Dagur - 12.04.1972, Side 8
8
SMÁTT & STÓRT
Barnaskcli á Akureyri í hundrað ár
3VO nefnist nýútkomið rit, gef-
:ð út af fræðsluráði Akureyrar,
en formaður þess er Sigurður
Óli Brynjólfsson. Eiríkur Sig-
urðsson fyrrv. skólastjóri tók
rit þetta saman og er það rúmar
30 blaðsíður, skreytt mörgum
: nyndum, prentað á góðan
uappír.
í formála S. Ó. B. segir meðal
Kaupa skuttogara
'JTGERÐARFÉLAG Skagfirð-
:mga hefur nú undirritað samn-
. nga um kaup á 500 tonna skut-
togara frá Japan. Á togarinn að
koma í febrúarmánuði á næsta
ari. □
anpars: „Barnaskóli Akureyrar,
sem nú hefur starfað í 100 ár og
hinir barnaskólarnir, sem yngri
Eiríkur Sigurðsson.
eru, hafa staðið vel fyrir sínu —
svo vel, að vert er að minnast
þess —. Fræðsluráði þótti því
við hæfi að kynntir væru helztu
þættir í sögu Barnaskóla Akur-
eyrar, þessarar gömlu og virðu-
legu stofnunar og annarra
yngri, sem starfað hafa í sama
anda, stofnana, sem Akureyring
um þykir vænt um og standa í
þakkarskuld vió. Þessu litla riti
er ætlað að kynna þá sögu og
rifja upp nöfn þeirra, sem þar
hafa mest og bezt að unnið.
Þetta rit er vel úr garði gert,
þarft heimildarit, sem margir
munu vilja eigá. Prentun annað
ist Prentsmiðja Björns Jóns-
sonar h.f. □
FLUOR f NEYZLUVATN
Fyrir mörgum árum vakti Dag-
ur máls á erlendri reynslu af
því að blanda fluor í drykkjar-
vatn, sem þá þegar var fengin
og var á þá leið, að tannskemmd
ir fólks minnkuðu ótrúlega eftir
fluor-bætinguna í vatnið. Mál
þetta var tekið á dagskrá hjá
bæjaryfirvöldum, en af fram-
kvæmdum varð ekki.
NÝTT TILEFNI
Nú stendur svo á, að í sumar
verður lögð ný vatnsleiðsla til
Akureyrar vestan frá Þelamörk.
Gefst þá á ný tækifæri til að
taka fluor-málið aftur á dag-
skrá, og nú af fenginni miklu
meiri reynslu fluor-bætingu
vatns en fyrir liendi voru fyrir
»10—15 árum. Rétt er að benda
á, að Vestmannaeyingar ákváðu
fyrir nokkru að setja fluor í
neyzluvatn sitt, og telja það
ódýrt.
AÐ HAFA UPPÚR SÉR
Fastráðnir starfsmenn ýmsra
stofnana, sem eiga að hafa nægi
leg laun til að lifa af, í tryggri,
stöðugri vinnu, sækja það fast,
Bændaklíibbsfundur
verður haldinn á Hótel KEA
mánudaginn 17. apríl n. k. og
hefst kl. 9 e. h.
Frummælandi verður Ingi
Tryggvason blaðafulltrúi og ræð
ir hann um verðlagsmál land-
búnaðarins og fleira. □
margir liverjir, að hafa jafn-
framt annað starf, svo sem búð-
arholu, ein og önnur umboð ö. s.
frv. Er oft um þetta talað og
sýnist flestum, að á þessum
mönnum sannist, að það sé flest
um of mikill vandi að þjóna
tveim herrum, og taka þeir
drjúgan tíma til sinna þarfa af
tilskyldum vinnutíma, til „að
hafa sem mest upp úr sér“.
VAL, SEM GEFST ILLA
Forráðamenn ýmsra stofnana
gera sig of oft seka um að ráða
starfsfólk eftir pólitískum skoð-
unum, meira en góðu hófi gegh-
ir, jafnvel frændsemi, þótt um
opinberar stofnanir sé að ræða.
Gefst þetta oft illa, sem dæmin
sanna. Pólitísk blinda og fjöl-
skyldudekur af þessú tagi hefn-
ir sín og liöfðar ekki til þess
bezta hjá starfsfólkinu.
BÆ J ARST ARFSMENN
í framlialdi af hugleiðingum um
pólitískar, eða aðrar annarlegar
ráðningar manna að opinberum
stofnunum og fyrirtækjum, er
fróðlegt að litast um í starfs-
mannahópi Akureyrarkaupstað-
ar, er þar hafa einkum manna-
forráð. Þar segja kunnugir auð-
séð, að mjög gæti dugnaðar
vissra stjórnmálaflokka, bæði
fyrr og nú, að raða sínum mönn-
um á jötuna, eins og það er orð-
að, án tilhlýðilegrar virðingar á
hæfni manna til starfa. Geta
borgararnir hugleitt þetta bæði
í ganini og alvöru og fengið sín-
ar niðurstöðu.
Litlu munaði á Kálfborgarárvatni
landssöfnun vegna sjónverndarmála
LIONSHREYFINGIN hefur
ákveðið að létta undir og koma
íil liðs við þá aðila, sem hafa
oarizt fyrir umbótum á sviði
sjónverndarmála hér á landi, en
cönnun sem gerð var á þessum
nálum, leiddi í ljós, að ástand
hér á landi í þessari grein heil-
'origðisþjónustunnar hlýtur að
æljast mjög ábótavant og
skjótra úrbóta þörf, einkum er
'arðar ráðstafanir til þess að
eða blindu af völdum hægfara
'ioma í veg fyrir sjónskerðingu
gláku.
Ætlunin er að efna til lands-
söfnunar dagana 15. og 16. apríl
:.i. k. í því skyni að koma upp
jsjónskoðunaraðstöðu sem víðast
á landinu og kaupa nauðsynleg
tæki til augndeildarinnar í
Landakotsspítala. Er þetta eink-
um gert í þeim tilgangi að kom-
ið verði í veg fyrir blindu af
völdum gláku.
Selja Lionsmenn áðurnefnda
daga skrautlega fjöður, sem
kostar eitt hundrað krónur.
Hér á Akureyri munu félagar
beggja Lionsklúbbanna selja
„rauðu fjöðrina“ laugardaginn
15. apríl, og er gert ráð fyrir að
heimsækja sem flest hús í bæn-
um á tímabilinu kl. 15.00 til kl.
18.00 þann dag. Einnig verður
fjöðrin seld á götum í miðbæn-
um fyrir hádegi á laugardaginn.
Lionsklúbbarnir heita á bæjar
búa að bregðast vel við heim-
sóknum Lionsfélaganna n. k.
laugardag og stuðla þannig að
umbótum á sviði sjónverndar-
mála hér á landi. □
Stórutungu 4. apríl. Kaldara
hefur verið nú um sinn, en
snjór þó sáralítill, tæpast nema
grátt yfir að líta. Vegir eru greið
færir og ferðalög ganga eftir
áætlun. Skólafólk er heima yfir
páskana, en það munu vera 40,
börn og unglingar, en það hverf-
ur nú aftur til skóla sinna, sem
eru á Akureyri, Stórutjörnum,
Laugum og hér heima í sveit-
inni.
Inflúensa gengur hér og sums
staðar slæm, og spyr ekki fólk
um, hvort það sé bólusett eða
ekki. Náðzt hefur til læknis á
Mikil veltuaukning hjá Kaupfél. Svalbarðseyrar
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Svalbarðseyrar var haldinn á
föstudaginn, 7. apríl, í samkomu
húsinu á Svalbarðsströnd. En
deildarfundir höfðu áður verið
haldnir á félagssvæðinu, sem
nær yfir Svalbarðsströnd, Höfða
hverfi, Fnjóskadal, Ljósavatns-
hrepp og Bárðardal að hluta.
Fulltrúar voru yfir 30 talsins.
SÆLUVIKA SKAGRRDINGA
Á síðasta ári lét af kaupfélags
stjórastarfi Valtýr Kristjánsson,
en við tók Karl Gunnlaugsson.
Heildarvelta félagsins jókst
úr rúmum 60 milljónum króna
í 86 milljónir rúmar.
Endurbætur fóru á sl. ári
fram á svokölluðu Jakobshúsi
og þar með var bætt aðstaða
fólks, sem á sláturhúsinu vinn-
ur, og ennfremur var verzlunin
gerð að kjörbúð.
HIN árlega Sæluvika Skagfirð-
inga hófst á Sauðárkróki á
sunnudaginn með frumsýningu
NÝ BARNASTÚKA
NÝLEGA fór Ólafur Daníelsson
til Þórshafnar á vegum Umdæm
isstúku Norðurlands og stofnaði
þar barnastúku með 59 félögum.
Hlaut hún nafnið Hafnarlilja.
Gæzlumenn stúkunnar eru Sig-
urður Á. Magnússon lögreglu-
þjónn og frú Guðlaug Jóns-
dóttir.
Áður hefur starfað barna-
stúka á Þórshöfn en ekki hin
síðari ár. □
Leikfélags SaUðárkróks á Landa
bruggi og ást. Leikstjóri er Kári
Jónsson.
Mánudagurinn var að mestu
helgaður unglingum og lagði
Gagnfræðaskólinn sitthvað af
mörkum, og endaði dagurinn
með unglingadansleik.
Leikið verður hvert kvöld vik
unnar og verður frumsýndur í
kvöld, Saklausi svallarinn. Kvik
myndir eru alla daga vikunnar
og einnig dansleikir. Karlakór-
inn Heimir söng í gærkveldi.
Sæluvikunni lýkur á sunnudag-
inn kemur.
Fjölmenni hefur komið á
Sæluvikuna, það sem af er. □
Karl Gunnlaugsson.
Fastráðið starfsfólk við kaup-
félagið er um 12 manns, en í
sláturtíð margfaldast að sjálf-
sögðu það starfslið.
í undirbúningi eru breyting-
ar á útibúinu við Vaglaskóg og
ennfremur á útibúi félagsins á
Fosshóli. Ennfremur standa fyr-
ir dyrum umbætur á kjötfrysti-
húsinu á Svalbarðseyri.
Á aðalfundinn kom Þórarinn
Lárusson hjá Rannsóknarstofu
Norðurlands og hélt erindi um
kjarnfóður og fóðrun, en hann
hefur útbúið fyrir kaupfélagið
þrjár tegundir af kúafóðurblönd
um með tilliti til heygæða eftir
því sem tök voru á, en kaup-
félagið er rétt búið að taka í
notkun fóðurkvörn sem keypt
var frá Danmörku og er ætlun-
in að mala í henni fjórar teg-
undir korns, maís, bygg, rúg og
valsaða hafra. Einnig hefur fóð-
urfræðingur hjá SÍS útbúið
þrjár tegundir fóðurblandna og
er ætlun okkar að senda þessar
blöndunarskriftir til hvers
bónda á félagssvæðinu ásamt
verðlista.
Stjórnarformaður kaupfélags-
ins er Erlingur Arnórsson á
Þverá. □
Húsavík éf á hefur legið, með
góðri fyrirgreipslu símstöðvar-
innar á Fosshóli, Meðöl eru til
á vegum sjúkrasamlagsins, sem
læknir getur vísað á og hefur
það oft komið sér vél.
Það gerðist annan páskadag,
að fimm manns frá Halldórs-
stöðum hér í sveit fóru á Land-
roverbíl upp að Kálfborgarár-
vatni, sem er hér uppi á heið-
inni og ætluðu þeir að renna
fyrir silung. Var bílnum ekið
fram á vatnið og 50 metra frá
landi brast ísinn undan fram-
hjólunum á bílnum. En aftur
hjólin höfðu farað sig niður í
ísinn, svo hann rann ekki lengra
áfram. Fólkið gat opnað bílhurð
að aftan og komist út, fór svo
heim í Engidal, en þar býr Páll
Guðmundsson. En þar kom síma
samband í haust og var því
kallað á aðstoð.
Einnig fóru á páskadag 12
manns frá Akureyri og Reykja-
dal af stað suður á öræfi frá
Mýri. Ekið var um 30 km. suður
og var greiðfært. Þ. J.
Tjaldurinn kominn
UM síðustu helgi sást tjaldur á
Gæseyri, ennfremur í fjörunni
sunnan við Krossanesverk-
smiðju. Voru þeir allir hæglátir,
líklega þreyttir af langri för.
Það er að vísu ekki kunnugt,
hvort tjaldurinn, sem hingað
kemur fugla fyrstur á vorin, er
úr hópi hinna eiginlegu farfugla,
eða kemur aðeins af Suður-
landi, þar sem þessir fuglar eru
að einhverju leyti staðfuglar.
Þá sást um helgina hegri við
veginn skammt frá Stokkahlöð-
um, stór og mikil skepna. Hegr-
ar flækjast hingað stundum á
vetrum og setjast þá að við
kaldavermsl eða volgar lindir.
Álftahjón voru í fyrradag á
flugi hér yfir bænum, eflaust að
athuga auðar tjarnir og vakir
hér í nágrenni. Q