Dagur - 16.02.1972, Blaðsíða 2
2
Febrúarmót 1972. Stúlknaílokkur 13—15 ára.
Eebrúarmót i Hlíðarfjalli
SKÍÐAMENN frá Akureyri
hafa í vetur sótt nokkuð til út-
landa til æfinga og keppni. Fyr-
ir jólin fóru Árni O'ðinsson,
Haukur Jóhannsson og Þor-
steinn M. Baldvinsson til Sun
Valley í Bandaríkjunum og
stunduðu þar vinnu, nám og
skíðaæfingar. Einn þeirra, Þor-
steinn, er nú kominn heim, en
varð fyrir því óhappi að fót-
brotna rétt eftir heimkomuna
og verður því ekki með í vetur.
Von er á Hauk heim í febrúar
og Árna í marz.
Halldór Matthíasson dvaldi
fy-rir áramót um nokkurra
vikna skeið í Noregi við skíða-
gönguæfingar og nú eru tveir
ungir menn þar í sömu erinda-
gjörðum, þeir Þórólfur Jóhanns
son og Baldvin Stefánsson.
Um helgina fóru þrír kepp-
endur héðan á Unglingameist-
aramót Norðurlanda í alpagrein
iim, sem haldið er í Sunne í
Vármland í Svíþjóð 18.—20.
þ. m. Þau eru Svandís Hauks-
TAPAÐ
Tapast liefur hjólkopp-
ur á leiðnni Akureyri —
Hauganes, merktur
A-1970.
Finnándi góðfúslega
hringi í síma 2-18-92.
Veiðitaska
Sá, sem fann veiðitösku,
með hjólum og fl. vin-
samlegast skili henni á
afgreiðslu Dags gegn
mjög góðum fundar-
launum.
VÖRUBÍLAR.
Benz 1413, 1418 og 1620,
nýinnfluttir. Man, árg.
’67 og ’68, 6 og 10 hjóla
bílar. Innfluttir fólks-
bílar. Opel ’(i8 og ’(i9.
Station og fólksbílar.
r
I .Mikið úrval af bílum.
r
í Trilla 4*4 tonna með 21
ba listcr, Simrad dýptar-
maeb og spili.
dóttir, Sigurjón Jakobsson og
Gunnlaugur Frímannsson, og
keppa þau í svigi og stórsvigi.
í fyrra var þetta mót haldið hér
á Akureyri.
Fjórir keppendur héðan eru
skráðir á Holmenkollenmótið,
seem fer fram í Noregi 8.—12.
marz. Þeir eru: Reynir Brynj-
ólfsson og Jónas Sigurbjörnsson
sem keppa í svigi og stórsvigi,
og Halldór Matthíasson og Frí-
mann Ásmundsson sem keppa
í göngu.
íþróttamaöur ársins.
íþróttamaður ársins 1971 var
kosinn fyrir nokkru síðán af
íþróttafréttariturum blaða og
útvarps. Það vakti nokkra
furðu skíðaáhugamanna að nafn
Árna Oðinssonar sást þar ekki
á blaði. Oft hafa íþróttamenn
með minni afrek komizt þar á
blað, og mætti benda íþrótta-
fréttariturum á eftirtalin afrek
Árna á sl. ári: íslandsmeistari í
svigi, íslandsmeistari í stórsvigi,
íslandsmeistari í alpatvíkeppni,
íslandsmeistari í flokkasvigi
(einn af 4), nr. 2 í landskeppni
ísland—Skotland, nr. 1 í Her-
mannsmóti (Ak.) (opið punkta-
mót), nr. 1 í Þorramóti (ísaf.)
(opið punktamót), hefir flesta
„punkta“ (útreikn. 1971) ís-
lenzkra skíðamanna 1971, sigur-
vegari í mörgum minni mótum.
Það virðast fleiri en blaða-
menn hafa gleymt skíðaíþrótt-
inni. Á nýafstöðnum Olympíu-
leikum átti ísland engan full-
trúa, eina þjóðin sem skorazt
hefir úr leik frá leikunum í
Grenoble og er þetta bæði
Olympíuncfnd íslands og Skíða
sambandinu til liáborinnar
skammar. Frambærilegir skíða-
menn á Olympíuleika voru til
á íslandi nú alveg eins og und-
anfarið.
Herniannsmótið 1972 (opið
punktomót)
fer fram um næstu helgi. Hefst
keppni á laugardag ld. 14.30
með keppni í stórsvigi. Á sunnu
dag hefst keppni í svigi kl. 13.00
og í göngu kl. 14.00.
í svigi og stórsvigi er keppt í
kvennaflokki og einum karla-
flokki. í göngu er keppt í 17—19
ára flokki og 20 ára og eld.ri.
Keppendur koma víðsvegar
að af landinu.
Febrúarmótið 1972
fór fram um síðustu helgi. Að
venju voru skíðamenn frá Húsa
vík þátttakendur í þessu móti,
en það er orðinn fastur liður í
starfsemi skíðaráða Akureyrar
og Húsavíkur að sækja hvern
annan heim ein usinni á vetri.
Akureyringar fara til Húsavík-
ur síðar í vetur.
í stórsvigi stúlkna varð Aldís
Árnadóttir hlutskörpust, en
næst Sigríður Jónasdóttir. En í
stórsvigi pilta Björn Víkingsson
og annar Karl Frímannsson og
voru þetta 11—12 ára flokk-
arnir.
í stórsvigi stúlkna 13—15 ára
sigraði Margrét Baldvinsdóttir
og næst varð Margrét Vilhelms-
dóttir. f drengjaflokki 13—15
ára sigraði Benedikt Jónsson en
Bjarni Sigurðsson varð annar í
röðinni, báðir frá Húsavík. Ás-
geir Sverrisson og Tómas Leifs-
son sigruðu í stórsvigi í 15—16
ára flokki.
Svandís Hauksdóttir varð sig-
urvegari í stórsvigi kvenna en
næst Margrét Þorvaldsdóttir.
í stórsvigi karla sigraði Magn
ús Ingólfsson, næstur varð Við-
ar Garðarsson.
Síðari keppnisdag sigraði
Katrín Frímannsdóttir í svigi,
telpnaflokki 11—12 ára, og Karl
Frímannsson í flokki drengja á
sama aldri.
Margrét Baldvinsdóttir sigr-
aði í svigi í 13—15 ára flokki og
í sama aldursflokki pilta sigraði
Bjarni Sigurðsson, Húsavík og
Ásgeir Steingrímsson, einnig frá
Húsavík, var ðannar.
í 15—16 ára flokki pilta í svigi
sigraði Tómas Leifsson en ann-
ar varð Böðvar Bjarnason, Húsa
vík.
Margrét Þorvaldsdóttir sigr-
aði í svigi kvenna og Karolína
Guðmundsdóttir varð í öðru
sæti.
í svigi karla sigraði Björn
Haraldsson, Húsavík, annar
varð Reynir Brynjólfsson og
þriðji Magnús Ingólfsson. □
Frá Verzlun Bernharðs Laxdal.
Aukin afsláttur af mörgum vörum á útsölunni.
Ný sending: Feuningarkápur og gervirússkinns-
jakkar.
VERZLUN BERNHÁRÐS LAXÐAL
FYRIR rúmum hálfum mánuði
gerði aftakabrim og norðan-
veður. Þá bar það við úti á Ár-
skógsströnd, að báturinn Sói-
rún á Litla-Árskógssandi var
færður þaðan vegna ókyrrðar í
höfninni og inn á Hauganes.
Þegar þangað var komið stóð
svo á, að net hafði að hálfu skol-
að þar út af hafnargarðinum í
briminu og lenti það í skrúfu
bátsins, rétt áður en lagt var að.
sjómaður
Maður stóð frammi í bátnum
með fangalínuna. En báturinn
komst ekki að hafnargarðinum,
eins og ástatt var og stökk mað-
urinn þá með fangalínuna utan
í hafnargarðinn, náði taki á bíl-
dekki, sem þar hékk og klifraði
upp. Er talið, að þetta snarræði
sjómannsins, Sveins frá Bratta-
völlum, hafi bjargað bátnum frá
strandi. □
Félag verzlunar og
skrlfstofufólks Akureyri
Aðalfundur félagsins 'verður laugardagnn 19.
þ.m. kl. 13.30 í Sjáífstæðisbúsinu (litla sal).
FUNDAREFNI:
Rætt um vinnutímastyttinguna og samningana.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Fylgisf með vöruverðinu
HVEITI10 lbs. kr. 123.00 pk.
HVEITI5 lbs. kr. 60.30 pk.
STRÁSYKUR 2 kg. kr. 48.80 pk.
MOLASYKUR1 kg. kr. 28.00 pk.
KJÖRBUÐIR
KEA
DRALONSÆNGUR
DRALONKOÐDAR
ULLARTEPPI
DAMASK
HVÍTT OG MISLITT
LAKAEFNI
140 og 200 c:m. breitt.
VEFNAÐARVÖRUDEILD
KnaHspyrnufélag
Akyreyrar
Ársbátíð félagsins verður haldin í Alþýðubúsinu
laugardaginn 19. febr, '72 og befst með borðbaldi
kl. 19.30 (bálf átta).
Sala aðgöngumiða verður föstudaginn 18. febr.
frá kl. 5—8 e. h. á Afgreiðslu Póstbátsins Drangs
SkipagöLu 13.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 1-19-88.
Sjá götuauglýsingar.