Dagur - 05.01.1972, Side 2
2
VINNUMÁLASAMBAND sam-
vinnufélaganna tók ásamt öðr-
um vinnuveitcndasamtöicum
þátt í þeirri allsherjar samninga
gerð, sem fram fór í október og
nóvember milli vinnuveitenda
og flestra aðildarfélaga ASí.
Fyrir hönd Vinnumálasam-
bandsins unnu að samningágérð
inni Júlíus Kr. Valdimarsson,
frkvstj. þess, Hjörtur Hjartar,
Gunnar Grímsson og Árni Bene
diktsson. í tilefni af samning-
unum höfðu SF samband við
Hjört Hjartar, sem hafði þetta
um samningamálin að segja:
í upphafi samningsgerðar lá
íyrir loforð ríkisstjórnarinnar
til verkalýðshreyfingarinnar
um, að 40 stunda vinnuvika yrði
komið á með lögum, svo og leng
ingu orlofs. Auk þessara kjara-
bóta lagði verkalýðshreyfingin
fram víðtækar kröfur um breyt
ingar á samningum og verulega
hækkun launa. Það var því í
byrjun ástæða til að ætla, að
erfitt kynni að reynast að sætta
sjónarmið samningsaðila.
Fulltrúum Vinnumálasam-
E
bandsins er jafnan á höndum
sérstakur vandi við slíka samn-
ingsgerð. Til forystumanna sam
vinnufélaganna er af félags-
mönnum almennt gerð sú krafa,
að rckstur þeirra sé í góðu lagi
og að þau geti skilað eðlilegum
og hóflegum hagnaði. Samtímis
er þorri félagsmanna þeirra
launþegar í einu eða öðru formi,
og sem slíkir ætlast þeir gjarn-
an til þess, að samvinnufélögin
taki sérstakt tillit til launþega-
sjónarmiða, þegar kjarasamn-
ingar eru til meðferðar. Þessi
tvö sjónarmið togast á, og erfitt
kann að reynast fyrir þó. sem
fara með umboð Vinnumála-
sambandsins við samningagerð,
að fínna hinn rétta meðalvcg.
Þeir sitja að öllum jafnaði at-
vinnurekendamegin við samn-
ingaborðið og kynna sjónarmið
sín og tillögur yfirleitt fyrst í
þeim hópi. Það er eðlilegt og
jafnvel nauðsynlegt, vegna al-
mennra vinnubragða, að at-
vinnurekendur reyni að sam-
ræma sjónarmið sín, áður en til
sameiginlegra funda kemur með
gagnaðila. Stundum tekst þetta
greiðlega, en því er hins vegar
ekki að neita, að viðhorf Vinnu-
málasambandsins, ekki hvað
sízt um vinnubrögð, hafa oft
verið nokkuð önnur en annarra
atvinnurekendasamtaka. Jafnan
hefur þó verið reynt að láta
ekki, á meðan á samningsgerð
(Framhald á blaðsíðu 7)
AÐ VENJU fór fram í sumar á
vegum Golfklúbbs Akureyrar
firmakeppni í golfi, og stóð hún
yfir seinni hluta sumars. Þátt-
taka finnanna var að venju
ins þakka þeim þann stuðning,
sem þau veita og hafa veitt á
undanförnum árum.
Úrslitakeppnin fór fram a j
Jaðri í haust, og urðu úrslit sem
mjög góð, og vill stjórn klúbbs-
1. Gefjun, keppandi Björgvin
Þorsteinsson. 2. Sjónvarpshúsið,
keppandi Hörður Steingríms-
son. 3. Aðalgeir og Viðar h.f.,
keppandi Hafliði Guðmundsson.
4. Bílaþjónustan s.f., keppandi
Frímann Gunnlaugsson. 5.—6.
hér segir:
íslendingur-ísafold, keppandi
Jón Steingrímsson. 5.—6. Radio
vinnustofa Stefáns Hallgríms-
sonar, keppandi Jóhann Guð-
mundsson. □
TÓNLEIKAR L.A.
' LÚÐRASVEIT AKUREYRAR
J lék í Akureyrarkirkju að kveldi
g 28. desember sl. undir stjórn
Roar Kvam tónlistarkennara
frá Noregi. Einnig kom fram
Lúðrasveit Tónlistarskólans.
Aðsókn að tónleikunum var
góð. Lúðrasveitirnar léku jóla-
lög, ásamt öðrum lögum
þekktra höfunda.
Roar Kvam réðst á sl. hausti
til Tónlistarskóla Akureyrar og
tók einnig við stjórn Lúðra-
sveitarinnar.
rgH „ f
Sijórnmálafi tndur
Framsóknarfélögin
á Akureyri halda
l % ’áp almennan fund,
föstudaginn 7. jan.
n. k. í lélagsheimil-
arfÉfr, laMI inu Hafnarstræti
!§|f^ 90 og hefst fundur-
Æk inn kl. 20.30.
Frummælandi er
• % - Jra Ingvar Gíslason
Jpll alþingismaður, og
niiun hann ræða um viðliorf í ís-
Ingvar Gíslason lenzkum stjórn- málucn í dag.
alþingismaður STJÓRNIRNAR.
11*111 1EI 111198
imai ui iiiibb
IIIIII
fjcpr hurrdruð og firjár milljónir og Ivö hu
NÝ VINNINGASKRÁ
Glæsilegri en nokkru sinni fyrr
Lægsii vinningur FIMM ÞÚSUND KR.
Hæsti vinningur í hveijum flokki verður EIN
MILLJÓN KRÓNUR - en TVÆR MILLJÓNIR
í desember. — Með því að eiga alla fjóra miðana
(F„ F, G og H) er hægt að vinna ÁTTA MILLJÓN-
IR IÍRÓNA í einum drætti.
Llver hefur efni á að vera ekki með?
Heildarfjárliæð vinninga er 403,200,000 krónur —
fjögur hundruð og þrjár milljónir og tvö hundruð
þúsund krónur — sem skijuast þannig:
48 vinningar a
7.472 vinningar á
52.336 vinningar á
Aukavinningar:
8 vinningar á
60.000
88 vinningar á
kr. 8.000.000 kr.
kr. 44.000.000 kr.
kr. 9.600.000 kr,
kr. 74.720.000 kr.
kr. 261.680.000 kr.
kr. 800.000 kr.
kr. 4.400.000 kr.
403.200.000 kr.
HÆSTA VINNINGSHLUTFALLIÐ
Vinningar í Happdrætti I-Iáskóla íslands nema 70%
af samanlögðu andvirði seldra miða. Er það miklu
hærra hlutfall en nokkurt annað happdrætti greiðir
— og sennilega hæsta vinningsliHitfalI í heieni. —
Athugið: Fitt númer af hverjum fjórum lilýtur
vinning. 7 krónur ai hverjum 10 eru greiddar í vinn-
inga — og herið saman við (önnur happdrætti.
★ Góðfúslega enduinýið
sem fyrst til að forðast
biðraðir síðustu dagana
★ Viðskiftamenn eiga rétt á
miðum sínum til 10.
janúar.
Nú geta menn keypt raðir af
miðum, eins er mögúleiki ;í
því að umboðsmaðurinn eigi
einn eða ffeiri hlutamiða af
saena númeri og þér áttuð fyr-
ir. Þannig getið þér mætt
minnkandi verðgildi pening-
anna og allt að fjórfaldað
verðmæti vinni-ngs.
★ VINNINGAR ERU
SKATTFRJÁLSIR
HAPPDRÆTTI IIÁSKÓLA ISLANDS er eina peningahappdrætti landsins
Umboðsmenn Happdrættis Háskóla íslands á Norðnrlandi:
Akureyri: Jón Guðmundsson, Geislagötu 10. Dalvík: Jóhann G. Sigurðsson. Húsavík: Árni Jónsson.
Hrísey: Björgvin Jónsson. Grenivík: Kristín Loftsdóttir. Kópasker: Óli Gunnarsson.
Raufarliöfn: Páll Hj. Árnason.
Þórshöfn: Steinn Guðmundsson.