-
um lánastofnunum að upphæð
allt að kr. 15.000.000.00, enda
verði ekki um frekari veðsetn-
ingar en nú er orðið á fasteign-
um og lausafjármunum fyrir-
tækisins að ræða án samþykkis
bæjarráðs Akureyrar. Kvöð þar
að lútandi verði þinglýst við
bæjarfógetaembættið á Akur-
eyri.
Ábyrgð þessi verði undan-
þegin ábyrgðargjaldi á sama
hátt og afurðavíxlar Utgerðar-
félags Akureyringa h.f. og
Krossanesverksmiðju.“
Tillagan var samþykkt með 4
atkvæðum samhljóða. □
- Hitaveitan á Dalvík
(Framhald af blaðsíðu 1)
verkfæri munu nú vera á næstu
grösum, en áttu að vera komin
og borinn fyrir löngu. Fólk er
ákaflega ánægt yfir því að fá
heita vatnið í hús sín, og vænt-
anlega fá öll hús á Dalvík heita
vatnið innan skamms.
Samkv. viðtali við Jóhannes
Haraldsson fréttaritara blaðsins
á Dalvík. Q
Faðir okkar,
GUÐJÓN JÓNSSON, Finnastöðum,
andaðist að Kristneshæli laugardaginn þ. 31. okt.
s.l. Jarðarförin fer fram að Grund í Eyjafirði
laiugardaginn þ. 7. nóv. n. k. kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Ketill S. Guðjónsson,
Þorvaldur Guðjónsson.
Eiginmaður minn,
ÁRNI JÓNSSON,
bókavörður, Gilsbakkavegi 11,
sem lézt 29. f. m., verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 5. nóv. kl. 13.30.
Guðrún Bjarnadóttir.
Sonur okkar og bróðir,
: GRÉTAR FRI'.YR STEFÁNSSON,
í Hömrum, Akureyri,
. lézt af slysförum 26. okt. s.l. — Jarðarförin er
ákveðin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 4.
1 : nþyember n.k. ikl. 13.30.
i lÍÞÖjunn Júlíusdóttir,
Stéfán Jóhannsson
og börn.
Alúðarþakkir okkar og annarra vandamanna fyr-
ir samúðarkveðjur og vinarhug við andlát og
útför eigiinkonu minnar og móður okkar,
F.STER RANDVERS.
Sérstaklega þökkum við hjartanlega Söngfélaginu
Gígjunni fyrir sönginn og hlýhug í okkar garð.
Sigurður Leósson og börn.
I.O.O.F. 1521168 fú — II.
Kl HULD 59701147 VI — 2
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnud. kl. 2 e. .h
Kristniboðsdagurinn. Tekið
verður á móti gjöfum til ís-
lenzka kristniboðsins. Sálm-
ar: 4 — 432 — 127 — 346 —
114. — B. S.
MÖÐRUV ALL AKL AUSTURS -
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Bægisá kl. 13.30 n. k.
sunnudag. Guðsþjónusta að
Bakka sama dag kl. 16.00.
Aðalsafnaðarfundur eftir guðs
þjónustu. — Sóknarprestur.
FRÁ Guðspekistúkunni: Fund-
ur n. k. Laugardag, 7. nóv. kl.
8.30 og sunnudag 8. nóv. kl.
3.30 á venjulegum fundarstað.
— Stjórnin.
FRÁ SJÓNARHÆÐ. Samkoma
n. k. sunnudag kl. 17. Drengja
fundur mánudag kl. 17.30.
Telpnafundur laugardag kl.
14.30.
SAMKOMUR votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, II hæð:
Hinn guðveldislegi skóli,
föstudaginn 6. nóvember kl.
20.30. — Opinber fyrirlestur:
Þær blessanir, sem fólgnar
eru í því að þekkja Guð.
Sunnudaginn 8. nóvember kl.
10.00 f. h. Allir velkomnir.
OU/ HJÁLPRÆÐISHERINN
Fimmtudag kl. 4 e. h.
Kærleiksbandið. Kl. 8
Æskulýðsfundur. Sunnu
dag kl. 2 e. h. Sunnudagaskól
inn. Allir krakkar velkomnir.
Sunnudag kl. 20.30 Almenn
samkoma. Mánudag kl. 4 e. h.
Heimilasambandið. Allir vel-
komnir.
Æ
LEIKFÉLAG
AKUREYRAR
LÝSISTRATA
eftir Aristófanes,
Frumsýning fimmtu-
dagskvöld kl. 20.30.
Sýningar um næstu helgi
auglýstar í útvarpi og
götuaiuglýsingum.
Aðgöngumiðasalan í
Leikhúsinu opin 15—17
daginn fyrir sýningu og
15-17 og 19.30-20.30 "
sýningardaginn.
BARNAKERRA með
skýli óskast til kaups.
Jón Hlöðver Áskelsson,
sími 1-17-42.
TAPAÐ!
Á miðvikudaginn tapað-
ist GULLARMBAND
(spöng) á Ytri Brekk-
unni eða hjá Hafnarstr.
100. Finnandi vinsaml.
hringi í síma 1-10-70. —
Fundarlaun.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju verður n. k. sunnu-
dag kl. 10.30 f. h. Eldri börn
uppi í kirkjunni en yngri í
kapellunni. Öll börn hjartan-
lega velkomin. — Sóknar-
prestar.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Sunnudagsskólinn er hvern
sunnudag kl. 10.30 f. h. Öll
börn velkomin. — Almenn
samkoma hvern sunnudag kl.
8.30 e. h. Einar Gíslason og
frú tala og syngja. Allir vel-
komnir. — Fíladelfía.
LIONSKLÚBBURINN
HUGINN. Fundur n. k.
fimmtudag kl. 12.00 að
Hótel KEA.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Fundur fimmtudaginn 5.
nóv. n. k. kl. 21 í ráShúsi bæj-
arins. Vígsla, önnur mál, hag-
nefndaratriði. — Æ.T.
KONUR Akureyri og nágrenni.
Leitarstöð Krabbameinsfélags
Akureyrar er opin á miðviku
dögum. Tekið á móti pöntun-
um í síma 11477 milli kl. 5 og
6. — Krabbameinsfél. Ak.
ÁFENGISVARNARNEFND Ak
ureyrar hefur opnað skrif-
stofu í Kaupvangsstræti 4.
Opið fimmtudaga kl. 5—7 á
daginn.
AUGLÝSINGAVERÐ hjá Akur
eyrarblöðunum er kr. 105.00
pr. dálksentimetri, frá og með
1. nóv.
Til sölu vegna brott-
flutnings: HJÓNA-
RÚM, hlaðrúm, skenk-
ur, svefnsófi (tvíbreiður),
kommóða, ísskápur
(Bosch), Sjónvarp
(Kuba), burðarrúm,
barnavagn (Pedigree).
Allt er þetta nijög nýlegt
og í góðu ásigkomulagi.
Uppl. í Suðurbyggð 16,
að austan.
Til sölu 4 SNJÓDEKK,
590x13.
Uppl. í síma 2-11-96.
BÆNDUR ATHUGIÐ!
Hef til sölu 25 hestafla
Zetor dráttarvél ásamt
moksturstækjum á hag-
stæðu verði.
Uppl. gefur Sigurður
Ólafsson, Vatnsdals-
gerði, Vopnafirði.
Pedigree BARNA-
VAGN til sölu.
Uppl. í síma 1-11-03.
HLJÓÐFÆRA-
MIÐLUN. - Til sölu:
píanó; píanetta; orgel,
2 radda; rafm.orgel, lít-
ið; harmonikur, viðgerð-
ar. — Til viðtals eftir kl.
18 og um helgar.
Flaraldur Sigurgeirsson,
Spítalavegi 15 ,sími
1-19-15.
BRÚÐHJÓN. 10. okt. sl. voru
gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Sig-
ríðúr E. Hreiðarsdóttir ritari
og Einar Guðbjartsson bólst-
urgerðarnemi. Heimili þeirra
er að Meistaravöllum 7, Rvík.
FILMAN, ljósmyndastofa.
BRÚÐHJÓN. 17. október voru
gefin saman í hjónaband í
Grundarkirkju, ungfrú Val-
gerður Guðrún Schiöth í Hóls
húsum og Gunnar Jónasson á
Rifkelsstöðum.
Hinn 23. október voru gefin
saman í hjónaband, Svein-
björg Kristjana Pálsdóttir og
Aðalsteinn Magnússon járn-
smiður, Grundargötu 3, Akur
eyri.
AMTSBÓKASAFNIÐ er opið
alla virka daga kl. 1—7 e. h.,
nema á laugardögum kl. 10
f. h. — 4 e. h. Einnig á sunnu
dögum kl. 2—5 e. h.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIB. —
Sýningar á litgeislamyndum
hefjast sunnudaginn 8. nóv.
kl. 16. Sýndar verða myndir
af íslenzkum plöntum og ýms
um gróðri. i
SKÁKMENN! Skákæfing verð-
ur í IðnskóLanum á fimmtu-
dagskvöld kl. 8.00.
FÉLAGAR Flugbjörgunarsveit-
ar Akureyrar! Félagsfundur
kl. 8 e. h. miðvikudaginn 4.
nóv. — Stjórnin.
UPPSALAÆTT: Munið áður
tilkynnt ættarmót, laugardag
inn 7. þ. m. Hefst kl. 8V2 síð-
degis. — Ættarráð.
SLYSAVARNAKONUR Akur-
eyri. Munið áður auglýstan
fund á fimmtudagskvöldið í
Alþýðuhúsinu. Kennt verður
„Hjálp í viðlögum“. Skemmti
atriði á eftir. — Stjórnin.
FUNDUR hjá Akureyrardeild
H.F.Í. mánudaginn 9. nóv. kl.
21 í Systraseli. Bergþóra
Gústafsdóttir spjallar um
föndur. — Stjórnin.
SKEMMTIKLÚBBUR Templ-
ara heldur spilakvöld í Al-
þýðuhúsinu nokkur næstu
föstudagskvöld og hefur glæsi
leg verðlaun. Sérstök athygli
skal vakin á að fólk þarf ekki
að vera bindindisfólk til að
njóta þessarar skemmtunar.
Sjáið nánar auglýsingu.
SIÐDEGISSKEMMTUN verður
haldin í Sjálfstæðishúsinu
sunnudaginn 8. nóv. kl. 15.
Skemmtiatriði: Ávarp, tízku-
sýning, happdrætti. Kaffiveit
ingar. Ágóði af skemmtuninni
rennur í tækjasjóð F. S. húss-
ins á Akureyri. — Zonta-
klúbbur Akureyrar.