Dagur - 04.11.1970, Blaðsíða 8
e
Eitt og annað frá bæjarstjórn — SMÁTT & STÓRT
Nýr Glerárskóli.
Bæjarráð, 29. október, leggur
íl við bæjarstjórn:
„Bæjarstjórn Akureyrar lýsir
yfir, að veitt muni á fjárhags-
íætlun bæjarsjóðs Akureyrar
irin 1971 og 1972 fé, sem nægja
.nun til greiðslu á hluta bæjar-
ins af stofnkostnaði 1. áfanga
/æntanlegs barnaskóla í Glerár
íverfi, allt að kr. 10 milljónir
irið 1971 og kr. 15 milljónir árið
.972. Þegar hefir verið veitt fé
il Dyggingar þessa skóla á fjár-
íagsáætlunum áranna 1966 og
.970 samtals kr. 4.5 milljónir."
Glerárbrú.
A sama fundi er bókað:
L,agt var fram bréf frá konum
Kvenfélaginu Baldursbrá í
Glérárhverfi, þar sem vakin er
ithygli á hættulegu ástandi við
1 'ílerárbrú og nauðsyn úrbóta.
Við umræður um erindið kom
ram svohljóðandi tillaga frá
"lalí Arnþórssyni:
„Bæjarráð samþykkir að fela
■ ict jarverkfræðingi í samráði
rið umferðarnefnd að láta hið
: yrsta gera endurbætur við
Glerárbrú, þannig að slys á
1 >rúnni, eða við hana, verði fyrir
iuyggð eftir því sem við verður
: æmið. Jafnframt felur bæjar-
: óo bæjarverkfræðingi og um-
: erðarnefnd að gera hið fyrsta
: /önnun á leiðum til að fyrlr-
Óyngsti dilkur 31.8 kg
\ AKUREYRI og Grenivík var
haust lógað hjá Kaupfélagi Ey
irðínga 42.698 kindum og á Dal
uk 11.593, eða samtals 54.291
-dnd. Frá Dalvík segir á öðrum
tað, en meðalvigt í öllum slát-
trhusum KEA er um 13.76 kg.
>g er það heldur minna en í
yrrahaust.
Þyngsta dilk nú átti Stefán
ohannsson á Hömrum, 31.8 kg.,
>g er það jafnframt þyngsti dilk
u, sem blaðið hefur fréttir af á
jessu hausti. Næstþyngsta dilk
ctti Snæbjörn Sigurðsson,
írund, 29 kg. □
byggja hina óhugnanlegu tíðni
umferðarslysa í bænum. Könn-
unin feli í sér athugun á kostn-
aði við kaup og uppsetningu um
ferðarljósa við þau gatnamót,
þar sem umferðarslys hafa orð-
ið tíðust, o. s. frv.“
Gróðrarstöðin.
„Bæjarráð'léggur til við bæj-
arstjórn, að eftirfarandi sam-
þykkt verði gerð:
Bæjarstjórn Akureyrar skor-
ar hér með á hæstvirtan land-
búnaðarráðherra, að Gróðrar-
stöðin, þ. e. skógarreitur og
garður, á Akureyri, sem stofnuð
var og rekin af Ræktunarfélagi
Norðurlands verði afhent Akur
eyrarbæ sem fyrst.“
Bæjarráð samþykkir tillög-
una.
Lóðaleigur á Akureyri.
Samkvæmt fundarsamþykkt
bæjarstjórnar 6. okt. sl. var
ákveðið að endurskoða leigu-
gjöld eftir lóðir og lönd bæjar-
ins. Nú hafa starfsmenn bæjar-
ins gert tillögur samkvæmt þess
ari samþykkt og voru þær til
umræðu í bæjarstjórn í gær.
Lóðarleigur hjá Akureyrarbæ
munu vera mjög mismunandi.
Sumar leigurnar eru reiknaðar
sem viss % af fasteignamati
lóða en aðrar með ákveðnu
gjaldi á fermetra með heimild
til endurskoðunar á hálfum og
heilum áratug, a. m. k. flestar.
Með hinu nýja fasteignamati
hækka lóðarleigur mjög mikið
ef óbreytt prósenta er látin
gilda, en hún hefir verið 4—5%
á ári eða yrði um 8 kr. á ferm.
eftir íbúðahúsalóðir.
Tillögurnar miða að heildar-
endurskoðun og jöfnun á leig-
um eftir alm. íbúðahúsalóðir.
Er gert ráð fyrir að ársleigur
af íbúðahúsalóðum verði 3 kr.
eftir hvern fermetra eða 1.5%
af hinu nýja fasteignamati.
Iðnaðar- og verzlunarlóðir
(Framhald á blaðsíðu 7)
MANNS LEITAÐ
Rjúpnaskyttu var leitað í viku
af fjölda manns syðra, en án
árangurs. Sagt er, að 1200 dags
verk liafi verið lögð fram við
þessa miklu leit, auk bifreiða
og flugvéla.
Líklegt er, að maður með vel
taminn blóð- eða sporhund
hefði fundið manninn á fyrsta
degi. En slíkur hundur virðist
ekki vera til í þessu landi, því
að hundamergð á Islandi, er
samsafn heimskra, gagnslftillai
og óræktaðra kvikinda. Væri
nú ekki ráð, að slysavarnafélög
eða aðrir góðir aðilar, keyptu
nokkra tamda sporhunda til að
geta brugðist við verkefnum sín
um að hætti venjulegra þjóða.
N ÁTTÚRUKR AFTUR
Dr. Valdimar K. Jónsson verk-
fræðingur ritaði í sumar grein
um bætta nýtingu jarðhita til
raforkuframleiðslu. Fyrir
nokkru kom liingað til lands
Lysisfrata - frumsýning LA á morgun
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
frumsýnir á fimmtudagskvöld
gamanleikinn „Lysistrata“ eftir
Aristófanes. Kristján Árnason
þýddi leikinn úr grísku — leik-
stjóri er Brynja Benedikts-
dóttir.
Leikritið er skrifað 411 fyrir
Krist, en Aristófanes ber hæst
gamanleikjahöfunda þessarar
gullaldar grískrar leikritagerð-
ar. Það segir frá því hvernig
konum tókst að koma á friði í
Grikklandi, með því að neita að
sofa hjá mönnum sínum haldi
þeir áfram að berjast.
Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir, eins og fyrr segir,
en hún stjórnaði einnig leikrit-
inu hjá Herranótt M. R. sl. vet-
ur. Brynja er löngu kunn sem
leikkona og leikstjóri — stjórn-
aði nú síðast uppsetningu á
„Eftirlitsmanninum“ eftir Gogol
hjá Þjóðleikhúsinu.
framboðslisti Framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi vestra
. , KJÖRDÆMISÞINGI Fram-
: óknarmanna í Norðurlandskjör
'læmi vestra, sem haldið var í
: élagsheimilinu á Hvamms-
: anga, var tillaga framboðs-
: lef'ndar um skipun á framboðs-
. ista samþykkt óbreytt. Sam-
kvæmt því er listinn þannig
fikipaður:
. Ólafur Jóhannesson, alþing
ismaður.
2. Björn Pálsson, alþingis-
maður.
3. Magnús Gíslason, bóndi,
Frostastöðum.
4. Stefán Guðmundsson, bygg-
ingam., Sauðárkróki.
5. Sigurður J. Líndal, bóndi,
Lækjamóti.
6. Bogi Sigurbjörnsson, skatt-
endursk., Siglufirði.
7. Guðmundur Jónasson,
bóndi Ási.
8. Ólafur H. Kristjánsson,
skólastj., Reykjum.
9. Helga Kristjánsdóttir, frú,
Silfrastöðum.
10. Bjarni M. Þorsteinsson,
verkstj., Siglufirði.
Þýðandinn, Kristján Árnason,
hefur valið tónlistina sem sung-
in er, en danstónlist er eftir
gríska tónskáldið Þeodórakis.
Eins og í öðrum grískum leik
ritum, frá þessum tíma, gegna
kórar mjög mikilvægu hlut-
verki og hefur Jón Hlöðver Ás-
kelsson annazt kórstjórn, en
byggt er á útsetningum Atla
Heimis Sveinssonar fyrir Herra
nótt M. R. Þórhildur Þorleifs-
dóttir hefur samið dansana, en
dansar auk þess í sýningunni.
Búningateikningar gerði Mess-
íana Tómasdóttir, en Ágústa
Tómasdóttir og fleiri hafa haft
veg og vanda af gerð þeirra.
Leikmynd er eftir Arnar Jóns-
son o. fl. en Ijósameistari er.
Stefán Steinarr. Árni Valur
Viggósson, sem verið hefur
ljósameistari hjá félaginu um
(Framhald á blaðsíðu 2)
Aðalfundur Framsóknarfélagsms
AÐALFUNDUR Framsóknar-
félags Akureyrar var haldinn
29. október í félagsheimilinu,
Haraldur M. Sigurðsson.
fundarstörf, þar með talin
skýrsla formanns og gjaldkera.
Nokkrar umræður urðu um
Hafnarstræti 90. Á fundinum
fóru fram hin venjulegu aðal-
starfsskýrsluna og reikninga fé-
lagsins og síðar um félagsstarf-
semina og framtíðarmál og var
almenn þátttaka í umræðunum.
Kosnir voru 22 menn í full-
trúaráð félagsins og 12 fulltrúar
á kjördæmisþing það, er hefst
árdegis á laugardaginn kemur,
7. nóvember og er haldið í Varð
'borg.
Fulltrúar á kjördæmisþing
eru: Björn Guðmundsson, Har-
aldur M. Sigurðsson, Valur Arn
þórsson, Jón E. Aspar, Sigurður
Óli Brynjólfsson, Sigurður Jó-
hannesson, Ingimar Friðfinns-
son, Kristín Aðalsteinsdóttir,
Baldur Halldórsson, Stefán
Reykjalín, Jón Samúelsson og
Jónas Oddsson.
í stjórn félagsins voru kjörn-
ir: Haraldur M. Sigurðsson for-
maður, Sigurður Óli Brynjólfs-
son ritai’i, Ingimar Friðfinnsson
gjaldkeri og meðstjórnendur
Haukur Árnason og Jón E.
Aspar.
I blaðsstjórn voru kjörnir:
Sigurður Óli Brynjólfsson, Har-
aldur M. Sigurðsson og Arnþór
Þorsteinsson.
norskættaður maðuor að nafni
Norris J. Nelson og er hluthafi
í fyrirtæki, sem hefur einka-
leyfi á notkun freons, sem er
efni, er sýður við 35 stiga hita
og er byrjað að nota til að knýja
vélar bifréiða. En þetta efni má
einnig nota, að því er talið er,
við framleiðslu jarðgufu til raf-
orkuframleiðslu. En hin heita
jarðgufa er ein af Iítt notuðum'
auðlindum landsins. í jarðhitau
uin býr óhemju náttúrukraftur,
sem framtíðin mun nýta þegar
þekking og reynsla hefur aukizfc
STÓRKOSTLEG HUGMYND
í nýlegri blaðagrein Steingríma
Hermannssonar eru þessi efni
tekin til umræðu og bent á, að
samkvænit athugunum áður-
nefndra manna, nvuni e. t. v.
unnt að nýta jarðhita á mjög
hagkyæman hátt til raforku-
framleiðslu. Með því að beina
heitri gufu að túrbínu, sem síð-
an knýr rafal, sem framleiðir
rafmagn, nýtast aðeins 3% af
oi'ku gufunnar eins og nú er.
Með notkun hins nýja efnis
mætti ætla, að ekki þvrfti marg
ar borholur í Bjarnarflagi til að
afla raforku á móts við fulla
Gljúfurversvirkjun, ef freon-
áætlanirnar reynast réttar.
SAGAN ENDURTEKUR SIG
Fyrir bæjarstjórnarkosningarn-
ar sl. vor kepptust allir við að
lýsa því yfir, að þörf væri á að
hækka laun, aflabrögð hefðu
verið góð og verðlag sérstaklega
liátt á þessu ári. Skil.vrði til
kauphækkunar væru ákjósan-
leg. Jafnvel stjórnvöld buðu
gengishækkun. Nýir kjarasanm
ingar voru gerðir eftir þriggja
vikna verkfall. En verðbólgan
fylgdi fast á eftir. Allt var gefið1
frjálst. en verðstöðvun er á dag-
skrá á nýjan leik eins og fyrir
síðustu kosningar í þeirri von,
(Ffamhald á blaðsíðu 7)
Nýjár skrár á pósthólf
PÓSTMEISTARINN á Akur-
eyri hefur tjáð blaðinu, að búið
sé að„skipta .um alla lása póst-
hólfanna, og menn séu beðnir
að vitja nýrra lykla sinna.
Þá er þess að geta, að menn
geta enn leigt sér pósthólf í
pósthúsinu. En notkun póst-
hólfa á nú', eftir endurbætui', að
þjóna tilgangi sínum eins ákjós-
anlega og framast má verða. □
MINKAR UNNIR
í SAURBÆJARHREPPI nota
meindýraskyttur snjófölið til að
auðvelda minkaleitina. Hafa 4
minkar verið drepnir og vitað
um 2 að auki. Minkarnir halda
sig við Eyjafjarðará og hingað
og þangað á öðrum stöðum í
hreppnum. Hafa menn hug á,
að fækka þeim meira á næst-
unni. □