Dagur - 01.03.1972, Side 8
SMÁTT & STÓRT
Menningar og fræðslusamband alþýðu hélt fyrsta nómskeið sitt á Akureyri. (Ljósmyndastofa Páls)
lenningar og fræðslusamband alþýSu
fiélt námskeið á Akureyri um s. 1. lielgi
vIENNINGAR og fræðslusam-
oand alþýðu, sem er fræðslu-
stofnun Alþýðusambandsins
neð nýráðinn fræðslustjóra,
3aldur Oskarsson, hélt nám-
skeið á Akureyri, í félagi við
Alþýðusamband Norðurlands,
:iú um helgina og stóð það í
arjá daga. Það fjallaði um sjóði
jg tryggingai' og er fyrsta nám-
skeiðið utan Reykjavíkur hjá
::ræðslustofnun ASÍ.
Námskeiðið sóttu rúmlega 30
nanns frá 12 verkalýðsfélögum
á Norðurlandi, allt frá Þórshöfn
til Hofsóss. Hófst námskeiðið á
: östudagskvöldið kl. 8 í félags-
íeimili Einingar við Þingvalla-
stræti. Þá flutti Sigurður Ingi-
nundarson forstjóri Tryggingar
stofnunar ríkisins erindi um
Almannatryggingar og síðan
urðu umræður og fyrirspurnir
um erindið.
Á laugardaginn var fjallað
'jm lífeyrissjóði og þar kom
::ram Guðjón Hansen trygginga
iræðingur og Jón Kr. Sigurjóns
von framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðs byggingarmanna. Að lokn
Jarðskjálfti
FRÉTTARITARI Dags á Húsa-
'ík sagði, að sumir hefðu fund-
:ð örlítinn jarðskjálftakipp á
sunnudagsmorguninn, en það
hefði verið ómerkilegur jarð-
skjálfti og ekki í frásögur fær-
andi. □.
um þeirra erindum störfuðu
umræðuhópar er báru fram
fyrirspurnir til framsögumanna
og síðan urðu almennar um-
ræður.
Á sunnudaginn var svo fjallað
um atvinnuleysistryggingar og
gerði það Björn Jónsson forseti
Alþýðusambandsins og um
ýmsa styrktarsjóði verkalýðs-
félaga gerði Þorsteinn Jónatans
son, starfsmaður verkalýðsfélag
anna, grein fyrir. Og á sama
hátt og áður var starfað í um-
ræðuhópum og rætt um erindin
á eftir.
Geta má þess, að bæjarstjórn
bauö námskeiðsfólki til kvöld-
verðar á laugardaginn, sem þátt
takendur voru mjög þakklátir
fyrir.
Þetta fyrsta námskeið Menn-
ingar og fræðslusambands al-
þýðu þótti takast ágætlega, svo
að líklegt er, að það verði hvatn
ing til meiri starfa víða um
land. □
UTIVIST BARNA
Um útivist barna í kaupstöðum
og kauptúnum eru í gildi
ákveðnar reglur, sem borgurum
ber að virða. Er þar m. a. við
það miðað, að börn séu ekki,
nema í fylgd með fullorðnum,
úti á síðkvöldum. Barnaverndar
nefnd, lögregla, en fyrst og
fremst foreldrar, eiga að sjá um,
að þessum reglum sé fylgt. For-
eldrar þurfa að vera samtaka í
þessum þætti uppeldis og lög-
hlýðni og þar má enginn skerast
úr leik. Ymsir hafa bent á götur
í bænum, fullar af börnum á
síðkvöldum, en einnig á aðrar
götur, þar sem íbúarnir virðast
löghlýðnari og hafa meiri reglu
á lilutunum. Full þörf virðist
vera á því, að fólk athugi þessi
mál, með úrbætur í liuga.
NÝ OG STERK AHRIF
Það hlaut að koina að því fyrr
eða síðar, að íslenzkir bændur
færu að líta á landeignir sínar
öðrum og hýrari augum en fyrr.
Erlend áhrif frá þéttbýlum þjóð
löndum, þar sem menn berjast
við að ná andanum í menguöu
andrúmslofti og sjá dýralíf í
sjó og fersku vatni eyðast af
eiturefnum verksmiðja og of-
notkunar kemiskra efna í mörg-
um myndum, opna augu manna
um allan heim fyrir dásemdum
ósnortinnar eða lítt spilltrar
náttúru, hreinu lofti, heilnæmu
vatni og heilbrigðu jurta- og
dýralífi.
Þessi erlendu áhrif eru ný og
Stálskipasmíðar á Akureyri
KUNNIR skipasmiðir hafa lengi
verið á Akureyri og við Eyja-
fjörð. En þróunin hefur orðið
sú, að í stað tréskipanna, sem
fyrrum voru eingöngu smíðuð,
komu stálskipin til sögunnar og
eru þau nú ráðandi í fiskiskipa-
flota landsmanna.
Stálskipasmíðin er með
yngstu iðngreinum hér á landi,
og þegar Dagur á Akureyri hóf
máls á þessum möguleika og
leitaði álits skipasmiða og járn-
iðnaðarmanna, færðu þeir sterk
rök fyrir því, að iðnaðarmenn
á Akureyri væru þeim vanda
vaxnir að smíða stálskip, og svo
hefur reynzt.
Duglegir menn og bjartsýnir
kunnáttumenn svo og ráða-
menn bæjarins þokuðu málinu
áleiðis og upp reis stálskipa-
smíðastöð, með átaki margra
aðila og fyrirgreiðslu hins opin-
bera. KEA hafði um árabil rek-
ið Slippstöðina og tók nú þátt í
þessari uppbyggingu nýrrar iðn
greinar. Og stálskipasmíðastöð-
in heitir Slippstöðin h.f. og er
rétt hjá nýlegri og mjög full-
kominni dráttarbraut, sem rek-
in er af sama fyrirtæki.
Skapti Áskelsson stjórnaði
stálskipasmíðunum fyrstu árin,
en síðan Gunnar Ragnars.
Stjórnarformaður Slippstöðvar-
innar er Stefán Reykjalín.
Slippstöðin á Akureyri er nú
fullkomnasta skipasmíðastöð
landsins, að því er fróðir menn
telja og að öðrum ólöstuðum.
Ekki hefur hún farið varhluta
af erfiðleikum í rekstrinum, en
staðreynd er það, að hún hefur
skilað góðum skipum í hendur
sjómanna, og hún greiddi starfs
mönnum sínum 70 milljónir
ill
króna í vinnulaun á síðasta ári.
Þar starfa nú rúmlega 200
manns og vantar þó löngum
járniðnaðarmenn.
Fiskiskipið Sigurbjörg, Ólafs-
firði, var smíðað 1966 og er 278
brúttótonn. Eigandi Magnús
Gamalíelsson.
Næsta skipið er Eldborg, 415
brúttótonn, afhent 1967. Eigandi
er Eldborg h.f., Hafnarfirði.
Hekla, strandferðaskip Skipa
útgerðar ríkisins, 708 brúttó-
tonn, afhent 1970.
Esja, afhent Skipaútgerð ríkis
ins árið 1971, og er skipið 710
brúttótonn.
Arinbjörn, 149 brúttótonna
fiskibátur, smíðaður 1971, fyrir
Sæfinn h.f:, Reykjavík.
(Framhald á blaðsíðu 7)
reöfla í eltinsfaleik
hjá Bandagerði en síðan upp hjá
Kollugerði og þann hring, síðan
yfir vestustu Glerárbrú og í
bæinn. Leizt þá lögreglunni
ekki á, að maðurinn æki niður
í bæinn, og þrengdi nú mjög að,
svo að bílarnir lentu saman oft-
ar en einu sinni og lenti þá bíll
flóttamanns út af veginum.
Komst hann þó af stað á ný, þar
sem lögreglumennirnir álitu að
eltingarleik væri lokið og stigu
út úr bíl sínum til að mæla
mann þann máli, er svo lengi
þrjóskaíSist við að sinna stöðv-
unarmerkjum lögreglunnar.
Komst flóttamaðurinn í bæinn
og yfirgaf þar bíl sinn og faldi
sig.
í dag er maðurinn viðmæl-
andi og ó leið til yfirheyrslu.
Þetta er utanbæjarmaður í trún
aðarstöðu, grunaður um ölvun
við akstur. □
LÖGREGLAN í gær: í nótt
fóru menn af stað í lögreglu-
bifreið til að huga að manni
einum, er þeim sýndist aka bíl
sínum á þann veg á Glerárgötu,
að athugunar þyrfti með. Hófst
litlu siðar eltingarleikur, því að
maðurinn ók norður úr bænum,
og lögreglubíllinn á eftir. Við
Lónsbrú hafði lögreglan náð hin
um grunsamlega bíl og gaf nú
ökumanni öll þau stöðvunar-
merki, er til eru á lögreglu-
bílnum, en án árangurs, og ók
maðurinn sem hraðast norður
Kræklingahlíðina, slangraði
milli vegarkanta til að lögreglu-
bíllinn kæmist ekki framfyrir.
Ekið var nú allt til Hörgárbrú-
ar, þar sveigt til hægri og ekið
allt að Gæsum og svo á aðalveg-
inn á ný, hjá samkomuhúsi
Glæsibæjarhrepps, síðan inn í
Glerárhverfi, efri veginn, inn
sterk, og þau liafa þegar breytt
viðhorfi manna til umhverfisins
og hinna ýmsu verðmæta lífsins.
AREKSTRAR
Yfirvöld í okkar Iandi og ýmsar
greinar þeirra, hafa lítt þurft á
því að halda og lcita álits land-
eigenda við gerð mannvirkja.
Má þar til nefna töku vatns og
jarðvegs. Bæjarfélög hafa tekið
uppsprettulindir nágranna-
bænda ófrjálsri hendi, vegagerð
armenn ryðjast um ræktarlönd
bænda, slítandi girðingar eins
og götustrákar, stelandi heilum
malarnámum og skiljandi eftir
sig helsærða jörð á stórum svæð
um, er þeir búa til vegi. Og það
er jafnvel ráðist í virkjanir fyrir
lieilar byggðir og bæi, án þess
fyrst að afla sér nægra réttinda
til þeirra framkvæmda. Nú hafa
þessi mál öll leitt til mikilla
árekstra. Bændur hafa vaknað
og sjá land sitt í nýju ljósi.
STRIPLINGAR
Góð fóðrún sauðfjár gerir kleift
að rýja það á Góunni. f sumum
sveitum er vetrarrúningur orð-
inn fastur Iiður, og þykir m. a.
nokkurs um það vert, að þurfa
ekki að smala til rúnings. Anum
virðist líða miklu betur í húsi
rúnum en órúnum, en trúlega
þola þær vorhretin verr, og hafa
ýmsir bændur óttazt þau meira
en svo, að þeir vilji á það hætta,
að taka upp hinn nýja sið. Sum-
ir kalla vétrarrúið fé striplinga
og má það til sanns vegar færa.
En sú nafngift á jafnt við aðra
rúningstíma.
AN VERÐUPPBÓTA
Það þykja tíðindi að vara skuli
seld úr landi án verðuppbóta.
Um 600 hróss voru seld erlend-
um kaupendum á síðasta ári, án
uppbóta, og fengu bændur um
40 þús kr. fyrir hvert, að jafn-
aði. Það þykir of lágt verð,
þyrfti að vera a. m. k. þriðjungi
hærra og mætti þá líka vanda
vöruna meira en gert hefur
verið. v
KOSNINGABRELLA
Þá er nú lokið heimsókn Nixons
til Kína, og segja andstæðingar
Bandaríkjaforseta, að för Nix-
ons sé mesta kosningabrella
aldarinnar og mátti það ekki
minna vera. En Nixon sagði að
heimsókn Iokinni, að þetta væri
vikan sem breytti heiminum og
var það hraustlega niælt.
Lokið ér miklu skákmóti í
Reykjavík, er lauk með sigri
þriggja stórmeistara, en af þeim
var þó Friðrik Ólafsson stiga1-
hæstur.
Margir menn hafa veikzt af
sinnepsgaseitrun á Akranesi.
En þar kom í Sementsverksmiðj
una sinnepsgassprengja með
skeljasandi úr Faxaflóa. Sagt er,
að hér sé um að ræða sprengi-
kúlu frá 1942, kunnugt dráps-
vopn, notað á skriðdrekum.
1I|ÍÍ j ' | STRENGJASVEIT
%}; ffWk y. '
Síðasti fiskibóturinn, Heimaey,
(Ljósm.: E. D.)
STRENGJASVEIT frá Tónlistar
skólanum í Reykjavík, undir
stjórn Ingvars Jónassonar fiðlu-
leikara, lék hér á Akureyri kl.
5 á laugardaginn. Hér var um
að ræða tíu stúlkur, sem léku á
fiðlur, víolur og selló, og sjö af
þeim léku einleik. Síðan fór
strengjasveitin til Húsavíkur og
lék þar.
Strengjasveit þessi er öllum
til sóma, bæði stjórnanda, sem
lagt hefur mikla alúð við þessi
verk, og einnig stúlkunum. Það
eina, sem skyggði á ánægjuna,
var of léleg aðsókn Akureyr-
inga.
Hafi strengjasveitin þökk fyr-
ir komuna. □