Dagur - 17.02.1971, Blaðsíða 2

Dagur - 17.02.1971, Blaðsíða 2
ÁRLEGT Hermannsmót fór fram um sl. helgi í mjög sœmi- legu veðri. Mót þetta er punkta- mót og sóttu að þessu sinn; mótið keppendur frá Reykja- vík, ísafirði, Siglufirði, Fljót- um, Húsavík, Ólafsfirði cg Ak- ureyri. — Urslit urðu þessi: STÓRSVIG. Konur. Tími Áslaug Sigurðard., R. 93.0 Kai'ólína Guðmundsd., A 95.4 Barbara Geirsdóttir, A 96.5 'Anna Hermannsd., A 101.7 Lengd 1350 m., fallhæð 260 m. og hlið 38. Keppendur 5. Karlar. Tími Haukur Jóhannsson, A 92.19 Reynir- Brynjólfsson, A 92.92 Árni Óðinsson, A 93.04 ívar Sigmundsson, A 93.45 Ingvi Óðinsson, A 93.88 Lengd 1500 m., fallhæð 330 m. og hlið 45. Keppendur 32. SVIG. Konur. Tími Barbara Geirsdóttir, A 94.9 Áslaug Sigurðardóttir, R 95.9 Karólína Guðmundsd., A 99.9 Lengd 300 m., fallhæð 140 m. og hlið 38. Keppendur 4. Karlar. Tími Árni Óðinsson, A 94.61 Hafsteinn Sigurðsson, í 96.17 Ingvi Óðinsson, A 99.01 Björn Haraldsson, H 99.05 Samúel Gústafsson, í 100.47 Lengd 360 m., fallhæð 170 m. og hlið 52 og 50. Keppendur 32. Alpatvíkeppni karla um Hermannsbikarinn stig Árni Óðinsson, A 6.66 Hafsteinn Sigurðsson, í 26.06 Ingvi Óðinsson, A 37.02 fvar Sigmundsson, A 45.48 Magnús Ingólfsson, A 49.87 Samúel Gústafsson, í 64.31 GANGA 13. febrúar 1971. Karlar. Tími Halldór Matthíasson, A 59.33 Frímann Ásmundsson, F 60.05 Kristján R. Guðmundss., í 62.01 Sigurður Gunnarsson, í 66.18 Viðar Thor 70.40 Vegalengd 15 km. 17—19 áua. Tími Magnús Eiríksson, F 39.29 Freysteinn Björgvinss., F 43.05 Vegalengd 10 km. 16 ára og yngri. Tími Reynir Sveinsson, F 20.28 Kristján Vilhelmsson, A 24.45 Ármann Sverrisson, A 25.35 Tryggvi Ásgrímsson, A 35.13 Vegalengd 5 km. - „AÐ DUGA EÐA DREPAST“----- (Framhald af blaðsíðu 4) ar lætur einnig fá forréttindi til annarra gæða og líklega allra á sama svæði. Ef þetta er , rétt hljóta þau ríki, sem nú við- urkenna víðan yfirráðarétt yfir hafsbotninum, fyrr eða síðar að viðurkenna, jafn víða fiskveiði- landhelgi. Nú er þegar farið að tala uni hafsbotninn og hafið yfir honum, sem samfellda heild, og verður það sjálfsagt þannig í framtíðinni. Á þetta verðum við að leggja megin áherzlu. íslendingar þurfa því að ieggja á það verulega áherzlu að nannsaka hafsbotninn í kringum landið, bæði til að kanna hvað þar gæti hugsan- lega verið nýtilegt, og til þess að afla sér þeirrar þekkingar, sem nauðsynleg er til að geta afmarkað og helgað sér allt landgrunnið í víðustu merk- ingu. Að Iokum nokkur mikilvæg atriði. 1. Utfærsla á landhelgi okkar þolir nú enga bið, þegar verður að hefjast handa með undir- búning að næsta áfanga. Okkur ógna nú margar hætt- ur. Mengun veldur því að hætt er að nýta vatnafiska, sem áður voru nýttir í miklum mæli, sama er að segja um fisk af súmum hafsvæðum. Eftirspurn eftir fiski eykst, og jafnframt gengur á ýmsa fiskstofna, svo Ærð veiðar eru takmarkaðar á öíirum hafsvæðum. Þetta beinir allt stóraukinni sókn hingað að ströndum íslands. Það þola: ís- lénzk fiskimið alls ekki. Stór- aukin veiðitækni, með verk- smiðjutogurum, sem veiða í hvaða veðri sem er, eykur gífur lega áganginn á stofnana. Við megum því engan tíma missa og alls ekki sitja með hendur í skauti og bíða eftir niðurstöð- um hafi'éttarráðstefnu sem ef til vill verður haldin árið 1973. 2. Sóknin í landhelgismálinu, sem nú þarf að hefja, verður að vera svo djörf, sem nokkur kostur er. Við verðum að gera fyllstu kröfur í upphafi m. a. til að tapa ekki hugsanlegum rétti í framtíðinni. Þetta gildir t. d. um skilgreiningu á tak- mörkum landgrunnsins. Kröfurnar þarf þó að byggja á fyllsta rétti og sanngirni, eins og reyndar alltaf í samskiptum þjóða (smáþjóðir við sér stærri). En sögulegur og sið- ferðilegur réttur okkar er sterk ur í þessu máli. Oll sanngirni krefst þess af öðrum ríkjum að þau viður- kenni þau fiskveiðimörk við fs- land sem mest eru viðurkennd í reynd lijá öðrum þjóðum lieims. 3. Undanþágusamningurinn við Breta frá 1961 og Þjóðverja frá 1962 verður efalaust okkar versti „Þi'ándur í Götu“ en fram hjá honum verður að kom ast. Til þess er talið að helzt sé um tvær leiðir að velja: Að láta, sem hann sé ekki til, eða að hann sé ekki bindandi fyrir okkur vegna þess að um nauðungarsamning hafi verið að ræða. Þessi leið mun þó ekki þykja allskostar vænleg, þar sem samningurnn var þrátt fyr- ir allt gerður af löglegri ís- lenzkri ríkisstjórn, svo björgu- legur sem hann þó er, eða hitt þó heldur. Hin leiðin er að segja samn- ingunum upþ, með t. d. sex mánaða fyrirvara, og láta svo skeika á sköpuðu með það hvað Bretar segja eða gera. Engin uppsagnarákvæði eru í samn- ingum til 'eða frá, en á grund- velli þess að nú eru aðstæður breyttar frá því er hann var gerður, og varla er hægt að hugsa sér að slíkur samningur eigi að binda að eilífu hlýtur það að vera rökrétt, að hægt sé að segja honum upp. l$ða lýsa því yfir að hann geti ekki leng- ur talizt bindandi. 4. Sjálfsagt verður enn að færa landhelgina út í áföngum, en það má deila um hve hyggi- legt er að hafa næsta áfanga stóran, eða hvenær eigi að stíga skrefið, talað hefur verið um 50 mílur eða meir. Það skiptir e. t. v. ekki höfuðmáli, aðal- atriðið er að hafizt verði handa kynningu á málstaðnum og að sem fyrst með undirbúning og að staðið verði fast á réttinum og hvergi hopað. □ Um næstu helgi fer fram opið punktamót í Reykjavík og er gert ráð fyrir að 17 keppendur fari frá Akureyri. □ Til söiu NECCHI saumavél, fótstigin og í skáp. Verð kr. 1500.00. Einnig fataskápur. Uppl. í síma 1-19-82. Til sölu Ferm ÞVOTTAVÉL, hálf- sjálfvirk. Tækifærisverð. Einnig barnavagn, ódýr. Uppl. í Þórunnarstr. 136 sími 2-11-13, eftir kl. 18. Til sölu Vöstra SKÍÐI ásamt öryggisbindingum og smelluskóm. Uppl. í síma 2-14-22. Vil selja gamlan Atlas DÝPTARMÆLI. Uppl. í síma 6-17-22. Til sölu Philips SEGUL- BANDST/EKI. Uppl. í Glerárgötu 2B, niðri. Til sölu mjög fallegt og vandað teak-HJÓNARÚM. Uppl. í síma 2-16-81. HERBERGI og eldun- arpláss eða lítil íbúð, ( óskast til leigu fyrir 1. maí n.k. Uppl. í síma 1-29-61. Ung hjón með eitt barn óska að taka litla ÍBÚÐ á leigu — s t r a x . Uppl. í síma 1-29-75. Til sölu er 3 herb. ÍBÚÐ á Oddeyrinni. Uppl. í síma 1-17-52. Ungling, sem vinnur á kvöldvaikt, vantar HERBERGI nú þegar. Uppl. í síma 1-17-99, milli kl. 13 og 16. Ungur maður óskar eftir HERBERGI á Eyrinni eða í Glerárhverfi. Uppl. í síma 1-27-50. Ræðið við okkur um HÚSGÖGNIN! Nú er tækifærið! Nýjar gerðir væntanleg- ar af SÓFASETTUM SVEFNSÓFUM. Komið í ÖRKINA hans NÓA og sannfærizt. Eitthvað nýtt á hverjunr degi. HÚSGÖGN Á TVEIM HÆÐUM. ÖRK!N HANS NÓA — Ráðluistorgi 7 - Sími 1-15-09. Bréfaskóli SÍS og ASÍ Aldrei hefur verið meiri þörf fyrir bókhaldskunn- áttu, en einmitt nú. Bréfaskólinn býður yður nám í tveim flokkum BÓKFÆRSLU ásamt 39 námsgreinum o öðrum. Bcr yður ekki nauðsyn til að nota yður aðstoð okkar? Bréfaskóli SÍS og ASÍ Sími 1-70-80. NÝKCMIÐ! NÆLON FLAUEL — 7 litir VERZLUNfN RÚN N ý k o m i ð RYA-TEPPI — margar gerðir. VERZLUNiN DYNGJA ÚTSALA Enn er hægt að gera góð kaup á DÖMUPEYSUM og fl. o. fl. VERZLUNiN DRÍFA Sími 1-15-21. HRÆRIVÉLAR: BALLERUP KENWOOD KITCHEN AID SUNBEAM Hand- HRÆRIVÉLAR: AEG PHILIPS JÁRN 0G GLERVÖRU- DEILD TRÉKLOSSAR - stærðir 27-45 KVENTÖFLUR - verð kr. 410.00 RAUÐA KROSS TÖFLURNAR — komnar aftur — tvær gerðir — verð kr. 1175.00 og 1210.00. GÚMMÍSTÍGVÉL DRENGJA — stærðir 28—40. SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL SÆNSKAHARÐPLASTIÐ - PERSTORP TIL MARGS KONAR INNRÉTTINGA OG SMÍÐA. FÆST I MIKLU LITAÚRVALI í TRÉSMIÐJU ÁGÚSTAR JÓNSSONAR - TRYGGVABRAUT 12 - AKUREYRI - SÍMAR: 1-25-78 og 1-22-16.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.