Dagur - 12.04.1972, Blaðsíða 1
Dagur
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 12. apríl 1972 — 19. tölublað
TIL LESENDANNA
BLAÐIÐ vill vekja athygli
hinna mörgu viðskiptavina
sinna á því, að vegna breyttra
vinnuhátta þess og í prent-
smiðju þurfa öll handrit að vera
vélrituð og ekki þéttara en í
aðra hvora línu. Einnig er
áherzla lögð á, að öll handrit
berist svo snemma, að unnt sé
að taka á móti þeim til birtingar
á þeim tíma, sem óskað er eftir,
eftir því sem rúm blaðsins
leyfir.
Eins og oft hefur hér verið
tilkynnt, þurfa auglýsingahand-
ritin að berast blaðinu fyrir há-
degi á þriðjudag, eigi þær að
komast í miðvikudagsblaðið, en
fyrir hádegi á föstudag, eigi þær
að birtast í aukablöðum á laug-
ardag.
Gjaldskrá auglýsinga er mið-
uð við staðgreiðslu, nema á
annan hátt sé um samið. Blaðið
tekur þó auglýsingar í gegnum
símann, en innheimtukostnaður
bætist þá við auglýsingaverðið,
og er fólk beðið að athuga þetta.
Þá vill blaðið nota tækifærið
og fagna enn stórum hópi nýrra
áskrifenda, og þakka mikil og
vaxandi samskipti á mörgum
sviðum. ' Q
Fjárdráffarntal í rannsókn á Ak.
UM þessar mundir er í rann-
sókn hjá embætti bæjarfógetans
á Akureyri, fjárdráttarmál
Komdu kiðlingur
ÞEGAR Friðrik Eyfjörð á Finna
stöðum á Látraströnd fór
á sjó á sunnudaginn, sá hann
kiðling á Grímsnesi á Látra-
strönd, eyðibýli, fór í land og
sótti hann. Þannig stóð á þessu,
að Ingólfur Benediktsson rak
geitur sínar þangað norður í
sumar. Var þá ein óborin og bar
hún síðar um sumarið. í haust
týndist þessi síðborni kiðlingur
í rekstri, er geiturnar voru sótt-
ar. Var hann talinn af, en kom
nú í leitirnar og var allvel á sig
kominn, hornaprúður hafur, og
kann hann vel við sig meðal
manna og dýra. □
tveggja starfsmanna embættis-
ins, sem við það eru riðnir. Er
talið, að um verulegar fjárupp-
hæðir sé að ræða, Eru báðir
þessir menn nú hættir störfum
hjá embættinu, sagði annar upp
starfi sínu um síðustu áramót,
en hinn hefur verið látinn hætta
störfum.
Blaðið leitaði umsagnar bæjar
fógetans á Akureyri, Ofeigs
Eiríkssonar, um mál þetta.
Sagði hann, að fjárdráttur þessi
hefði komizt upp fyrir nokkru
og unnið hefði verið að því að
kanna, hve umfangsmikill hann
væri. Á þessu stigi vildi hann
engar ákveðnar tölur nefna, en
sagði menn þessa hafa unnið
við tollafgreiðslu og dregið sér
fé frá embættinu, en væntan-
lega ekki frá viðskiptavinum,
sagði bæjarfógeti að lokum. □
Ungl fólk heldur lónleika
BÚIÐ er að stofna „músik-
grúbbu“ á Akureyri, sem kallar
sig Kirkjutónlistarsveitina á
Akureyri og er sveit ungra
kvenna og karla. Meðal þeirra
eru átta blásarar úr Lúðrasveit-
Sigurður Óli Brynjólfsson,
bæjarfulltrúi.
inni. Þetta fólk heldur tónlistar-
kvöld í Akureyrarkirkju n. k.
sunnudagskvöld kl. 9.
Auk blásaranna kemur fiðlu-
leikarinn M. Clarke frain með
tveim nemendum sínum. Enn-
fremur er einsöngur hans og
Jóns Hlöðvers Áskelssonar,
Gígja Kjartansdóttir leikur ein-
leik á orgel. En sá, sem fyrir
þessu stendur og stjórnar, er
norski lúðrasveitarstjórinn,
Roar Kvam. Þótt hér séu til-
nefndir kennarar Tónlistarskól-
ans á Akureyri, eru þessir tón-
leikar ekki á neinn hátt á veg-
um Tónlistarskólans, heldur er
hér að verki áhugafólk um tón-
list.
Leikin verða og sungin verk
nokkurra gömlu meistaranna,
er uppi voru á sextándu og
seytjándu öld.
Væntanlega verður framhald
á frjálsu tónlistarstarfi þessa
unga áhugafólks. □
Fundur um íjárhagsáællumna
Á MORGUN, fimmtudag, halda
Framsóknarfélögin ó "Akureyri
fund um fjárhagsáætlun bæjar-
ins, sem var til fyrri umræðu í
bæjarstjórn í gær, og er sagt
frá henni á öðrum stað í blaðinu
í dag.
Frummælandi á þessum fundi
verður Sigurður Óli Brynjólfs-
son bæjarfulltrúi.
Félagsmenn eru hvattir til að
sækja fund þennan og kynnast
fjórhagsáætluninni. Frummæl-
andi svarar fyrirspurnum fund-
armanna. □
t
¥ Akureyri. (Ljósni.: Eðvarð Sigurg.)
©
5'^*->-©'^*-V©'>-*'>-©'>-*«>-<^*'í.<©->-*'í'©'Hrc*©'í-í-*->.©'^*->.©')-*->.©'^*->.©'H|t'>4^**->-©'**'í^'*HS'M^*'>-©'H|i'W&'H|S'
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs til fyrri umræBu
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Akureyrarkaupstaðar var
til fyrri umræðu á bæjarstjórn-
arfundi í gær. En fjárhagsáætl-
unin er seinna á ferðinni en
áður vegna breytinga á tekju-
stofnalögum sveitarfélaga, svo
sem alkunnugt er.
Helzta breytingin er sú, að nú
eru útsvör reiknuð beint af
brúttótekjum í stað þess að vera
stighækkandi. Nú getur útsvar
mest orðið 11% af brúttótekjum
en gat orðið um 30% áður. Við
samanburð á tekjum bæjarsjóðs
á þessu ári og sl. ári, kemur í
ljós, að útsvör verða hlutfalls-
lega mun minni hluti af tekjum
bæjarsjóðs en áður. Hins vegar
hækka fasteignaskattar og tekj-
ur af fasteignum verulega. Að-
stöðugjöldin nema nú aðeins
65% af því sem þau hefðu orðið,
að óbreyttu.
Tekjuöflunarleiðir bæjarsjóðs
sýnast ekki hafa verið skertar
mjög með hinum nýju lögum,
þótt erfitt sé um samanburð
vegna gífurlegra tekju- og verð-
gildisbreytinga milli ára. Og að
þessu sinni hækka niðurstöðu-
tölur fjárhagsáætlunarinnar
verulega, eða úr 211 millj. kr. í
262 millj. kr. Til fróðleiks má
minna á, að 1950 var niðurstöðu
tala fjárhagsáætlunar bæjar-
sjóðs tæpar 8 milljónir, en 1960
rúmar 20 milljónir, og síðan hef-
ur þessi þensla haldið áfram.
Svo sem sjá má á fjárhags-
áætluninni, hefur ríkið tekið að
sér greiðslu almannatrygginga,
þannig, að gjaldaliður til trygg-
inga lækkar úr 38 millj. kr. nið-
ur í 16 millj. kr. Og hlutur bæj-
arsjóðs í löggæzlukostnaði fell-
ur niður, en báðir þessir kostn-
aðarliðir hefðu að óbreyttu stór
hækkað.
Þá er vert að geta þeirrar stór
breytingar á framlagi til Fram-
SVONEFNDIR Miðkvíslarmenn
efndu til fundar í Skjólbrekku
á laugardaginn. En svo kalla sig
miklu fleiri en þeir, sem dæmd-
ir voru vegna þess að þeir rufu
Miðkvíslarstíflu, og þeir 113,
sem lýstu sig samábyrga í því
máli. Fundurinn var allvel sótt-
ur. Þar voru samþykktar tvær
ályktanir og eru þær svohljóð-
andi:
„Fundur Miðkvíslarmanna,
haldinn í Skjólbrekku 8. apríl
1972, lýsir ánægju sinni yfir stað
festingu Hæstaréttar á þeirri
skoðun Þingeyinga, að Miðkvísl
arstífla hafi verið ólögleg. Heitir
fundurinn á Þingeyinga og aðra
kvæmdasjóðs bæjarins, að í stað
þriggja milljóna krónu framlags
í fyrra, er nú gert ráð fyrir
fimmtán milljónum króna. Staf-
ar þetta einkum af fram-
lagi bæjarins til smíði tveggja
stórra togara og vegna hluta-
bréfakaupa í Slippstöðinni.
Verður þetta að skoðast veru-
legur stuðningur bæjarstjórnar
við atvinnuuppbygginguna í
bænum.
Sjá nánar rekstraráætlun bæj
arsjóðs á blaðsíðu 4.
náttúruverndarmenn, að fylgja
fast eftir þeim sigri, sem unnizt
hefur með þessari opinberu við-
urkenningu.“ Samþykkt sam-
hljóða.
Hin ályktunin er svohljóð-
andi:
„Fundur Miðkvíslarmanna
haldinn í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit 8. apríl 1972, beinir
þeirri eindregnu áskorun til
Laxárvirkjunarstjórnar og raf-
orkuráðuneytisins, að þessir
aðilar láti á komandi vori, á
sinn kostnað, hreinsa burt úr
Laxá leyfar Miðkvíslarstíflu,
svo og steinbákn það, í miðri á,
er silungastigi er kallaður. Það
kemur ekki til mála, að Mið-
kvíslarstífla verði reist að nýju,
enda hefur reynslan skorið ótví-
rætt úr um gagnsleysi stíflunn-
ar fyrir rennslisöryggi Laxár.
Er það hagsmunamál allra, að
það verk, sem hafið var við
Miðkvísl 25. ágúst 1970, verði
lokið. Ofangreindum aðilum er
skyldast að kosta slíka fram-
kvæmd, enda hafa Miðkvíslar-
menn litlar þakkir hlotið af
hálfu opinberra aðila fyrir fram
takssemi sína í þessu nauðsynja-
máli.“ □
Lézt af slysförum
I FYRRADAG lézt af slysförum
á Akureyri Uvve Möller, Bjarma
stíg 4. □
YÍÐSKIINAÐURINN VAR EKKÍ GOÐUR
Á AÐALFUNDI miðstjórnar
Framsóknarflokksins, sem
fyrir skömmu var haldinn í
Reykjavík, var m. a. þetta að
finna í ályktun fundarins um
stjórnmál:
„Fundurinn vekur athygli
á því, að viðskilnaður ríkis-
stjórnar Jóhanns Hafstein
var með þeim hætti, að vald-
ið hefur og valda hlýtur veru
legum erfiðleikur í efnahags-
málum þjóðarinnar. Arfur-
inn frá fyrrverandi stjórn er
meðal annars fólginn í þessu:
Viðskiptahalli sl. árs nam
4000 milljónum króna.
Fyrirfram ráðstafað fé af
ríkistekjum þessa árs nam á
þriðja þúsund milljónum
króna.
Vantalin útgjöld á fjárlög-
um síðasta árs námu þúsund
milljónum króna.
Skuldahalli vegna opin-
berra framkvæmda nam
hundruðum milljóna króna.
Óhjákvæmilegum verð-
hækkunum hafði með verð-
stöðvuninni verið skotið á
frest um skeið.
Slík var hrollvekjan.“ □