Dagur - 05.01.1972, Page 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
TlMAMÓT
UM þetta leyti hugleiða menn venju
fremur atburði liðins árs, sem heild,
og í öðru lagi hvað nýbyrjað ár kann
að bera í skauti sér.
Liðið ár var viðburðaríkt á inn-
lendum vettvangi. Það var góðæri til
lands og sjávar og það var einnig
markaðsgóðæri fyrir aðalútflutnings-
vörur landsmanna, og atvinnulífið
stóð víðast nteð blóma.
Alþingiskosningar og stjórnar-
skipti að þeim loknum eru flestum í
fersku niinni. Þrír núverandi stjórn-
arflokkar undir forsæti Ólafs Jó-
hannessonar birtu stefnu stjórnar
sinnar við stjórnarmyndunina, og
samkvæmt henni mun árið verða tal-
ið tímamótaár, vegna breyttrar
stefnu og djarflegra áætlana. Ber
landhelgismálið þar liæst, ennfremur
endurskoðun varnarsamningsins, en
þessi mál bæði lét fyrri stjórn kyrr
liggja í tólf ár. I atvinnumálum er
sú meginstefna mörkuð, að stefnt
skuli að skipulögðum áætlunarbú-
skap án hafta, í stað liandaltófsins
áður. Þá ætlar stjórnin að beita sér
fyrir jöfnun lífskjara, efla vinnu-
vernd og endurskoða bæði trygginga-
kerfið og skattakerfið frá rótum. Hér
er fátt talið af mörgu, en á þeim fáu
mánuðum, sem stjórnin hefur setið
að völdum, hefur hin nýja stefna
verið framkvæmd á ýmsum sviðum.
Leiðrétting vísitölunnar var gerð,
verðstöðvunin var framlengd, kjör
sjómanna bætt, vinnuvikan stytt og
orlof lengt, og afurðalán voru liækk-
uð. Stórhækkaðar voru almanna-
tryggingar og afnumin sjúkrasam-
lagsgjöld og tryggingarsjóðsgjald, og
er þetta án efa merkasta breytingin
á þeirri löggjöf, sem lengi liefur ver-
ið gerð í tryggingamálum aldraðra
og öryrkja. Sett hafa verið lög um
Framkvæmdastofnun ríkisins, lögð
fram frumvörp um tekjuskatt og
eignaskatt, svo fátt eitt sé talið. Þá
hefur stjórnin boðið nýja stefnu í
raforkumálum, sem felur í sér sam-
tengingu raforkuvera, og sama raf-
orkuverð um land allt til sömu nota.
Einn fyrsta dag desembermánaðar
gerðist sá ánægjulegi atburður, að
afstýrt var allsherjarverkfalli, sem
yfirvofandi var, en þess í stað var
samið um kaup og kjör til tveggja
ára. Skapar sá vinnufriður eflaust
meiri festu í efnahagsmálum, en
skammtímasamningar, eins og tíðk-
azt hafa.
GLEÐILEGT ÁR.
Á AÐALFUNDI S.V.F.Í., sem
haldinn var á Akureyri í júní í
sumar, var samþykkt, að félagið
leitaði eftir heimild til að efna
til happdrættis á þessu ári, og
verði ágóða af því eingöngu
varið til björgunarsveita félags-
ins.
Félagið telur brýna nauðsyn
bera til að efla björgunarsveitir
félagsins, enn frekar, en orðið
er, með því að endurnýja og
auka tækjabúnað þeirra, svo og
húsnæði, og bæta enn þjálfun
sveitanna.
Þetta kostar meira fé en svo,
að félagið ráði við það án frek-
ari tekjuöflunar.
Það er von félagsins, að al-
menningur vilji styrkja þessa
starfsemi og leggja nokkuð af
mörkum til, að hún geti sem
bezt þjónað tilgangi sínum.
Félagið hefur nú fengið heim-
ild til að efna til happdrættis,
og hefur stjórn félagsins kjörið
þau Björn Jónsson, flugmann,
frú Gróu Jakobsdóttur, for-
mann slysavarnadeildarinnar
„Björg“, Eyrarbakka, Loga Run
ólfsson úr stjórn slysavarna-
deildarinnar „Ingólfur“, og til
vara frú Huldu Viktorsdóttur
úr stjórn kvennadeildar S.V.F.Í.
Reykjavík, og Eggert Jónsson,
slysavarnadeild Selfoss, í nefnd
til að hafa á hendi stjórn happ-
drættisins, en Sig'mundur Jóns-
son, bókari félagsins mun verða
starfsmaður nefndarinnar og
annast framkvæmdir.
Happdrættinu verðuúr hagað
þannig, að verð hvers miða
verður kr. 100.00, og við hvern
miða verður fest eyðublað fyrir
inntökubeiðni í félagið, sem
þeir, er þess óska, geta notað.
Vinningar verða 9, að verð-
mæti um 1 milljón krónur:
Bifreið af gerðinni Range Rover
og 8 hálfsmánaðar ferðalög
(þ. e. flugferð, hótel og fæði)
fyrir tvo til Kanaríeyjanna.
Dregið verður í happdrættinu
15. janúar, 15. marz, 15. maí og
15. júní 1972, í þrjú fyrstu skipt
in um 2 ferðir í hvert sinn, en í
síðasta skiptið um bifreið, en
auk þess eru aukavinningar 2
ferðir til Kanaríeyja fyrir tvo.
Hver miði hefur þannig fjóra
vinningsmöguleika.
Miðarnir verða til sölu hjá
deildum félag'sins um allt land.
Heitir félagið á landsmenn að
styrkja þessa starfsemi og
kaupa happdrættismiðana. □
ICELAND REVIEW hefur gef-
ið út safn íslenzkra Ijóða eftir
tuttugu og fimm Ijóðskáld í
enskri þýðingu Alan Boucher.
Er þetta fyrsta bókin í nýjum
bókaflokki, sem nefnist ICE-
LAND REVIEW LIBRARY.
Ber hún heitið POEMS OF
TODAY, From Twenty-five Ice-
landic Poets. Bókin er 96 blað-
síður og eru ljóðin 64, valin af
þýðandanum sjálfum, en hann
hefur um árabil fengizt við þýð-
ingu íslenzkra ljóða, og er þetta
ekki í fyrsta sinn að þýðingar
Alan Boucher birtast á prenti.
Sjálfur er hann rithöfundur og'
hafa 20 bækur hans verið gefn-
ar út í Bretlandi.
Eftirtalin skáld eiga ljóð í
Frá Skákfélagi Ak.
HIÐ árlega jólahraðskákmót fé-
lagsins var haldið þriðjudaginn
28. des. Þátttaka var góð, eða
23 þátttakendur.
Sigurvegari varð Jón Björg-
vinsson, hlaut 19V2 v., í öðru
sæti varð Halldór Jónsson með
18 v. og í þriðja sæti Guðmund-
ur Búason, hlaut 17% v.
Ákveðið hefur verið að Skák-
þing' Akureyrar hefjist sunnu-
daginn 9. janúar og verða tefld-
ar tvær umferðir á viku, á
sunnudögum og miðvikudögum,
og reiknað með að tefla alls
7—9 umferðir. — Sjá auglýs-
ingu í blaðinu.
Þá er reiknað með að Skák-
þing Norðurlands verði haldið
hér um mánaðamótin febrúar—
marz og verður það nánar aug-
lýst síðar. □
bókinni: Jóhannes úr Kötlum,
Jón Helgason, Tómas Guð-
mundsson, Guðmundur Böðvars
son, Snorri Hjartarson, Steinn
Steinarr, Jón Dan, Kristján frá
Djúpalæk, Jón úr Vör, Ólafur
Jóhann Sigurðsson, Þorsteinn
Valdimarsson, Stefán Hörður
Grímsson, Einar Bragi, Jón Ósk
ar, Hannes Sigfússon, Gunnar
Dal, Sigfús Daðason, Matthías
Johannessen, Ólafur Haukur
Ólafsson, Hannes Pétursson,
Þorsteinn frá Hamri, Jóhann
Hjálmarsson, Þuríður Guð-
mundsdóttir, Nína Björk Árna-
dóttir og Jóhannes Björn.
Næsta bók ICELAND
REVIEW LIBRARY verður
væntanlega smásagnasafn. □
Islenzk Ijóð í enskri þýðingu
HVAÐ GENGUR AÐ HONUM
HALLDÓRI?
Háskólastúdentar hafa gefið
út blað, Stúdentablaðið, í tilefni
1. des. hátíðahalda. í blaðinu
eru m. a. lagðar nokkrar spum-
ingar fyrir allmarga góðborg-
ara. Þar á meðal er þessi spurn-
ing lögð fyrir Halldór Laxness,
Frá Tónlistarfélagi
Akureyrar
NÆSTU tónleikar Tónlistar-
félags Akureyrar verða í Borg-
arbíói hinn 6. janúar n. k. og
hefjast kl. 21. Vladimir Aszken-
azy leikur verk eftir Haydn,
Chopin og Rachmaninoff.
Aszkenazy hefur tvisvar áður
leikið hér á Akureyri, í síðara
skiptið um áramót 1968—1969
og í bæði skiptin við mikla hrifn
ingu áheyrenda.
Forsala aðgöngumiða er þeg-
ar hafin í Bókabúðinni Huld.
Einnig verða seldir miðar við
innganginn, ef til verða. □
KA og ÞÓR leika á
sunudag
N. K. SUNNUDAG, 9. janúar,
leika KA og Þór í íslandsmót-
inu í handknattleik, 2. deild, og
er það fyrsti leikur Þórsliðsins.
KA-liðið hefur leikið einn leik
við Gróttu fyrir sunnan og tap-
aði þeim leik með 6 marka mun.
Leikurinn fer fram í íþrótta-
skemmunni og hefst kl. 2 e. h.
Á eftir leik Þórs og KA leika
Ólafsfirðingar og KA í yngri
flokkum. □
frægasta rithöfund þjóðarinnar:
„Eigum við að miða útflutnings
framleiðslu okkar við barfir
þeirra, sem líða skort, eða
hinna, er geta borgað hæsta
verðið?“
Nú er vonlegt, að fákænn al-
múginn bíði svars skáldsins
með nokkurri eftirvæntingu,
því í einlægni er spurt og mál-
efnið alvarlegs eðlis. Svo kemur
svarið og hefst á þennan gáfu-
lega máta:
„Framleiðsla okkar, svo sem
smjörfjallið og „horket með fitu
lopa“ af sauðfé sem hér er aliö
mestan part vannært og lítt kyn
bætt, er ekki fæða við hæfi
húngurþjóða í Afríku og Asíu
frcmur en annarra útlendínga.
Það er best fyrir okkur að éla
það sjálfir.“ Og svo snýr skáldið
sér að sjómetinu og ónotast líka
út í það.
Og nú er von, að maður
spyrji: Hvað gengur eiginlega
að þessu blessaða skáldi okkar?
Hefur eitthvað komið fyrir
þennan mann í frumbernsku
hans í sambandi við sauðfé, eitt-
hvað, sem því veldur, að hann
missir stjórn á sér, þegar orðið
sauðkind kemur upp í huga
hans. Eða hvernig á að skýra
það sefasýkilega ofstæki, sem
fram kemur í þessari tilvitnun
og raunar ótal öðrum dæmum
úr skrifum hans bæði fyrr og
síðar.
Það er sennilega til of mikils
vonazt, að Halldór Laxness fari
nú að hætta þessu heimskulega
og ósæmilega stríði sínu gegn
sauðfé og sauðbúskap á íslandi,
en æskilegt væri það nú samt,
ekki sízt fyrir mannorð hans
sjálfs.
H. E. Þ.
SPA DAGS
AÐ þessu sinni er
spámaður okkar
Oddur Árnason
prentari í POB.
Hann reiknar með
frekar mörgum jafn
teflum, enda lenda
mörg jöfn lið sam-
an á þessum seðli.
Leikir 8. janúar 1972 1 X 2
Chelsea — Huddersfield /I
Everton — West Ham X
Leeds — Ipswich / -
Leicester — Liverpool / ’■
Manch. Utd. — Wolves X ; ý,: Ar
Newcastle — Coventry X
Nott'm For. — Crystai P. z
Southampton — Derby . X
Stoke — Arsenal / ■
Tottenham — Man. City /
W.B.A. — Sheffield Utd. z
Millwall — Q.P.R. -Á.
r
ekslur Slippslöðvarinnar fryggðor
Undarleg afstaða tveggja bæjarfulltrúa
UNDANFARNA mánuði hefur stjórn og skipulagningu fyrir-
ÓLAFUR JÓNSSON:
Minningaþættir. Fyrra bindi.
Prentsmiðjan Leiftur h.f.,
Reykjavík,
prentaði og gaf út 1971.
Og villunótt mannkyns um
1 veglausa jörð,
svo voða löng orðin
mér finnst.
ÞESSAR Ijóðlínur komu mér í
hug að loknum lestri fyrra
bindis af æviþáttum Ólafs Jóns-
sonar. Þetta er þróunarsaga
Ólafs og veraldarsaga hans um
leið. Þegar henni lýkur er Ólaf-
ur nærri þrítugur að aldri, hef-
ur nýlokið námi við landbún-
aðarháskóla Danmerkur, og
fengið veitingu fyrir starfi fram
kvæmdastjóra Ræktunarfélags
Norðurlands, en í því starfi var
Ólafur allan sinn starfsaldur, og
bjó lengst af í Gróðrarstöð fé-
lagsins á Akureyri, enda oft við
hana kenndur. Þetta eru því
ekki aðeins bókaskil, heldur og
þáttaskil í lífi Ólafs. Undirbún-
ingstíminn er að baki, fram-
undan er starfstíminn. Ekki svo
að skilja, að Ólafur hafi ekki
starfað að ýmsu á þessum þrem-
ur fyrstu áratugum ævinnar.
Kemur það vel fram í bókinni,
að hann hefur lagt gjörva hönd
á flestar þær atvinnugreinar,
sem þá voru stundaðar í land-
inu og tekið þeim með stökustu
þolinmæði, enda jafnan þótzt
vaxa nokkuð af hverri, þótt
ekki væru þær beinlínis í leið-
inni að því marki, er hann síðar
setti sér, með einni undantekn-
ingu þó: hjásetunni. „Hjásetan
var mér þyngsta raun. ... “ og
„alltaf var það mér sama plág-
an“. Eftirá finnst Ólafi þetta
skrítið, og telur helzt að þetta
hafi verið tóm fyrirtekt.
í þetta má þó leggja dýpri
merkingu: Ólafur er runninn
upp úr umhverfi, þar sem allt
snerist um sauðkindur, a. m. k.
í heimi karlmanna. Um hana
snerist önn dagsins, eða fyrir
hana, um hana var hugsað og
rætt, við öll tækifæri, og sum-
part var réttur hennar meiri en
réttur manna. Að rísa gegn sauð
kindinni var það sama og að
rísa gegn umhverfi sínu, en í
slíkri uppreisn síns unglingar
manndóm sinn. Ólafur er að
vísu enginn uppreisnarmaður í
venjulegri merkingu þess hug-
taks, en samkvæmt eðli sínu og
upplagi hlaut hann þó að lenda
í einhvers konar andstöðu við
það mannfélag, sem allt skildi
svo jarðneskum skilningi.
Kannske var það gæfa Ólafs,
að hann slitnaði snemma upp úr
þessu umhverfi heimabyggðar
sinnar og kynntist fljótlega nýj-
um verkum og nýjum viðhorf-
um, sá hlutina og mannfélagið í
nýju ljósi og eygði nýja mögu-
leika til þroska.
En Ólafur er engin Pallas
Aþena, sem stekkur alsköpuð
fram í öllum herklæðum. Örlög-
in voru ekki á því að sleppa
honum próflausum inn í aldin-
garðinn. Per ardua ad astra,
segir latneskt máltæki, sem ef
til vill má þýða með íslenzka
máltækinu, enginn verður óbar-
inn biskup, þótt orðin merki
annað. Ólafur stritar í vinnu-
mennsku, fyrst í Útmannasveit
á ýmsum bæjum, síðan á Egils-
stöðum, því mikla myndarheim-
ili, en þar kynnist hann einnig
stórbúskap, eins og hér gerist
beztur, og mun það einhverju
hafa valdið um val ævistarfsins,
því næst á eftir fer Ólafur í
Hvanneyrarskóla og uppfrá því
eru örlög hans ráðin.
Þótt lífið í Útmannasveit á
Fljótsdalshéraði væri augsjáan-
lega enginn leikur á þessum ár-
um — enda er sveitin ólíkt harð
býlli en gósenlandið Skógar —,
þá öðlast Ólafur þar sinn fyrsta
félagslega þroska 1 Starfi ung-
mennafélagsins þar. Þættirnir
frá Útmannasveitardvöl Ólafs
eru bæði fróðlegir og skemmti-
legir, einkum þeir sem segja frá
vinnumennsku hans hjá Hall-
dóri Þorkelssyni í Ðölum og
síðar á HrafnabjörgUm. Sjálfs-
bjargaruppátæki Halldórs þessa
verða að srijöllum gamansögum
í penna Ólafs, þótt þáú séu raun
ar í hæsta máta alvarleg og í
mörgum tilfellum lífshættuleg,
eins og t. d. sjóferðin og viður-
eignin við björninn. Sýnist mér
þarna koma fram hæfileiki höf-
undarins til smásagnagerðar,
sem hann telur sjálfur að hafi
jafnan blundað með sér. Þetta
er þó ekkert einsdæmi í bók-
inni, því öll er hún full af gam-
ansömum og smáskrýtnum
atvikum, og sannltallaður
skemmtilestur á köfltim. Sparar
höfundur það ekki að gera grín
að sjálfum sér og hygg ég að
fáir íslendingar hafi náð lengra
í því efni, nema ef til vill meist-
arinn Þórbergur. Til samstarfs-
manna sinna og samferðamanna
liggur Ólafi gott orð í hvívetna,
og leitast jafnan við að draga
fram þeirra betri mann, og þótt
hann segi af þeim gamansögur
er það græskulaust. Af flestum
þeirra taldi hann sig hafa lært
nokkuð, jafnvel af fjósamann-
inum Bauga, sem mokaði flór-
inn á Hvanneyri, en um hann
segir Ólafur svo: Ég held að
Baugi hafi fyrst vakið mig til
umhugsunar um þau sannindi,
að varla mun til svo aumt starf,
eða ekki megi hefja það til
nokkurrar fullkomnunar.
Höfundur nefnir bók sína: Á
tveim jafnfljótum, sem bæði má
skoða, sem staðréynd og tákn.
Staðreynd að því leyti, að Ólaf-
ur ferðast mikið gangandi, að
þeirrar tíðar sið. Tvisvar geng'-
ur hann yfir þvert ísland, og
tvisvar í eins konar pílagríms-
ferðir frá Hvanneyri á Þingvöll.
Fyrir utan allar ferðirnar frá
ÚÚtmannasveit til Borgarfjarð-
ar eða S.eyðisfjarðar. Einu sinni
gengur hann jafnvel í kapp við
strandferðaskipið, en tapar þó
þeirri raun.
En ganga Ólafs er ekki síður
táknrænt fyrirbæri: hið eilífa
dæmi um leit mannsins að sjálf
um sér, viðfangsefni og um-
hverfi sínu. Þótt Ólafi sé ekki
villugjarnt í sínum xaunveru-
legu ferðum, hygg ég þó — eða
hef.það öllu fremur á -tilfinning-
unni — að Ólafur hafi lengi
farið villur-vegar á .lífsleið sinni,
og' ekki þekkt sinn vitjunartíma
fyrr en seint-og gíðar meir. Bók
hans er því enn eitt klassískt
dæmi um „villunóii.mannkyns
um veglausa jörð“, .sem Stefán
kvað um í Andvöku.ainni. Flest-
ir verðum vér. að ganga þessa
krákustigu til að ná settu
marki, og flestir villumst vér í
völundarhúsi heimsins, áður en
markinu er náð.
í bókarlok er Ólafur loksins
kominn á.veginn, eftir að hafa
jafnan farið vegleysur. Hann
hefur fundið starf, þar sem með
fædd athafnasemi hans og út-
sjónarsemi fá að njóta sín í rík-
um mæli.
Iljá mörgum embættismann-
inum er einstaklingsþróuninni
lokið um leið og hann tekur við
embætti sínu. Hjá Ólafi var
þessu ekki svo farið, en frá því
mun hann væntanlega skýra í
síðara bindi ævisögunnar, og
skal það ekki frekar rætt hér.
Helgi Hallgrímsson.
Séra Pétur Sigurgeirsson:
Prentsmiðjan Leiftur.
Reykjavík 1971.
TIL er þjóðsaga um það, að eitt
sinn er prestur í Grímsey gekk
í fullum skrúða til embættis-
gerðar í Miðgarðakirkju vildi
svo til, að hann mætti á leið
sinni birnu með nokkra húna í
eftirdragi. Laut dýrið prestinum
í virðingarskyni og lét alla fjöl-
skylduna gera slíkt hið sama,
en gekk síðan kurteislega á
braut án þess að gera af sér hið
minnsta mein, og skildi þannig
með þeim.
Ef ekki fylgdi það sögunni, að
þetta hefði gerzt fyrir langa-
löngu, gæti ég eins vel trúað
því, að sagan væri alveg ný af
nálinni og væri presturinn eng-
inn annar en séra Pétur Sigur-
geirsson vígslubiskup á Akur-
eyri, sem annazt hefur prests-
þjónustu í þessari norðlægu
byggð um margra ára bil og er
einmitt höfundur þessarar
ágætu bókar.
Meðan við vorum nágranna-
prestar við Eyjafjörðinn skrapp
ég stöku sinnum með honum til
Grímseyjar í embættiserindum.
f fyrsta skipti fór ég að sumar-
lagi, að því er virtist í sæmilegu
veðri. En þegar kom út í fjarðar
mynnið, gerði svo mikla ylgju í
sjóinn að varla hélt nokkur
maður höfði á skipinu fyrir sjó-
veiki.
„Leiður er mér sjávarsorti og
súgandi bára,“ hugsaði ég.
Aumingja séra Pétur, hann á
ekki sjö dagana sæla að þurfa
að hrekjast þetta margar ferðir
á ári, kannske í svartasta
skammdeginu og haugasjó, til
að þjóna þessari tröllabyggð
þarna lengst úti í Dumbshafinu,
meðan særokið gengur yfir
eyna og hvítabirnir ganga á
land, sæmenn og bjargslæðing-
ar gera alls konar skráveifur.
Er’ þetta ekki hreinn lífsháski?
Brátt varð ég þess þó var, að
séra Pétur lét sér þetta ekki
minnstu vitund fyrir brjósti
brenna. Aldrei var hann glað-
ari en þegar hann skýrði mér
frá því, að nú þyrfti hann að
bregða sér á annexíuna og bauð
mér að verða samferða ef eitt-
hvað sérstakt stóð til, og fór
mér líka fljótt að þykja gaman
að þessum ferðum, Að minnsta
kosti tvisvar var ég viðstaddur
helgar tíðir í Miðgarðakirkju og
fór síðan í húsvitjun með sókn-
arprestinum um eyna á eftir, og
hafði af því óblandna ánægju.
Sambandið milli prests og safn-
aðar var óvenju hlýtt og sterkt.
Innilega fögnuðu sóknarbörnin
presti sínum og var auðséð að
milli hans og þess ríkti gagn-
kvæmt traust og virðing, enda
unni honum þar hver maður.
Undrar það reyndar engan, sem
staðið yfir gagnger endurskoð-
un á hag og rekstri Slippstöðvar
innar h.f. á Akureyri. Þessar
athuganir hafa leitt í ljós, að
fyrirtækið hefur stórlega skort
fjármagn, styrka stjórn og sitt-
hvað fleira, til þess að rekstur
þess gæti gengið eðlilega. Hins
vegar gáfu þessar athuganir til
kynna, að ef vel tækist til um
þekkir vígslubiskupinn, glað-
lyndi hans, alúð og ljúf-
mennsku. Mér datt í hug, að
séra Pétur mundi vera líkastur
Guðmundi biskup hinum góða,
sem vígði þar björg og brunna
og kvað niður bergtröll og for-
ynjur, enda þekkjast þar ekki
framar sæmenn eða illir slæð-
ingar, og draugar eru næstum
því að fullu úr sögunni og
galdramenn orðnir sárafáir.
Fólkið er yfirleitt þróttmikið og
gervilegt, alúðlegt í viðmóti og
skemmtilegt og einkennist af
þeim ferska dugnaðarblæ, sem
löngum fylgir þeim, er lifa í
náinni snertingu við náttúru-
öflin og stæla daglega kraftana
í fangbrögðum við erfið lífsskil-
yrði og óblíða veðurátt norðurs-
ins. Hvort heldur þeir síga í
bjarg eftir fugli og eggjum eða
sækja á reiðan sjó, eflir það
vaskleik þeirra og æðruleysi,
svo að þeir láta sér lítt bregða
við voveiflega hluti, og vex
þeim þannig þrek og hugrekki.
Jafnframt þrýstir erfiðið fólk-
inu saman í þessari fámennu
byggð til betra og innilegra fé-
lagslífs svo að það verður eins
og ein fjölskylda. Þetta fann ég
einna bezt, er ég kom á söng-
æfingu með safnaðarfólkinu
kvöldið fyrir hundrað ára af-
mæli kirkjunnar. Sungið var af
hjartans lyst, enda höfðu marg-
ir góðar söngraddir, og hefur
söngmennt legið þarna í landi
frá dögum séra Matlhíasar Egg-
ertssonar og afkomenda hans.
Hin aldna kirkja var skreytt
eftir föngum fyrir afmælishátið
ina og hafði ég það á tilfinning-
unni, að þetta hús var andlegt
heimili allra sóknarbúa, sem
laðaði til sín unga sem aldna,
enda sótti svo að segja hvert
mannsbarn guðsþjónustuna dag
inn eftir, jafnvel færeyskir sjó-
menn af skipum er lág'u við
eyna, og var þeim fagnað eins
og öðrum. Ekki fer hjá því að
þeim, sem átt hafa slíkar sam-
verustundir með Grhnseying-
um, fer að þykja vænt um þá
og gleyma þeim aldrei. Skildi
ég nú betur en fyrr hvílík ítök
þetta fólk átti í hjarta prest.sins
síns.
Þessi Grímseyjarbók séra
Péturs er frábærlega skemmti-
lega skrifuð. Hún flytur mikinn
fróðleik um þessa nyrztu kirkju
sókn á íslandi jafnframt því,
sem hún hann lýsir náttúru-
fari eyjarinnar og lífsbaráttu
fólksins fyrr og nú, menningu
þess og daglegu lífi.
Bókin er sérlega vönduð í
alla staði bæði frá höfundarins
og útgefandans hendi og prýdd
mörgum ágætum myndum, hin
ákjósanlegasta jólabók. Við
þökkum vígslubiskupinum fyrir
lesturinn!
Benjamín Kristjánsson.
tækisins og útvegun fjármagns,
ættu að vera sæmilegir mögu-
leikar á því að halda rekstri
þessa mikilsverða fyrirtækis
gangandi, og vinna að áfram-
haldandi uppbyggingu þess.
Ríkisstjórn og' bæjarstjórn
Akureyrar hafa á þessum grund
velli ákveðið að koma í veg
fyrir kollsteypu fyrirtækisins,
sem hefði orðið mikið áfall fyrir
alla aðila. Fyrir bæjarsjóð Akur
eyrar hefði orðið um nokkurra
tuga milljóna kr. tap að ræða,
því að hann hefur á undan-
förnum erfiðleikaárum gengið í
miklar ábyrgðir vegna Slipp-
stöðvarinnar.
Um þetta hefur bæjarstjórn
yfirleitt verið sammála. Það
vakti því mikla furðu þegar full
trúi Alþýðuflokksins í bæjar-
stjórn, að höfðu samráði við leið
toga sinn, greiddi atkvæði gegn
eftirfarandi tillögu, sem borin
var fram í bæjarstjórn, að höfðu
samráði við alla flokka, nú rétt
fyrir áramótin:
í framhaldi af ákvörðun ríkis-
stjórnar íslands um að auka
hlutafé ríkissjóðs í Slippstöð-
inni h.f. um 35 millj. kr., sam-
þykkir bæjarstjórn Akureyrar,
(Framhald af blaðsíðu 8)
DALVÍKINGUR DOKTOR
Dalvíkingurinn Jóliann Páll
Árnason varði nýlega doktors-
ritgerð við liáskóla í Frankfurt,
en fyrir ári eða svo hafði hann
hlotið doktorsnafnbót við há-
skólann í Prag. Jóhann er þrí-
tugur að aldri, snennna nánis-
garpur.
BARNEIGNIR
Hæfileiki fólks til að viðlialda
mannkyninu, og kunnáttan að
eignast ekki börn eru meiri-
háttar vandamál og stöðugt á
dagskrá. Út er komin brezk bók
eftir bandarískan prófessor, þar
sem segir, að í framtíðinni verði
ýmiskonar hagræðing í barn-
eignum og ekki barneignum
aukin mjög. Tekið verði sæði úr
piltum og egg úr stúlkum til
geymslu, eftir það komið í veg
fyrir þunganir þar til óskað er,
og verði þá farið í geymsluna
eftir sæði og eggjum, eggið
frjóvgað og látið í kvið móður-
innar eða annarrar konu eftir
óskum. Þægilegt það.
1600 FJÁR FÓRUST
Talið er, að bændur í Vopna-
firði, sem ekki eru þó mjög
margir, Iiafi misst um eða yfir
1600 f jár í liinu mikla og kunna
hausthreti, sem var óvenjulega
mikið, og svo veðurhart, að fé
lnakti í ár og læki, en sumt
fennti. Geta menn af þessari
tölu fjár, sem bændur misstu,
ímyndað sér þann ógnar skaða,
er þeir hafa orðið fyrir. En í
mörgum öðrum sveitum norðan
lands og þó einkum norðaustan
lands, urðu miklir fjárskaðar,
svo að tjónið skiptir milljónum,
samanlagt.
EYFIRZKU KÝRNAR
f nýútkomnu hefti Freys segir
Ólafur E. Stefánsson, að árið
1969 hafi 853 kýr á landinu skil-
að yfir 20 þús. fitueiningum, þar
af 229 kýr yfir 23 þús. fituein-
ingum. Þar segir ennfremur, að
svo afurðaliáum kúm hafi fækk
að nema í Eyjafirði hafi þeim
stórfjölgað. Er það góður vitnis-
burður um eyfirzku kýrnar,
að auka hlutafé bæjarsjóðs um
allt að 15 millj. kr., enda falli.
rekstrarábyrgðir bæjarsjóðs nið
ur og samið verði um fullnaðar •
uppgjör á skuldum fyrirtækis’
ins við bæjarsjóð og stofnaniv
bæjarins.
Eins og sjá má á þessari til ■
lögu, leiðir samþykkt hennar ti.,
þess, að áhætta bæjarsjóðs stór ■
minnkar, auk þess sem bæjai ■
sjóður stuðlar að áframhald-
andi rekstri stöðvarinnar. Þar
sem fulltrúi Alþýðuflokksin;,
bar ekki fram neinar tillögur í
þessu máli, verður að ætla, acJ
hann telji réttast að Slippstöð-
in h.f. verði gjaldþrota fyrir -
tæki. Það telst víst til minni
tíðinda þótt fulltrúi frjálslyndrt
í bæjarstjórn hlypi út undai'.
sér í fljótfærni og sæti hjá vio
atkvæðagreiðsluna, enda þóti;
hann væri áður búinn að lýsa
sig samþykkan efni hennar.
Allir bæjarbúar bera þá von
í brjósti, að aðgerðir þær, sen:
nú hafa verið gerðar í Slipp-
stöðvarmálinu, beri þann árang •
ur, sem þeim er ætlað. Q
DAGUR
kemur næst út á miðvikudaf.
inn, 12. janúar.
sem orðnir eru miklir og veí
ræktaðir kostagripir.
SÆÞÖRUNGAR
í grein Sigurðar V. Hallssonar.’
í Víkingi, segir, að í Frakklandi ,
íslandi, Skotlandi og Noregi.
hafi sæþörungar verið nýttií’
um langt skeið til manneldis,
eins og fyrrum var einnig geri:
á íslandi, en einnig til efnaiðji!
í 220 ár. í Japan hafi þeir verifj
nýttir til manneldis í aldaraðir,
vissar tegundir beinlínis rækt'
aðar og efnavinnsla úr sæþöi ■
ungum hafi þar verið í 300 ár.
Talið sé, að fjórðungur íæðti
þorra fólks í stórum landshlut-
um Japans hafi verið sæþörung
ar, ferskir, þurrkaðir eða krydt
aðir. í mörgum öðrum löndum
en nefnd liafa verið, sé nú blóm
legur iðnaður rekinn þar sem
lífræn efni séu unnin ur þöj >
ungum.
20 TEGUNDIR
Þar segir ennfremur, að hér viti
land vaxi 20 nytjaþörungar, ei’
eflaust mætti vinna og gera ad
verðmætri vöru. Greinarhöfund
ur bendir á ýmsar leiðir tii þör ■
ungavinnslu og telur mikla
•nauðsyn á að kanna nýtingai •
möguleika hinna ýrnsu tegunda,
er til greina gætu komið.
KEMST ÞÓTT ÓFIMIÆG SÉ
Byrjað er að merkja hrognkelsí,
sem á síðustu árum liefur verio
mikill nytjafiskur og mikio
veiddur. Enn er flest á huldn
um göngu þessa fisks og hvai.’
hann dvelur á vetrum, hverstl
oft liann hrygnir eða hversvi
gamall liann verður. Ekki ev
heldur vitað um stærð stofnsins,
Á næstu árum munu fást svöi.’
við ýmsu af því, sem nú er leib
að svara við. Merktar voru grá’
sleppur á Breiðafirði og Latr&’
grunni. Af þeim veiddist eiia
við Skaga og önnur við Fiatey
á Skjálfanda. Kom í Ijós, aÖ
grásleppa hafði synt 220 mdu.i
á 35 dögum, og má um þessti
sveru og ófimlegu skepnu segja.,
að hún sé sæmilega sundfær og
fljótari í förum en ætla mættá,
GRÍMSEY
BYGGÐ VIÐ NORÐURHEIMSKAUTSBAUG
SMÁTT & STÓRT