Dagur - 11.03.1972, Side 6
UJú
6
AÐALFUNDUR kvennadeildar
Slysavarnafélagsins verður á
Hótel KEA sunnudaginn 12.
marz kl. 3.30, en ekki 4.30 eins
og stóð í síðasta blaði. Konur,
mætið vel og stundvíslega. —
Stjórnin.
HJÚKRUNAR-
KONUR. Fu
s HJUKKLNAl
.<p\KONUR. Fundur í
l-'Systraseli 13. marz
............ 21.00. —
Þakkir Stórstúkunnar
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur í Félagsheimili templ-
ara, Varðborg, mánudaginn
13. þ. m. kl. 9 e. h. Venjuleg
fundarstörf. Hagnefndaratriði.
Nýir félagar velkomnir. —
Æ.t.
AMTSBÓKASAFNIÐ er opið
alla virka daga frá kl. 1—7
e. h. Laugardaga frá kl. lOf. h.
til 4 e. h. Sunnudaga kl. 1—4
e. h.
FÉLAGSVIST verður hjá Skag-
firðingum og Þingeyingum 18.
marz. Nánar auglýst í næsta
blaði.
FRAMKVÆMDANEFND Stór-
stúku íslands samþykkti nýlega
á fundi sínum:
„Framkvæmdanefnd Stór-
stúku íslands I.O.G.T. þakkar
það mikla starf, sem Kristján
Pétursson deildarstjóri, Kefla-
víkurflugvelli, hefur leyst af
höndum í baráttu gegn sölu
eyturlyfja hér á landi. Jafn-
framt skorar framkvæmdanefnd
in á stjórnvöld landsins að stór-
auka fjárframlög til þess að
eiturlyfjanefndin svonefnda,
Kristján Pétursson og aðrir
áhugamenn, geti beitt sér til
betri árangurs í þessum mál-
um.“ □
iRÍÍiÍÍÍÍH*
Bifreiðin A—178, sem er
Chevrolet Biscayne,
árgerð 1965, er til sölu.
Gísli Konráðsson, Odda-
götu 15, Sími 1-15-90.
2—3 tonna trillubátur
óskast til kaups.
Uppl. í Gránufélagsgötu
21.
Vantar notaða liarmon-
ikku. Helzt 80 bassa.
Uppl. gefur skólastjór-
inn Húsabakkaskóla,
sími 6-11-11.
Skíðafólk ath.:
Sá sem fékk röng skíði í
rútunni úr Hlíðarfjalli
16. febrúar s. 1. (öskiu-
daginn), vinsamlega
hringi í síma 1-17-79.
Vemdum Vaðlaskóg
(Framhald af blaðsíðu 2).
yfir 1 km. Aðalatriðið er að bíla
vegur má ekki koma inn í reit-
inn. Það yrði smám saman hrein
eyðilegging. Nú skal viður-
kennt, að Akureyrarbær á ekki
þennan umrædda reit og ber
strangt tekið því enga ábyrgð á
honum. Þessi reitur er á vegum
Skógræktarfélags Eyfirðinga og
friðhelgur á meðan hann er ein-
göngu notaður til skógræktar,
og er nú farið að gera þarna
vísindalegar tilraunir og athug-
anir í sambandi við tilrauna-
stöðina á Mógilsá. Skora ég á
Skógrækt ríkisins, að leggjast á
eitt með okkur, sem krefjumst
friðhelgi þessa lands, sem fimm
víðsýnir og fórnfúsir bændur
hérna á móti Akureyri létu
Skógræktarfélaginu ókeypis um
ráð yfir. Þá er skylt að minnast
þess, að merkur borgari Akur-
eyrarbæjar, gaf stóra upphæð á
þess tíma mælikvarða til þess
að girða landið og gróðursetja
þar fyrstu trjáplönturnar. Er
fullvíst, að þarna er búið að
verja fleiri milljónum króna, ef
gjafavinna og plöntukaup eru
talin með. Má til dæmis geta
þess, að á síðasta sumri var var-
ið nokkuð á annað hundruð þús
und krónum til þess að endur-
nýja hina 35 ára gömlu girð-
ingu.
Mér er annars vel minnis-
stætt fyrst er ég heýrði minnzt
á skógarreiti á móts við Akur-
eyri, en það var veturinn 1915,
er ég var í fyrsta bekk Gagn-
fræðaskólans. Það var í náttúru
fræðitíma hjá Stefáni Stefáns-
syni skólameistara. Hann gekk
út að glugganum í kénnslustof-
unni og benti yfir í Vaðlaheið-
ina og mælti: Þarna verða í
framtíðinni ræktuð skógarbelti
eða reitir, þar sem erfitt er til
tún- eða garðræktar. Skógar
skýla öðrum gróðri og fegra
umhverfið.
Hvað viðvíkur ferðamanna-
málum, hygg ég að þau byggist
fyrst og fremst á því að okkur
takist að varðveita sem mest af
landinu óspilltu af umróti nú-
tímatækni.. Ekki svo að skilja,
að við megum ekki rækta og
fegra landið, en við verðum að
skilja, að flestir útlendinganna,
sem hingað koma, eru annað
hvort náttúruskoðendur eða
nátturufræðingar. Flest af þessu
fólki safnar t. d. myndum, stein-
um eða þurrkuðum, íslenzkum
jurtum. Hef ég séð nokkra út-
lendinga koma með þurrkaðar
íslenzkar plöntur í Lystigarðinn
og nafngreina þær þar í, með
því að bera þær saman við nöfn
í grasasafninu. Margt af þessu
útlenda fólki er í ýmsum klúbb-
um heima hjá sér, og flytur þar
erindi frá ferðum sínum hér á
landi, er heim kemur.
Væri ekki athugandi fyrir
hótelin hér, að útvega sér lítinn
hraðbát og gefa hótelgestum
kost á, í góðu veðri, að sigla um
Pollinn, skreppa í land við
Veigastaðabás og lofa farþegum
að skoða sig lítilsháttar um og
taka myndir o .s. frv. í friðland-
inu. En þar má aldrei bílvegur
koma. Þá má sigla út fjörðinn,
koma við á stöku stað, og hafa
handfæri með handa þeim, sem
vildu renna fyrir fisk. Hafa svo
Hrísey sem endastöð, þar sem
menn gætu fengið kaffi, te eða
einhverja hressingu. Að vorinu
væri svo hægt að sjá miðnætur-
sólina áður en haldið væri heim
á leið. □
SAMBANDSFRÉTTIR
(Framhald af blaðsíðu 8)
þessari vetrarvertíð á íslandi og
í Noregi verður ekki hægt að
selja alla framleiðsluna. Verð-
lækkun er því óhjákvæmileg,
enda er hún að nokkru leyti
þegar komin fram.
FRA VÉLADEILD.
Veruleg söluaukning.
Rekstur Véladeildar gekk vel
á árinu 1971 og varð veruleg
söluaukning hjá deildinni frá
árinu á undan, að því er Jón
Þór Jóhannsson framkv.stjóri
tjáði. Heildarvelta deildarinnar
varð 584 millj. kr. á móti 377
millj. 1970, og varð aukningin
svipuð í öllum undirdeildum, en
þó mest í Bifreiðadeild.
Jón Þór gat þess einnig, að
árið hefði verið deildinni mjög
hagkvæmt.
Umboðssamningur við General
Motors.
Samkvæmt nýrri skipan mála
hjá General Motors tekur fyrir-
tækið upp þann hátt að gera um
boðssamninga sína til fimm ára
í senn, og í samræmi við það
féll samningur Véladeildar úr
gildi um sl. áramót.
Fyrir stuttu kom hingað til
lands sérstakur fulltrúi General
Motors, mr. A. F. Roser, til að
undirbúa nýjan samning. Nýr
einkaumboðssamningur var svo
undirritaður af hálfu Sambands
ins af þeim Erlendi Einarssyni
forstjóra og Jóni Þór Jóhanns-
syni framkv.stjóra, sem gildir
til næstu fimm ára og tekur yfir
alla bílaframleiðslu General
Motors, varahluti og aðrar
skyldar vörur.
í sambandi við þetta má
nefna, að General Motors er að
gera gjörbreytingu á fyrirkomu
lagi í útflutningi sínum. Þannig
hafa þeir nýlega opnað nýja
svæðisskrifstofu í Dublin, sem
Véladeild mun væntanlega
skipta við, en hún heyrir aftur
undir aðalskrifstofu í London
fyrir alla Evrópu.
Barnavagn til sölu.
Uppl. í Norðurgötu 10,
milli kl. 18 og 19.
Fermingarföt til sölu.
Uppl. í síma 1-14-97.
Sjálfvirk þvottavél til
söiu af sérstökum
ástæðum.
Tækifærisverð.
Uppl. í síma 2-11-55.
Vil selja tveggja ljáa
sláttuvél (Busatis) í góðu
lagi.
Karl Þorleifsson,
Hóli v. Dalvík.
Til sölu 2 manna svefn-
sófi.
Uppl. í Fjólugötu 18.
Óskurn að taka á leigu
2—3 herb. íbúð strax.
Uppl. í síma 2-18-53
eftir kl. 6 á kvöldin.
Varahlutaverzlun að Bíldshöfða
Véladeild hefur nú að nýju
yfirtekið verzlun með varahluti
fyrir Vauxhall og Bedford
bifreiðir. Hefur deildin því opn-
að verzlun að Bíldshöfða 8, þar
sem þessar vörur verða seldar.
Sumarsala Búvéladeildar
undirbúin.
Hjá Búvéladeild er nú þegar
hafin afgreiðsla tækja fyrir
næsta sumar, að því er Gunnar
Gunnarsson deildarstjóri tjáði.
Á þetta einkum við um ýmis
vorvinnutæki, sérstaklega drátt-
arvélar, plóga, herfi og áburðar
dreifara.
Að því er varðar. heyvinnu-
vélar, þá eru fyrstu sendingar
þegar komnar af sláttuþyrlum,
heyþyrlum, heyhleðsluvögnum
og heybindivélum.
Þungavinnuvélar.
Þá má og segja, að Búvéla-
deild standi á tímamótum að því
er varðar innflutning þunga-
vinnuvéla, því að nú.er búið að
flytja inn nokkrar beltavélar af
stærstu gerð frá International
Harvester og Priestman. Þar á
meðal eru International TD 25C
jarðýta, sem vegur um 36 tonn
tilbúin til vinnu, og Priestman
Mustang 220, alvökvaknúin graf
vél, sem vegur um 22 tonn.
Báðar þessar vélar eru nú til
sýnis við Ármúla 3.
FRA BÚVÖRUDEILD.
Kjöt Iestað til Norðurjanda.
Um þessar mundir er verið að
lesta 450—500 tonn af dilkakjöti
í ms. Skaftafell, sem fara á til
Noregs og Svíþjóðar, að því er
Agnar Tryggvason fraihkv.stjóri
tjáði. Auk þess er gert ráð fyrir,
að Skaftafellið lesti aftur 2—300
tonn af dilkakjöti fyrir sömu
markaði nú síðar í vor.
Hrossasalan liafin .
Þá eru komnir hingað til
lands tveir Þjóðverjar, sem
kaupa hross á Súður- og Norður
landi. Hafa þeir þegar keypt 50
hross, sem verða send utan nú
í byrjun marz. Er þetta mun
fyrr á árinu en verið héfur und-
anfarin ár, sem stafar af auk-
inni eftirspurn eftir íslenzkum
hestum í Þýzkalandi.
FRA INNFLUTNINGSDEILD.
Vel heppnúð byggingaráðstefna.
Dagana 21. og 22. febrúar sl.
efndi Byggingavörudeild til
kynningar- og fræðslúráðstefnu
um byggingavörur. Var hún
haldin í félagsheimilinu Hamra-
görðum, og sóttu hana 25 full-
trúar kaupfélaganna.
Á ráðstefnunni voru haldin
allmörg erindi um einstaka
þætti varðandi innflutning og
sölu á byggingavörum. Sömu-
leiðis urðu þar allmiklar um-
ræður, auk þess sem þátttak-
endur báru fram allmargar
fyrirspurnir um einstök atriði,
sem starfsmenn deildarinnar
svöruðu.
Ómar Kristjánsson fulltrúi í
Byggingavörudeild sagði, að
ráðstefnur sem þessi hefðu ekki
verið haldnar áður, heldur væri
hér um nýjung að ræða, sem
fitjað hefði verið upp á í til-
raunaskyni. Telja yrði, að þessi
tilraun hefði tekizt mjög vel. □
- Smáþjóð í örum vexti
(Framhald af blaðsíðu 4)
aði um helming (100%) á næstu
40 árum og yrði þá nál. 350 þús.
um næstu aldamót. Nú reynast
mannfjöldaspárnar örðugri en
þær þá virtust vera. Verði fram-
hald á þróun áranna 1969—70
má segja, að ekki blási eins byr-
lega og útlit var fyrir um skeið
um þjóðarfjölgun. En hvort sem
íslendingum gengur betur eða
verr að standast freistingar um-
heimsins og hvort sem þau börn
verða fleiri eða færri, sem fá að
líta dagsins Ijós á komandi ár-
um, er nú ástæða til að ætla, að
hallæri, landfarsóttir og barna-
dauði í þeim mæli, sem fyrrum
þekktist, heyri aðeins til liðinni
tíð og endurtaki sig ekki, og þá
verða þeir vitanlega margir,
sem að óbreyttum lífsmöguleik-
um fyrri alda, hefðu dáið fyrir
aldur fram, en nú fá að lifa og
starfa í landi sínu. En nærri læt
ur, að dvergþjóð sú, er landið
byggði um 1800 og þá hafði ekk
ert vaxið í heila öld, hafi þre-
faldast að fólksfjölda á síðustu
70 árum.
En það munar miklu, hvort
þjóðinni fjölgar um ca. 2% á ári
eins og á timabilinu 1946—60
eða aðeins um ca. %% eins
og á árunum 1969—70. Byggð á
íslandi er nú nál. ellefu alda
gömul og fólksfjöldinn stóð
lengi í stað. Ef þjóðinni fjölgaði
um 2% ó ári yrði hún eftir tvær
aldir orðin ca. 12 milljónir, en
ef fjölgunin yrði aðeins 14%
yrði hún á sama tíma ca. 14
milljón. í fyrra dæminu tvö-
faldast fólksfjöldinn á 35—36
árum, en í síðara dæminu á 139
árum. □
, , X
Eg þakka lrjartanlega hörnum mínum, tenf(da- £
börnum og barnabönum og öðrum þéirh. íem %
glöddu mig með heimsóknum, gjöjum/blönidm ©
á áttrœðisafmcclinu 6. þ\ ni! 1 O
f
t
I
I
I
I
st
og heillaskeylum á áttrœðisafmœlii
Guð blessi ykkur öll.
SÍGRÚN HJARTARDÓTTIR,
Melgerði 2, Glerárhverfi.
t
<3
ELÍN INDRIÐADOTTIR
frá Hofi
andaðist í Fjórðungssjúkraluisinu á Akureyri 7.
þ. m. Jarðarförin fer fram að Möðmvöllum í
Hörgárdal þriðjudaginn 14. rnarz kl. 2 e. h.
Bílferð verður frá BSO saima dag kl. 1.30.
Vandamenn.