Dagur - 05.01.1972, Qupperneq 8
joml
SMÁTT & STÓRT
KIRKJUKOR Akureyrar held-
ur hljómleika í kirkjunni 9.
janúar og hefjast þeir kl. 5 síð-
degis.
Flutt verður Helgikantatan
Til komi þitt ríki, eftir Björgvin
Guðmundsson og minningu
hans til heiðurs. Söngstjóri kórs
ins er Jakob Tryggvason.
Sjá aug'lýsingu í blaðinu. □
Við hittum þá á förnum vegi
með blaðburðartöskurnar. —
Erum við þá aðalkallarnir,
sögðu þeir, er þeir sáu mynda-
vélina.
Drakk kaplamjólk ylir allt sumarið
AAÐ slys varð í Garðshorni í
Kræklingahlíð í vor, að hryssa
:nissti folald sitt nýkastað. Urðu
;,úgur hennar full af mjólk svo
að hún var mjög ókyrr og leit-
aði afkvæmis síns.
Ólafur bóndi tók þá bolakálf,
uýfæddan, og lét hann sjúga
iryssuna. Líkaði báðum vel og
vnáttu síðan hvorugt af öðru sjá.
Gekk kálfurinn undir hryss-
unni í sumar og dafnaði hann
vel.
í haust, er tíð kólnaði, vildi
kálfurinn gjarnan njóta hús-
vistar með kúnum um nætur.
En er honum var, ásamt þeim,
hleypt út á morgnana baulaði
hann hátt og þar til fóstra hans
hneggjaði á móti. Hljóp hann þá
Bannað að auglýsa tóbak
NÚ UM áramótin tekur gildi
iagabreyting, sem óheimilar all-
ar auglýsingar á tóbaki í blöð-
um, útvarpi, sjónvarpi, kvik-
nyndahúsum og utandyra. Hef-
ur fjármálaráðuneytið vakið
atbygli forráðamanna fjölmiðla
og þeirra, sem verzla með tóbak
á þessum lögum og á skvldu
auglýsenda til að fjarlægja úti-
auglýsingar um tóbaksvörur
strax og lögin hafa tekið gildi.
Sn tóbaksauglýsingar hafa ver-
: ð drjúg tekjulind margra blaða,
einkum í Reykjavík. Hvað sem
ím auglýsingarnar og nú aug-
lýsingabannið má segja, er hitt
víst, að Dagur hefur þar ekki
verið þátttakandi og ekki aug-
lýst tóbaksvörur nema sem und
antekningu. En sú undantekn-
ing olli gremju margra kaup-
enda, sem töldu tóbaksauglýs-
ingar ekki við hæfi og afbáðu
þær í Degi.
Þrátt fyrir þessar lagabreyt-
ingar má búast við, að tóbak
verði auglýst á margvíslegan
hátt, þótt með öðrum hætti
verði, en verið hefur fram til
þessa. □
Nokkrar hækkanir á búvörum
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbún-
aðarins tilkynnti nýtt verð á
;tvmsum landbúnaðarvörum. —
/erðhækkanir þær, sem nú
verða, stafa bæði af minni niður
greiðslum til neytenda og af
auknum vinnslu- og dreifingar-
kostnaði.
Helztu breytingar eru þær,
að súpukjöt, sem áður kostaði
1112 kr. kílóið kostar nú 131.30
kr. kílóið og er það hækkun,
sem nemur 17.4%. Kótelettu-
kílóið, sem áður kostaði 150 kr.
kostar nú 170 kr. og nemur
hækkunin á kótelettunum
til hennar og var vel fagnað og
kaplamjólkin vel þegin.
í haust var hryssan felld en
boli settur á vetur og er hann
fallegur gripur, og ber þess
merki, að hafa átt góða fóstru
í sumar, sennilega eini kálfur-
inn á þessu sumri hér á landi,
sem hryssa lagði ást á og annað-
ist sumarlangt.
í sömu sveit bar það til tíð-
inda á öðrum bæ í sömu sveit
18. desember, að fullorðin
hryssa kastaði og eignaðist
svart hestfolald. Sýndist eig-
anda þann morgun hundur
standa í haganum, í hrossahóp
hans, enda áttu hryssur hans
ekki að kasta fyrr en í vor.
Næsta morgun var annað folald
fætt í haganum. Voru bæði fol-
öldin færð í hús, ásamt mæðr-
um sínum. Q
INGIMAR OSKARSSON
Svarfdælingurinn, hinn sjálf-
menntaði náttúrufræðingur og
vinsæli útvarpsfyrirlesari, Ingi-
mar Óskarsson, hlaut heiðurs-
laun úr Verðlaunasjóði Ásu
Guðmundsdóttur Wrigt, fyrir
vísindastörf og rannsóknir.
Hann er 79 ára, og er þriðji
vísindamaðurinn, sem hlýtur
viðurkenningu þessa sjóðs.
JÓL OG ÁRAMÓT
Jólasnjórinn var hvítur og
lireinn um land allt að þessu
sinni, nýfallinn og víða jafn-
fallinn og mestur á landinu
vestanverðu. Vegir urðu þung-
færir og ófærir með öllu er jólin
höfðu gengið í garð.
En jörð var víðast snjólaus í
byggð á landinu þegar árið
kvaddi, enda óvenjuleg hlýindi,
upp í 10 stiga hiti dag eftir dag,
og að sjálfsögðu urðu vegir snjó
lausir, en vatnavextir töfðu um-
ferð á ýmsum stöðum, einkum
í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.
1972
Þegar gamla árið var að kveðja
birtist ártalið 1972 í vestan-
verðri Vaðlaheiði. Þökk sé
þeim, er þá kindla kveiktu. Þar
skemmtu fáir mörgum og ekki
í fyrsta sinn.
LÆKNAR FENGUST Á
ÞRJÁ STAÐI
í október leitaði ráðunevtið til
lækna í Reykjavík í því skyni
að fá þá til að gegna læknislaus-
um héruðum skamman tíma
hver. Árangur hefur orðið
þessi:
Djúpavogshéraði hafa þeir
gegnt Frosti Sigurjónsson og
Gunnar Guðmundsson. Vopna-
fjarðarhéraði hafa þeir gegnt
Guðmundur Viggósson, Krist-
ján Eyjólfsson og Úlfur Ragnars
son, sem er þar nú. í Ólafsfjarð-
arhéraði tókst ekki að fá lækni,
þar til nú að Ólafur Ólafsson
íslandsmótið hefsf á laugardag
14.4%. Aðrar kjöttegundir hafa
breytzt hlutfallslega, hins vegar
hafa kaupmenn ekki fengið
neina hækkun á sölulaununum.
Verð á rjóma í Vi lítra hyrn-
um, sem kostaði áður 27 kr.
kostar nú 30.90 kr. og er það
14.4% hækkun. Skyrið hækkar
mest og verður það nú selt á
fullu verði, skyrkílóið kostaði
áður 24.50 kr., en núna kostar
það 38 kr. og er það hækkun,
sem nemur 55%. Þá hækkar
smjörið úr 130 kr. í 138 kr. pr.
kíló og ostur hækkar úr 142 kr.
kílóið í 167.20 kr. Q
FYRSTI leikur íslandsmótsins í
körfubolta fer fram í íþrótta-
skemmunni á Akureyri n. k.
laugardag og hefst kl. 4. Verða
það lið íþróttafélags stúdenta
(ÍS) og Þórs, sem leika þennan
fyrsta leik mótsins.
Keppnin í 1. deild verður nú
umsvifameiri en nokkru sinni
fyrr, þar sem fjölgað hefur ver-
ið í deildinni, og eru félögin nú
alls átta, sem sæti eiga í deild-
inni. Stúdentar unnu 2. deild í
fyrra og fluttust því upp í 1.
deild, en Njarðvík (UMFN) féll
í 2. deild. Borgnesingar, sem
Laxveiðibann
r ■ r
i sjo
urðu í 2. sæti í 2. deild, sigruðu
UMFN í aukaleik og fluttust
því líka upp í 1. deild.
Lið stúdenta hefur einu sinni
náð að verða íslandsmeistari í
körfuknattleik, eða skömmu
fyrir 1960. Þá var lið þeirra að
mestu skipað stúdentum frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
en nú hefur þetta breytzt, því
nú eru aðallega MA-stúdentar,
sem skipa liðið.
Lið Þórs varð í 4. sæti í síð-
asta íslandsmóti, á eftir ÍR, KR
og Ármanni. 2. flokkur félags-
ins tapaði þá með einu stigi
úrslitaleik við KR eftir fram-
lengdan leik. Sýnir það að efni-
viðurinn er nógur og því ætla
margir að liðið muni standa sig
vel í vetur og blanda sér jafn-
vel í baráttuna um þrjú efstu
sætin. Q
fór til starfa þar. — Ýmsir lækn
ar hafa gefið ádrátt um þjón-
ustu I héruðum eftir áramót.
ENGIN HROSSAKAUP
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra flutti ræðu á fundi
Evrópuráðsins í París 16. des.
Kvaðst hann harma að Efna-
hagsbandalagið hefði ákveðið
að íslenzkar fiskafurðir mundu
ekki njóta sömu tollfríðinda inn
an stækkaðs EBE og þær hefðu
notið innan EFTA. Ráðherrann
tók það fram, að íslendingar
létu þetta ekki liafa nein áhrif
á áform sín um útfærslu land-
helginnar, og mundu þeir ekki
eiga nein hrossakaup um þau
mál. Viðskipti íslendinga við
EBE yrði að byggjast á frjálsum
innflutningi á íslpnzkum fisk-
afurðum til EBE-Janda, gegn
frjálsum útflutningi iðnaðar-
vöru til íslands.
VERÐSKYN
í ofboðslegu flóði auglýsinga
um hinar ýmsu vörutegnndir,
sem birtar eru í blöðum, út-
varpi og sjónvarpi, er sjaldan
getið verðsins. Hagstætt verð,
hvergi ódýrara, bezt og ódýrast
o. s. frv., er gjarnan sagt í aug-
lýsingunum. Hvers vegna ekki?
Og hvers- vegna eru vörurnar
ekki verðmerktar betur í búðar-
gluggum en raun cr á? Hvers
vegna þennan hálfgerða felu-
leik með verðið? Er það vegna
ótta við aúkið verðskyn almenn
ings?
Verðlagseftirlit og hámarks-
álagning má ekki slæva verð-
skyn og leit fólks að því bezta
og ódýrasta, er það vill kaupa
á frjálsum.markaði. Hinn vökuli
neytandi er sjálfur bezta verð-
lagseftirlitið, og því á hann að
halda vöku sinni.
SENDA BÚÐAÞJÓFA TIL
PRESTSINS
Danska verzlunarkeðjan IRMA
á í stríði við búðaþjófa, segir í
Norges kjöpmannsblad. í stað
þess að tilkynna þjófnaðina lög-
reglunni, krefst IRMA að þjóf-
arnir fari til prests síns og játi
syndir sínar, eða að fara til
læknis síns og skýra honum
frá því hvað fyrir hafi komið.
Framkvæmdastjóri IRMA,
Börge Olsen, segir að liugmynd
þessi sé bandarísk, og þar hafi
fengizt jákvæður árangur af að-
ferð þessari.
SELVEIÐI VIÐ KANADA
Kanadíska. stjórnin leyfir að
veiddir séu á ári 50 þús. selir,
en utan landhelginnar eru þó
engar takmarkanir. Talið er, að
tvær millj. vöðusela haldi sig
við Labradorskaga og strendur
Nýí'undnalands. Kópaveiðin á
þessum slóðum hefur verið um-
deild mjög undanfarin ár, vegna
þess að kópar séu kvaldir að
þarflausu. Skinn kópa og full-
klæðnað og skraut á klæðnað.
orðinna sela er allt notað í
(Framhald á blaðsíðu 4)
Fuglarnir faldir í bænum
Mogginn baS afsökunar
SÍÐASTA sunnudag hvers árs
eru fuglar taldir á allmörgum
stöðum á landinu, á vegum
Náttúrufræðistofnunar íslands.
Að þessu sinni var hér á Ak-
ureyri nokkur, jafnfallinn snjór,
fjörur frosnar og Pollurinn að
mestu undir þunnum ís. Taln-
inguna á Akureyri önnuðust:
Jón Sigurjónsson, Árni Björn
Árnason, Friðþjófur Guðlaugs-
son, Grétar Ólafsson og Sigur-
jón Jónsson, og sáust þessir
fuglar:
Auðnutittlingar........ 2
Bjartmávar ............ 12
Gráþrestir ............. 3
Hrafnar ............... 64
Hettumávar.............. 2
Músarindill ............ 1
Smyrill................. 1
Svartbakar............ 107
Snjótittlingar.........912
Stokkendur ............257
Silfurvávar............ 30
Skógarþrestir ........ 140
Hávellur ............... 2
Toppönd ................ 1
Æðarfuglar ............ 40
Alls 15 tegundir. □
EINS og kunnugt er af fréttum,
hefur forseti Bandaríkjanna
undirritað lög, sem heimila hon-
um að stöðva innflutning fisk-
afurða frá Danmörku, ef Danir
virða ekki bann við laxveiðum
í sjó. Þessi innflutningur nemur
um 150 milljónum danskra
króna á ári.
Ríkisstjórnir Bandaríkjanna
og Kanada hafa einnig sent frá
sér sameiginlega yfirlýsingu,
þar sem segir, að ríkisstjórnirn-
ar hafi miklar áhyggjur af því,
að fiskveiðiþjóðir við Norður-
Atlantshaf hafi ekki náð sam-
komulagi um algjört bann við
laxveiðum í sjó, og hvatt til úr-
bóta á því sviði. □
FYRIR áramótin bað Morgun-
blaðið opinberlega afsökunar á
fréttaflutningi sínum um ræðu
Einars Ágústssonar í Briissel á
dögunum. Er afsökunin á þessa
leið:
„Utanríkisráðuneytið hlutað-
ist til um það í gær, að blaða-
maður Morgunbl., sem fylgdist
með ráðherrafundi NATO í
Brussel fyrir nokkru, fengi að
sjá texta skjals þess, sem hann
fékk afhent á skrifstofu ís-
lenzku sendinefndarinnar hjá
Atlantshafsbandalaginu, sem
ræðu Einars Ágústssonar. Við
samanburð á textanum, sem
kom á fjarrita frá skrifstofu
sendinefndarinnar í Briissel og
eintaki af ræðu Emils Jónssonar
á ráðherrafundi í Lissabon í
júnímánuði sl. kom í ljós, að
skjal það, sem blaðamanninum
var afhent, var þessi ræða Emils
Jónssonar. Morgunblaðið fagnar
því, að mál þetta hefur verið
upplýst og biður velvirðingar á
þessum mistökum, að svo miklu
leyti, sem þau eru sök blaðsins.“