Dagur - 11.03.1972, Qupperneq 1
Hvassviðri í Bárðardal
Stórutungu 8. niarz. Allir lofa
veðrið, enda ekki að ástæðu-
lausu. Jörð má heita alauð jafnt
í dölum og til heiða. Nú síðustu
daga kom snjóföl, sem er á för-
um aftur, úrkoma er sérlega
lítil.
Minnugir munu góða tíð fyrr
en nú og nefna 1923, 1946 o. fl.
Hestar ganga enn úti og sjá
um sig. Fé er auðvitað beitt, en
jörð mun vera fremur létt og
því gefið nokkurt hey og kjarn-
fóður.
Hinn 22. febrúar gerði hér
hvassviðri af suðvestri. Á Sand-
haugum fuku um 40 hestburðir
af heyi. Víðar sleit úr uppborn-
um heyjum. Á Hrappsstöðum
fauk dráttarvél á hliðina og hey
vagn. Þungum heyvagni hvolfdi
í Svartárkoti. Onnur óhöpp
urðu ekki af þessu veðri, enda
stóð það ekki lengi.
Samgöngur eru góðar. Þ. J.
Dóimir kjararáðs er nú fallinn
Opinberir strfsmenn fá 7% launauppbót að ári
DÓMUR Kjararáðs um launa-
kröfur opinberra starfsmanna á
hendur fjármálaráðherra f. h.
ríkissjóðs, féll á miðvikudaginn.
Var úrskurðurinn á þá leið,
að grunnlaun þeirra lægst laun-
uðu, þ. e. kr. 18.018 eða lægri
mánaðarlaun, skulu umreiknuð
til hækkunar frá 1. des. sl. að
telja, til samræmis við samn-
inga Alþýðusambands bg at-
vinnurekenda frá 4. des. í vetur.
Lægstu grunnlaun hækka því
frá 1. des. sl. sem hér segir:
15.000 verða 15.600, 15.780 verða
16.250, 16.780 verða 17.057 og
17.780 verða 17.837.
Áfangahækkunin, sem koma
átti 1. júlí 1972, kemur 1. júní
1972.
Laun ríkisstarfsmanna hækka
FRA LOGREGLUNNI
DRENGUR á þriðja ári varð um 7% 1. marz 1973.
fyrir bíl í Hamarsstíg í fyrra-
dag. Hann var fluttur í sjúkra-
hús og var handleggsbrotinn.
Mannlaus bíll rann á næstu
lóðargirðingu í Glerárhverfi
sama dag og skemmdi hana.
Tveir árekstrar urðu í fyrra-
dag í umferðinni en ekki slys á
fólki.
Rólegt hefur verið í bænum
síðustu daga. □
Niðursokknir í skaftaskýrslur
Vopnafirði 9. marz. Oft er hér
hlýast á landinu í vetur, og
ekki þurfa menn yfir veðrátt-
unni að kvarta. Snjólaust er
upp á fjallatoppa. Það ætti að
liggja vel á bændum og gerir
þa ðeflaust, nema þeim, sem eru
að strita við skattaskýrslurnar
sínar.
Hinn 27. janúar brann á
Fremri-Nípum, hjá Jósef bónda
Þorgeirssyni, og skemmdist
íbúðarhúsið mjög, t. d. brann af
því þakið og sitthvað fleira varð
eldinum að bráð, þótt húsið
væri að mestu úr steini. Með
dugnaði og góðri aðstoð
nágrannannna gat fólki ðflutt í
húsið á ný mánuði síðar, enda
var tíð' hagstæð.
Félagslíf hefur tekið breyt-
ingu. Nú er meira um lokaða
félagsstarfsemi að ræða en áður
Nýkeypti skuttogarinn Sólbakur að hefja fyrstu veiðiferð sína. Einn af gömlu togurum ÚA,
Harðbakur EA3, sést einnig á myndinni. (Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson).
Ráðstefna á Akureyri um atvinnumál
Starfsaldursákvæði breytast
þannig frá 1. júní 1972, að í stað
6 ára starfsaldurs kemur 1 árs
starfsaldur og í stað 12 ára
starfsaldurs kemur 6 ára starfs-
aldur.
í Kjaradómi eiga sæti Guð-
mundur Skaptason, sem er for-
maður dómsins, Jónas H.
Haralz, Benedikt Blöndal, Jón
Sigurðsson og Karl Guðjónsson.
var, en minna af opinberum
skemmtisamkomum. Hins vegar
hafa klúbbar og félög sína
ákveðnu samkomudaga fyrir
sitt fólk.
Laxánum e rþegar ráðstafað,
og hafa sömu aðilar þær á leigu
og síðasta sumar. Veiði var all-
góð í öllum ánum í Vopnafirði
sl. sumar. Þ. Þ.
FJÓRÐUNGSSAMBAND Norð
lendinga og Alþýðusamband
Norðurlands boða til ráðstefnu
um atvinnumál á Norðurlandi,
sem haldin verður í Lands-
bankasalnum á Akureyri 11. og
12. marz n. k. og hefst á laugar-
dag kl. 1.30. Megin viðfangsefni
ráðstefnunnar verða málefni
sjávarútvegs og fiskiðnaðar,
ennfremur almenn iðnþróun á
Norðurlandi. Til ráðstefnunnar
verða boðaðir fulltrúar sveitar-
stjórna, atvinnumálanefnda og
verkalýðsfélaga.
Á ráðstefnunni verða flutt
framsöguerindi um eftirfarandi
efni: Björn ‘Jónsson, formaður
Alþýðusambands Norðurlands,
ræðir um verkalýðshreyfinguna
og atvinnumálin. Hilmar Daní-
elsson, sveitarstjóri á Dalvík,
ræðir um sveitarfélögin og norð
lenzka atvinnuþróun. Ragnar
Arnalds, formaður stjórnar
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
ræðir um hlutverk og megin-
stefnu stofnunarinnar. Ingvar
Hallgrímsson, forstjóri Hafrann
sóknarstofnunarinnar, ræðir um
hafrannsóknir og fiskileit. Um
þróun útgerðar á Norðurlandi
ræðir Vilhelm Þorsteinsson, for-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga, og um stöðu fiskiðnaðar-
ins á Norðurlandi ræðir Mar-
teinn Friðriksson, framkvæmda
stjóri Fiskiðjunnar á Sauðár-
króki. Framkvæmdastjóri Iðn-
þróunarstofnunarinnar, Sveinn
Björnsson, ræðir um iðnþróun
og uppbyggingu iðnaðar. Jón
Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins, ræðir um úrvinnslu-
iðnað, einkum matvælaiðnað.
Að loknum framsöguerindum
munu ráðstefnugestir skiptast í
starfshópa til að ræða einstök
verkefni. Ráðstefnunni lýkur á
sunnudaginn 12. marz.
Til ráðstefnunnar eru einnig
boðaðir alþingismenn úr Norður
landi og forstjórar Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins. Ráð-
stefna þessi er undirbúin af sam
starfsnefnd Alþýðusambandsins
og Fjórðungssambandsins.
Öllum áhugamönnum um at-
vinnumál er heimil fundarseta.
Stjórnarandsfæðingar í tíðarfari
Loðnan gefur góðan ar<
SAGT ER, að hásetahlutir á
loðnuvertíðinni hafi komizt upp
í 300 þús. kr. En nokkrir bátar
eru með svo mikinn afla, að
gefa þennan hásetahlut. En
loðnuævintýrinu virðist vera
lokið að þessu sinni. Verksmiðj-
Grásleppuveiði hafin
Hrísey 10. marz. Sá fyrsti sem
lagði grásleppunet fékk tvær
tunnur af hrognum úr gráslepp
unni í fyrstu umvitjun. Spáir
það góðu um framhald þeirra
veiða.
Hér hefur verið unnið undan-
farna daga á frystihúsinu við
afla úr Snæfelli, sem landaði 76
tonnum á sunnudaginn. Þá reit-
ir Sigurveig ögn í net, og byrjað
er að fiska á handfæri, en afli
er tregur ennþá.
Kvenfélagið í Hrísey hefur
boðið kvenfélagskonum úr
Svarfaðardal til samsætis hér á
morgun, laugardag. Því miður
einangra konur sig í boðum sem
þessum og vilja lítt sinna okkur
körlum. Finnst ýmsum þetta
þröngsýni. S. F.
ur frá Vestmannaeyjum til
Breiðafjarðar hafa ákveðið að
hætta að taka á móti loðnu til
vinnslu frá kl. 24 n.k. sunnudag.
Kemur þar bæði til verðfall á
afurðanum og að verðjöfnunar-
sjóður mun upp urinn, auk þess
sem þróarrými er hvergi fyrir
hendi á þessu svæði, eins og er.
Sunnanfréttir segja, að tveir
loðnubátar, fullfermdir, sem
liggja í Reykjavík og hafa legið
undanfarna sólarhringa, komist
hvergi að til löndunar, og hafa
skipstjórarnir við orð að moka
loðnunni í sjóinn.
Um s.l. mánaðamót lækkaði
loðnuverð til sjómanna.
Heildaraflinn er yfir 250 þús.
tonn og hefur aldrei verið svo
mikill áður. Q
Gunnarsstöðum Þórshöfn 9.
marz. Það sjást aðeins fanna-
grottar undir hæstu hverkum,
svona eins og vant er seinnihlut
ann í maí.
Byrjað er að reita ofurlítið í
net og sjómenn álíta, að ganga
sé að koma. Harpan landaði 40
—50 tonnum á laugardaginn.
Rauðmagaveiði er heldur góð,
en grásleppan er ókomin.
Við erum búin að spila fyrri
umferð í Framsóknarvistinni og
munum spila þá síðari á næst-
unni.
Fólk er fátt á bæjum, jafnvel
svo að það á naumast heiman-
gengt. En annars er mannlífið
fremur fagurt hér um þessar
mundir. Menn eru bjartsýnni en
oft áður og hyggja á byggingar
útihúsa. Og nýbýlingur ætlar að
hefja framkvæmdir í vor á
Syðri-Brekkum, og annar nýbýl
ingur er á Sauðanesi, og hefur
þegar kornið upp allmiklu fjár-
búi.
Ég talaði við 77 ára mann um
daginn, sem gengur að allri
vinnu ennþá. Hann var óánægð
ur með veðráttuna, svo að ég
sagði við hann: Þú ert alltáf
stjórnarandstæðingur í tíðar-
fari. Ja, sagði karl. Ef ég stjórn-
aði, þá stjórnaði ég ekki svona.
Ég léti ekki fé fenna í ágúst né
gróa á góunni.
Svartþröst sá ég í fyrradag,
og Gunnar bróðir sá uglu hér
um daginn. O. H.
Hvasst víða
f GÆR var mikið hvassviðri á
Akureyri og við Eyjafjörð. I
bænum faulc margt lauslegt, svo
sem öskutunnur og barnavagn-
ar, en einnig járnplötur af hús-
um, t. d. af húsi í byggingu í
Skarðshlíð og járnplötur losn-
uðu á húsi einu við Strandgötu.
Einhverjar þakskemmdir urðu
á Sólborg og bíll varð fyrir
skemmdum af áfoki. □
DAGUR
kemur út á miðvikudaginn, 15.
marz. Q